Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.08.1976, Qupperneq 8

Dagblaðið - 11.08.1976, Qupperneq 8
DACBLAtílÐ MIÐVIKUDALUK 11. ÁGUST 1976 8 Systurnar voru broshýarar, það var greinilega ágætt að þessu var lokið DB-mynd Bjarnleifur íslenzk fjölskylda í heimsókn hér: Upplagt að láta ferma þœr stóru og skíra þœr litlu í leiðinni - sagði móðirin að lokinni ensk- íslenzkri athöfn í Árbœjar- kirkju Þegar Halldór S. Gröndal hafði skírt og fermt fór fram altarisganga. Halldór talaði ensku svo að stúlkurnar væru alveg vissar um hvað fram fór. „Við höfum ekki komið heim í 6 ár og þegar við loks komumst þá fannst okkur upp- lagt að láta ferma stúlkurnar og skíra þær lítlu í leiðinni," sagði Erna Ármannsdóttir. Hún og maður hennar, Pálmar Þórðarson, búa í Pennsylvaníu 1 Bandaríkjunum. Pálmar er út- breiðslustjóri hjá Iceland Pro- ducts 1 Harrisburg, en þar hafa þau búið í 14 ár. Árbæjarkirkja var þétt setin skyldfólki enda er ekki á hverjum degi, sem athöfn sem þessi fer fram. Anna Þóra og Ingibjörg Jóna eru betur vígar á ensku svo að Halldór S. Gröndal fermdi þær upp á nokkuð sérstakan máta. Hann talaði ensku svo að stúlkurnar væru nú alveg vissar á því hvað færi fram. Helea Kristín oe Lovísa Hildur voru dálítið spozkar á svipinn meðan á skírnar- athöfninni stóð og höfðu greini- lega gaman af henni. „Það er mjög algengt að fólk komi heim til að láta ferma og skíra enda miklu skemmtilegra vegna þess að hér eru jú allir ættingjarnir," sagði Erna að lokinni þessari sérstæðu athöfn í Árbæjarkirkju. —KP Fjölskyldan ásamt Halldóri S. Gröndal að lokinni athöfninni fyrir utan Árbæjarkirkjuna. Takkasímar „gœtu verið ó leiðinni": RÍKIÐ TEKUR 106% „Það eru til nokkur tæki en takkasímar verða alltaf að vera dýrari þvi þeir eru einfaldlega dýrari í innkaupi,” sagði Jón Skúlason póst- og simamáia- stjóri í viðtali við Dagblaðið, um innflutning á ýmsum tækni- nýjungum, sem algengar eru orðnar erlendis en eiga víst langt í land hérlendis. „Um- boðsmenn Siemens og L.M. Eriksson í Svíþjóð eru Jóhann Rönning og hins vegar Smith og Norland. Við pöntum annars yfirleitt beint, enda veitir ekki af að halda kostnaði í lágmarki þegar ríkið tekur 106% í tolla og önnur gjöld. Þar er komin ein aðalástæðan fyrir því hversu mönnum finnst þetta dýrt.“ Sagði Jón þaó rétt vera að takkasímar væru orðnir nokkuð algengir erlendis, en af framangreindum ástæðum taldi hann ólíklegt að þeir myndu verða fluttir hingað að einhverju marki og ef svo yrði, yrðu þeir töluvert dýrari. Við- skipti við Bandarikjamenn á þessu sviði taldi hann óhag- kvæm vegfia þess hversu út- breiddar Siemens og L.M. Erikssón gerðirnar væru hér óg eins að bandarísku tækin væru töluvert dýrari. „Svíþjóð er sennilega ódýrast Norðurlandanna hvað varðar stmann," sagði Jón ennfremur. „Þar kostar þriggja mínútna samtal um 50 km vegalengd sem svarar 25 krónum ísl„ hjá Norðmönnum kostar svipað samtal 90 krónur en um 30 krónur hér heima. Innanbæjar kostar þriggja mínútna samtál 20 krónur í Osló, um 7.50 hér í Reykjavík og um 7 krónur í Stokkhólmi." Þá nefndi Jón dæmi um að ársgjaldið fyrir síma í Noregi væri sem svarar 19.300 fsl. krónum en hér á landi væri gjaldið 11.600. Þar til viðbótar kæmu 300 símtöl, sem væru innifalin í verðinu. í Noregi væru hins vegar engin simtöl innifalin og ef þeim væri bætt við yrði ársgjaldið komið upp í rúmlega 25 þúsund krónur. „Svíþjóð er þó enn langlægst, með tæpar 6.700 krónur í árs- gjald," sagði Jón Skúlason að lokum. — HP. KAKKALAKKA VARTÍ LAGARF0SSI Hreinsun f ór f ram í gœrkvöldi og mun ekki tefja skipið I gærkvöldi voru gerðar ráðstafanir til að eyða skor- kvikindum, m.a. kakkalökkum, sem orðið hafði vart í Lagar- fossi í síðustu ferð skipsins. Kom skipið hingað á sunnudag og fulltrúar embættis borgarlæknis skoðuðu aðstæð ur á mánudag. Þórhallur Halldórsson hjá Heilbrigðiseftirlitinu staðfesti þessa frétt í viðtali við DB i gær. Þórhallur sagði að fyrir- tækið hefði brugðizt vel við og samkvæmt fyrirmælum hefðu verið gerðar ráðstafanir til út- rýmingar skórkvikindanna i gærkvöldi. Ekki kvað Þórhallur ásta'ðu tii að a'tla að skipið tefðist af þessum sökum. DB átti og tal við Gunnar örn Haraldsson sem var skipstjóri í síðustu för Lagarfoss. Var ferðin alilöng og viðkoma höfð í mörgum höfnum. Gunnar kvaðst ætla að þetta hefði byrjað í Þýzkalandi, en er á leið hafi meira verið gert úr útbrotum, sem tveir skips- manna — og þó aðallega einn — hefðu fengið, svo og úr aðstæðum í skipinu. Fulltrúar borgarlæknis hefðu lítið fundið við skoðun í skipinu. Gunnar Örn kvaðst sjálfur ætla að útbrot skipsmanna stöfuðu af biti moskítóflugna en menn væru mjög mismunandi næmir fyrir þeini og þeim útbrotum sem af þeint gætu stafað. Kvað hann engar tafir verða á ferðum skipsins af þessum sökum. —ASt.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.