Dagblaðið - 18.10.1976, Blaðsíða 25

Dagblaðið - 18.10.1976, Blaðsíða 25
OACHl.AÐH). MANUDACUK 1S. OKTOBKI! 25. Gisli Ragnar Gislason vaktstjóri á Eyrarbakka sem lézt 10. október í Borgarspítalanum var fæddur 31. janúar 1922. Hann var sonur hjónanna Ragnhildar Ólafsdóttur og Gísla Pálssonar formanns í Nesi, en hann lézt aðeins þrem dögum eftir fæöingu sonar síns. Gísli ólst upp hjá móður sinni á Evrarbakka og býr hún þar enn á 84. aldursári. Árið 1943 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Margréti Kristjánsdóttur og eignuðust þau þrjú börn: Þórhildi sem er gift kona í Reykjavík, Kristján kvæntur maður á Eyrar- bakka og Hrafnhildi sem er ógift í heimahúsum. Einnig ólu þau hjónin upp dótturdóttur sína Margréti Bragadóttur og er hún einnig í heimahúsum. Gísli Ragnar vann ýmsa vinnu en var lengst af fangavörður á vinnuhæl- inu að Litla-Hrauni, nú síðustu árin vaktstjóri. Camilla Friðborg Kristjánsdóttir, f. 18. september 1908,er látin.Hún var dóttir Kristjáns Jónassonar, kaupmanns og Friðborgar Friðriksdóttur, fæddist i Búðar- dal en ólst upp í Borgarnesi. Hún stundaði nám við Flensborgar- skólann 1925— 26 en árið 1928 giftist hún Ölafi Halldórssyni frá Varmá. Þau eignuðust eina dóttur, Gunnfríði, en slitu sam- vistum eftir stutta sambúð. Síðar giftist Camilla frænda sínum, Sig- valda Indriðasyni frá Skarði og bjuggu þau alla sína tíð í Stykkis- hólmi. Varð þeim fjögurra barna auðið. Sigvaldi lézt árið 1961. Unnur Helgadóttir, f. á Flateyri við Önundarfjörð 20. febrúar 1903 er látin. Hún var dóttir Helga Andréssonar skipstjóra og Helgu Björnsdóttur, og ólst,upp í stórum systkinahópi. Snemma fluttist fjölskyldan til Hafnar- fjarðar og síðan til Reykjavíkur. Árið 1927 giftist Unnur Kristjáni Kristjánssyni og áttu þau fjögur börn en áður átti hún þrjú börn með Lárusi Lárussyni, verzlunar- manni. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju i dag kl. 3 e.h. Einar B. Waage hljómlistarmaður verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni þriðjudaginn 19. október kl. 13.30. Magnús Helgason verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni þriðjudaginn 19. október kl. 10.30. •Þorsteinn Jónsson, fyrrv. kaup- félagsstjóri frá Reyðarfirði, verður jarðsunginn frá Egils- staðakirkju föstudaginn 22. októ- ber kl. 2 e.h. Kristinn Níelsson, bifreiðastjóri, verður jarðsunginn frá Aðvent- kirkjunni þriðjudaginn 19. október kl. 15. Jónas Þorvaldsson, Birkihvammi 17, Kópavogi er látinn. Anna Helgadóttir, Selvogsgrunni 31 er látin. Ingibjörg Sigurðardóttir, frá Vegamótum, Stokkseyri, er látin. Ölafur Ingimundarson, fyrrum bóndi að Nýjabæ í Meðallandi er látinn. Einar Marel Erlendsson, bifreiða- stjóri, er látinn. Fundir Fíladelfía í Reykjavík Svstrafundur verður mánudasinn 18. þ.m. kl. 8.30. Mætið vel og munið breyttan fundardag. Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík heldur fund miðvikudaííinn 20. okt. kl. 8 i Sl.vsavarnahúsinu við C.randaKarð. Hannes Hafstein kemur á fundinn. FélaKskonur fjöl- mennið. Húsmœðrafélag Reykjavíkur Funaur verður mánudaginn 18. okt. kl. 8.30 I félagsheimilinu Baldursgötu 9. Allar húsmæður velkomnar. Fyrirlestrar um þróun nú- tímalistar ó Kjarvalsstöð- um. A fimmtudögum i vetur mun forstöðumað- ur Kjarvalsstaða. Aðalsteinn Ingólfsson. flytja fyrirlestra um nútimastefnur i m.vnd- list. Fram að jölum verða eftirtaldir tólf fvrirlestrar haldnir: Forverar: V'an (logh. C.augin & Cezanne. Fauvismi: Matisse. Derain o.fl. Expressjón- ismi I In/.kalandi. Kúbismi: Pikassö. Braque. (Iris o.fl. Fútúrismi og Vortex. Dada. Súrreal- ismi. Ný-plastik i Hollandi: Mondrian. van Doesburg o.fl. Amerískur afstrakt- expressjónismi. Ameri.sk list 1950—1965. Minimal og eoneept. Skúlptúr á 20. öld. Kvenfélag Óhúða safnaðarins. Unnið verður alla laugardaga frá 1—5 e.h. í! Kirkjubæ að basar félagsins sem verður laugardaginn 4. desember nk. Æskulýðsstarf Neskirkju, vetrarstarí hefst i kvöld fyrir unglinga 13—17 ára. Opið hús frá kl. 19.30. Prestarnir. Pennavinir Dagblafiinu barst eftirfarandi fró Luxembourg: „Ég fékk heimilisfangið ykkar á Dag- blaðinu hjá Islendingum sem eiga heima i sama bæ og ég hér f Luxembourg. Mig langar mikið til þess að komast í bréfasamband við ungt fólk á aldrinum 16-20 ára. Eg er nemi og er 20 ára. Ég hef áhuga á bókum, tónlist, kvikmyndum og ferðalögum. Heimilisfangið er: Guy Anen. 29 Route De Luxembourg, Bridel, Luxembourg. Bókabíl! Viðkomustaðir bókabílanna Árbœjartiverfi: Verzl. Rofabæ 39 þriðjud. kl. 1.30—3.00. Verzl. Hraunbæ 102 þriðjud. kl. 7.00—9.00. Verzl. Rofabæ 7—9 þriðjud. kl. 3.30—6.00. Breiftholt Breiðholtsskóli mánud. kl. 7.00—9.00, mið- vikud. kl. 4.00—6.00, föstud. kl. 3.30—5.00. Hólagarður, Hólahverfi mánud. kl. 1.30— 3.00, fimmtud. kl. 4.00—6.00. Verzl. Iðufell fimmtud. kl. 1.30—3.30. Verzl. Kjöt og fiskur við Seljabraut föstud kl. 1.30—3.00. Verzl. Straumnes fimmtud. kl. 7.00—9.00. Verzl. við Völvufell mánud. kl. 3.30—6.00, miðvikud. kl. 1.30—3.30, föstud. kl. 5.30— 7.00. Háaleitishverfi Álftamýrarskóli miðvikud. kl. 1.30—3.30. Austurver, Háaleitisbraut mánud. kl. 1.30— 2.30. Miðbær, Háaleitisbraut mánud. kl. 4.30— 6.00, miðvikud. kl. 7.00—9.00, föstud. kl. 1.30—2.30. Holt — Hlífiar Háteigsvegur 2 þriðjud. kl. 1.30—2.30. Stakkahlíð 17 mánud. kl. 3.00—4.00, miðvikud. kl. 7.00—9.00. Æfingaskóli Kennaraháskólans miðvikud. kl. 4.00—6.00 Laugarás. Verzl. við Norðurbrún þriðjud. kl. 4.30—6.00 Laugameshverfi Dalbraut/KIeppsvegur þriðjud. kl. 7.00—9.00 Laugalækur/Hrísateigur föstud. kl. 3.00—5.00. Sund iKleppsvegur 152 við Holtaveg föstud. kl. 5.30— 7.00. Tún Hátún 10 þriðjud. kl. 3.00—4.00. Vesturbær Verzl. við Dunhaga 20 fimmtud. kl 4.30— 6.00. KR-heimilið fimmtud. kl. 7.00—9.00. Skerjafjörður — Einarsnes fimmtud. kl. 3.00—4.00. Verzlanir við Hjarðarhaga 47 mánud. kl. 7.00—9.00, fimmtud. kl. 1.30—2,30. ljója;koðun LÝKUR 31. OKTÓDER UMFERÐARRÁÐ DAGBLADIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ SÍMI27022 ÞVERHOLTI 2 Til sölu Hewlett Packard 25 (Pocket) til sölu, einn fullkomnasti vísindarafreiknir á heimsmarkaðnum. Hægt er að „prógramera" vélina auk innbyggðra prógrammkerfa sem eru 72. Nýjung í þessari vél er svokölluð „Engineering Notation“ sem auðveldar mjög af- lestur stórra og smárra talna. Vélin er ný og henni fylgja' hleðslutæki, formúlubækur auk hins háa gæðamats frá Hewlett Packard. Uppl. í síma 43122 nú og, næstu daga. Gott verð. Til sölu ullargólfteppi, innihurð með karmi og Telefunken útvarp. Uppl. í síma 93-2040 Akranesi eftir kl. 7. Lítið, snoturt hjólhýsi til sölu, fæst á hagstæðum kjörum ef samið er strax. Uppl. í síma 85028 milli kl. 7 og 10. Til sölu 8 hansahilur barglerskápur og skápur. Uppl. í síma 71389. Til sölu.Tan Sad kerruvagn, einlitur, brúnn og litið notuð smökingföt á háan og grannan mann og Roventa grill- ofn til sölu. Uppl. í sínia 27376. Rennihekkur til sölu. Notaður Universal rennibekkur með hefli, fræsivél og sög er tiI sölu í Vélskóla íslands, Sjómannaskólanum. Tilboð í lokuðu umslagi, merktu „Rennibekkur" sendist í pósthólf 5134 fyrir 1. nóv. '76 og verða þau opnuð mánudaginn i. növ. '76 kl. 14. Uppl. í síma 19755. Til sölu góður söluturn í miðbænum. Tilboð sendist DB fyrir fimmtudag merkt ...Söluturn 31399." Miðstöðvarketill, kynditæki og fylgihlutir til sölu. Uppl. í síma 42488. I Óskast keypt i) Óska eftir notaðri IBM kúluritvél. Uppl. í síma 28833 eftir kl. 7 í kvöld og næstu kvöld. Hvaðfæst í Kirkjufelli? Vinsælu hollenzku steinstytt- úrnar komnar aftur. Skírnar-, fermingar-, brúðkaupsvörur og ^gjafir. Kerti, servíetturi. kort og gjafapappir. Kristilegar hljóm- plötur, kassettur og bækur. Margt fleira forvitnilegt. Verið vel- ■komin í Kirkjufell í Ingólfsstræti 6. Harðfiskur. Seljum brotafisk, saltfisk og mari- neraða síld. Opið alla daga til kl. 18. Hjallfiskur hf., Hafnarbraut 6, Kópavogi. Stór páfagaukur óskast. Uppl. í síma 91-1024 á kvöídin. Óska eftir vegghillukæli, frystivélapressu og mótor. Uppl. í síma 53312. Hef áhuga á að kaupa málverk, landslagsmynd eftir Jón Stefáns- son. Verð til viðtals á Hótel Loft- leiðum. miðvikudag kl. 10-12 eða skv. nánari upplýsingum í gesta- móttöku á Hótel Loftleiðum. Erling Blöndal Bengtsson. Kópavogsbúar. Mánaðarbollarnir komnir. Hraun- búð, Hrauntungu 34. Körfuhúsgögn Reyrstólar með púðum, léttir og þægilegir, kringlótt reyr- borð og hin vinsælu teborð á hjól- um fyrirliggjandi. Þá eru komnir aftur hinir gömlu og góðu bólstruðu körfustólar. Körfugerðin, Ingólfsstr. 16, sími 12165. Kaupum brotajárn (pott). Uppl. í síma 24407. Járn- steypan hf. Verzlun Alls konar skofatnaður. Kaupum af lager alls konar sköfatnað, svo sem karlmannaskó, barnaskó og kvenskó. Uppl. í síma 51744. Kaninupelsar. loðsjöl (capes) og treflar. Skinna- salan Laufásvegi 19, 2. hæð tii hægri, sími 15644. Margar gerðir stcreohljómtækja. Verð með hátölurum frá kr. 33.630. Urval ferðaviðtækja, verð frá kr. 4.895. Bílasegulbönd fyrir kassettur og átta rása spólur, verð frá kr. 13.875. Úrval bílahátalara,’ ódýr bílaloftnet, Músíkkassettur. og átta rása spólur og hljóm- plötur. Sumt á góðu verði. F. Björnsson, Radíóverzlun, Berg- þórugötu 2, sími 23889. Nýsviðnar lappir. Sviðalappir til sölu á Klapparstíg 8 (;i horninu á Klapparstig og' Sölvhólsgötu) alla virka daga l'rá 19-22 og helgidaga frá kl, 14-22. Fyrir ungbörn Tan Sad kerruvagn, einlitur, brúnn, lítið notuð smókingföt á háan og grannan mann og Roventa grillofn til sölu. Uppl. í síma 27376. Til sölu 3ja hcllna Rafha eldavél.Uppl.. í síma 86945 eftir klukkan 6 í dag. Til sölu 3ja ára Caraveile frystikista, 350 lítra. Verð 60.000 kr. Uppl. í síiíia 34687 eftir kl. 18. Sænsk skermkerra sem ný og barnaleikgrind til sölu Uppl. í síma 23497 eftir klukkan 7 á kvöldin. Fallegur vel með farinn barnavagn til sölu. Uppl. í síma 72715. Til sölu barnarimlarúm með dýnu og færanlegum botni, vel með farið. Uppl. í síma 41121. Til sölu barnavagn, Tan Sad Allwin og bílstóll. Uppl. í síma 37448. Óska eftir notaðri frystikistu og ísskáp. Sími 40322. Til sölu gamall fr.vstiskápur Uppl. í síma 41321 í dag milli kl. 7 og 10. Til sölu nýleg eldavél. Uppl. i síma 26787. Húsgögn Fatnaður Arsgamall mokkajakki frá Gráfeldi til sölu á hálfvirði. Uppl. í síma 26916. Halló dömur! Stórglæsileg nýtízku pils til sölu í öllum stærðum úr terylene, flaueli, denim og moskrep. Mikið litaúrval, mörg snið, sérstakt tækifærisverð. Uppl. í síma 23662. Nýr fatahengisskápur til að setja saman (matt- hvítlakkaður) og ullarrýjateppi 1,5x2 m til sölu. Uppl. í síma 23497 eftir klukkan 7 á kvöldin. Sófasett: Til sölu vönduð sófasett, miíliliðalaust. í sýningarsal okkar að Grensásvegi 50. Sími 85815, Z-húsgögn. Til sölu vel með farið antik borðstofusett. Uppl. í síma 41321 i dag á milli kl. 7 og 10. Sérlega glæsilegur hvítur brúðarkjóll með síðu slöri lil sölu. Uppl. i sírna 75839. I Heimilistæki Litili isskápur óskast til kaups. Uppl. i síma 34078. Til sölu útskorið sófaborð, eikarteborð, tvær eikarborðstofu- stólar. eins manns rúm og klæðaskápur úr birki. Uppl. í. síma 21634.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.