Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 9
n AHRT A nm Tí’AC'T'Tm \nnx> 1 O TVTA\M^Ti/rr>T^r» 1 ana
Verkamannasambandið
er á móti ráðstefnu Sóknar
segir formaðurinn tveir stjórnarmenn voru þó ekki boðaðir á fundinn
f..........
Má láglaunafólk
ekki ræða
hlutskipti sitt?
„Það er samdóma álit að lág-
launakjör eru óviðunandi. Mér
datt því ekki annað í hug en að
þessir félagar okkar gætu
staðið saman um einn fund. Ég
get ekki séð neina hættu í því
að almenningur segi sina mein-
ingu um lágu launin og full
ástæða er til þess að þetta sé
áréttað rétt fyrir Alþýðusam-
bandsfund.“
Þetta sagði Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir, en fundur
láglaunafólks verður haldinn á
sunnudaginn í Hreyfilshiisinu.
Stendur starfsstúlknafélagið
— „stjórnin sammála ”
Sókn fyrir þessum fundi og
skrifaði það verkamannasam-
bandi Islands bréf þar sem það
fór fram á þátttöku þess í'
fundinum. Svarbréf barst og
grípum við niður i það.
„A stjórnarfundi í Verka-
mannasambandi tslands var i
dag tekið fyrir bréf frá félagi
ykkar, þar sem Verkamanna-
sambandinu er boðin þátttaka í
sameiginlegum fundi láglauna-
fólks fyrir ASÍ-þing, sem
áætlað er að halda. Stjórnin var
sammála um að eðlilegra væri
að þegar til slíks fundar væri
boðað á félagssvæði ákveðinna
sambandsfélaga, væru viðkom-
andi félög aðilar að slíkum
fundum; í Reykjavík eru það
Verkakvennafélagið Framsókn
og Verkamannafélagið Dags-
brún.
Jafnframt kom frá á stjórnar-
fundinum að bæði þessi félög
myndu nú á næstunni boða til
félagsfunda um málefni ASÍ-
þings og óliklegt væri að þessi
umræddu félög myndu vilja
standa að slíkum fundi áður en
þau hefðu rætt málin á eigin
félagsfundum.
Ef Starfsstúlknafélagið Sókn
heldur áður boðaðan fund,
munu stjórnarmenn Verka-
mannasambandsins mæta á
þeim fundi, þó að sambandið
telji ekki af áður tilgreindum
ástæðum eðlilegt að það sé
fundarboðandi eða aðili að
fundinum.“
„Ég veit ekki betur en að ég
sé enn i stjórn Verkamanna-
sambandsins. Ég álít að þessi
stjórnarfundur hafi verið ólög-
legur. Ég hefði verið hlynntur
því að Verkamannasambandið
væri aðili að fundinum,“ sagði
Björgvin Sigurðsson formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags-
ins Bjarma á Stokkseyri.
Jú, ég er í stjórn, en var ekki
boðuð á stjórnarfund ,“ sagði
Herdís Olafsdóttir formaður
kvennadeildar Verkalýðsfélags
Akraness. Hún sagðist myndu
hafa staðið með þvi að sam-
bandið væri með. Ekki veitti af
og þá ekki sizt fyrir konurnar
sem væru lægstlaunaðar og
væri hægt að segja upp með
viku fyrirvara, þegar atvinna
minnkaði.
EVI
cargokix
„Ljónamarkaður” í
félagsheimilinu í Kópavogi
Það munu ýmsir verða hissa að
sjá í dag stóran borða á brúnni
milli bæjarhlutanna í Kópavogi
með áletruninni „Ljónamarkaður
í félagsheimilinu“. Tilefnið er að
Lionsklúbbur Kópavogs efnir til
flóamarkaðar á sunnudaginn
milli kl. 2 og 6. Verður þar ýmis-'
legt á boðstólum, m.a. leikföng og
skófatnaður auk annars.
Lionsfélagar i Kópavogi hafa
staðið fyrir byggingu sumar-
dvalarheimilis í Lækjarbotnum
og hefur það notið mikilla vin-
sælda. Á næsta ári er fyrirhugað
að byggja við húsið svo að fleiri
börn geti þar fengið aðstöðu.
Ennfremur hafa Lionsmenn
styrkt fatlaða unglinga til sumar-
dvalar í Noregi þar sem þeir hafa
fengið þjálfun í leik og starfi hjá
sérmenntuðum kennurum. Er það
von Lionsmanna að framhald geti
orðið á þessari starfsemi og m.a. í
þeim tilgangi safna þeir nú fé.—
Þrátt fyrir margvísJeg samskipti íslendinga
og færeyinga um langan aldur hafa
samskiptin í raun aldrei orðið svo náin,
sem frændsemi þjóðanna og vinátta gefur
tilefni til. Stopular samgöngur fyrr á
árum áttu þar stærstan þátt.
Undanfarin ár höfum við annast reglu-
bundið áætlunarflug milli íslands og
Færeyja, 4 ferðir vikulega yfir sumarið,
og einu sinni i viku yfir veturinn.
Nú höfum við hins vegar ákveðið að
fjölga ferðum i Færeyjaflugi okkar og
og munum fljúga þangað tvisvar í viku
i vetur fram til 1. maí.
Flogið verður á fimmtudögum og sunnu-
dögum frá Reykjavik um Egilsstaði, og
Færeyjaflugið þannig tengt innanlands-
fluginu.
Með tveim ferðum í viku opnast mögu-
leiki á stuttum heimsóknum, og þar sem
við höfum gert samning við hótel Hafnía
um gistingu, og býðst nú þeim lægra
verð sem kaupa saman flugfar og gist-
ingu í 3 nætur.
Þessar ódýru 3ja daga ferðir, gera
kleift að skreppa til Færeyja - skólafóiki,
starfshópum, þeim sem ætla að heim-
sækja vini og vandamenn, og svo auð-
vitað þeim sem þurfa að sinna viðskipta-
erindum. Verðið er frá 33.785 krónum
fyrir manninn.
Það verður enginn svikinn af feró til
Færeyja. Færeyjaferð er öðruvisi.
FLUGFÉLAG
ÍSLANDS
LOFTLEIOIR
CARGOLUX heldur sig líka við jörðina:
STENDUR FYRIR KAPP-
AKSTRI í HONG KONG
Til
Færeyja
hluta til íslenzkt fyrirtæki.
Cargolux mun á sunnudag-
inn gangast fyrir kapp-
aksturskeppni í Hong
Kong ásamt Bob Harper og
meðal þátttakenda í kapp-
akstrinum, Macau Grand.
Prix, verður David Purley,
þekktur kappi frá Eng-
landi.
Myndin var tekin þegar
bíll Purleys, sem er skær-
asta stjarna keppninnar,
var settur um borð í áætl-
unarflugvél Cargolux frá
Luxemburg til Hong Kong
á dögunum. Bíllinn er
Formula 2 og er smíðaður
af Modus Cars í Englandi
og kostar hann nær 2 millj-
ónir króna. 24 keppendur
taka þátt i Macau-
keppninni og verður vega-
lengdin 250 kílómetrar.
Líklega þekkja margir
merkið á bílunum tveim,
vöruflutningabílnum og
kappakstursbílnum. Það er
merki Cargolux, sem er að
RÚSSARNIR KOMNIR SST
Laugardalshöll á morgun kl. 15:00 MOSKVA
Slysið í París GUÐMUNDUR
SKRIKAÐI Á GÓLFMOTTU
Nú er ljóst með hverjum
hætti Guðmundur Magnús-
son leikari, sem féll niður
fimm hæðir og stórslasaðist i
París um síðustu helgi, ' féll
og hvar hann féll.
Hann var staddur uppi á
fimmtu hæð í gömlu húsi
ásamt vini sínum og ætluðu
þeir að heimsækja kunn-
ingja sinn, sem býr þar.
Hann reyndist ekki heima,
en á meðan þeir biðu á gang-
inum hallaði Guðmundur
sér upp að stigahandriðinu,
en stóð á renningi á gangin-
um. Skyndilega rann renn-
ingurinn á gólfinu með þeim
afleiðingum að Guðmundur
missti jafnvægið og féll
yfir handriðið.
Þannig háttar til að gap-
hús er milli stiganna alla
leið niður og því ekkert til
fyrirstöðu. Lenti Guð-
mundur á gólfinu á neðstu
hæð.
Guðmundur er 25 ára og
leggur stund á framhalds-
nám í leiklist. Það var síðast
að frétta af líðan hans að
hann er enn á gjörgæzlu-
deild í sjúkrahúsi í París.
— G.S.