Dagblaðið - 11.08.1976, Síða 7
7
DAGBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 1976
Erlendar
fréttir
REUTER
Afvopnun í Genf:
Vilja
banna
hljóð-
bylgju-
morðtól
Sovétmenn hafa hvatt
Vesturveldin til þess að hefja
samninga um bann við gjör-
eyðingarvopnum, sem eytt
gætu heilu kynstofnum
manna, valdið ófrjósemi og
skemmt innri líffæri með
hljóðbylgjum.
Langur listi yfir um 30 slík
vopn, sem til eru í heiminum,
var lagður fram á afvopnunar-
ráðstefnunni í Genf af fulltrúa
Sovétríkjanna, Viktor
Likachev.
V-Þýzkaland:
Hljóðrítuð
samtöl við
hinnvonda
i
Haldin illum anda: úr
kvikmyndinni Exorcist.
Lögreglan i Aschaffenburg.í
Vestur-Þýzkalandi, sem rann-
sakar dauða 23 ára gamallar
stúlkur er þar lézt á meðan
verið var að reka djöfulinn úr
líkamá hennar, hlustar nú á
segulbandsupptökúr, sem
gerðar voru meðan presturinn
reyndi að flæma hinn vonda í
burtu. Saksóknarinn í hérað-
inu íhugar nú hvort ekki beri
að stefna prestinum fyrir
m'anndráp af gáleysi.
Stúlkan hét Annelise Michel
og stundaði guðfræðinám. Hún
lézt úr næringarskorti í síðasta
mánuði. Að sögn yfirvalda
voru það rómversk-kaþólskir
foreldrar stúlkunnar, sem
vildu láta reka djöfulinn úr
líkama hennar og fengu
söknarprestinn til þess. Hann
tók allar tilraunir sína.r, sem
stóðu í ellefu mánuði, upp á
segulband.
Stríðsmenn hægrisinnaðra kristinna manna, Þjóðfrelsisflokksins, brjóta niður dyr í úthverfi Beirút á
laugardaginn. Bardagar fara harðnandi, enda getur vont lengi versnað.
Síðasta sólsetríð
yfír Tel-AI Zaatar
búðirnar
falli innan
48klst.
Herstjórar herja kristinna
hægri manna, sem setið hafa
um flóttamannabúðirnar Tel-Al
Zaatar í austurhluta Beirút,
segja, að þeir muni leggja þær
undir sig innan 48 klukku-
stunda.
Segja herstjórarnir, að flótta-
mannabúðirnar, sem eru
nánast eina merki hinna áður
öflugu sveita Palestínumanna í
Líbanon, muni falla í dag eða á
morgun, þrátt fyrir öfluga bar-
áttu varnarsveita þeirra gegn
stórskotaliði og leyniskyttum
hægri manna.
Búðirnar, sem eitt sinn hýstu
um 30 þúsund palestínska
flóttamenn og líbanska múham-
eðstrúarmenn, hafa verið í stöð-
ugu skotmáli stórskotaliðs
undanfarna 50 daga.
Að sögn þeirra, sem til sjá,
virðist eins og árásin, sem hófst
í gærkvöldi, sé síðasta tilraunin
til þess að leggja búðirnar í
rústir, enda þótt Palestínu-
menn hafi gert tilraun til þess
að veita viðnám í síðustu ör-
væntingarfullu tilraununum.
Enn er ekki vitað, hversu
margir hafast enn við i búðun-
um og hversu margir þeirra,
sem þar eru, geta barizt.
Árás hægri manna felst í
miklum stórskotaliðsárásum á
búðirnar og um leið reyna
leyniskyttur að komast í húsa-
rústir í búðunum, þar sem
Palestínumenn hafa orðið að
hörfa. Þó hafa þeir svarað árás-
inni eftir megni og m.a. var
herstöð hægri manna í stöðugu
skotmáli frá stöðvum Palestínu-
manna fyrir, utan höfuðborg-
ina.
Töluverður fjöldi fólks, mest
konur og börn og gamálmenni,
hefur flúið úr búðunum og
gefizt upp fyrir hægri mönnum,
en talið er, að þar hafi að mestu
verið um líbanska múhameðs-
trúarmenn að ræða.
Hafði sú staðreynd, að þeim
var leyft að flýja, vakið vonir
manna víða um heim um, að
sættir mættu takast og að hægri
menn ætluðu sér að leyfa al-
mennum borgurum að koma
sér út úr búðunum áður en
þeir létu til skarar skríða.
Hafa hægri menn sagt, að
þeir muni fara með fanga sína
í samræmi við samþykktir
Genfarsáttmálans og að þeir
muni ábyrgjast líf þeirra, er
gefast upp.
Þeir vilja ennfremur leyfa
Alþjóða Rauða krossinum að
flytja alla þá almennu borgara
sem þess óska á brott, en sem
kunnugt er hætti Rauði
krossinn við allar slíkar tilraun-
ir, eftir að skotið hafði verið á
bílalest þeirra.
El Salvador/Hondóras:
Aðeins skammur vermir?
Eviahaf:
„ÁSTANDIÐ
HÆTTULEGT"
segja Críkkir og biðja Öryggisráð
SÞ að taka málið til meðferðar
Grikkir hafa beðið um skyndi-
fund í Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna vegna þess, sem þeir
Karamanlis, forsætisráóherra
Grikklands.
kalla ítrekaðan átroðning Tyrkja í
grískri landhelgi. Sagði í skeyti
grísku stjórnarinnar til SÞ, að
ástandið væri orðið ,,mjög hættu-
legt“.
Talið er að Öryggisráðið — sem
fimmtán ríki eiga sæti í — komi
saman til að ræða málið á
morgun.
Griska stjórnin hefur einnig
beðið Alþjóðadómstólinn í Haag
að setja lögbann á frekari olíuleit
Tyrkja í Eyjahafi, þar sem talið er
víst að mikla oliu sé að finna.
Grikkir telja oliuleitarsvæðið
hluta af landgrunni sínu.
Tyrkneska stjórnin vísar öllum
mótmælum Grikkja á bug sem
..tilhæfulausum fullyrðingum".
Mið-Ameríkuríkin Honduras
og E1 Salvador hafa lýst þvi
yfir, að þau vilji hætta öllum
skærum sín á milli og flytja
heim lið sín frá landamærum
ríkjanna, þar sem þau hafa
staðið grá fyrir járnum
í nokkrar vikur. Hins vegar
gleymdist að ganga frá ákveðnu
samkomulagi um landamæri
ríkjanna og er talið, að hér sé
aðeins um skammgóðan vermi
að ræða.
Leiðtogar herafla beggja
landanna flugu heimleiðis frá
Managua, höfuðborg Nicara-
gua, í gær eftir tveggja daga
viðræður um afvopnun sín á
milli. Er vonazt til þess, að
ríkin komist að samkomulagi,
sem komið gæti í veg fyrir
landamæraskærur af því tagi,
sem urðu 17. júlí sl. og héldu
áfram í nokkrar vikur.
Að sögn heimildarmanna er
aðallega deilt um það, hvaðan
flytja eigi herlið ríkjanna.
Önnur ríki Mið-Ameríku hafa
hvatt til þess, að samkomulag
náist, til þess að hægt verði að
snúa sér að uppbyggingu efna-
hagssambands ríkjanna allra.
Spinola handtekinn við
heimkomuna í gœr
Antomo ae Spínóla. fyrrum
forseti Portúgals var handtek-
inn og fluttur til herfangelsis
er hann kom til landsins í gau-
eftir 17 mánaða útlegð.
Handtökuskipun her-
foringjans var dagsett í marz-
mánuði á síðasta ári. Hann flúði
land eftir að honum hafði verið
gefið ao sök að hafa staðið fyrir
b.vltingartilraun hægri sinn-
aðra herforingja. En vegna'
þess að ríkisstjórnin nýja vill
reyna að sameina þjóðina, telja
fréttamenn, aö Spinola verði
gefnar upp sakir og að hann
ver.ði frjáls ferða sinna innan
skamms.