Dagblaðið - 03.09.1976, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. — FÖSTIIDAGUR 3. SEPTEMRER 1976.
KISSINGER OG VORSTER
HITTAST Á SUNNUDAG
Nú er talið endanlega
ákveðið að þeir Henry
Kissinger og John Vorster
forsetkS-Afríku hittist í Zurich
næstkomandi sunnudag.
Utanríkisráðuneytið banda-
ríska hafði tilkynnt, að Kiss-
inger gæti ekki komið á sunnu-
4C
Kissinger vildi heldur
heimsækja pabba sinn og
mömmu en ræða við Vorster.
daginn, sem átti að vera fyrsti
dagurinn af þremur, sem þeir
ræðast við. Nú hefur það sem
sagt breytzt.
Um tíma leit út fyrir að
diplómatískt taugastríð væri að
hefjast vegna yfirlýsinga
Kissingers um kynþáttastefnu
Suður-Afríku og viðbragða
Vorsters við þeim. Övissan um,
hvaða dag fundum þeirra
tveggja bæri saman var þó ekki
á yfirborðinu spröttin af því
taugastríði heldur vegna þess
að Kissinger hugðist nota
sunnudaginn til að hvíla sig og
skreppa jafnvel í heimsókn til,
foreldra sinna, sem eru nú
staddir í Vestur-Þýzkalandi.
Erlendar
fréttir
i
REUTER
UTSaiQ Stórkostleg verðlœkkun — utsqiq Elízubúðin, Skipholti 5.
iAO
daða
m&
an vteH'>\vú'ó»ur(''
>>u'e98 'SS><9'»oa,W
I
Þér getiö valiö v .
um fjölmörg boröstofu-
sett - og við hlökkum til
aö sjá yöur.
Húsgagnadeild
Jón Loftsson hf.
/a. a a a a a
1 íiíili iiiiiíi] íiiiiiL iliil iiliiiii iiiiiiil {ii j- j i i r
I L_ □ CI Zi C LJ L j rjij
j; jon r
1 l’l Thl 1 1 i1 ii m
Hringbraut 121 Sími 2 8601
OtlRDIR 110ND0N
Hér má sjá blökkumenn bera einn félaga sinna á brott í miklum
óeirðum, sem staðið hafa í Notting Hill í London að undanförnu,
eftir að til átaka kom á Calypso-hátíð þann 30. fyrra mánaðar.
A.m.k. 100 manns slösuðust í átökunum, þar á meðai 45 lögreglu-
menn, sem komið var með á sjúkrahús. Rúður voru brotnar, bílum
velt og þeir brenndir í þessum óeirðum, sem taldar eru vera þær
verstu þar i landi síðan 1958.
BANDARISKIR BÆNDUR FRAMLEIÐA
ÞRISVAR SINNUM NlEtRA AF
MATVÆLUM EN ÁRIÐ 1955
Hver bandarískur bóndi
framleiðir á dag matvæli fyrir
56 manns, eftir því sem kemur.
fram í nýrri könnun, sem
bandaríska landbúnaðarráðu-
neytið hefur látið gera. Til
samanburðar má geta þess að
fyrir ellefu árum, árið 1965,
framleiddi hver bandarískur
bóndi matvæli fyrir 37 manns
og árið 1955 fyrir 19.5.
Fyrir tveimur öldum, eða
árið 1776, lifðu meira en 80%
prósent mannkynsins á land-
búnaðarafurðum. Þá fram-
leiddi hver bóndi ofan í sig og
aðeins tvo í viðbót.
GE0RGE WASHINGT0N
HÆKKAR ENN í TIGN
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings hefur samþykkt að
hækka George Washington í
tig, í hershöfðingja, — 176
árum eftir að hann lézt.
Hugmyndin um að hækka
Washington í tign, úr aðstoðar-
hershöfðingja í „hershöfðingja
herjanna", kom frá hernaðar-
nefnd þingsins sem fannst að
hann ætti heiðurinn skilinn.
Herinn hefur þó látið í ljós
misjafnar tilfinningar vegna
samþykktarinnar sem enn á
eftir að hljóta blessun öldunga-
deildarinnar. Segja ráðamenn
þar að stöðuhækkun forsetans
fyrrverandi hafi sáralitla þýð-
ingu fyrir herinn eða stöðu
hans í sögunni.
„Alltaf er litið á George
Washington sem einn mesta
herforingja sem við höfum átt.
hvaða stöðu sem hann hafði
innan hersins," segir í tilkynn-
ingu frá hernum.
200
JI/IÍLUR f
N0REGI
í DAG?
Að fengu fordæmi okkar
íslendinga er búizt við að
Norðmenn tilkynni þá
ákvörðun sína að færa land-
helgina út í 200 mílur í dag.
Miklar umræður hafa
verið um þetta mál í Noregi
að undanförnu og er álitið
að útfærslan taki gildi 1.
nóvember n.k.
Tilkynni stjórnin þessa
ákvörðun sína í dag. verður
að bíða staðfestingar Stór-
þingsins, en þar er meiri-
hluti þingmanna fylgjandi
útfærslunni.