Dagblaðið - 18.10.1976, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 18.10.1976, Blaðsíða 17
íi VCBI.AÐH). MANUDACl'K 1« OKTOBKK 107« i: iTOStr^iÉliÉilÉKIi^ ■ -- ■ —i--1 JI1 "■ w ;vip Ólafs H. Jónssonar, sem fvlgist með viðureign markvarðarins við — og það vita fáir betur en Ólafur — og l.vfti knettinum skemmtilega DB-m.vnd Bjarnleifur. i hélt heim r ó bakinu! r sá sigur sízt of stór mörk — næst raðieysislegar sóknarlotur þar og sem leikmenn vissu vart í þennan heim né annan. Og einnig var áberandi að leikmenn virtust alls ekki vita hvaða stöðu þeir áttu að leika og voru þannig spilaðir út úr þeim stöðum er þeir venjuleika leika með liðum sínuri), greinilega án þess að vera æfðir í hina nýju stöðu Já, vissulega er enn margt ógert en landsliðsnefnd HSÍ er greinilega á réttri braut — þó, eins og áður hefur verið sagt, langt sé í land. Því verður úrvalslið HSÍ vart dæmt svo rnjög af leik sínum gegn Dankersen — en þó var það greinilegt oghver maður í Laugar dalshöllinni gal séð það á laugar- dag að þeir Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson eru leikmenn sem islenzka landsliðið beinlinis getur ekki verið án. Sérstaklega hefur verið ánægjulegt að sjá að Axel Axelsson hefur nú náð sér að fullu hefir langvarandi meiðsli og hefur aldrei verið jafnsterkur líkamlega og einmitt nú. Axel hefur næmt auga fyrir spili og fái hann minnsta tækifæri er knötturinn í marki andstæðing- anna. Ólafur H. Jónsson er leik- maður á heimsmælikvarða — þó get ég ekki varizt þeirri hugsun að hann sé alls ekki nýttur á réttan hátt hjá Dankersen. Hvort Jauzz Czerwinsky notar þá félaga Axel og Ólaf á eftir að koma á daginn— og vissulega er slæmt að þeir skuli vera jafn langt i burtu og raun ber vitni. Kn þeir félagar eiga fyllilega erindi i landslið okkar og myndu styrkja það verulega léku þeir með því í þeim erfiðu leikjum. sem nú eru frantundan hjá landsliðinu og hápunkturinn verður í Auslurríki i febrúar næstkomandi, b- kennnin svokallaða. En snúuni okkur að leiknum á laugardag — Dankersen byrjaði fyrri hálfleik, vel, komst i 3-1 en úrvalsliðið náði að jafna og síðan síga framúr. Þannig komst úrvalsliðið í 9-6. en staðan í hálfleik var 9-7. Rétt eins og í fyrri hálfleik byrjaði Dankersen síðari hálf- leik vel — náði forystu 10-9 og síðan 11-10 en síðan seig úrvals- liðið framúr og raunar fór aldrei á milli mála að sigurinn yrði þess. Hefði í raun getað orðið stærri en 20-15. Markhæsti leikmaður úrvals- liðs IíSÍ var Geir Hailsteinsson með 5 mörk — en hann mis- notaði 2 vítaköst. Árni Indriðason skoraði 4 mörk — þar af 3 úr vítaköstum og sýndi Arni öruggi í vítaköstum sínum — eftir að Island hafði misnotað þrjú. Björgvin Björgvinsson skoraði þrjú mörk — en var auk þess iðinn við að fiska vítaköst. Ungu mennirnir, þeir Þorbergur Aðalsteinsson og Bjarni Guðmundsson skoruðu 2 mörk hvor — vissulega menn fram- tíðarinnar. Wallke var markhæstur í liði Dankersen með 5 mörk en þeir Axel og Busch skoruðu 3 mörk hvor, Ólafur, Van Oepen. Karmer og Me.ver skoruðu sitt markið hver. Leikinn dæmdu þeir Hannes Þ. Sigurðsson og Karl Jóhannsson. Það er ekki ofmælt að segja, að þeir hafi verið úrvalsliðinu hliðhollir. Það sést ef til vill bezt á því að þeir dæmdu 6 vítaköst á Dankersen — eitt á úrvalsliðið. Tvívegis voru leikmenn Danker- sen reknir af velli — aldrei íslenzkir, sem þó var ekki síður ástæða til. En þrátt fyrir að sagt var að þeir hefðu verið heima- dömarar dæmdu þeir félagar alls ekki illa. voru einfaldlega hliðhollir sínum mönnum.h. halls. „Við óttum oð sigra" — sagði Ásgeir Sigurvinsson. Union sigraði og er komið í annað sœti í 2. deild — Þetta var góður leikur — einn albezti leikurinn hjá okkur í Standard. En mörkin létu á sér standa í Antwerpen og okkur tókst því ekki að ná báðum stigunum. Úrslit 0-0, sem segja má, að sé gott gegn Antwerpen, sem var í öðru sæti fyrir leikinn. Og þó. Þetta hefði getað verið betra með úrslitin. Við áttum að sigra. sagði Ásgeir Sigurvinsson, þegar Dagblaðið ræddi við hann í morgun. Standard Liege lék í gær á útivelli og að sögn Ásgeirs sótti liðið nær stöðugt gegn Antwerpen siðari hálfleik eftir jafnan fyrri hálfleik. En mörkin kornu ekki jafntefli varð Ö-0. FC Brugge gerði einnig jafntefli og er nú efst með 14 stig. Síðan koma Anderlecht og Antwerpen með 12 stig. Standard er í f.jórða sæti með 11 stig. Charleroi náði ágætum árangri á útivelli, gerði jafntefli við Courtrai. Þar var heldur ekki skorað. í 2. deild er Union komið í annað sæti. Þeir Marteinn Geirsson og Stefán Halldórsson léku báðir með liðinu gegn Gent — og Royale Union sigraði 1-0 þó svo leikið væri á útivelli. Ekki skoruðu tslendingarnir í leiknum — en stóðu vel f.vrir sínu. Urslit í 1. deildinni urðu þessi: Malinois—Anderlecht 1-1 Molenbeek—Waregem 3-0 CS Brugge—FC Brugge 2-2 Winterslag—Lokeren 2-1 Antwerpen— Standard 0-0 Courtrai—Charleroi 0-0 Ostende—Beringen 1-1 FC Liege—Lierse 0-2 Beveren—Beerschot 2-1 HM-sigur ítaliu i Luxemborg — en ekki sú stórsigur, sem reiknað hafði verið með. Aðeins 1-4. ftalía sigraði Luxemborg auð- veldlega í 2. riðli Evrópu í for- keppninni fyrir heimsmeistara- keppnina 1978. Leikið var í Luxemborg og iokatölur 1—4, sem þó var miklu minni munur en reiknað hafði verið með — einkum eftir stórsigur Finna þar á dögunum. Finnar og Englend- ingar eru einnig í riðlinum. Finnar sigruðu í Luxemborg 1—7. Lið Luxemborg kom mjög á óvart framan af leiknum, sem háður var á laugardaginn, og ítalir áttu í vök að verjast. En á 28 mín. tókst Francesco Graziana að skora fyrir italíu og þá snerist leikurinn við. Taugar ítölsku leikmannanna komust í - lag. Fimmtán mín. síðar skoraði Roberto Bettega annað mark italíu — en Lttxemborgarmenn voru óheppnir að skora ekki í lok hálfleiksins, þegar Braun átti hörkuskot í þverslá af löngu færi. Sex mín. eftir leikhléið skoraði italía þriðja mark sitt, sem miklar deilur urðu um. Mark- vörður Luxemborg sló þá knött- inn frá marki sínu. beint til Antognoni, sem tók knöttinn niður á brjóstinu og spyrnti síðan í mark. Leikmenn Luxemborgar mótmæltu ákaft — álitu að ítal- inn hefði handleikið knöttinn. Mark Luxemborgar slapp oft á furðulegan hátt áóur en Bettega skoraði fjórða markið — en fjórum mín. fyrir leikslok varð misskilningur í vörn ítala. Braun náði knettinu og skoraði, án þess að markvörðurinn frægi, Dino Zoff, kæmi við nokkrum vörnum. Eftir þennan leik er staða þannig í riðlinum. England 2 2 0 0 6-2 4 Ítalía 1100 4-1 2 Finnland 3 1 0 2 9-7 2 Luxemborg 2 0 0 2 2-11 0 Loto hetja Pól- verja í Portúgal — Skoroði tvívegis í HM-leiknum og Pólland stendur nú vel að vígi í 1. riðli Evrópu Pólland. sem hlaut þriója sa'tið í heimsmeistarakeppninni í knattsp.vrnu 1974, vann ákafiega þýðingarmikinn sigur í 1. riðli forkeppni HM á laugardag. Það var gegn Portúgal í Oporto. 0-2 á útivelli er mikill sigur. Lato skoraði bæði mörk Póllands í síðari hálfleik — á 49. og 76, mín. Pólland byrjaði strax mikinn sóknarleik. Ahorfendur voru 30 þúsund og þeir voru á nálum. þegar sóknarloturnar buldu á marki Portúgal. Aðeins frábær markvarzla nýliðans Bento kom i veg fyrir mörk í f.vrri hálfleik. En i byrjun þess síðari slapp Lato frá varnarmanni og Bento réð ekki við skot hans af stuttu færi. Síðara markið skoraði liann eftir innkast. þar sem Portúgalar misstu knöttinn. Portúgaiar re.vndu í lokin að sækja. en án árangurs og rnikil þre.vta var ein- kennandi hjá leikmönnum liðs- ins. Oliveira fékk þó gott tæki- færi. en sp.vrnti framhjá markinu þegar markvörðurinn gat ekki komið við vörnum. Franski dóm- arinn Michel Kitabdjian bókaði tvo pólska leikmenn, Kasperczac og Maculewicz. Völlurinn í Oporto var þungur vegna rigningar. Pólverjar notuðu mest langsendingar. sem oft komu Portúgölum í hina mestu erfiðleika. Allt bendir nú til þess, að Pólverjar sigri í þess- um 1. riðli Evrópu. Hin tvö löndin í riðlinum eru Danmörk og Kýpur. Danir eiga góðu liði á að skipa og eru bjartsýnir á árangur — en þessi sigur Pölverja á úti- velli kemur til að vera þungur á metunum í lokin. RITSTJORN: HALLUR SIMONARSON Brezk-írska sveitin vann — í Eisenhower-golf- keppninni i Portúgal Brezk-írsKa sveitin sigraði í heimsmeistarakeppni áhuga- manna í golfi — Eisenhower- keppninni — sem lauk í Penina í Portúgal í gær. Sveitin lék á 892 höggum og var aðeins tveimur höggum á undan Japan, sem var með 894 högg. I þriðja sæti var sveit Ástraliu með 897 högg. Brezk-írska sveitin hafði forustu alla keppnina — keppnisdagar fjórir — en spenna var mikil iokadaginn, þar sem japanska sveitin sótti mjög á um tíma. Bandaríska sveitin, sem sigraði í Ikeppninni í fyrra, var einnig í sviðsljósinu, en féll svo niður i fimmta sæti. Þetta er í annað sinn, sem sam- einuð sveit Bretlands og Íriands sigrar í tíu ára sögu Eisenhower- keppninnar, í sveitinni voru Ian Hutcheon, sem lagði grunn að sigrinum með jöfnum og góðum árangri og lék síðustu 18 holurnar á 71 höggi. Tveimur undir pari, — M. Kelly, S. Martin og J. Davies. Sveit Taiwan varð í fjórða sæti með 898 högg. Þá sveit USA með 901 og Kanada varð í sjötta sæti með 906 og Svíþjóð í sjöunda sæti með 911 högg. Af öðrum árangri má nefna Suöur-Afríku (912), Sviss og Rhodesia (914), Dan- mörk — Danir voru þá með eftir allt — með 946 högg, Finnland 964 og Holland 966 högg. Sveit Puerto Rico rak lestina á 1079 höggum. Þrír lyftingq- menn sviptir 01-verðlaunum Killanin lávarður, formaður alþjóðaolympiunefndarinnar, skýrði frá því eftir 'fund nefndarinnar í Barcelona í gær, að þrír lyftingamenn hefðu verið sviptir verðlaunum þeim, sem þeir hlutu á Olýmpíuleikunum í Montreal í sumar. Það sannaðist á þá, að þeir höföu notað örvandi lyf. Þessir þrír lyftingamenn eru Valentine Khristov, Búlgaríu, sem sigraði í þungavigt, Zbigniew Kaczmarck, Póllandi, sem sigraði í léttvigt, og Blagoi Blagoev, Búlgaríu, sem hlaut silfur- verðlaun í léttþungavigt. Endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin hvort keppendur, sem voru í næstu sætum í léttvigtinni og þungavigtinni hljóti verðlaunin þar, svo og silfrið í léttþungavigt. Prófanir fara enn fram í sambandi við þá keppendur, sem þar koma til greina. Þó eru líkur á, að Piotr Korol, Sovétríkjunum, hljóti gulliö í léttvigt, Frakkinn Daniel Senet silfur, en ekki eins víst, að Pólverjinn Czarnecki, sem varð fjórði. hljóti bronzið. Þá eru einnig líkur á. að Juri Zaitsev. Sovétríkjunum, og Semerdjiev, Búlgaríu, hijóti gull- og silfur í þungavigtinni — en rannsókn fer frain í sambandi við Pólverjann Rutkowski, sem þar varð fjórði i Montreal. Ársþing Fimleika- sambandsins Arsþing Fimleikasambands ís- lands verður haldið laugardag- inn 20. nóvember n.k. í Félags- heimili Rafmagnsveitu Reykja- vikur við EUiðaár. Gögn til sam- bandsaðila verða send á næst- unni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.