Dagblaðið - 18.10.1976, Side 20

Dagblaðið - 18.10.1976, Side 20
20 DAC'.BLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. OKTÖBER 1976. Farah flytur til Parísar — írans- keisari hefur fengið sér nýja konu Þgjin 31. október veróur Cyrus, sonur íranskeisara ofi konu hans, Farah, 16 ára. Þar með er móðir hans laus við að koma fram fyrir hans hönd opinberlega. Frá og með þeim Uegi ætlar Farah að búa með þrem yngstu börnum sínum í París. Hún ætlar að flýja harð- stjórn- eiginmannsins og getur loks um frjálst höfuð strokið eftir að vera búin að þola margra ára hörku keisarans af íran. Þau hafa verið gift síðan á árinu 1959 og hafa eignazt fjögur börn. Síðustu árin hefur sambúð þeirra sífellt farið versnandi og nú hefur Farah ákveðið að flytja burt frá íran. Keisarinn hefur mjög ákveðnar skoðanir á þvi hvernig ala skuli börnin upp en Farah finnst hann allt of strangur og hún fær ekki að umgangast elzta son sinn mikið. Hann á að taka við ríkinu að föður sínum látnum og fær'þvl sérstakt uppeldi sem faðirinn annast. Undanfarið hefur Farah búið ein með börnum sínum þrem á öðrum stað en keisarinn. Hann lætur sér þetta bara vel líka og hefur fengið sér aðra unga og fallega konu. Þetta hefur farið mjög i taugarnar á konu hans og þegar hún vissi að hann ætti tvö börn með konu að nafni Gila Soufi Asad sprakk blaðran og hún ákvað að flytjast til Parísar. Það er margt sem hrellir Farah þessa síðustu og verstu tíma. Hún á í miklum erfiðleik- um með að haida línunum og verður að vera mjög vel á verði að verða ekki fitubolla. En Farah verður að véra án elzta sonar síns í Paris. Hann verður eftir í íran og verður að takast á herðar hinar ýmsu skyldur. sem f.vlgja því að vera ríkisarfi. Hver veit hvenær þau mæðginin fá að sjást á ný? Þýtt og endursagt. —KP Ævisagan hneykslar og veldur fjölskyldu- óeirðum Elizabeth Harrison er stúika sem er élskuð heitt. Hún er dóttir Ogore lávarðar og hefur verið gift leikaranum Richard Harris og eignaðist með honum þrjú börn sem nú eru komin á táningaaldur. Hún var einnig gift leikaranum Rex Harrison en þau eru nýlega skilin. Svona rétt til þess að gefa honum og hjónabandinu sina hinztu kveðju hefur Elizabeth nú gefið út endurminníngar sinar. Það er ekki nema mán- uður síðan bókin kom út en hún hofur þegar komið róti á margar f.jiilskyldur og kontið af stað ulls kvns ósamkomulagi. Elizabeth Harrison er þekkt fyrir að hafa bein í nefinu. Hún er á þeirri skoðun að ef einhver ætlar að skrifa endurminningar sínar eigi þær að vera sannleik- anum samkvæmar. Richard Harris fær orð í e.vra fyrir framhjáhald sitt og f.vrr- verandi frú Harris viðurkennir að hún hafi heldur ekki verið við eina fjölina felld á meðan þau voru gift. M.a. segir hún frá brezkum þingmanni sem sendi henni „himnasæng" og með f.vlgdi eftirfarandi bréf: „Eg kem sjálfur með næstu ferð". Það eru ekki allir kaflar bókarinnar jafnánægjulegir. I einum kaflanum segir frá þegar hinn snjalli píanóleikari Robin Douglas Home, sem var einn af æskuvinum Margrétar prinsessu. stvtti sér aldur eftir að hann hafði árangurslaust re.vnt að hringja heim til Eliza- bethar og biðja hana að koma til sin. Elizabeth er í dag frjáls eins og fuglinn og býr með börnun- um sinum þremur i London. Hún hittir báða f.vrrverandi eiginmenn sína af og til. „Eftir þrjá klukkutima með Richard er ég vanalega búin að fá glóðarauga." segir hún. Rex Ilarrison og Elizaheth á meöan allt lék í lyndi. ]

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.