Dagblaðið - 18.10.1976, Page 18
18
DAOBLAÐIÐ. MANUDACUK 18. OKTÖBER 1976.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Sþróttir
Þá vaknaði Derby — skoraði
átta mövk gegn Tottenham!
Þá kom að því að leikmenn
Derby County — enski meist-
arar fyrir aðeins 18 mánuðum
(1975) — fóru í gang og það
heldur betur gegn Tottenham á
Baseball Ground í Derby. Aður
en yfir lauk höfðu leikmenn
Derby skorað átta mörk og
unnið sinn fyrsta ieik á leik-
timabilinu, 8-2. Það eru fimm
ár síðan átta mörk hafa verið
skoruð í 1. deild af sama liði.
1971 lék Everton þann leik.
Framkvæmdastjóri Derby,
Dave MacKay, hefur sagt að
undanförnu að það hlyti að fara
að koma að því, að lið hans færi
að sigra. Varla hefur hann þó
búizt við þessum stórsigri á
Tottenham — Lundúnaliðinu,
sem hann lék svo lengi með og
náði þar frábærum árangri.
MacKay gerði nokkrar breyt-
ingar á liði sínu'á laugardag.
Steve Powell var bakvörður
Colin Todd framvörður
og Bruce Rioeh færður í
framlínuna.Það gaf mikinn
árangur — landsliðsmaðurinn
Rioch, skoraði fjögur mörk í
leiknum.
En það var kokkney-
strákurinn Charlie George, sem
kom Derby af stað. Hann
skoraði þegar á fjórðu mín. og
mínútu síðar sendi Rioch knött-
inn í mark Tottenham. Hann
skoraði aftur fyrir hlé — en
staðan var þá aðeins 3-2 fyrir
Derby. Steve Perryman og
Keith Osgood (víti) skoruðu
fyrir Tottenham. En á 15 min.
leikkafla í síðari hálfleik
skoraði Derby fimm sinnum.
Bakvörðurinn Rod Thomas
(landsliðsmaður Wáles)
skoraði á 58. mín. Fyrsta mark
hans fyrir Derby í rúmlega 70
leikum. Þá skoraði Rioch 3ja
mark sitt — George úr víta-
spyrnu, síðan Todd og að lokum
Rioch á 73. mín. fjórða mark
sitt í leiknum. Þar við sat — en
þessi stórsigur Derby hlýtur að
endurvekja sjálfstraust leik-
manna liðsins á ný.
En við skulum líta á úrslitin á
laugardag áður en lengra er
haldið.
1. deild
Arsenal — Stoke 2-0
Birmingham — Middlesbro 3-1
Bristol C. — Leicester 0-1
Coventry — Newcastle 1-1
Derby — Tottenham 8-2
Liverpool — Everton 3-1
Manch. City — QPR 0-0
Norwich — Leeds 1-2
Sunderland — A. Villa 0-1
WBA — Manch. Utd. 4-0
West Ham — Ipswich 0-2
2. deild
Blackpool — Nottm. For.. 1-0
Bolton — Bristol Rov. 1-0
Burnley — Charlton 4-4
Carlisle — Luton 1-1
Chelsea — Oldham 4-3
Hull City — Wolves 2-0
Millvall — Blackburn 0-1
Notts Co. — Orient 0-1
Plymouth — Cardiff 2-2
Sheff. Utd. — Fulham 1-1
Southampton — Hereford 1-0
Liverpool náði aftur forustu
með góðum sigri á nágrannaliði
sínu Everton á Anfield.
Liverpool-liðið lék frábærlega
vel f fyrri hálfleik og skoraði þá
þrívegis. Mörkin hefðu þó eins
getað verið sex — svo miklir
voru yfirburðirnir. Strax á 6.
mín. skoraði Steve Heighway.
Þá hefðu að minnsta kosti fimm
ieikmenn Everton átt að geta
komið fyrir markið. En eftir
það voru yfirburðir Liverpool
algjörir fram að hléinu. Kevin
Keegan var í sínum bezta ham
— óstöðvandi — og bakvörður-
inn Phil Neal skoraði annaö
mark Liverpool úr vitaspyrnu á
12. mín. eftir að Keegan hafði
verið felldur innan vítateigs.
Liverpool í efsta sœti
eftir sigur á Everton
Öll Birmingham-liðin
unnu — WBA vann
stórsigur á
Manchester
Utd.
r>g
Þriðja markið skoraði John
Toshack með skalla á 40. mín.
Hann lék i stað David John-
son, sem er meiddur. Strax i
byrjun s.h. skoraði Martin
Dobson fyrir Everton og það er
fyrsta mark Everton á Anfield í
sex ár. En þó von Everton leik-
mannanna vaknaði um stund
var hún fljótt slökkt aftur.
Liverpool náði fyrri tökum á
leiknum án þess þó að skora
fleiri mörk.
Manch. Utd. fékk skel! í
West Bromwich—og frant-
kvæmdastjóri United. Tommv
Docherty, virtist bjóóa upp á
hann, þegar hann tilkynnti lið
sitt fyrir leikinn. Fyrirliði
Manch. Utd.. Martin Buchan.
meiddist í landsleik Tékka og
Skota (Manch. Utd. átti átta
leikmenn í landsleikjunum sl.
miðvikudag) og gat ekki leikið.
i stað hans valdi Docherty Col
in Waldron. sem miðvörð —
leikmann. em Burnle.v hafði
ekki meiri not fyrir sl. vor og
gaf frjálsan.
Það val vakti afar mikla
furðu. — Aður hefur Stewart
Houston farið sem miðvörður
ef þess hefur verið þörf, en
Arthur Albison tekið stöðu
hans semvinstrihakvörðurVörn
United var eins og gaiasigti í
leiknum — samvinna engin, og
Waldron mun áreiðanlega vilja
gleyma þessum leik sem fyrst,
þó ekki verði honum einum
kennt um allar ófarirnar.
Skoruöu ekki úr vitaspyrnum.
Johnny Giles
Johnny Giles, hinn 35 ára
framkvæmdastjóri WBA. sem
hóf feril sinn hjá Manch. Utd.
—og það voru einu alvarlegu
mistök Sir Matt Busb.v, hinn
fræga framkvæmdastjóra Uni-
ted, á löngum ferli að selja
Giles til Leeds — átti snilldar-i
leik á laugardag og réð lengst
af lögum og lofum á vellinum.
Hann skoraði strax á 7. mín.
frábært mark af 25 metra færi
— Stepney sá knöttinn ekki
fyrr en of seint. Manchester-
liðið, sem í byrjun virtist slakt,
fór síðan að ná tökum á leikn-
um og um miðjan hálfleikinn
fékk það vitaspyrnu. Gerry
Daly, sem aldrei hefur mis-
notað víti fyrir United (tekið
14), sá John Osborne verja
spyrnu sína — og það hafði
örlagarík áhrif. Fyrsta sinn í 3
ár, sem Daly misnotar víti.
Alister Brown skoraði annað
mark WBA á 35. min. (Robert-
son segir Reuter) og það var
mikið klaufamark hjá Stepney.
Laus skaili Brown rann i
hornið, en Stepney virtist álita.
að knötturinn færi framhjá og
gerði ekki tilraun til að verja. I
lok hálfleiksins átti Steve
Coppell stangarskot fyrir Uni-
ted og það var siðasta lífs-
markið hjá United. Len Can-
tello skoraði 3ja mark WBA
strax í byrjun s.h. eftir horn-
spyrnu Giles og eftir það hafði
WBA algjöra yfirburði. Leik-
menn United hlupu og hlupu
án nokkurs árangurs. Ray
Treacy skoraði fjórða mark
WBA á 79. mín. og þar við sat.
David McCreery kom í stað Lou
Macari í s.h. hjá United, en það
breytti engu. Eftir leikinn urðu
mikil læti — eins og nær alltaf,
þ^r sem Manch. Utd. leikur —
— 81 handtekinn.
Lið WBA lék mjög vel í þess-
um leik og er nú aðeins tveimur
stigum á eftir efsta liðinu í 1.
deild. Gerir það langbezt þeirra
liða, sem komust upp úr 2. deild
sl. vor. Dagurinn var mikill
sigurdagur fyrir Birmingham-
liðin öll þrjú. Auk sigurs
WBA vann Aston Villa í
Sunderland með frábæru
marki nýja leikmannsins frá
Arsenal, Alex Cropley, á 74.
mín. Það var mikið einstakl-
ingsafrek Cropley og nægði til
sigurs.
Birmingham lék við efsta
liðið fyrir umferðina, Middles-
bro, og vann öruggan sigur. Joe
Gallagher, miðvörður Birming-
ham, skoraði fyrsta mark leiks-
ins en Phil Boersa jafnaði
fyrir Middlesbro. Fyrsta mark
Middlesbro á útivelli á leik-
timabilinu. 1 síðari hálfleik
náði Birmingham-liðið
alveg yfirhöndinni.
Kenny Burns skoraði á 55. mín.
og síðan Trevor Francis úr víta-
spyrnu. Francts hafði leikið i
gegn, en markvörður Middles-
bro, Jim Platt, braut á honum
og vítið var dæmt.
Um aðra leiki er það að segja,
að Arsenal vann auðveldan
sigur á Stoke. Pat Rice skoraði
fyrra mark Arsenal á 12. mín.,
en MacDonald það síðara á 72.
mín. og þurfti þá ekki annað en
ýta knettinum yfir marklínu
eftir undirbúning Liam Brady.
Tvær vítaspyrnur voru
misnotaðar á Maine Road í
Manchestcr. I fyrri hálfleik fékk
QPR vítaspyrnu, en Don
Masson spyrnti yfirmarkCit.v.A
fyrstu min. síðari hálfleiks fékk
Cit.v viti. — Dennis Tueart
spyrnti framhjá. Manch. City
sótti miklu meira i leiknum, en
Phil Parkes átti stórleik í marki
QPR og bjargaði öðru stiginu
fyrir lið sitt. Rangers-liðið, sem
var í öðru sæti í vor, er nú mun
lakara og greinilegt, að
sjálfstraust_leikmanna er af
skornum skamti.
Ipswich lék West Ham
sundur og saman á Upon Park í
Lundúnum ..mörkin hefðu eins
getað orðið tíu,“ sagði
fréttamaður BBC. En Ipswich
skoraði aðeins tvívegis — Clive
Woods í bæði skiptin og eins
vel og Ipswich lék „ætti liðið að
hafa góða möguleika að blanda
sér í keppnina um
meistaratitilinn," bætti
fréttamaðurinn við. Leicest-
er vann loks á útivelli og
það á kostnað Bristol City.
sem ört hraiiar nú niður
töfluna eftir allgóða b.vrjun.
Frank Worthington skoraði
eina markið i leiknum.
Coventry og Newcastle gerðu
jafntefli. Alan Gowling skoraði
fyrir Newcastle, en Barry
Powell jafnaði fyrir heimaliðið.
I 2. deild heldur Chelsea sinu
striki — er efst með 15 stig. Lék
mjög vel gegn Oldham framan
af og komst i 2-0 eftir 18 min.
Staðan í hálfleik var 4-2 — en
Oldham skoraði eina markið í
síðari hálfleik. Blackpool
er í öðru sæti og sigraði
Nottingham Forest. tllfarnir
töpuðu illa i Hull, en Fulham
náði jafntefli í Sheffield gegn
United. Þar voru áhorfendur
yfir 20 þúsund. Bezt hjá Sheff
Utd. í haust. Wood-
ward skoraði fyrir Sheffield
Utd. á 17. mín. en Mitcheli
jafnaði fyrir Fulham á 57. min
Þeir Marsh og Best voru heldur
lítið i sviðsljósinu hjá Fulham
núna — Evanson bar þar
af. Skrítin staða var í Burnley í
hálfieik.Burnley 1 -Charlton 4„
en í s.h. tókst Burnley að jafna.
Noble og Fletchér skoruðu tvö
f.vrstu mörkin. Derek Hale
skoraði tvivegís f.vrir Charlton í
leiknum og hefur nú skorað 15
mörk á leiktímabilinu.
Terry Paine, hinn frægi
landsliðsmaður hér áður
f.vrr meó Southampton. lék sinn
síðasta deildaleik á laugardag.
Alls hefur hann leikið 806
deildaleiki — miklu fleiri en
nokkur annar.
713 með Southampton —
hina með Hereford. Paine vald.
The Dell, leikvöll Southampton.
fyrir kveðjuleikinn, en lið hans,
Hereford, tapaði. Paine, sem
jafnframt því að hafa leikié
með Hereford hefur verið aðal-
þjálfari liðsins. mun nú ein-
göngu snúa sér að þjálfuninni.
i 3ju deild er Brighton etst
með 16 stig — sigraði Peterbro
á heimavelli á laugardag 1-0—
og Wrexham er i öðru sæti
með 15 stig. Vann Port .Vale
I Burslem við Stoke 2-3 á
laugardag. I 4. deild eru
Stockport og Bradford City efst
með 14 stig.
Staðan er nú þannig:
l.deild
Liverpool 9 6 1 2 14-7 13
Manch. C. 10 4 5; 15-10 13
Middlesbro 10 5 3 1 7-6 13
Arsenal 9 5 2 2 16-10 12
WBA 10 4 3 3 16-11 11
Everton 10 4 3 3 16-12 11
Ipswich 9 4 3 2 16-13 11
Manch. Utd. 9 4 3 2 15-12 11
Newcastle 10 3 5 2 14-11 11
Leicester 10 2 7 1 8-8 11
Aston Villa 9 5 0 4 16-9 10
Birmngham 9 4 2 3 15-10 10
Cóventry 9 3 3 3 12-12 9
Leeds 10 3 3 4 13-14 9
QPR 10 3 3 4 13-16 9
Stoke 10 3 3 4 6-11 9
Norwich 11 3 2 6 10-16 8
Derby 9 1 5 3 15-16 7
Bristol C. 9 2 3 4 9-10 7
Tottenham 9 2 2 5 10-22 6
West Ham 10 1 3 6 7-19 5
Sunderiand 9 0 4 5 5-13 4
2. deild
Chelsea 10 7 1 2 17-14 15
Blackpool 11 6 1 4 17-11 13
Wolves 10 4 3 3 22-14 11
Boiton 10 5 1 4 17-14 11
Charlton 10 4 3 3 23-22 11
Hull City 10 4 3 3 14-12 U
Oldham 10 4 3 3 14-15 11
Nott. Eor. 10 3 4 3 21-15 10
Millvall 10 4 2 4 14-11 10
Plymouth 10 3 4 3 17-15 10
Biackburn 10 4 2 4 13-12 10
Fulham 9 3 4 2 13-12 10
Bristoi R. 10 4 2 4 11-11 10
Luton 10 4 2 4 14-14 10
Sheff. Utd. 10 2 6 2 12-15 10
Carlisie 10 3 4 3 15-19 10
South’ton 10 3 3 4 16-19 9
Notts C. 10 4 1 5 12-19 9
Burnlev 10 2 4 4 14-16 8
Cardiff 10 3 2 5 15-18 8
Orient 10 2 3 5 9-13 7
Hereford 10 2 2 6 13-22 6