Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 12.11.1976, Blaðsíða 14
 77V 11«i Staðan í 1. deild tlrslit leikjanna handknattleiksins i höll í gærkvöld: Fram — Haukar Víkingur — FH í 1. deild LaugardalS' 15-18 35-26 Staðan er nú Valur þannig: 5 4 0 1 113-86 8 Haukar 5 4 0 1 103-92 8 ÍR 5 3 1 1 106-106 7 Víkingur 5 3 0 2 124-115 6 FH 5 2 0 3 118-117 4 Fram 5 1 1 3 100-109 3 Þróttur 5 0 3 2 87-103 3 Grótta 5 0 1 4 97-120 1 DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976. KsmiaSfifiBSfiSlE&ÍB DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976. Markahæstu leikmenn eru nú: Hörður Sigmarss. Haukum 43/15 Geir Hallsteinsson, FH, 35/9 Þorbjörn Guðmundss., Val, 31/6 Jón Karlsson, Val, 30/9 Konráð Jónsson, Þrótti, 28/3 Viðar Símonarson, FH, 28/11 Þorb. Aðalsteinsson, Víking, 27 Ólafur Einarsson, Víking 25/5. Tottenham kaupir — Ég óttast ekki lífið í stór-l borginni og var fljótur að ákveða að fara til Tottenham, þegar Lundúnafélagið bauð Carlisle 60 þúsund stérlingspund fyrir mig, sagði John Gorman, bakvörður-; inn sterki hjá Carlisle í gær eftir að hafa undirritað samning við Tottenham. Hann fer beint í aðal- liðið og mun leika sinn fyrsta leik með Tottenham gegn Bristol City á White Hart Lane í Lundúnum á laugardag. Bristol City verður líka með nýjan leikmann í liði sínu, Peter Cormaek frá Liver- pool. John Gorman hefur lengi verið talinn í hópi beztu bakvarða á Englandi. Hann hefur leikið um 230 deildaleiki með Carlisle, en hóf feril sinn hjá Glasgow Celtic, svo hann er ekki óvanur að búa í stórborg. Það þóttu mikil mistök hjá framkvæmdastjóra Celtic, Jock Stein, þegar hann scldi Gorman til Carlisle fyrir nokkur þúsund pund, en Stein hafði þá mikið úrval góðra leikmanna hjá Celtic. Síðan eru tæp sex ár — og Gorman hefur staðið fyrir sínu hjá Carlisle. West Ham selur Þó .West Ham gangi illa að kaupa leikmenn hikuðu forráða- menn Lundúnafélagsins ekki við að selja einn sinn kunnasta leik- mann í gær. Norwich bauð þá 110 þúsund sterlingspund í Graham Paddon — og West Ham sam- þykkti á stundinni að taka þvij tilboði. Graham Paddon kemst því á| fornar slóðir á ný, en hann lék; 182 deildaleiki með Norwieh áður en hann var seldur til West Ham fyrir nokkrum árum, þar sem hann hefur leikið um 120 deilda-f leiki. Paddon hóf feril sinn hjá Coventry cn var seldur fljótt til Norwich. Akaflega sterkur fram- vörður, sem oft kemst á marka- listann. Opið hús hjá Haukum Haukar munu hafa opið hús í hinu nýja og glæsilega íþrótta húsi sínu í Hafnarfirði á sunnu-j dag frá kl. 2—6. Öllum Hafn- firðingum og öðrum er boðið að mada og skoða hið nýja íþrótta- hús, sem Haukar hafa af mikilli eljusemi byggt upp. Línumaðurinn Svavar Geirsson, Haukum, sleppur framhjá Arna Sverrissyni, Fram, og skorar annað af tveimur mörkum sínum í leiknum. DB-mvnd Bjarnleifur. HAUKAR NÁÐU VALS- MÖNNUM AÐ STIGUM — eftir sigur gegn Fram í Laugardalshöllinni í gærkvöld Haukar skutust upp að hliðinni á Val í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik í gærkvöld er Hafnarfjarðarliðið sigraði Fram 18-15. Haukar og Valur hafa bæði hlotið 8 stig úr fimm leikjum — bæði hafa tapað einum leik. Valur fyrir Víking — Haukar fyrir Val. Leikur Hauka og Fram í gærkvöld bauð hvorki upp á miklaspennuné tilþrif. Það fór þó aldrei á milli mála hvort liðið var sterkara — Haukar höfðu yfir frá byrjun til enda. Leikmenn liðsins Ieku af skynsemi fyrst og siðast — skot voru ekki reynd nema úr ákjósanlegum tækifærum. Sama verður ekki sagt um Fram. Leikmenn liðsins eru staðir, litið um keyrslur, hvað þá fléttur. Hittni leikmanna var ákaflega slæm. Bæði var það, að skot voru alls ekki nógu föst né heldur hnitmiðuð. Gunnar Einarsson, markvörður Hauka, átti því ekki í miklum ■vandræðum að verja skot frá leikmönnum Fram. Og hann ef til vill öðrum fremur var maðurinn á bak við sigur Hauka. Gunnar varði eitt vítakast, auk þess sem hann varði fjölda langskota og eins úr hraðaupphlaupum. Já, það er ánægjulegt að sjá, hve Gunn'ar hefur komið sterkur upp. En Pétur Bjarnason, þjálfari Hauka, hefur fyrst og fremst byggt upp samstæða liðsheild og þar liggur skýringin á velgengni Hauka nú. Haukar byrjuðu leikinn i gærkvöld vel — skoruðu þrjú fyrstu miirk leiksins, áður en Pálmi Pálmason náði að svara fyrir Fram. Leikmenn Fram reyndu að gera Hiirð óvirkan án þess að taka hann úr umferð. Kn þá Itlómstraði Sigurgeir Mtuleinsson — hann skoraði þrjú mörk í röð og staðan í leikhléi var 10-7 Haukum í vil. Síðari hálfleikur fór ákaflega hægt af stað — þegar 15. mínútur voru af honum hafði hvort lið um sig skorað tvö mörk 13-9. Bæði liö^ léku ákaflega veikt — enginn leikmaður virtist hafa getu né kraft til að rífa sig lausan og nýta möguleika er gáfust. En svo fór þó, að Haukar náðu að síga hægt framúr. Þegar 25 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik höfðu Haukar náð 5 marka forustu — 16-11 — og úrslit raunar ráðin. Leikmenn Fram reyndu í örvæntingu að koma meira út og fiska knöttinn. Þeim tókst að minnka muninn í þrjú mörk — en sigri Hauka ógnuðu þeir aldrei, 18-15, og tvö dýrmæt stig suður í Hafnarfjörð. Fram hins vegar hefur aðeins hlotið þrjú stig úr fimm leikjum — er í fimmta sæti og langur vetur framundan. Hörður Sigmarsson var að vanda markhæstur Haukanna — en óvenjulítið bar á honum. Hans var að vísu gætt vel — en ein- hvern veginn viróist Hörður ekki ná sér á strik nema suður í Hafn- arf. Hörður skoraði 5 mörk — 2 úr vítaköstum. Sigurgeir Marteinsson skoraði 3 mörk, Svavar Geiráson, Ingimar Haraldsson, Jón Hauksson og Ólafur Ólafsson skoruðu 2 mörk hver. Stefán Jónsson skoraði eitt mark. Pálmi Pálmason skoraði 5 mörk fyrir Fram — eitt víti. Gústaf Björnsson skoraði 4, Guðmundur Sveinsson 3 og þeir Arnar Guðlaugsson, Jón Árni Rúnarsson og Árni Sverrisson skoruðu eitt mark hver. Leikinn dæmdu þeir Manús Pétursson og Valur Benediktsson. Þeir voru ákaflega hikandi og óákveðnir í gerðum sínum. Illa virtust þeir taka eftir augljósum brotum — furðulegt, þar sem allir aðrir virtust sjá. -h. halls. Booth fer ekki til Forest Ekkerl varð af því í gær, að Tomm.v Booth hjá Manch. City, færi til Nottingham Forest. Hann ncitaði að undirrita samning við Forest — félögin höfðu náð sam- komulagi um kaupverð, 75 þús- und sterlingspund — þegar Manch. City vildi ekki tryggja honum ágóðaleik (testimonial match) f.vrir langa þjónustu hjá City. Ætlar sér greinilega að ná slíkum leik áður en hann yfir- gefur Maine Road, en slíkir leikir gefa leikmönnum oft mikið í aðra hönd. Ian Ross, leikmaðurinn kunni hjá Aston Villa, fyrirliði nokkur undanfarin ár, þar til hann missti ekki alls fyrir löngu stöðu sína í liðinu, var í gær lánaður til Northampton í mánaðartíma. Hann var þá nýkominn aftur til Birmingham eftir að hafa leikið með Notts County sem lánsmaður í mánuð. Ian Ross var kunnur leikmaður hjá Liverpool áður en hann var seldur til Aston Villa fyrir 3—4 árum. Meistarakjarni í Níu marka sigurgegn FHl — Nýtt markamet í 1. deildarleik í Laugardalshöll þegar Víkingur skoraði 35 mörk gegn FH og fékk á sig 26! — Víkingar hafa öðlazt sjálfs- traust sitt aftur. Liðið leikur sem ein heild, leikmenn vinna hver fyrir annan. Þetta öðru fremur er skýringin á velgengni Víkings nú í tveimur síðustu leikjum. Það vissu allir að getan bjó með Vík- ingum — aðeins ef liðið léki sem heild í upphafi mótsins, sagði Karl Benediktsson, sem í gær- kvöld stjórnaði Víkingi til sigurs já, stórsigurs gcgn íslandsmeist- urum FH. Víkingur sigraði FH 35-26 — og þar með var sett nýtt markamet í Laugardalshöll i 1. deild íslandsmótsins í handknatt- leik — 61 mark á 60 mínútum. Og hvílík mörk — já, áhorfendur kunnu sannarlega að meta leik Víkings og FH í gærkvöld og voru sannarlega með á nótunum. Já, leikur Víkings og FH var skemmtilegur fyrir áhorfendur. Hraði — geysilegur hraði, einkum af hálfu Víkings, sem beinlínis tættu Islandsmeistarana í sig. Stórskemmtilegar fléttur og þrumuskot höfnuðu í netmöskv- um FH-marksins. Bókstaflega allt gekk upp hjá Víkingum. En hvað um FH, já hvað um íslandsmeistara FH? — Úr því við töpuðum þessum leik þá var eitt ágætt. Við fengum skell — lið okkar vantaói alla samstöðu, alla samvinnu. Vonandi verður það til þess að við vöknum af okkar þyrnirósarsvefni og förum að íeika handknattleik, sagði Guðmundur Arni Stefánsson fyrirliði FH eftir leikinn. Vissulega orð að sönnu. Lið FH lék alls ekki sem heild, illa gekk að ráða við sóknarleik Vikinga. I sókninni var samvinnan í lág- marki — rétt eins og í vörninni. Sannarlega mega FH-ingar taka sig á ef þeir ætla að blanda sér í baráttu um íslandsbikarinn í ár. Annars er mér til efs að nokkurt lið á Islandi hefði staðizt Víkingum snúning í þeim ham er leikmenn voru. Samvinna leik- manna var mjög góð og mörkin fjölbreytleg. Skorað var úr hraða- upphlaupum, skorað var með þrumuskotum að utan eftir skemmtilegar sóknarfléttur, skorað var glæsilega af linu. Og síðast en ekki sízt — Rósmundur varði mark Víkings allan leikinn og af stakri prýði — meðal annars fjögur vítaköst. Já, flest gekk Vík- ingum í vil. Hitt hlýtur svo að vera íhugunarefni, að vörnin opnaðist oft illa, einkum í hægra horninu og ófá vítaköstin fékk FH þar. Raunar fengu FH-ingar 13 vítaköst alls — skoruðu úr 9 en Víkingar fengu 5 — nýttu þrjú. Fyrri hálfleikur var mjög jafn framan af. Geysilegur hraði og liðin skiptust á að skora. Glæsileg mörk — einkum af hálfu Víkinga. Raunar skoruðu FH-ingar 6 mörk úr vítaköstum af fyrstu níu mörkum sínum. Víkingar hins vegar tvisvar. Þegar staðan var 10-10 var Magnús Guðmundsson rekinn af velli en Víkingar létu það ekki á sig fá og skoruðu næstu tvö mörk einum færri. Síðan tókst þeim að breyta stöð- unni í 15-10 en FH tókst að minnka muninn í 15-13 fyrir leik- hlé! Hafi leikmenn FH gert sér ein- hverjar vonir um að snúa leikn- um ser í hag í síðari hálfleik þá kom fljótlega á daginn að Víking- ar voru ekki aldeilis á þeim bux- unum. Stórskemmtilegur hand- knattleikur — þar sem hraðinn var geysilegur og FH-ingum úr jafnvægi og eftir 15 mínútna leik höfðu Víkingar breytt stöðunni í 25-16. Eftir það virtist kraftur Víkinga þverra nokkuð — og FIl tókst að rétta hlut sinn nokkuð án þess nokkurn tímaaðögnaVíking- um. Þannig var .. . .... uda staðan 30-20 þegar 24 minútur Landsliðsmaðurinn ungi í Viking, Þorbergur Aðalsteinsson, átti stórleik með liði sínu í gær. Var markhæstur i leiknum með 10 mörk — í 11 skottilraunum! DB-mynd Bjarnleifur. voru liðnar — og leiknum lyktaði með stórsigri Víkings — 35-26. Það er greinilegt að Víkingar hafa komið fram með meistara- kjarna — það er ef þeim tekst að halda öryggi sinu og leikgleði. Liðið small vel saman og.lék fyrst og fremst sem heild. Að öðrum ólöstuðum var Þorbergur Aðalsteinsson maður leiksins. Þessi ungi og eld- siióggi u.,Kinaður skoraði 10 mörk úr 11 skottilraunum. Sannarlega gott — og mörg marka hans voru stórglæsileg. Ölafur Einarsson kom einnig mjög sterkur út — skoraði 7 mörk — 2 víti. Nýtni Olafs var einnig ágæt. Viggó Sigurðsson skoraði 4 mörk -— úr 4 skottilraunum. Björgvin Björg- vinsson var sterkur á línunni að vanda og fiskaði flest vítaköst Vikinga, en auk þess skoraði Björgvin 4 mörk. Magnús Guðmundsson skoraði 3, Jón Sigurðsson, Olafur Jónsson og Er- lendur Hermannsson skoruðu tvö mörk hver. Ungur nýliði. Einar Jó- hannsson. skoraði eitt mark. En stytkur ViKings er lyrsi og fremst sá. að leikmenn liðsins eru ákaf- ' - ' óttir lega jafnir — hvort heldur þeir sem hvíla eða eru inná. FH mætti sannarlega ofjörlum sínum í gærkvöld. En hitt kom berlega í ljós að samstaða innan meistaraliðs FH er i lágmarki. Eins vantar alla breidd í liðið. Það er borið uppi áf þeim Viðari Sím- onarsyni og Geir Hallsteinssyni og slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Vonandi verður þó skellur- inn, er liðið hlaut í gærkvöld til að ýta við FH-ingum. Það sést bezt hve liðið er einhæft að þeir Geir og Viðar skoruðu 18 af 26 mörk- um liðsins. Viðar skoraði 10 mörk — 4 víti, Geir 8 — 3 víti. Gué mundur Árni Stefánsson skorad 2 mörk og Helgi Ragnar; son einnig 2 —bæði úr vítakös um. Guðmundur Magnússo: skoraði eitt mark. Þeir Hannes Þ. Sigurðssono Karl Jóhannsson dæmdu leikinn gærkvöld. Miðað við hinn geys lega hraða þá fórst þeim hlut verkið vel—þó nokkrum sinnun hafi manni fundizt vítakastdón arnir strangir — 18 vitaköst einum og sama leiknum bera þes gleggst vitni. h halls Báðir leikir Vals og MA í Reykjavík? — Fer eftir úrslitum í fyrri leiknum í Evrópukeppninni á morgun Við ræddum við fararstjóra sovézka liðsins MAI í gærkvöld — og reyndum að fá þá til að fallast á að leika báða leikina við Val í Evrópukeppninni hér í Laugar- dalshöllinni. Það var ekki tekin nein ákvörðun í málinu, sagði, Örn Höskuldsson, formaður hand- knattleiksdeildar Vals, við blaðið í morgun. Það fcr allt eftir því hver úrslit verða í fyrri leiknum á laugardag. Maður skilur þá af- stöðu vel — Sovétmennirnir hafa mikinn hug á því að ná langt í keppninni, og þar getur heima- völlur haft ntikið að segja. En þessi möguleiki er samt opinn enn og verður nánar ræddur eftir leikinn á morgun, laugardag, sagði Örn ennfremur. Það varð ekkert úr, því, að sovézku leikmennirnir hjá MAI- félaginu í Moskvu, sem skráðir eru sem námsmenn í verkfræði- deild Moskvuháskóla, tækju æfingu í Laugardalshöll í morgun — og því fórum við Bjarnleifur bónleiðir til búðar, þegar við mættum þar. Æfingunni var frestað til kl. þrjú í dag, en ekki er víst að þeir fái að vera þar til fimm eins og þeir hafa farið fram á. Evrópuleikur Valsmanna við sovézku bikarmeistrana, MAI, verður í Laugardalshöllinni á morgun, laugardag kl. þrjú og þar gefst tækifæri til að sjá nokkra snjöllustu handknattleiksmenn heims. I sovézka liðinu eru fjórir leikmenn, sem urðu ólympíu-: meistarar í Montreal í sumar, og nær allir leikmenn liðsins hafgf leikið í sovézka landsliðinu. — Við munum reyna að hafá strangar gætur á hinum snjalla leikmanni Maximov, jafnvel reyna að taka hann úr umferð allan leikinn. Kringum hann snýst allt spil soVezka liðsin| sagði Jón Karlsson, fyrirliði Vals í morgun og það er því ákaflegá mikilvægt, að þetta atriði takis[ vel hjá okkur. —Við verðum að ieika mjög hraðan handknattleik og reyna að opna vörn sovezkra á þann hátt þvi lítið mun þýða að reyna að skjóta yfir varnarvegg þeirra Sovezku leikmennirnir eru mjög hávaxnir og það mun reynast erfitt að koma knettinum yfir þá_. Ef okkur tekst vel upp með þau leikkerfi, sem Valur hefur þaulæft að undanförnu, er ég bjartsýnn á sigur okkar f Ieikn- um. En við verðum að sigra með talsverðum mun ef einhvecj möguleiki á að vera á því að komast í þriðju mferð keppn- innar. Að því stefnum við auð vitað, þó það verði mjög erfitt fyrir okkur, sagði Jón Karlssof ennfremur. |Bvrjunin hjá nýja félaginu hefur verið _ mjög slæm. . Allt of seinn hlaupa. Bommi Þjálfarinn gefurlionumekki stundarfrið ll’akkó er ekkislæmur! Ef það væri ekki j ! Bommi.. . við hiifumJ samningurinn fær allir lent i þessuT ég heim í dag. j IZ-2; BLANCHFLOWER Þurfum að sigra íslend- inga stórt! Ef við vinnum góðan siguij gegn íslendingum í heims meistarakeppninni í knattspyrnu á íslandi erum vió alls ekki úr leik í 4. riðlinum, sagði Danny Blanchflower, þjálfari norður- írska landsliðsins, i viðtali við BBC í gær. Já, við þurfum stórar sigur á íslandi. Ég er alls ekki óánægður með leik írska liðsins gegn Belgum og fannst markatalan 2-0, sigur, Belga, of mikill. George Bestj lenti i vandræðum í leiknum i Liege, og þegar hann stendur sig betur er írska liðið víst til allsj Belgíumenn eru með gott lið en Hollendingar eru þó betrij sagði Blanchflower ennfremur. Enn létt hjá Connors Það kom mjög á óvart á opna tennismótinu í Stokkhólmi í gær- kvöld, að Mark Cox, Englandi, sigraði Pólverjann sterka, Wojtek Fibak, örugglega tveimur lotum. Fyrir keppnina var Pólverjinn talinn í hópij þeirra sigurstranglegustu. Mark Cox sigraði með 7-6 og 6-3. Jimmy Connors, Ba.ndarikjun- um, sem nú er talinn bezti tennis- leikari heims, átti í litlum erfið- leikum gegn Balazs Taroczy. Sigraði með 6-4 og 6-2. Hins vegar þurfti Björn Borg, Svíþjóð, þrjár lotur til að sigra John Lloyd, Bretlandi. Sigraði þó með 6-2, 6-‘ og 7-6, svo ekki mátti tæpara standa hjá Birni. Einhver maga-f veiki hefur háð honum mjög. Af öðrum úrslítum í gær má nefna, að Raul Ramierez, Mexikóf sigraði Tom Okker, Hollandi, 7-1 og 6-1, Haroon Rahim, Pakistan, sigraði Harold Solomon, USAf með 6-7, 6-4 og 6-4 og það var mjög óvænt. Manuel Orantes, Spáni, sigraði Nicola Spear, Júgóslavíu, 6-1 og 6-2, Brian Gottfried, USA, sigraði Stan Smith, USA, 6-3 og 6-4, en óvæntustu úrslitin urðu síðasta leik kvöldsins, þegar Byron Bertram, S-Afríku, vanr Guillermo Vilas, Argentínu 6-l| 4-6 og 7-6. 15

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.