Dagblaðið - 30.08.1976, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. — MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 197?.
Ef Timothy og Dorothy
Severin hafa rétt fyrir sér (eða
réttara sagt komast að raun um
að þau hafi rétt fyrir sér) þá
fær Kólumbus á baukinn.
Hjónin eru sannfærð um að
hann fann ekki Ameríku
heldur írskir munkar sem
sigldu þangað á lekri bátkænu
níu öldum áður en Kólumbus
kom þangað árjð 1492. Hvorugt
Serverin-hjónanna er sérstak-
lega hliðhollt Irum eða neitt
klikkað. Hann er brezkur,
rithöfundur og sagnfræðingur.
Hún er fædd í Ameríku og er
sérfræðingur í sögu miðalda.
Þau hafa gefið út í sameiningu
11 bækur sem eru í mjög mikl-
um metum.
Tekst Severin-hjónunum
að afsanna þó kenningu
að Kólumbus hafi
KRISTÍN
LÝÐSDÓTTIR
Það er nær sanni að kalla
Severin ofurþuga en rithöfund.
Um ritstörfin sér hin vel
menntaða og gáfaða kona hans.
Við gerð tveggja fyrri verka
sinnafetaðihann í fótsporMarco
Polo, á mótorhjóli að visu, og
sigldi niður hið viðsjála
Missisippi-fljót á indíánabáti.
Núna, 35 ára að aldri, er Tim að
takast á við sitt mesta
ævintýratiltæki, siglingu frá
County Kerry til Boston á 36
feta skinnbáti. A slikum báti,
eftir því sem þjóðsagan segir,
náði Benediktamunkur frá
Tralee, Brendan að nafni,
„fyrirheitna landinu“, Norður-
Ameríku 600 árum eftir Krists-
burð Það var kona Serverins,
Dorothy,' sem fyrst kom fram
með hugmyndina að för
þessari. „Á miðöldum vissu
menn í Evrópu um ferð
Brendans," bendir Tim á. „Þótt
það sé grimmilegt að segja það
þá las Kólumbus um Ameríku í
bók áður en hann hóf för sína.“
Tim fannst það heillandi
hugmynd að takast slíka ferð á
hendur.
Dorothy mun ekki, með
semingi þó, fara þessa för með
Tim og fjórum öðrurri mönnum.
„Þetta er ekki kynjamisrétti“
segir hún, „heldur þörfin fyrir
sterkari vöðva við árabarning
og einnig það að ekki er hægt
að hafa sér káetu fyrir mig,
svona til að „fela mig í“.“ Svo-
þarf hún einnig að taka tillit ]til
fjögurra ára dóttur sinnar Idu,
því eins og Dorothy segir, og
ekki að ófyrirsynju: „ferð þessi
er ekki áhættulaus." Hún
ber þó enga ósk í brjósti um að
verða ung ekkja. Hún þarfnast
ekki neinnar fjárhagslegrar
tryggingar þvi hún er af ríkri
fjölskyldu í Texas (sem
hagnazt hefur á olíu) og hefur
sjálf reynt mann sinn að því að
vera góður sjómaður. Tim var
skipstjóri á einmastra skútu er
þau sigldu á frá Englandi til
Istanbul. Hálfgerð glæfraferð.
Tim er fæddur í Indlandi.
Faðir hans var teplantekrueig-
andi þar. Hann hlaut menntun
sína í heimavistarskólum, bæði
í Englandi og Bandaríkjunum.
Áður en hann settist í Oxford-
háskóla til að nefna land-
fræðilega sögu dvaldist hann á
nautabúgarði í Montana. Hann
rakst á Dorothy fyrir 10 árum í
hþfi í Harvard. Þá rétt skrimti
hann milli þess að hann tók
fundið
Ameríku?
heppnuðu hjónabandi, sá
aðeins „skrítinn Englending"
sem lét sér greinilega leiðast.
„Komum okkur héðan út,“
sagði Tim við hana. Hún sam-
þykkti og 48 klukkustundum
síðar bað hann hennar „fyrsta
bónorðið mitt“. Dorothy (vinir
hennar kalla hana Dobby)
streittist við í mánaðartima.
„Hann yfirbugaði mig með því
að brjóta mótstöðuafl mitt,“
segir hún.
Þau studdu hvort annað fjár-
hagslega, hún lagði fram styrk,
er hún hafði, en hann aflaði sér
tekna með ritstörfum Þau fóru
fyrst til Oxford, síðan til Vestur
Indía, þar sem Dorothy
stundaði kennslu meðan Tim
lauk við „The Golden Antilles"
(nám um nýlendustefnu ríkja).
Severin-hjónin stunduðu síðan
nám við Vassarháskóla. Síðan
hafa þau haft aðsetur i Bret-
landi þar sem Dobby kennir í
„The University of London“.
Heimili þeirra er sex
herbergja hús í Bloomsbury.
Dorothy er ströng mamma,
„aðalatriðið er að hafa aga.“
Tim sér urn morgunverðinn, öll
innkaup og hirðir garðinn. „Ég
er ekki með grænar hendur,"
segir hann, og Bobby
andvarpar. „Allt sem ég snerti „Við erum vön að vera aðskilin,“ segir Dobby. Hér er hún á göngu með
á visnar og deyr." dóttur þeirra, Idu.
Severin-hjónin. Hún átti hugmyndina að för Brendans, skinnbátsins, sem geymdur verður hér á landi í
vetur. Hann tókst þessa hættuför á hendur.
Þegar þessu ævintýraskeiði
hans er lokið vonast þau eftir
að fá kennslustöðu við
einhvern háskóla. „Konur eru
ekki nægilega harðar í að sækja
um stöður," finnst Dorothy sem
styður kvenréttindabaráttuna
þótt hún sé ekki eldheit kven-
réttindakona. „Fólk er í sífellu
að spyrja mig hvernig ég geti
samrýmt heimilisstörfin
atvinnu minni, eins og það sé
eitthvert vandamál. Mín
skoðun er sú að ég myndi ekki
standa mig eins vel í starfi
mínu ef ég ætti ekki við
hamingjusamt heimilislíf að
búa.“
Dorothy mun hitta Tim í
hvert sinn er Brendan kemur í
höfn en það mun bæði vera á
Suðureyjum og íslandi. (Eins
og fram hefur komið í fréttum
komu þeir Brendanfarar til
Islands fyrir skömmu og verða
að hafa hér „vetursetu" því
ekki gaf yfir hafið til
Ameríku). Þótt Tim hafi gert
samning fyrirfram um að semja
bók um þetta ferðalag sitt segir
hann þetta ekki þá
hættuminnstu og beztu fjár-
öflunarleið sem til er. „En það
er ekki tilgangurinn að afla
sem mest fjár,“ segir hann.
Ef allt hefði gengið
samkvæmt áætlun hjá Tim
Severin hefðu þeir félagar á
Brendan átt að vera komnir til
Labrador nú í byrjun
september og á lokaáfangastað,
Boston, fyrir dag Kólumbusar,
sem er 11. október. (Sú fyrir-
ætlun hans fór út um þúfur,
eins og kunnugt er).
þátt í ævintýrareisum. Tim
fannst hún „ákaflega
aðlaðandi" en Dorothy, sem
stuttu áður hafði losnað úr mis-
Notuð hljóðfœri til sölu
Vestur-þýzkur Biese flygill, Hornung
og Möller flygill, tvö píanó og
píanetta.
Hljóðfœraverzl. Pólmars Árna H/F
Borgartúni 29 c— sími 32845.
Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
Skólinn verður settur miðvikudaginn
1. sept. kl. 9.00 og hefst kennsla kl.
12.45.
Öldungadeild verður sett
þriójudaginn 31. ágúst kl. 17.30.
Kennsla hefst þar 1. sept. samkvæmt
stundaskrá.
Rektor.