Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.10.1976, Qupperneq 9

Dagblaðið - 14.10.1976, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1976. r DB skoðar úrvalið af leikhúsverkum vetrarins LEIKHÚSIN ERU ALLS STAÐAR AÐ VAKNA: Þið kippið ykkur ekkerl upp við það þótt ljósin slokkni. Það er leikstjórinn, Stefán Baldursson, sem stjórnar. Hann snýr baki i okkur. DB-mynd Sv. Þorm. Kópavogur: GLATAÐIR SNILLINGAR ..Heldurðu að vofur drekki appelsín eða hvað?" segir Orfeus við Tariu vofu. alveg hne.vkslaður, en hún sýnir honum bara hvernig hún geti svifið um þótt hún sé með appelsínuflöskuna í hendinni. Hvar er Gunnar Páll eigin- lega? Er hann búinn að finna kjólinn. Já. og er kúbeinið komið? Komið þið ykkur nú öll upp á sviðið. Við byrjum. Þótt þið lendið i mvrkri þá haldið þið bara áfram, ljósameistarinn er nefnilega að prófa ljósin i kvöld. Þessu og öðru lík voru sam- tölin áður en b.vrjað var á einni af seinustu æfingunum á leik- ritinu (ilötuðum snillingum eftir William Heiriesen sem Leikfélag Kópavogs frumsýnir á laugardaginn. ..Þetla er fjölskrúðug mann- lífslýsing. Örlagasaga þriggja bræðra. tónsnillinga." segir leikstjórinn. Stefán Baldurs- son. Þorgeir Þorgeirsson þýddi leikritið. A laugardaginn verður opnuð norræn menn- ingarvika. Að henni stendur Kópavogsbær. Norræna félagið i Kópavogi og Leikfélag Kópa- vogs. Þess vegna var þetta færeyska verk valið einmitt nú til flutnings. ..Þetta er ákaflega mann- margt leikrit. Um 30 leikarar koma fram eða réttara sagt örlair leikarar en þvi fleiri áhugamenn. Allflestir eru í l'ullu starfi annars staðar en hafa mætt hér hvert kvöld sem æft er. þótt sumir hafi að visu verið á síðustu mínútunum.” Þetta segja þau Hölmfríður Þórhallsdóttir og Trausti Olafs- son sem annast framkýæmda- stjórn sýningarinnar og leika auðvitað lika í henni. ..Æfingar hafa staðið yfir í 6 vikur. Og vitanlega gengur það von úr viti næstu árin." segja þau Hölmfríður og Trausti af al- kunnri Kópavogsbjartsýni. Ekki hefur það vantað að allar dvr hafi staðið opnar þegar þurft hefur á að fá alls konar hluti lánaða og þeir eru ótrúlega margir fvrir svona sýningu. Fære.vingafélagið hefur þar veitt ómetanlega aðstoð. Gunnar Reynir Sveinsson hefur frumsamið tónlist við Ijóð Ileinesen sérstaklega fvrir leikritið. Sviðsetning á Glötuðum snill- ’ngurn er unnin eftir danskri leikgerð skáldsögunnar En sagan hefur líka verið þýdd og hlaut nafnið Slagur vindhörp- unnar. Í' leikskrá Leikfél. Kópav. segir m.a.: ..Við ætlum okkur ekki þá dul að lífga þessa kjarnyrtu og kynngimögnuðu sögu i heild sinni en veljum í samræmi við dönsku leik- gerðina einstök atriði úr verk- inu og stefnum fremur að þvi að ná fram einhverju af hugblæ verksins í leik og söng heldur en fvlgja efnisþræðinum i smáatriðum." —EVI Akureyri: KARLINN í KASSANUM Alþýðuleikhúsið: SKOLLALEIKUR Enn þá einu sinni á gamla GÓTTÓ eftir að nötra af hressi- legum hlátri, því Leikfélag Akureyrar er að íjúka æfingum á leikriti Arnolds og Bach. Karlinum í kassanum. — Frumsýningin verður næsta föstudag. Þegar ég kom á æfingu í gær var verið að skipuleggja síðustu breytingar á sviði, ljósum og þess háttar. sem alltaf er i mótun fram á frumsýningar- dag. — Þó var auðséð á leik- stjóranum, Eyvindi Erlends- s.vni. að hann stóð með nokkuð fullmótað verk í höndunum. Saga Jónsdóttir kemur fram með sérstaklega skemmtilega og ærslafulla Dollý og Marinó Þorsteinsson er alveg frábær í hlutverki Péturs Mörlands. En það eru 11 önnur hlut- verk i leikritinu og mér sýndist þeim öllum vera skilað vel. En það er fleira að gerast hjá Leikfélagi Akureyrar. Hafnar eru æfingar á leikriti Hafliða Magnússonar frá Bíldudal, SABINU. sem er gamanleikur með söng og snarpri ádeilu. Leikritið var fyrst sýnt af Litla leikhúsinu á ísafirði, sem meðal annars fór með það í leikferð til Reykjavikur. Saga Jónsdóttir leikstýrir þessu verki. Er það prófraun hennar sem leikstjóra hjá Leikfélagi Akureyrar. Að öllum líkindum mun Ingimar Eydal sjá um út- setningar og annað sem viö- kemur tónlist ijtessu verki. Ef allt gengur samkvæmt áætlun hefjast sýningar á SABINU um miðjan nóvember. Barnaleikrit Evgienie Schwartzs, Öskubuska erá dag- skrá urn jolaleytið og mun því Alþýðuleikhúsið á Akureyri frumsýnir á sunnudaginn Skollaleik, nýtt íslenzkt leikrit eftir Böðvar Guðmundsson. Tónlist gerði Jón Hlöðver Askelsson en leikm.vnd. búninga og grímur Messína Tömasdóttir. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. í Skollaleík eru 25 hlutverk og leika þau Arnar Jónsson, Evert Ingólfsson. Jón Júlíusson. Kristín A. Ölafsdóttir og Þráinn Karlsson. Frumsýningin verður í Borgarfirði eystra en siðan verður sýnt út vikuna á Seyðis- firði, Neskaupstað, Eskifirði. Stöðvarfirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði laugardaginn 23. október. Þá kemur loks röðin að Akureyringum en þaðan er haldiðtil Reykjavíkur. Skollaleikur gerist á íslandi og í Hamborg á 17. öld. Er verkið byggt á sögulegum grunni en frjálslega farið með efnið. Það fjallar um þýzkan kaupmannsson og fylgikonu hans, sem flýja til íslands vegna galdraofsókna. Hér á landi stundar sá þýzki lækningar á sárasótt sem út- breidd er orðin. Á íslandi kynnast þau hjúin sjúklingum sínum og ekki síður fyrirfóiki landsins, hinum brennuglaða Þorleifi Korts- syni. Runólfi biskupi lærða og Gísla vísa á Hlíðarenda. Þau finna brátt að galdratrúin er að Saga Jónsdóttir leikstýrir Sabinu eftir Haflióa Magnús- son sem frumsýnt veróur hjá Leikfélagi Akureyrar um miðjan nóvember. ábyggilega verða vel tekið enda eftir sama höfund og Rauðhetta. Við skulum láta þetta gott heita í bili en við bíðum með eftirvæntingu eftir að sjá Karlinn í kassanum i heild. -F.Ax. halda innreið sína í hið Leikritið er ekki talið við hæfi sakleysislega bændaþjóðfélag. barna. -JBP- A leið heim til íslands: Skipstjóri (Jón Júlíusson) Þorleifur Kortsson, lögmaður á fslandi (Arnar Jónsson), Matthiidur, þýzk þjónustustúlka (Kristín A. Ólafsdóttir) og Lars Mattheusson, kaup- mannssonur frá Hamborg (Evert Ingólfsson). 9 ísafjörður: VIÐ BYGGJUM BAÐHÚS Litli Leikklúbburinn á Isa- firði hefur að undanförnu æft finnska nútímagamanleikinn Við bvggjum baðhús eftir Finn- ann Johan Bargunt. Frumsýn- ing er i kvöld í Alþýðuhúsinu k 1.20.30. Alls hafa um 25 manns unnið að þessari uppsetningu þar af 12 leikarar. þau Ásthildur Þórðardóttir. Birgir Edvards- son. Finnur Guðlaugsson. Guðni Asmundsson. Guðrún Eiriksdóttir. Hansína Einars- dóttir, Jón Oddsson, Magnús .1. Magnússon. Margrét Geirs- döttir. Re.vnir Ingason. Sarah Vilbergsdóttir og Trausti Hermannsson. en leikstjóri er Kári Halldör. Hann hefur fengizt við alhliða leikhússtörf hér heima og erlendis. m.a. við ieikhús i Kaúpmannahöfn. stundað framhaldsnám við Rikisleiklistarskölann i Stokk- hólmi og sl. vetur kenndi hann við Leiklistarskóla íslands. Áður en æfingar hófust í byrj- un september, liélt Kári Hall- dór námskeið i leiktækni þar en það stóð yfir i tvær vikur. Höfundurinn Johan Bargum er talinn í fremstu röð ungra rithöfunda í Finnlandi í dag. Hefur hann samið fjöldann allan af leikritum og kabarett- um, bæði einn og í samráði við aðra. sem fluttir hafa verið við ..Lilla Teatern" i Helsingfors. Kabarett-þátturinn Fjölskyld- an. sem sýndur var i Iðnó 1975 er einmitt verk hans og Clars Andersen. Þýðandi leikritsins Við bvggjum baðhús er Borg- þór Kærnested. Önnur sýning verður á morgun, föstudaginn 15. október og sú þriðja laugardag- inn 16. október kl. 20.30.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.