Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.11.1976, Qupperneq 27

Dagblaðið - 12.11.1976, Qupperneq 27
27 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976. i Útvarp Sjónvarp » Þátturinn Kastljós í umsjón Guðjóns Einarssonar frétta- manns er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 20.40. Að sögn Guðjóns verða tekin fyrir þrjú mál í þættinum. Það stærsta og veigamesta er skýrsla Rannsóknaráðs ríkisins um þróun landbúnaðar á islandi en sú skýrsla verður birt opinberlega í dag. í henni er gerð úttekt á íslenzkum land- búnaði og horfunum í þessum atvinnuvegi. Komið verður inn á hinar umdeildu útflutnings- bætur og þeirri spurningu varpað fram hvaða áhrif það hefði ef framleiðslan væri einungis miðuð við innanlands- markað. Annað mál, sem tekið er fyrir í þættinum er spurningin: Er kynþáttamisrétti á Islandi? Verður þar rætt við nokkra hörundsdökka menn og fleiri útlendinga sem bús&ttir eru hér á landi og þeir inntir eftir reynslu sinni og samskiptum við íslendinga. Þegar DB ræddi við Guðjón, var ekki ákveðið hvert þriðja málið í þættinum yrði, né hver yrði Guðjóni til aðstoðar. -JB. Það má búast við að kýrnar verði í kastijósi næstu dagana víðar en í kastljósi sjónvarpsins, því skýrsla Rannsóknaráðs ríkisins mun væntaniega vekja mikia umræðu. Sjónvarp í kvöld kl. 20.40: Kýríkast- Ijósi og kyn- Sjónvarp í kvöld kl. 22.05: Ætluðu sér að fremja hinn „fullkomna” glæp Bíómyndin sem er á dagskránni kl. 22.05 heitir Hin myrku öfl (Compulsion) og er bandarísk frá árinu 1959. Með aðalhlutverkin fara Dean Stockwell, Bradford Dillman, Orson Welles og E.G. Marshalk Efni myndarinnar er óhugnanlegt. b.vggt á sannsögu- legum atburðum. sem gerðust í Chicago árið 1924 er tveir hálf- ruglaðir unglingar telja sig geta framið ,,hinn fullkomna' glæp“. Þeir ræna ungum dreng og krefjast lausnargjalds fyrir hann en koma honum síðan fyrir kattarnef. Kvikmyndahandbókin okkar gefur þessari mynd þrjár stjörnur og þar segir að þótt myndin sé nokkuð hryllileg haldi hún áhorfendum samt föngnum og að Orson Welles sýni alveg frábæran leik í hlut- verki varnarlögfræðingsins. Þýningartími myndarinnar er ein klukkustund og fjörutíu mínútur. Þýðandi er Ingi Karl Jóhannesson. -A.Bj. E.G. Marshail og Orson Welies i hlutverkum lögfræðinganna í bíómynd kvöldsins. Föstudagur 12. nóvember 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn- ingar. Viðvinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Eftir örstuttan leik" eftir Elías Mar. Höfundur les (9). 15.00 Miðdegistónleikar. 15.45 Lesin dagskrá nœstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphom. 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Óli frá Skuld" eftir Stefán Jónsson. Gisli Hall- dórsson leikari les (9). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þingsjá. Umsjón: Kári Jónasson. 20.00 Tónleikar strengjasveitar Sinfóníu* hljómsveitar íslands í Bústaðakirkju 20.50 Myndlistarþáttur í umsjá Þóru Kristjánsdóttur. 21.20 Lög úr ballottinum „Rómeó og Júlíu" eftir Sergej Prokofjeff. Vladimir Ashkenazy leikur á píanó. 21.30 Útvarpssagan: „Nýjar raddir. »*-ý’r eftir Truman Capc.e. Atli , ”a?nUSSO--'«pýðingusina(4). .-.uu Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Ljóðaþáttur. Njörður P. Njarðvík sér um þáttinn. 22.40 Áfangar. Tónlistarþáttur sem Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson stjórna. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. Laugardagur 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00. 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. ,7.50. Morgunstund bamaina kl. RJ)0: Kristín Sveinbjörns- dóttir les söguna ..Áróru og pabba" eftir Anne-Cath Vestly (12). Til- k.vnningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Bamatími kl. 10.25: Þetta erum við að gera. Stjórnandi: Inga Birna Jónsdóttir. Líf og lög kl. 11.15: Guð- mundur Jónsson les úr ævisögu Péturs A. Jónssonar söngvara eftir Björgúlf Ólafsson og kynnir lög sem Pétur syngur. (t Sjónvarp Föstudagur 12. nóvember 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Kastljós. Þáttur um innlcnd mál- efni. Umsjónarmnður Guðjón Kinars- son. 21.40 Banvænar býflugur. Bandarisk fræðslumynd um býflugnategund. sem flutt hefur verið inn til Brasilíu frá Afriku. þar eð hún getur gefið af sér tvöfalt ineira hunang en venju- legar býflugur. Hins vegar fylgir sá böggull skammrifi. að þessi býfluga verður hundruðum manna og þúsund- um húsdýra að bana á hverju ári. Þýðandi Jön Skaptason. Þulur Sigur- jón Fjeldsted. 22.05 Hin myrku öfl. (Compulsion). Handarisk biómynd frá árinu 1959 Leikstjóri Riehard Fleischer. Aðal- hlutverk Dean Stoekwell. Bradford Dillman tig Orson Welles. Myndin er byggð á sönnum. óhugnanlcgum við- burðum. sein gerðust i Chieago árið 1924 Tveir uugir háskólanemar. Artie Straus og Judd Steiner. r;ena ungtim dreng i>g krefjast lausnargjalds. en fyrirkoma houum siðan. Þetta ódæði fremja þeir einkum til að sýna. að þeir geti drýgt fullkominn gl;ep. en berast þó oöndin að þeim. Þvðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 23 45 DagskráHok

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.