Dagblaðið - 23.11.1976, Blaðsíða 15
U.BLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23JVOVEMBKR 1976. 15
Hárið er mesta prýði konunnar eff það er vel snyrt
Nokkur góð ráð ef þú vilt
spreyta þig á heimahár-
greiðslu
Sagt er að hárið sé mesta
prýði konunnar, en það er lítil
prýði að illa hirtu hári og því
ber öllum, bæði konum og körl-
um að kappkosta að hafa hárið
sem snyrtilegast. Það er auð-
vitað bæði heilmikill kostnaður
því samfara og heilmikil fyrir-
höfn. Auðvitað misjafnlega
mikill, því sumir hafa „gott“
hár, sem auðvelt er að eiga við.
Aðrir eiga í sífelldu striði við
hár sitt, það getur verið bæði
fíngert og „liflaust" Fyrsta
skilyrðið fyrir þvi að hárið líti
vel út er að það sé vel klippt og
hreint. Þannig hár er líka hægt
að leggja sjálfur heima fyrir
með betri árangri en það sem er
illa klippt. Til þess að geta
lagað sjálfur hár sitt þarf 6-
neitanlega að eiga ákveðna
hluti. Góða hárbursta og hár-
þurrkur. Nú eru til í verzlunum
hér handhárþurrkur sem eru
notaðar til þess að blása hárið
með, og þá ber að athuga að
slíkar þurrkur þurfa að vera
kraftmiklar til þess að þær
komi að einhverju gagni. Að
sjálfsögðu er einnig nauðsyn-
legt að kunna ákveðin hand-
tök. Ráðlegt er að láta setja
svokallað slétt permanent í hár-
ið, sérstaklega ef hárið er alveg
rennislétt og lint. Permanentið
gefur hárinu ,,lyftingu“.
Þegar hárið hefur verið
þvegið á að byrja á því að
greiða það með grófri greiðu
eins og það á að leggjast og
þurrka það næstum þvi alveg.
Síðan er byrjað á blæstrinumog
allt hárið blásið í öfuga átt til
að byrja með, það gefur því
meira líf.
Það á aðeins að blása lítinn
hluta af hárinu í einu og gott er
að skipta hárinu og halda því i
skefjum með klipsum. Byrjið
alltaf að blása upp við
hárrótina og neðst í
hnakkanum. Gætið þess að
hárendarnir liggi í sömu átt og
hárið á að liggia.
Ef notaðir eru hringburstar
gætið þá vel að því að vefja
hárinu vandlega utan um burst-
ann.
Þegar blása á stutt hár er bezt að
þurrka niðri við rótina fyrst og að
höfðinu, en gætið þess að endarnir visl
í þá átt sem hárið á að liggja.
Skiptið hárinu og blásið aðeins lítinn
hluta af hárinu í einu, byrjið neðst i
hnakkanum.
Til þess að „lyfta“ hárinu frá
hvirflinum, þá notið hring-
bursta í sömu átt og örin vísar,
þétt að hársverðinum.
Það kostar peninga að vera vel greidd — en það þarf líka leikni
til að geta lagað hárið heima fyrir
C
Árlegur kostnaður við vikulega lagningu og það sem með þarf:
Rúmlega áttatíu þúsund kr.
Það kostar auðvitað heil-
mikið í dýrtíðinni hjá okkur að
eignast þau tæki sem
nauðsynleg eru til þess að geta
lagað hárið heima fyrir, þurrku
bursta og jafnvel hitarúllur.
En það kostar einnig fé að
fara á hárgreiðslustofu og lík-
lega fljótt að borga sig að kaupa
eigin tól. En ákveðna hluti er
ekki hægt að gera í heima-
húsum, eins og t.d. að klippa
hárið og setja í það permanent.
Það er alltaf varhugavert að
gera tilraunir með heimaper-
manent, nema hafa sér-
fræðilega aðstoð að einhverju
leyti.
Til gamans höfðum við
samband við verðlagsstjóra og
hann gaf okkur upp verð á
þeirri þjónustu sem látin er í té
á hárgreiðslustofnunum:
Klipping:
Hárið sært: 320 kr., sérstök
klipping: 490 kr„ form-
klipping með skærum . 715 kr.
Lagning:
Daggreiðsla (ótúperuð): 550
kr., samkvæmislagning: 720 kr„
millisítt hár:840 kr.. sítt hár:
920 kr.
Greiðsla eftir lagningu:
Stutt hár: 190 kr., sítt hár: 275
kr.
Þvottur:
300 kr.
Sérstök hórþurrkun:
70 kr.
Lakk:
50 kr.
Blóstur:
Sítt hár: 1050 kr., stutt hár: 840
kr.
Permanent:
Kalt olíupermanent í sítt hár
án lagningar 2350 kr; stutt hár:
1885 kr.
Kostnaður á ári:
Samkvæmt upplýsingum hár-
greiðslukonu er nauðsynlegt að
láta klippa hárið ekki sjaldnar
en á tveggja mánaða fresti.
Permanent er nauðsynlegt að
fá ekki sjaldnar en á þriggja til
f jögurra mánaða fresti.
Ef við tökum dæmi um konu
sem er með stutt hár og fer í
lagningu einu sinni í viku kost-
ar lagningin: þvottur (300),
lagning (840), greiðsla (190)
og lakk (50), samtals kr. 1380.
Það gerir 71.760 kr. yfir árið.
Nauðsynlegt er að fara í
klippingu á tveggja mánaða
fresti og kostar formklipping
með skærum (sem er líklega sú
algengasta ) kr. 715, það gerir
4290 á ári. Permanent i stutt
hár kostar 1885 og er æskileg-
ast að fá það þrisvar sinnum á
ári, samtals 5655 kr. Þetta
gerir 81.705 kr.
Ef hins vegar er fenginn
blástur í stað lagningarinnar
breytist dæmið örlítið, því
blástur á stuttu hári kostar 840
kr. Klipping, permanent. þvott-
ur og lakk-kostnaðurinn er
sá sami og verður því
kostnaðurinn yfir árið 71.825
kr.
Tœkin kosta
einnig peninga
Til þess að geta blásið hárið
heima fyrir þarf að eiga góða
handþurrku. Til eru þurrkur
sem eru 500 vött og þær kosta
4650 kr. — Einnig eru til
hjálmar sem eru hentugir ef
venjulegar hárrúllur eru
notaðar í blautt hárið. Þeir
kosta um 11-12 þúsund kr.
Auðvitað er ekki nóg að
kaupa sér þurrku, því nokkur
fingrafimi er einnig nauðsynleg
Þá er líka nauðsynlegt að fara í
klippinguna, sem kostar 4290
kr. á ári og permanentið sem
kostar 5655 á ári, sem gerir
sajptals 9945 kr. Ef við bætum
svo handþurrkunni við gerir
það 14.595 kr. Næsta ár á eftir
verður mun ódýrara eða sem
svarar þurrkuverðinu, því gera
má ráð fyrir að þurrkan sé
nothæf í nokkur ár. — Hins
vegar breytist þessi tala ef
hjálmþurrkan er keypt og
verður rúmlega tuttugu
þúsund.
-A.Bj.
S|
Gætið þess vandlega að láta
þurrkuna ekki blása of nærri
hársverðinum. Sýnið einnig
sérstaka varúð ef hárið er litað
eða ef það hefur verið sléttað.
Ef þér gengur illa að hand-
fjatla þurrkuna og burstann
samtímis reyndu þá að snúa þér
frá speglinum og athugaðu
hvort þú finnur ekki betur á
þér hvernig á að gera þetta án
þess að horfa á það í speglinum.
Láttu ekki hugfallast þótt
blásturinn takist ekki mjög vel
í fyrstu. Þú getur reynt að
spyrja hárgreiðslukonuna þina
hvernig þú átt að fara að og
reyna .slðan að fara nákvæm-
lega eftir því sem hún segir.
En hafðu hugfast að þegar
hárið er blásið og lagt með
bursta er það heilmikill vandi
og það sem tekur hárgreiðslu-
konuna þína ekki nema 45
mínútur getur tekið þig 90
mínútur eða meira.
Ef hárið er rétt klippt,
ættirðu að geta blásið það
þannig að einhver mynd verði á
því. Bezta klippingin eroftastsú
sem er sem næst því að hárið
falli sem eðlilegast. Það getur
verið mjög erfitt að fá hárið til
þess að sitja fallega í „öfuga“
átt við það sem því er eðlileg-
ast.
Þegar lokið er við blásturinn
og hárið situr I réttum
skorðum, er nauðsynlegt að
sprauta lakki yfir meistara-
verkið. ■A.Bj.
Ef þú ætlar að halda hárinu
í góðu formi ’ er
nauðsynlegt að eignast
a.m.k. þrjár stærðir af
hringburstum.
50-100 kr.
Allt b.vggist á þvi að hárið sé vel klippt.
Það er nauðs.vnlegt að eiga
grófa greiðu til þess að
greiða niður úr blautu
hárinu.