Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 17
í öllu eru nú haldin heimsmeistaramót: Gat tottað pípu sína á þriðja klukkutíma og varð heimsmeistari Um helgina fór fram heims- meistárakeppni í pípu- reykingum í Tokíó. Shogo Suzuki hlaut heimsmeistara- tignina í þessari ,,göfugu“ íþrótt, en honum tókst að halda pípunni sinni lifandi í tvo klukkutíma, þrettán mínútur og tuttugu og níu sekúndur. Japönsk kona, Rei Ieikawa, fjörutíu og sex ára gömul saumakona, varð hlutskörpust í kvennaflokki. Hún hélt sinni pípu gangandi í eina klukku- stund, tuttugu og fimm mínútur og þrjátíu og fimm sekúndur. Sviss vann sveitakeppni á mótinu en í henni tóku þátt 218 pípureykingamenn frá Bret- landi, Frakklandi, Japan, Sviss og Vestur-Þýzkalandi. Þátttakendur fengu allir eins pípur, þrjú grömm af tóbaki og tvær eldspýtur. Fimm mínútur til að f.vlla pípuna og tvær mínútur til þess að kveikja í, og síðan urðu þeir að halda lifandi í pípunum, án þess að kveikja í þeim aftur, eins lengi og fterl var. -A.Bj. DAtiBLAÐItí. F’ÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976. Gott að eiga góð- an feld til að halda á sér hita bregða sér í. Minkakápur hafa löngum þótt hentugar til þess að halda hita á kvenfólki, sem hefur ekkert á móti því að vera vel tilhaft! Það eru til ýmsar aðferðir til þess að komast yfir þessar eftir- sóttu skjólflíkur, sem kosta yfirleitt meira en venjulegt fólk hefur efni á að leggja í slíkar skjólflíkur. Rithöfundurinn Lillian Hellman, sem er sextíu og níu ára gömul hefur orðið sér úti um svona skjólflík. Hún notaði sömu aðerð og þær Barbra Streisand, Raquel Welsh og Melina Mercouri. Hún lét taka af sér myndir í kápunni góðu, — sem kostar hvorki meira né minna en 7 þúsund dali, eða sem svarar tæplega 1,4 millj. ísl. kr. En hver myndi ekki vilja láta mynda sig nokkrum sinnum í slíkum eðalfeldi og fá svo að eiga hann fyrir vikið? A.Bj. ^ PQÖ borgar sig að selja Vikana Ný sölukeppni Vikunnar. Meö 45 tbl. hófst ný sölukeppni hjá Vikunni. Keppnin stendur til 53. tbl. sem er síðasta tölublað á þessu ári. Söluverðlaun eru fimm Hanimax vasamyndavélar frá Myndiðjunni Ástþóri. Með vélunum fylgja intercolor film^og flasskuþþur. Verið með frá upphafi, því þá eru möguleikarnir mestir. Hringið í síma 35320 og fáið föst söluhverfi. Þegar vetrar og veður gerast köld og válynd getur verið gott að eiga hlýja flík til þess að Rithöfundurinn Lillian Hellman eignaðist loðfeld sinn á sama hátt og ýmsar aðrar frægar stjörnur. Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll! Andlegt heilbrigði ' betra en þyrnum stráð Hollywoodfrægð segir Ava Gardner „Eitt af því sem mér fellur svo vel við að búa hérna í London,“ sagði hin 53 ára gamla fyrrverandi kynbomba og kvikmyndaleikkona Ava Gardner, „er að maður getur farið út að labba með hundinn sinn og enginn veitir manni eftirtekt.“ Enginn, — nema þá ljós- myndarinn sem smellti með- fylgjandi mynd af dísinni, — fyrrverandi. Hann heitir Ron Galella og náði myndinni snemma morguns í Hyde Park. Nú veit sem sé allur heimur- inn hvernig Ava Gardner lítur út þegar hún fer í gönguferð árla morguns. Það hefur vaknað sú spurn- ing hvers vegna hún hafi tekið Knitbridge íbúðarkytru fram yfir Hollywood og stjörnu- frægðina. „Mér finnst andlegt heil- brigði meira virði en þyrnum stráð Hollywood dvöl,“ segir Ava Gardner, sem stundum hefur verið talin meðal fegurstu kvenna heims. A.Bj. Það er gott að labba úti með hundinn sinn án þess að þurfa að vera uppdubbuð, segir Ava Gardner, en vissi ekki af ljósmyndaranum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.