Dagblaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1976 smáaug er lýsinga blaðið m$m» Bilaleigan Miðbárg CérRentsl Leiðrétting í auglýsingu í Dagblaðinu i gær frá Skóbúðinni Suður- veri og Gráfeldi slæddist inn prentvilla. Skórnir frá Ítalíanó voru sagðir á kr. 6.800 en verðið átti að vera Kr. 6.100 Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þessum mis- tökum. FÓLK ORÐIÐ ÞREYTT Á SÓLARSTRÖNDUM — og þá leitar það að fersku lofti í staðinn Hér á landi eru nú staddir umdæmisstjórar Flugleiðá fyrir svonefnt Norðursvæði en það nær yfir Norðurlönd, og Bretlandseyj- ar. Þeir halda fundi í vor og haust og skipuleggja starfsemi komandi árs og þá ef til vill sérstaklega sumarsins. DB ræddi við tvo þeirra sem starfa í Glasgow og Stokkhólmi. Stuart Cree umdæmisstjóri Flugleiða í Skotlandi og írlandi hefur aðsetur sitt í Glasgow. Hann hefur unnið í 12 ár í íslands þágu, fyrst fyrir Flugfélag islands, og síðan Flugleiðir. ,,Ég hef aldrei átt í neinum vand- ræðum með islendinga, sem heimsótt hafa Glasgow“, sagði Stuart Cree. Hann sagði það nokkuð algengt að Islendingar kæmu í heimsókn til Glasgow og þaö væri þá innkaupaferð í leiðinni, enda er það ofur skiljan- legt þar sem mjög hagstætt er f.vrir okkur að verzla fyrir pund eins og er. Aftur á móti er óhag- •stæðara fyrir Englendinga að koma hingað, hér er allt of dýrt. Þegar við spuröum Cree hvort þorskastríðið hefði haft áhrif á eftirspurn eftir feröum hingað til lands, sagði hann að bæði þorska- stríðið og svo staða pundsins hefði dregið nokkuð úr farþega- fjölda með Flugleiðum til Islands. „Annars er ég mjög bjartsýnn á að þetta sumar verði miklu betra en það sem nú er að líða og það hefur smátt og smátt færzt í þá áttina að hópar taka sig saman, aðallega ungt fólk, og fara til íslands. Svo koma félagarnir næsta ár tii Skotlands og endur- gjalda heimsóknina. Þannig hafa skapazt mjög skemmtileg tengsl,“ sagði Stuart Cree. Olafur Friðfinnsson er umdæmisstjóri í Stokkhólmi. Hann hefur starfað fyrir Loft- leiðir síðan 1964 og nú fyrir Flug- leiðir siðan félögin voru sam- einuð. Hann sagði okkur að farið væri þrisvar í viku til Stokkhólms yfir sumartímann en ferðir lægju niðri þangað yfir veturinn. Ölafur sagði okkur að mikið væri um það að nemendur bæðu um upplýsing- ar um landið þegar þeir byrjuðu að læra um ísland í skólanum. Þá sagðist hann fara mikið í skólana og sýna kvikmyndir um ísland. „Það er mjög mikill áhugi, sér- staklega hjá krökkunum, og mér finnst alveg sjálfsagt að veita þeim úriausn og senda þeim myndir,“ sagði Ölafur. Ólafur sagði að nú síðustu árin væri fólk farið að leita að ein- hverju öðru en sólarströndum til að flatmaga á og þá væri alveg tilvalið að kynna Island vel. „Það hefur upp á mjög margt sérstætt að bjóða sem við eigum að nnt- færa okkur,“ sagði Ólafur. -KP. Óiafur Friðfi'nnsson hefur starfað fyrir Loft- leiðir síðan 1964 en nú er hann umdæmisstjóri í Stokkhólmi fyrir Flugleiðir. Stuart Cree umdæmisstjóri Flugleiða í Skot- iandi og á írlandi. Vélhjólasendisveinn éskast hólfan eða allan daginn DAGBLAÐIÐ Sími 27022 Auglýsing um starf Ríkisútvarpið — Sjónvarp óskar að ráða viðskipta- fræðing eða mann með sambæriiega menntun í stöðu skrifstofustjóra Sjónvarpsins. Laun skv. 21. flokki B.H.M. Umsóknum sé skilað tii aðalskrifstofu Sjónvarpsins að Laugavegi 176 fyrir 25. október nk. á eyðublöðum, sem þar fást afhent. OG SJA, MYNDIN BIRTIST í LIT! Bytjað að flytjo inn 12" litasjónvarpsskerma, þar sem litir koma fram i svart-hvitum tœkjum Hver kannast ekki við söguna um nælonsokka strengda fyrir sjónvarp og þá, já, þá birtist myndin i dýrlegum litum. íslenzk dagblöö hafa haft það að fyrsta aprílgabbi að segja að nú sé búið að finna upp aðferð til að fá svart- hvíta mynd í liti. Verzlanir hafa fyllzt — en þá var það bara gabb. Nú er ekki fyrsti apríl — og nú er það satt. Nú er byrjað að flytja til landsins skerma, sem settir eru f.vrir svart-hvít tæki og birtist myndin þá i lit og mun þægilegra verður að horfa á hana þar sem skermurinn dregur úr geislun. Þessir skermar eru frá v-þýzka fyrirtækinu Siemi — og hinir einu sinnar tegundar í heiminum. Þeir eru byggðir upp af 20 þúsund litapunktum — í tólf lit- um. Auðvitað geta slíkir skermar aldrei komið í stað litsjónvarps en það er allt annað og skemmtilegra að horfa á sjónvarp með hinn v-þýzka skerm á tækinu. Myndin verður mun þægilegri og skemmtilegri á aö horfa. Og myndin birtist i lit — það er þeim tólf litum og litasamsetning- um sem skermurinn er byggður upp af og mikill meirihluti af efni sjónvarpsins skilar sér mjög vel. Mikið hefur verið talað um að koma litsjónvarpi upp hér á landi — en erlendis, þar sem þessir skermar eru á markaðinum hefur eftirspurn eftir litsjónvðrpum minnkað stórlega. Kemur þar til að litsjónvarp er mjög dýrt en þessir skermar kost-a um 7.500 krónur. Fyrirtækið Sólstíil hf. flytur þessa skerma inn og hefur eftirspurn eftir þeim verið mjög mikil. h.halis. Heildsölublrgðir FrakkastíR. — Símar 10530, tOftOO Heilsurœktin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360 og 43724 Suðurnesiakonur athuaið! Við verðum með megrunarleikfimi fyrir þœr sem eru of þungar í Sundlaug Ytri-Njarðvíkur 2—4 sinnum í viku, ef nœg þótttaka fœst. *ba Upplýsingar og innritun i sima 43724

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.