Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 6
Stjórnmálasamband USA og Víetnam? Fulltrúar Bandarikjanna og Vietnams hefja í dag viðræöur í París sem ef til vill gætu leitt til þess að ríkin taki upp stjórn- málasambandensamt er þess að geta að svo er að sjá setn hvor- ugt ríkið sé sérlega áfram um að svo verði. Veröur þetta í fyrsta sinn sem fulltrúar ríkjanna hittast siðan friðarviðræðurnar í París voru haldnar árið 1973. Ekki bætir þar úr skák, að urn leið og halda á fundina í París, berast þær fréttir frá Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, að þar séu Banda- ríkjamenn reiðubúnir til að beita neitunarvaldi gegn inngöngubeiðni Víetnama í þriðja sinni. Norsk gæöavara AKARN 185-345 cm a hœð f yrirligg jandi Símj 51103. Helmasími 52784 Hafnarfirði Hinn árlegi haustfagnaður VFFI (flugdýrafagnaður) verður haldinn í félagsheimilinu* á Seltjarnarnesi 13. nóv. kl. 20.30. Ömar Ragnarsson skemmtir. Mætið öll. Skóbúðin Snorrabraut 38 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976. Egyptaland: Sadat leyfir myndun þriggja stjórnmálaflokka — ræðir nú vopnakaup við Frakka Anwar Sadat Egyptalands- forseti sagði í gær, að hann myndi nú leyfa myndun þriggja nýrra stjórnmálaflokka þar í landi og binda þar með enda á 23 ára valdatímabil eina löglega stjórnmálaflokksins, Arabísku sósialistasamtakanna, ASU. Munu nýju flokkarnir, sem enn hafa ekki verið auðkenndir meira en sem flokkar mið-, hægri- og vinstrimanna eiga að starfa áfram með ASU og sagði forsetinn ennfremur, að ASU myndi hafa að öllu leyti umsjón með fjármálastjórn flokkanna og sjá til þess, að stefnuskrár þeirra röskuðu ekki einingu þjóðarinnar. Þá sagði hann i ræðu sinni í þingi landsins, að ASU myndi áfram bera ábyrgð á störfum æsku- og kvennahreyfinga sinna og að flokkurinn myndi Sadat lætur loks undan eftir tuttugu og fjögurra ára eins flokks kerfi í Egyptalandi. halda áfram þáttöku sinni í blaðaútgáfu þar í landi . Þær fréttir berast einnig frá Egyptalandi, að forsætisráð- herra Frakka, Raymond Barre, muni koma þangað í dag til viðræðna við forsetann og aðra ráðamenn um möguleikana á því að styrkja þeirra eigin vopnaframleiðslu. Eftir að hafa selt Egyptum Mirage-þoturnar og eldflaugar af ýmsum gerðum, vonast Frakkar til þess, þrátt fyrir mikla samkeppni frá Bretum, að þeim takist að selja þeim kafbáta, sérstaklega eftir að til greina kemur, að reisa flugvéla- verksmiðju í Egyptalandi með fjárhagsaðstoð og eignaraðild Saudi Arabíu og annarra ollu- framleiðsluríkja. Mannrán í Kaliforníu: Póstsendum Skóbúðin Snorrabraut 38 I Slmi 14190 Skólabíllinn, sem börnunum var rænt úr. eftir að hann fannst yfirgefinn í skógi. Þá vissi enginn J hvað hafði orðið um börnin. HÚSGÖGN HALLVEIGARSTÍG 1 Glæsilegt úrval af sófasettum, vegghúsgögnum og ótal öðrum tegundum húsgagna. RAFTÆKI SÍMI10520 HVERFISGATA C'.AMLA bÍo~| jjj r BANKASTRÆfí LAl’GAVECtliR Rafmagns- og gjafavörur í miklu úrvali. Verzlið í hjarta borgarinnar. Nœg bílastœði, opið til kl. 7 í kvöld og 12 ó laugar- dag. Litur: Brúnt. Stærðir 41—45. Verð kr. 3.200/- Karlmannamokkasíur úr mjúku leöri Leöurstígvél Litur: Brúnt. Stærðir 35—40 Verð kr. 3800/- Leöurstígvél Litur: Svart. Stærðir 34—38. Verðkr. 3.550/- RÉTTARHÖLDIN FLUTT TIL Dómari í borginni Madera í Kaliforníu hefur ákveðið að réttarhöld yfir þrem auðmanns- sonum er ákærðir eru fyrir rán á bíl sem fullur var af skólabörn- um, verði flutt vegna þess að verjendur hafa fært sönnur á það að réttarhöldin geti ekki orðið hlutlaus. Ekki hefur verið gefin út um það tilkynning hvenær réttar- höldin eigi að fara fram, en dómarinn, Jack Hammerberg, sagði við fréttamenn, að þau myndu verða haldin í Alameda- héraði. 26 skólabörn á ýmsum aldri ásamt bílstjóra voru í skóla- bílnum er honum var rænt, 15. júlí sl. í nánd við landbúnaðar- þorpið Chowchilla. Var þeim skipað inn í vöruflutningabíla og þeim síðan ekið alllanga leið til klettagljúfurs, þar sem þau voru látin faran ofan í flutningabíl, sem grafinn hafði verið niður í gljúfrið. Þar urðu þau að dúsa þar til þeim tóks að komast út 16 klukkustundum siðar. Þrír ungir menn frá San Francisco, James Schoenfeld og bróðir hans Richard auk Frederick Woods, voru handteknir skömmu síðar og sakaðir um mannrán þessi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.