Dagblaðið - 18.10.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 18.10.1976, Blaðsíða 7
DACBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1976. Endurbœtur langt komnar mikla ó • jr W I • | Kópaskeri: J og nrargir i nýbygginganam TÍFALDA MÁ FJÁRSTOFNINN — segir í grein um sauðfjárstofninn í nýju hefti af lceland Review Stór sprunga kom í gegnum bryggjuna þvera og náöi hún upp- eftir öllum brvggjukantinum. (DB-myndir JBP) „Allar viögerðir eru hér langt á veg komnar og menn almennt bjartsýnir og byggingaglaðir eftir því sem hægt er,“ sagði Friðrik J. Jónsson oddvíti á Kópaskeri í samtali við DB. Nokkur hörgull hefur verið á trésmiðum til framkvæmda á staðnum í sumar þar sem menn hafa verið bundnir af ýmsum verkefnum út um allar sveitir. Vinnuflokkur frá Norðurverki hefur þó starfað á Kópaskeri um hríð og unnið að viðgerðum utan- húss. Þá hafa sprunguviðgerðar- menn frá Reykjavík unnið að ýmsum lagfæringum fyrir vetur- inn svo að þau hús, sem skemmd- ust, verði íbúðarhæf. Alls skemmdust um 17 hús í jarð- skjálftunum sem urðu í fyrravet- ur. Fyrir sláturtíðina var lögð áherzla á uppbyggingu slátur- hússins og er nú lítið eftir nema að klæða nýja styrktarveggi sem voru settir upp. ,,Menn voru almennt seinir til að hefja viðgerðir á húsum sín- um,“ sagði Friðrik ,.á meðan skemmdir voru ekki fullmetnar. Tiltölulega velgekk að fáþað mat en ýmsum þótti þeir þó fá lítið í sinn hlut. Fengust nokkrar leið- réttingar á því og eru flestar greiðslur nú komnar til skila. Ekki er talið að fullnaðarvið- gerðum ljúki fyrr en einhvern tíma á næsta ári.“ Viðgerð á bryggjunni er langt komin en hún skemmdist eins og kunnugt er mikið í jarðskjálftun- um. Hefur aó undanförnu verið unnið að því að styrkja hana með grjótfyllingu. Sláturtíðinni er nýlokið á Kópa- skeri. Nokkrum erfiöleikum var bundið að halda þeirri starfsemi eðlilegri því mikill skortur var á vinnuafli. Ekkert lát hefur verið ,,Ef allur heyskapur færi fram á ræktuðu landi og ef sauðfénu væri beitt á ræktað land ein- göngu á sumrin er áætlað að hægt væri að tífalda sauðfjáreignina og minntist þá enginn á þá ofbeit sem nú er mest kvartað yfir," segir Sveinn Hallgrímsson hjá Búnaðarfélagi íslands í viðtali í nýútkomnu hefti Iceland Review, sem er hið þriðja á þessu ári. í greininni eru tekin rækilega fyrir þróun og útflutningur í ullariðnaðinum og rætt við ýmsa sem að honum standa. Þá fylgja henni fiölmargar litmyndir af ullarvöru, auk þess sem í blaðinu er litmyndasería af ýmsu sem tengist íslenzkri náttúru. Af öðru efni í þessu nýútkomna heftí má nefna pistil um tengsl islendinga við Bandaríkin í til- efni 200 ára afmælis þeirra, birtir eru kaflar úr Grænlendingasögu með myndskreytingum Kjartans Guðjónssonar listmálara. Þá er grein um Landhelgisgæzluna, myndasería frá loðnuveiðKtn og grein um Sigurð Björnsson óperu- söngvara. auk margvíslegs annars efnis. JB Kísilgúrverksmiðjan: Björn lœtur af störfum Björn Friðfinnsson fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar er um þessar mundir að undirbúa brottflutning sinn og fjölskyldu sinnar frá Mývatnsbyggð. Þar hefur Bjorn starfað sem fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar fimm undanfarin ár við almennar vin- sældir manna þar nyrðra. Þar áður hafði Björn verið bæjar- stjóri á Húsavík við mikinnorðs- tír Við starfi Björns við Kísilgúr- verksmiðjuna tekur Þorsteinn Ólafsson viðskiptafræðingur en hann hefur verið deildarstjóri tollamála í fjármálaráðuneytinu. Mun hann, eins og Björn, annast fjármálahlið fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri tæknilegra málefna Kísilgúrverksmiðjunnar verður hér eftir sem hingað lil Vésteinn Guðmundsson efnaverk- fræðingur. Formaður stjórnar verksmiðjunnar er Magnús Jóns- son bankastjóri. á byggingaframkvæmaum en nokkrar tafir urðu þó á lóðaút- hlutun. Stafaði það af því að ekki var unnt að ljúka breytingum á aðalskipulagi vegna þess að jarð- fræðilegum rannsóknum, sem skipulagið þurfti að b.vggjast á, lauk ekki fyrr en undir haustið. „Veðrið hefur verið gott undan- farið og enginn snjór sést hér ennþá," sagði Friðrik að lokum. — JB Undanfarið hefur verið unnið að uppbyggingu og st.vrkingu bryggjunnar á Kópaskeri, en hún laskaðist mikið í jarðskjálftunum í fyrravetur eins og kom fram í fréttum þá. Farseóill, sem vekur fögnuó erlendis í desember bjóöum vió sérstök jóla- fargjöld frá útlöndum til íslands. Þessi jólafargjöld, sem eru 30% lægri en venjulega, gera fleirum kleift aö komast heim til íslands um jólin. Ef þú átt ættingja eöa vini erlendis, sem vilja halda jólin heima, þá bendum viö þér á aö farseðill heim til íslands er kærkomin gjöf. Slikur farseðill vekur sannarlega fögnuö. FLUCFÉLAC LOFTLEIDIfí ISLA/VDS — JBP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.