Dagblaðið - 14.10.1976, Side 2

Dagblaðið - 14.10.1976, Side 2
9 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1976. r Nemendur Fjöl- brautoskólans f engu óblíðar móttökur Ef þeir sem sækja almenna dansleiki í Tónabæ fá eins viðtökur og nemendur Fjölbrautaskólans í Breiðhoiti, þá er engin furða á því tálað sé um Tónabæjarvandamál. er þeir héldu dansleik í Tónabœ Haukur Þór Hauksson, for- maður og Börkur Ingvarsson gjaldkeri skrifa fyrir hönd skólafclags Fjölbrautaskólans i Breiðholti: í þeim umræðum sem spunn- ízt hafa um Tónabæ á undan- förnum vikum hafa margir haft uppi stór orð og yfirleitt haft margar leiðir til úrbóta. Ekki er það ætlun ofanritaðra að leysa nein Tónabæjarvandamál í þessari grein, heldur skulu hér aðeins gerð að umræðuefni vinnubrögð starfsmanna húss- ins og lögreglu Reykjavíkur á dansleik er Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hélt þann 6.10. sl. í Tónabæ. Sá dansleikur fór aó flestra dómi mjög vel.fram og urðu ekki vandamál sökum ölv- unar ellegar annarra óláta sam- komugesta. Sá undarlegi atburðúr gerð- ist á miðjum dansleik er einn af samkomugestunum var að kasta vatni á salerninu, sem mun ekki vera andstætt ís- lenzkum lögum, að starfsmenn hússins birtust þar og hugðust varpa gesti þessum á dyr, án nokkurra saka. Það skal tekið fram að nokkrum vikum áður hafði sami gestur átt í útistöð- um við starfsmenn hússins. Þar sem fyrrnefndum samkomu- gesti þótti hann vera órétti beittur mun hann hafa sýnt mótþróa en var þá snúinn nið- ur af starfsmönnum og voru þar engin vettlingatök viðhöfð, að sögn sjónarvotta. Um þetta leyti ber að mann sem er nákunnugur hinum fyrrnefnda. Hann biður um að fá að hafa tal af drengnum sem lá þá á gólfinu undir starfs- mönnunum. Ekki var honum leyft það, heldur skipað að flytja sig á brott samstundis en þar sem hann vildi ekki hlýða þvi sneru starfsmenn hússins hann einnig niður með fanta- brögðum. t símtali er ofanritað- ur formaðurskólafélagsins, sem hafði húsið á leigu, átti við framkvæmdastjóra Tónabæj- ar, gaf hann þá skýringu á síð- asttalda atburðinum, að starfs- menn hússins hefðu ekki átt neitt sökótt við drenginn, held- ur hafi þeir ekki viljað taka neina áhættu. Þar sem ofanrit- aður formaður átti í erfiðleik- um með að átta sig á hugsunar- hætti framkvæmdastjórans, verður ekki farið nánar út í þær samræður hér. Er báðir drengirnir höfðu nú verið snúnir niður, var kallað á lögregluna og kom hún fljót- lega til að handjárna báða drengina. Sá hrottaskapur sem hún sýndi er ólýsanlegur og að óreyndu 'mundi maður hafa haldið að slíkt sæist ekki nema í suðrænum lögregluríkjum eða á hvíta tjaldinu en ekki í lýð- ræðislandinu íslandi. Fleiri nemendur voru beittir svipuðum órétti þetta sama kvöld en ekki verða nefnd fleiri dæmi. Þessi grein er ekki skrifuð með neinni persónu- legri óvild til starfsmanna Tónabæjar eða lögreglunnar, heldur þykir forráðamönnum skólafélagsins gestir hafa feng- ið nokkuð óblíðar móttökur, svo vægt sé að orði komizt. Þar sem skólafélag Fjölbrautaskólans hafði húsið á leigu, var hálf- partinn ætlazt til að kurteislega væri komið fram við nemendur og gesti þeirra. Hvernig starfs- menn Tónabæjar koma fram við gesti hússins er Tónabær heldur dansleiki, gildir okkur einu, en ef þeir sem sækja al- menna dansleiki hússins fá svipaðar móttökur og nemend- ur Fjölbrautaskólans fengu umrætt kvöld, undrum við okk- ur ekki á því, þó talað sé um Tónabæjarvandamál. Hugann er ekkí hœgt að handsama Lilja Bjarnadóttir skrifar: ííugurinn ber mann ekki aðeins hálfa, heldur alla leið. Við erum þrælbundin okkar hugarástandi. Líf okkar og framkvæmdasemi er háð duttlungum hugans hverju sinní, þessu fyrirbæri er mótar allan heiminn og gengur undir ýmsum nöfnum svo sem geð' hugur, sál og tilfinning. Þetta er aflið er gerir okkur að þeim einstaklingum sem við erum og gefur okkur persónugildi. Það mætti ætla að slíkt öefniskennt fyrirbæri mannlegs lífs, sem hvorki er hægt að þukla á né röntgenmynda, væri hafið yfir það að geta orðið sjúkt. En í raun og sannleika á geðió, til- finningarnar, eða hvað vió eigum að kalla það. sína marg- þættu sjúkdóma. ekkert síður en líffærin er gegna hvert fyrir sig sínu hlutverki. En þau eru áþreifanleg, þaó er hægt að röntgenmynda þau og jafnvel skera burt. Hugann er ekki hægt að handsama eða skera í. En í bernsku er hægt að mðta hann eins og mjúkan leii aö vissu ntarki með utaridðkom- andi áhrifum. Þess vegna er foreldrahlutverkið svo vanda- samt og ábyrgðarríkt að mér er næst að halda að ekkert starf standi því framar. Hvað er háleitara en að reyna að þræða beztu brautir lífsins í fylgd með börnum sínum eftir eðli þeirra og þroska. Við höfum öll okkar eigin viðbrögð og geðhrif sem verður að teljast heilbrigt ef það kemur ekki í veg fyrir að við getum annazt störf okkar. En oft munar það mjóu. Það er oft erfitt að sanna sjúkdóma geð- heilsunnar. Þeim fylgja ekki hiti, bólgur, útbrot né sýnilegur sársauki. Þess vegna gengur mörgum svo illa að átta sig á geðrænum sjúkleika af því hann hefur ekki upp á að bjóða þau einkenni sem eru við- urkennd sjúkdómseinkenni. En geðlæg liðan getur orðið meiri og langvinnari en aðrir sjúk- dómar valda. Margir sjúklingar hafa tjáð mér að uppskurðir og óþægindi, sem þeim fylgja, séu smámunir einir á við geðlæga vanlíðan á vissu stigi. Tilfinn- ingalegri vanheilsu fylgir oftast kvíði, óróleiki, van- máttarkennd og einangrunar- tilfinning, löngun til að breiða sængina sína upp yfir höfuð og fela sig eða hverfa út úr tilver- unni, losna við áh.vggjur og vandamál lífsins, er leggjast með margföldum þunga á sjúka sál. En lífið er í eðli sínu barátta — og hver vill ekki berjast til sigurs? Lengi vel vöxum við að þroska, reynslu og víðsýni. Eg er svo bjartsýn að ég er sann- færð um að einn góðan veður- dag hafa vísindin leyst gátuna um geðheilsuna. Hvers vegna við rísum og föllum með hugar- ástandinu. Hvers vegna þaó getur skeð að við á skömmum tíma missum lífið út úr höndun- um á okkur, ntissum áhuga á MIKIL AFFÖLL Á KRÓNUNNI ERLENDIS öllu sem áður var okkur mikils virði: Lestur, hljómlist og leik- húsferðir, sjá allt þetta verða. eins og hillingar á eyðimörku sem aldrei verða að veruleika. Þá er lífið sjálft, sem í rauninni er litríkt eins og sumargróður- inn, horfið sjónum okkar. Þá sjáum við allt grátt í grátt eins og veðurfarið er stundum þegar engin skil eru milli láðs og lagar. Við erum börn náttúr- unnar. Sjúkleika allra arta skilja þeir bezt er reynt hafa. Og frelsið gjörþekkir enginn án þess að hafa misst það. Geðdeildin okkar á Borgar- spítalanum er ekki megnug þess að lækna allt og þvl síður að breyta einstaklingseðli fólks. En ég hefði fyrir löngu gefizt upp í starfi mínu ef ég hefði ekki svo margoft séð eðli- legan lífsneista vakna og birtast í augum vistmanna deildarinnar. Hér rikir kær- leiksmettað andrúmsloft. Gagn- kvæm tillitssemi, samúð og skilningur létta okkur öllum jarðvistina. Það getur verið erfitt að sameina mynstur okkar. En ef vjð erum alltaf reiðubúin til að sjá kostina jafnvel í stækkunargleri hjá öllu samferðafólki okkar þá mundi mínusum lífsins fækka og plúsunum fjölga. Hvað stoðar — alveg út I hött að segja að eðlileg afföll séu 6 100 króna seðlum, sé þeim skipt v Þoðmáekki fara með 1000 króna seðla úr kmdi — segir starfsmaður i Seðlabankanum SUrtsmaAnr I SeðUbuukaiium þ»ð á að vt-ru i 100 króna hrlnRdí: Eu rak augun I frélt J blaðinu Þ»ð getur verið ýmsum sl (fetudftg þar sem s»gi vw ertiðietkom hlð fyrir banka- f«i» 3O fsJt iir.knr iOOO kr-4ná ’Sinfnanir i-rlendis. sem Ifiið fá -o'ðill tn fó! veoó svfdur nn>ð Jtf sfn uí lytenz&um poninnum, 72% afföilum i N«w Ynrk Það aó akipta aflur þúsumt krOna kann «ð ven «1 jso skvrjno á ’soðít, A Hmtim /gjáWoýri&r þi-SMi hö i fyrsta í»rí w miii mftrkuðutn — a.m.k. i EvTftpu OíftjjU*iía sftlu nA ruírta. Sam- —eru Bfffti 3f krómimii ,<f JOO- kvæmt lósciiiii mft að«.'in> faia krftna v.'ðlum) eftiilee, cAa IO- m»ð J.:i(K> krftnur >ji inodi u« 2S%. Skipstjóri hafði samband við DB: ,,Mig langar að gera athuga- semd við það sem starfsmaður úr Seðlabankanum sagði i DB f.vrir nokkru. Hann segir að af- föll af 100 króna seðlum er- lendis séu ca 10—25%. Þetta fannst mér mjög skrítin saga. Eg hef siglt í mörg ár. t.d. til Þýzkalands. Þar fengust fvrir t.d. einu ári 60 pfenningar fyrir 100 króna seðil. Þetta hefur örugglega ekki bre.vtzt til batn- aðar, nema siður sé, og það þarf enginn að segja mér að hægt sé að fá meira fyrir íslenzka pen- inga nú en fyrir einu ári. Eg skil ekki hvernig starfsmaður í Seðlabankanum getur látið sér detta í hug svona vitleysa. Hann hefur kannski aldrei komiðtil útlanda, manngreyið. rannsókr Halldór Kristjánsson skrifar: „I leiðara Dagblaðsins í gær. 5. október, er sagt að stjórn- málamenn eigi að vera við- kvæmir fyrir aðdróttunum og biðja um opinbera rannsókn þegar þeir séu bornir ómak- legum ásökunum um misferli i fjármálum. Það er einmitt þetta sent Steingrímur Hennannsson gerði þegar Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.