Dagblaðið - 23.11.1976, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. NÖVEMBER 1976.
Hjólhýsa- og vélbáta-
eigendur
Getum lekiö i geymslu til 1. mai nk.
hjólhýsi, vélbáta og bií'reióar. Nýtt
og gott hús i I-Iafnarfirði. Upplýsing-
ar í sima 26113 og í sima 43317 milli
kl. 5 og 7.
Til sýnis og
sölu
á staðnum
Fiat 124 Sport Coupé
1800 1973, ekinn 34
þús. km. Skipti koma
til greina ó eldri bíl
með milligjöf.
✓
Kópavogsbúar
Leitið ekki langt yfir skammt.
Allar nýlenduvörur með 10%
lægri álagningu en heimilt er.
Mjögódýregg,
kr. 400,- kg
Við erum í leiðinni að heiman og heim.
VERZLUNIN KÓPAVOGUR
Borgarholtsbraut 6 — Sími 41640
Laust starf
Staða forstöðumanns fjármáladeildar
Rafmagnsveitu Reykjavíkur er laus til
umsóknar. Starfið felst í daglegri
stjórn á fjármálum fyrirtækisins
ásamt umsjón með viðskiptaskrif-
stofu.
Umsækjendur þurfa aö hafa starfs-
reynslu og viðskiptafræðipróf eða
hliðstæða menntun.
Launakjör samkvæmt 24. launaflokki
borgarstarfsmanna. Nánari upp-
lýsingar um starfið gefur rafmagns-
stjóri. Umsóknarfrestur er til 30.
nóvember 1976.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Blaöburðarbörn óskast
á Akranesi
GRUNDIR
Uppl. í síma 2261
JwmBuuim
Tillaga framsóknarmanna um sjónvarpið:
TÍU PRÓSENT AF-
NOT AGJALDS TIL
DREIFIKERFIS
„Nú hafa liðiö þrjú ár án þess
að nokkuð hafi verið framkvæmt
til að koma sjónvarpsefni til
þeirra landsmanna sem hafa ekki
aðstöðu til að veita þvi viðtöku og
er það ekki vansalaust. Flutnings-
menn telja að sú leið, sem hér er
lagt til að farin verði, sé eðlilegri
heldur en sú að sóa gjaldeyri með
þvi að heimila innflutning litsjón-
varpstækja i þvi trausti að toll-
tekjur af þeim gætu staðið undir
því að koma dreifikerfi um land
allt.“
Svo segir i greinargerð fjögurra
þingmanna Framsóknarflokksins
sem leggja til að tiu af hundraði
af afnotagjöldum sjónvarps verði
varið til uppbyggingar á dreifi-
kerfi sjónvarpsins. Skilyrði yrðu
með þvi sköpuð til viðtöku sjón-
varpsefnis á sem allra flestum
heimilum á landinu og einnig á
þeim fiskimiðum þar sem unnt er
með viðráðanlegum kostnaði.
Innheimt afnotagjöld sjónvarps
i fyrra voru tæpar 400 milljónir.
Flutningsmönnum hefði þótt rétt
að verja af þeim 40 milljónum til
uppbyggingar dreifikerfisins.
Þeir telja að sjónvarpsgjöld
þyrftu ekki að hækka verulega,
þótt þessi ieið yrði farin, heldur
mætti spara nokkuð á sumum lið-
um i sjónvarpsrekstrinum.
Fyrsti flutningsmaðíir er Páll
Pétursson.
HH
Líknar- og menningarstarf aöventista er víðtækt: ^
ÞEIR STARFA NU
í190 LÖNDUM
og var á siðastliðnu ári varið um
3,700.000 dollurum (um 700 millj.
isl. kr.) til þess starfs. „Við álitum
það sk.vldu okkar sem kristinna
manna að lina þjáningar þeirra
sem eiga um sárt að binda i heim-
inurn," sagði Pastor Wernick.
Auk fyrrnefndrar aðstoðar veita
hin ýmsu liknarfélög margs konar
hjálp, svo sem með úthlutun fatn-
aðar, matvæla og peninga til
þeirra sem á þurfa að halda. Má
nefna sem dæmi að á siðastiiönu
ári úthlutuðu systrafélög safnað-
arins hér á landi um 12.000 flik-
um til um 2.400 einstaklinga og
var það metið á um 1 milljón
króna. Ennfremur var úthlutað
matvælum og peningum fyrir um
hálfa milljón króna. Til Græn-
lands voru send á sl. ári um 2 tonn
af fatnaði sem er útbýtt meðal
innfæddra af starfsmönnum safn-
aðarins þar.
Sjöunda-dags aðventistar álita
menntun einstaklingsins mjög
mikilvæga. Þannig reka þeir um
50 æðri framhaidsskóla. 250 gagn-
fræðaskóla og 3700 barnaskóla
viðs vegar um heintinn. Bókaút-
gáfa er einnig umfangsmikil og
eru útgáfufyrirtækin alls um 50.
Hér á landi eru aðventistar þekkt
ir fyrir útgáfu sina á barnabókun-
um, Sögurn Bibliunnar. sem nú
eru komnar út i 5 bindum. og
Rökkursögum sent út hafa verið
gefnar um árabil. Má geta þess að
1. hefti af Siigum Bibliunnar eftir
Arthur Maxwell hefur verið gefið
út i um 9000 eintökum hér á landi
sem sennilega er upplagsmet.
llér á landi reka aðventistar 4
barnaskóla i Reykjavík, Keflavik,
Vestmanne.vjum og Arnessýslu,
auk gagnfræðaskóla að Hlíðardal
i Ölfusi. Hefur hann starfað frá
árinu 1950.
Félagatalan hér á landi er, sam-
kvæmt opinberum skýrslum, á
sjöunda hundrað og eru alls sex
söfnuðir starfandi í Reykjavik,
Keflavík, Vestmannaeyjum,
Arnessýslu, Skagaströnd og á
Fáskrúðsfirði.
Að sögn Pastor Wernick er
það fólk af öllum kynþáttum og
stéttum sem aðhyllist söfnuðinn.
Milli 20 og 25 þúsund safnaðar-
hópar eru i öllum heiminum og
má finna fulltrúa i flestum lönd-
um. Opinberlega starfar söfnuð-
urinn i 190 löndum. Sums staðar
er fremur erfitt um vik með út-
breiðslustarf, svo sem i Sovétrikj-
unum og öðrunt austantjaldslönd-
um, og i Kina er kristin trú bönn-
uð.
Aðaláherzlan er lögð á boðun
fagnaðarerindisins og trúin á
Jesúm Krist sett efst á blað. Að-
ventistar trúa, eins og nafnjð
bendir til. á endurkomu Krists i
eigin persónu og vænta hans
skjótt. Lögmálið er talið sjálfsagð-
ur hluti af boðskapnum og halda
þeir' sjöunda daginn, laugardag-
inn. sem hvildardag santkvæmt
kertningum Bibliunnar
Pastor Wernick var kjörinn
varaforseti samtakanna árið 1975
á alheimsráðstefnu Sjöunda-dags
aðventista i Vin. en áður hafði
hann verið forstöðumaður safn-
aða i fjórum fylkjum Bandarikj-
anna. JB
1 söfnuði Sjöunda-dags aðvent-
ista i heiminum eru nú 2,6
milljónir manna og hefur farið
ört fjölgandi siðastliðin ár. Þrátt
fyrir að starf safnaðarins hófst i
Bandarikjunum árið 1863 eru að-
eins um 20% þar i dag. Þetta kom
fram á fundi sem Pastor Wernick.
varaforseti Alheimssamtaka Sjö-
unda-dags aðventista, hélt ásamt
Sigurði Bjarnas.vni, forstöðu-
manni safnaðarins hér á landi,
f.vrir skömmu.
Liknarstarí er stör þáttur i
starfi safnaðarins.Rekur hann nú
um 350 sjúkrahús og heilsugæzlu-
stöðvar um allan heim. Sérstök
áætlun er árlega ætluð þeim lönd-
um sem hart verða úti vegna jarð-
skjálfta, flóða eða hungursneyðar
Flestir kannast vist við liarna-
hókaflokkinn ..Sögur Bihliunn-
ar“. sem Sjöunda-dags aðvenl-
istar gefa út. en liklegl er að I.
hindið hafiiui slegið upplagsniet.
Það lieiu. icrið gefið ul i 9.000
eiulökuni hér a landi.