Dagblaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. OKTÖBER 1976.
7
Líbanon: Erhársbreidd munaði að friðarsamningar yrðu ræddir, brauzt stríðið út á ný;.
Palestínumenn hrínda
árás Sýrlendinga
Sýrlenzkar hersveitir héldu
áfram sókn sinni gegn stöðvum
Palestínumanna í fjöllunum
suðaustur af Beirút í gærkvöldi
og hefur sóknin orðið til þess,
að öllum friðarumleitunum í
borgarastyrjöldinni, sem nú
hefur staðið í 18 mánuði. hefur
verið frestað.
Sókn Sýrlendinga hófst á
þriðjudaginn var, aðeins um 12
klukkustundum eftir að full-
trúar Sýrlendinga, Palestínu-
manna og Líbana höfðu komið
sér saman um fyrstu frumdrög
að friðarsamningi milli hinna
stríðandi afla. Fundi, sem
halda átti í gær var frestað um
óákveðinn tíma.
Sýrlendingar vörpuðu
sprengjum á stöðvar Palestínu-
manna í þorpunum Bhamdoun
og Aley og lokuðu þannig-
leiðinni til Shtoura, en fréttir
frá Bhamdoun herma, að
Palestínumönnum hafi tekizt
að hrinda árás sýrlenzkra skrið-
dreka á þorpið.
Krafízt opinberrar rannsóknar:
Stóð Ford í vegi fyrir
rannsókn á Watergate?
Fjórmenningar
fallnir í ónáð
Fréttamenn í FeKing telja sig
hafa fengið fyrstu staðfesting-
una á því að ekkja Maos, Ching
Chiangogþrír stuðningsmenn
heiinar ur 'iöðum vinsln arms-
kommúnistaflokks Kína hafi
verið handtekin. Er þeir
reyndu að fá keyptar af þeim
ljósmyndir á fréttastofu Nýja
Kína í Peking var þeim sagt að
engar ljósmyndir væru til af
þessu fólki. Það þykir benda til
þess, að fjórmenningarnir séu
fallnir í ónáð.
Ford forseti virðist ætla að
lenda í enn einum vandræðunum,
í kosningabaráttunni, sem nú er
talin orðin honum allþungur
róður. Nokkrir þingmenn hafa nú
krafizt opinberrar rannsóknar á
þeim ásökunum sem fram hafa
komið um að Ford hafi staðið i
vegi fyrir að þingið rannsakaði
Watergatehneykslið á sínum
tíma.
John Dean, f.vrrum ráðgjafi í
Hvíta húsinu, sá maður er fyrstur
ásakaði Nixon forseta, sagði í
sjónvarpsviðtali að Ford hefði
verið notaður til þess að reyna að
standa í vegi f.vrir að skipuð yrði
rannsóknarnefnd á vegum
þingsins til að kanna innbrotið í
höfuðstöðvar demókrata árið
1972.
Dean hefur áður sett fram
þessa skoðun sína í endur-
minningum sínum. Blindur
metnaður, en nú hafa þær orðið
Með Ilua Ku.o Feng: Shanghai mafian er nú öll talin vera í
stofufangelsi.
til þess að þrír fulltrúadeildar-. rannsóknar á því hvað hæft sé í
þ. igmenn hafa krafizt opinberrar ásökunum Deans.
Kosningabaráttan er að verða þungur róður fyrir Ford: Stóð hann í
vegi fyrir rannsókn á Watergate?
Bandarísk þota
hrapaði í borg-
inni Santa Cruz
— að minnsta kosti 100 manns létust
Bandarísk þota af gerðinni
Boeing 707 hrapaði í Santa
Cruz í Bólivíu í gær. Þotan var í
vöruflutningum. Að minnsta
kosti 100 manns fórust, er vélin
féll niður á aðal verzlunargötu
Santa Cruz, þeyttist þar um í
ljósum logum og lenti á hópi af
skólabörnum og knattspyrnu-
liði sem átti að fara að keppa.
Flugvélin staðnæmdist loks við
fótboltaleikvang.
Flugmennirnir, sem voru
þrír, fórust í þessum látum. —
Samkvæmt beztu heimildum er
þetta versta slys af þessu tagi
sem orðið hefur. Það, sem næst
þessu kemst, er flugslys, sem
varð í Venezuela árið 1969. Þá
hrapaði DC-9 flugvél til jarðar
og drap að minnsta kosti 65
manns á iörðu niðri.
Thailendingar hyggjast
koma á lýðrœði í áföng-
um nœstu sextán ár
I gærkvöld kynntu yfirvöld í
Thailandi nýja áætlun sem miðar
að þvi að lýðræði verði komið á
þar í landi í áföngum á 16 árum
Gert er ráð fyrir i áætluninni,
sem lögð var fram af skipuðum
forsætisráðherra landsins.
Thanim Kraivichien,. að ekki
verði haldnar neinar kosningar
fyrstu fjögur árin.
Thanin, sem er tæplega
fimmtugur hægri sinnaður lög-
fræðingur, kynnti áætiun þessa í
útvarpi og sjónvarpi, en i gær var
fyrirskipað útgöngubann vegna
þess, sem herforingjastjórnin
kallaði „óöruggt ástand“.
Spennan hefur aukizt í
borginni Bangkok, enda var búizt
við að einhverjir yrðu til þess að
halda upp á að í dag eru þrjú ár
liðin frá byltingunni árið 1973 en
71 maður lét þá lífið.
Gröfur geng
veðskuldabréfum
Hö/um til sölu eftirtaldar gröfur sem greiða ma með 3-f
ára veðskuldabréfum:
1. MF 3165 árgerð 1966, nýtt hús og góð dekk.
2. International 3434 árgerð 1971, ekin 2000 tíma.
3. JCB 7 beltagrafa, árgerð 1967. •
Höfum einnig f jölda annarra vinnuvéla og vörubifreiða á
söluskrá. Greiðsluskilmálar og möguleiki að greiða hluta
söluverðs með veðskuldabréfum. Einnig eru skipti oft
möguleg.
Markaðstorgið, Einholti 8, sími 28590.
1X21X2 1X2
7. ieikvika — leikir 9. okt. 1976.
Vinningsröð: XXI — 211 — 112 — Xll
1. VINNINGUR: 11 réttir — kr. 69.000.00
1474 6348 40873 40873
2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 3.906.00
59 2319 3194 30988+ 31710 40587 40873
851 2331 5030 31124 31982+ 40873 40873
888 2388 5369 31198+ 40518 40873 40873
1117 2491 30346 31406 40518 40873 53989F
1862 2540 + nafnlaus F: 10 vikna scðill.
Kærufrestur er til 1. nóv. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 7. leikviku
verða póstiagðir eftir 2. nóv.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni
cða senda stofninn og fuilar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin —REYKJAVÍK.
Gegn samábyrgð
f lokkanna —,