Dagblaðið - 22.10.1976, Side 15

Dagblaðið - 22.10.1976, Side 15
i'osTrnAcrn 22 oktohkk hitk. ;.a Iþróftir þróttir Iþróttir jjfeóttir „skottish“ í kringum annan dómarann sem ekki kvikaði frá ákvörðun sinni. Skothittni Skotanna var meiri en UMFN-liðsins, sérstaklega þeirra Dave Patterson. sem var númer 22 og skoraði jafnmörg stig, Guthire Wilson, með 18 stig og Bill Mac Innes, 14 stig. Fyrri leikinn kynnti Kristbjörn Albertsson bæði liðin og útskýrði einnig leikinn, á meðan á honum stóð, af mestu prýði. -emm. DB-m.vnd emm. oruðu sigur- (asekúndum ppni bikarhafa með minnsta mun, ík i Njarðvík i gœrkvöld. ;t í lokin og Skotarnir skoruðu. Skotarnir sem höfðu mjög jafnsterku liði á að skipa, brúuðu bilið eins og áður. Stærstan hlut að máli átti' lægsti leikmaðurinn, Dave Patterson, 178 cm með snerpu sinni og hittni úr erfiðum færum, skoraði samtals 22 stig. Líkamshæðin segir ekki allt í körfuknattleiknum. þótt hún sé kostur. Vörn UMFN skilaði sínu hlutverki nokkuð sæmilega en sóknarleikurinn var tilvilj- anakenndur, enda mun Vladan Mar- covich eiga eftir að móta hann og lét því Njarðvíkingana leika „frjálsan“ sóknarleik. Þar kann skýringin á mistökunum i sókninni að leynast. Brynjar Sigmundsson og Gunnar Þorvarðarson voru mjög dugandi og iðnir við að hitta körfuna og Stefán Bjarkason og _Kári Marísson áttu nokkuðþolanleganíeik, þótt oft hafi þeir veríð betri. Þorsteinn Bjarnason var ekki mikið inn á en sýndi mjög góð tilþrif, snöggur og leikínn piltur í örri framför. Jónas Jóhannesson, hinn hávaxni. 203 cm, skoraði 14 stig og hirti auk þess mörg fráköst, en þó finnst mörgum að Jónas megi vera dálítið grimmari. Skotarnir virkuðu ekki sérlega sterkir en léku þó mun fastmótaðri leik en UMFNoggengu eins langt og dómararmr ieylðu. þeir Jósep Geurde frá Belgiu og Bo Bergkvist frá Svíþjöð seni dæmdu mjög vel. Einum Skotr"’”o Mc Alpine, var vísað af velli i seinin nálfleik. Mótmæltu hann og félagar hans harðlega þeim úrskurði og dönsuðu hálfgerðan Guðgeir gegn Evrópu- meislurum Anderlecht Það er mikill áhugi á leiknum við Anderlecht um helgina, varla talað um annað hér í Charleroi, sagði Guðgeir Leifsson, þegar Dagblaðið hafði samband við hann í morgun. Lið hans, Charle roi, leikur við Anderlecht, Evrópumeistarana í Evrópu- keppni bikarhafa og sigurvegara í stórbikar Evrópu i Brussel —á heimavelli Anderlecht. Lið Charleroi hefur verið valið í leikinn og Guðgeir er í því. Þetta hefur verið talsvert betra hjá Charleroi i haust en á síðasta leiktímabilið. Við höfum fengið 7 stig úr 8 leikjum og erum i miðri 1. deildinni, sagði Guðgeir enn- fremur. Um fyrri helgi náði Charleroi jafntefli við Courtrai, sem staðið hefur sig mjög vel, á útivelli og við vorum ánægðir með þann leik. Það er erfitt að Ieika í Courtrai við frönsku landa- mærin. Lítill völlur og' liðið er erfitt heim að sækja. Ég lék þar allan leikinn, sagði Guðgeir einnig, en í flestum öðrum leikjum Charleroi hef ég komið inn sem varamaður. Framan af vikunni var ég slæmur i maga i þrja daga — léttist um þrjú kiló — en komst svo á tvær æfingar og hélt sæti mínu í liðinu, sagði Guðgeir. Fólkið hér i Charleroi stendur með mér og það er fyrir mestu — en það eru ekki allir hrifnir af nýja þjálfaranum, sem við feng- um frá Molenbeek. Það á jafnt með leikmenn sem aðdáendur liðsins. Annars komu þrír nýir leikmenn til Charleroi í haust — Allt Belgíumenn og góðir leikmenn. Eg hef trú á þvi, að liðið standi sig mun betur en á síðasta leiktímabili, þegar fallhættan vofði yfir alveg fram á síðustu leiki. sagði Guðgeir að lokum. Lugi-liðið hefur aldrei verið sterkara en i dag frá því ég byrjaði að leika með iiðinu fyrir nokkrum árum og ég hef trú á þvi, að við verðum í baráttunni um sænska meistaratitilinn, sagði Jón Hjaltaiín Magnússon, verk- fræðingur, þegar við ræddum við hann í gær. Guðjón Magnússon. landsiiðskappinn kunni, hóf að leika með Lugi í hausi og tveir íslendingar eru því í liðinu. — Guðjón hefur staðið sig prýðilega í leikjum Lugi, og hann verður örugglega mikill styrkur — einkum, þegar samæfingin verður betri, sagði Jón Hjaltalín ennfremur. Lugi lék við Hellas í Stokk- hólmi á miðvikudag. Það var í 3ju umferð Allsvenskan, og við réð- um ekki við Hellas, sagði Jón Stokkhólms-liðið lék frábæran handknattleik og sigraði með 27- 21. Hafði yfirtökin allan tímann. Við Guðjón skoruðum tvö mörk hvor fyrir Lugi, sagði Jón. Lennart Eriksson er byrjaður að leika með Hellas á ný eftir nokkur ár með Ludvika í 2. deild. Þessi sænski landsliðskappi var óstöðvandi og skoraði 12 mörk. Hellas er meðmarija.gamla lands- liðsmenn, sem hafa um 6001ands- leiki að baki og liðið er líklegt til afreka í vetur. Annars munar gífurlega mikílt að leika heima Jón Hjaltalin Magnússon eða á útivelli. Það fengum við að finna í Stokkhólmi, sagði Jón Hjaltalín. Eins og við skýrðum frá hér 1 opnunni fyrr i vikunni fengu Jón og Guðjón ágæta dóma í Dagens Nyheder, þegar Lugi sigraði GUIF með sex marka mun, 22-16, á heimavelli sl. sunnudag. Liðið hefur fengió 3 stig úr þremur fyrstu leikjunum, en tveir þeirra hafa verið á útivelli. Hellas er efst með 5 stig, Heim hefur 4 — tapaði fyrir Saab með 3ja marka mun á miðvikudag. Við vorum ánægðir með leikinn gegn GUIF, sagði Jón Hann var spennandi lengi vel, en mér fannst þó sigurinn aldrei i hættu. Guðjón Magnússon. Claes Ribendahl skoraði 11 mörk fyrir Lugi, en við Guðjón skoruðum tvö mörk hvor. Guðjón er að falla betur og betur inn í liðið og línusendingar hans hafa vakið athygli. Við fórum í æfinga- og keppnis- ferð til Júgóslavíu áður en leik- tímabilið hófst. Lékum þar við Banja Luka, júgóslavnesku meist-. arana, og einnig við meistaralið Póllands og Tékkóslóvakíu. Þess- um þremur leikjum Lugi lauk öll- um með jafntefli — og það merki- lega var. Sama markatalan í þeim öllum, 12-12. t fjórða leiknum sigraði Lugi norska meistaraliðið Bækkelaget með 14-11, sagði Jón Hjaltalín að lokum. Mikill styrkur að Guðjóni hjú Lugi — segir Jón Hjaltalin Magnússon, sem talur, að tugi-liðið hafi aldrei verið sterkara. Hellas sigraði Lugi 27-21 ó miðvikudag.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.