Dagblaðið - 23.11.1976, Side 14

Dagblaðið - 23.11.1976, Side 14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. NÖVEMBER 1976. Tveggja tíma hljómleikar með Peter Frampton — Ragnar Th. skrifar frá Gautaborg Ragnar Th. Sigurðsson, poppfréttamaður DB í Svíþjóð, brá sér á tónleika með Gary Wright og Peter Frampton 30. október síðastliðinn. Frásögn hans af iónleikunum fer hér á eftir: Einungis hálfur hljómleika- salurinn i Scandinavium í Gautaborg var notaður, er hljómleikar Peter Frampton og Gary Wright voru haldnir. Þó að hér væri um heims- þekkta menn að ræða var hálfi salurinn samt ekki hálfur. Það var EMA TELSTAR, sem hélt hljómleikana og frétti ég eftir á að fyrirtækið hefði tapað um 10.000 dollurum fyrir vikið (um 1,9 millj. ísl. króna). En snúum okkur nú að hljómleikunum sjálfum. Gary Wright kom fyrstur fram og lék í rúman klukkutíma. Þrátt fyrir heimsfrægð sína með lag- inu Dream Weaver, virtist svo sem hann væri litt þekktur meðal áheyrenda í Scandinavi- um, því að lítið var klappað í salnum í byrjun. Wright birtist á sviðinu klæddur hvítir silki frá toppi til táar og vakti mikla athygli fyrir að heilsa á sænsku og kynna lög sin á sama máli. I lok hljómleikanna gaf hann þá skýringu á þessari málakunn- áttu sinni, að konan sín væri sænsk og þess vegna væri hann svona vel að sér. Það var mjög nýstárlegt að sjá Gary Wr-ight og hljómsveit hans á. sviði, því að einungis voru notuð fjögur hljómborð og trommur við flutninginn. Þar af lék Gary sjálfur á eitt slikt sem hann hengdi um háls- inn. Auk alls þessa stóðu tvær stelpur uppi á litlum palli og skóku sig í takt við tónlistina. Væntanlega hafa þær gegnt því hlutverki að skemmta þeim, sem leiddist tónlistin, en vildu ekki fara fyrr en Framp- ton væri búinn að skemmta. Um tónlist Gary Wright og félaga hans er fremur lítið að segja. Mér fannst þó tónlistin vera allt of hávær miðað við, hve rödd Garys var veik. Eg var þó fræddur um það eftir á af vitrum manni, að þetta ætti að vera svona, því að þetta væri stíll hans. Þá tóku áhorfendur við sér Eftir að Gary Wright hafði lokið sér af, kom 20-30 mín- útna hlé. Loks kom hljóðstjóri Abba, Ciaes af Geijerstam, fram á sviðið og kynnti Peter Frampton. Þá tóku áhorfendur loksins við sér. Allir stóðu á fætur og æptu, veinuðu og klöppuðu fyrir honum. Að því loknu settist hetjan niður og söng eitt rólegt lag við kassa- gítarundirleik. Þá skipti hann um gítar og tók þrælgott leikið lag, og síðan komu þau hvert af öðru. Þegar á tónleikana leið tók PETER FRAMPTON. Tónlist hans á tveggja tíma hijómleikum í Gautaborg varð nokkuð „seig“ í lokin. DB-myndir: Ragnar Th. Sigurðsson. Frampton að ofnota Wah wah- ið og tók hann til dæmis eitt sóló með þvi, sem varð um það bil 20 mínútur. Vegna þessarar lengdar voru áhorfendur orðnir hundleiðir í lokin. Ég ræddi við Claes af Geijerstam eftir hljómleikana og sagði hann að honum hefði fundizt Eftir áralanga baráttu fyrir frægð og frama náði Peter Frampton ioksins takmarkinu með plötunni „Frampton Comes Alive.“ PLATA HANDA PABBA 0G MÖMMU Guðmundur Guðjonsson syngur lög eftir Sigfús Halldórsson viA undirleik höfundar. Útgefandi: Judas hf. (Jud. 005) Upptökustjóri: Magnús Kjartansson Upptökumaður: BöAvar GuAmundsson. Prentun. pressun og skurAur: Soundtek inc. New York. A þessari plötu syrigur Guð- mundur Guðjónsson 17 lög Sig- fúsar Halldórssonar við ljóð eftir ýmis ljóðskáld. Sum þessara laga hef ég aldrei heyrt áður, en önnur eru gamlir kunningjar og flokk- uðust til dægurlaga á sínum tima. Þar á ég við lög eins og Dagnýju, Tondeleyo og 1 grænum mó. I sjálfu sér er ógjörningur fyrir mig að fara að gagnrýna siing lærðs óperusöngvara og píanóleik tónskáldsins, — lil |iess skortir mig alla þekkingu á þessari tegund tónlistar. Iiins vegar játa ég að mér leiddist ekki á meðan ég renndi yfir plötuna. En ég er viss um að pabbi og mamma hefðu haft helmingi meira gaman af þessari tónlist. Eitt eða öllu heldur tvö at- riði stungu mig þó í eyrað. Það var í laginu Dagný, þar sem Sigfús gaf Guðmundi tóninn á milli forspilsins og söngsins. Aðrar kvartanir hef ég ekki varðandi þá félaga. Hins vegar kom það fyrir í byrjun þriggja laga, að fyrsti pianótónninn var bjagaður. Þennan galla held ég að verði að skrifa á reikning upptökumannsins, sem hefur ekki sett upptöku- bandið nógu fljótt í gang, þegar upptakan hófst. Ef þessi galli er einhverju öðru að kenna þá væru upplýsingar um það þakksamlega þegnar. Þar með eru aðfinnslur tónlistin verða of „seig“ í lok- in. Þáttur Peters Framptons í þessum hljómleikum varð rúmlega tveggja klukkustunda langur. Það varð því um þriggja og hálfs klukkutíma dvöl hjá þeim, sem mættu tím- anlega í Scandinavium. Náði fyrst varanlegri heimsfrœgð á þessu ári Peter Frampton mun vera orðinn 26 ára gamall. Hann varð fyrst þekktur, er hann lék með hljómsveitinni Herd og síðar Humble Pie. Varanlega heimsfrægð hlaut hann þó ekki fyrr en plata hans, Frampton Comes Alive, kom út á þessu ári. Hún var í marga mánuði í efsta sæti bandaríska vinsældalistans og einnig náðu tvö lög með honum mjög miklum vinsældum. Þau eru Show Me The Way og Baby I Love Your Way. Allar hafa þessar plötur selzt í milljónum upplaga. . í sænskum blöðum var skýrt frá því eftir hljómleikana, að Peter Frampton hafi grætt um 250 milljónir sænskra króna á þessu ári og því síðasta (ca 11 milljarða ísl. kr.). Er hann kom fram í Madison Square Garden í New York fyrir nokkru sló hann fyrri met þeirra Eltons John og Elvis Presley. Þá var einnig sagt, að hann ætti aðsóknarmetið i Madison, þó að ég selji það ekki dýrara en ég keypti. -RThS/ÁT- GARY WRIGHT. Mesta athygli vakti að hijóðfæri i hljómsveit hans voru aðeins fjögur hljómborð og trommur. Gary lék sjálfur á eitt borðanna, sem hékk framan á honum. mínar um plötu Guðmundar og Sigfúsar upp taldar. Ég spái því, að þessi plata eigi eftir að seljast hægt og jafnt en þó vel í framtíðinni. Ég yrði illa svik- inn ef ég sæi ekki einhvern kaupa plötuna að tíu árum liðnum, — og er það ekki þá, sem það kemur til álita hvort tónlistin á henni sé sígild. -ÁT-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.