Dagblaðið - 23.11.1976, Side 24
..........
Deilt um ofnafyrirtæki meðan beðið er eftir skiptum bús:
HJONIAUGLYSINGA-
STRÍÐI í DAGBLABI
Búskipti á búi hjóna, sem
bæði voru stofnendur og eig-
endur að þjóðkunnu
ofnaframleiðslufyrirtæki,
Runtal-ofnum hf., hafa nú tekið
nokkuð á fjórða ár fyrir skipta-
réttinum. Að undanförnu hafa
biFzt auglýsingar frá hjónunum
hvoru í sínu lagi, sem bera
greinileg merki þeirra vand-
kvæða sem risið hafa vegna
þeirrar óljósu stöðu sem ólokin
skipti skipa þeim í.
Það skal tekið fram að um
flesta hluti sem varða búskiptin
hefur verið deilt. Hefur komið í
hlut Hæstaréttar að taka
afstöðu til sumra þeirra. Meðal
annars reis deila umþað, hvort
eiginmaðurinn ætti persónu-
lega framleiðslurétt samkvæmt
samningum við erlendan einka-
leyfiseiganda. Hélt maðurinn
því fram. Hæstiréttur dæmdi
þannig, að sá réttur væri ekki
einkaeign hans.
Þá hefur það borið til
tíðinda, að konan krafðist þess,
að skiptaráðandi viki sæti. Með
úrskurði var ekki orðið við
þeirri kröfu. Var sá úrskurður
kærður til Hæstaréttar.
Hæstiréttur staðfesti
úrskurðinn og féllst þannig
ekki á kröfuna um að skipta-
ráðandi viki sæti.
Nú hefur bóndinn í búinu
auglýst að hann reki iðnfyrir-
tæki í Reykjavík undir nafninu
Runtal-ofnar. í framhaldi af því
hefur konan, sem er fram-
kvæmdastjóri dótturfyrir-
tækisins, Ofnasmiðju Norður-
lands hf., nú birt auglýsingu
þar sem meðal annars segir:
Um það er ekki að ræða að
Ofnasmiðju Norðurlands hf.
skorti réttindi til að framleiða
þá ofna sem hún hefur á boð-
stólum. Áðurnefnd tilkynning
(þ.e. auglýsingin um einka-
fyrirtæki bóndans) Birgis, er
gefin í fullkomnu heimildar-
leysi af minni hálfu og er byggð
á algerum misskilningi og röng-
um forsendum. BS.
wÆ ■ f ’•*? dB
&&&**> 4 m.
Rabb í
skamm-
degi
.Mér skilst, að nú séu þeir
búnir að taka enn eirin fyrir
Geirfinnsmál, þeir ætla að
hækka rafmagnsverð um
25%, borhola nr. 5 við
Kröflu er ónýt, þeir semja
sennilega við Bretana um
síðasta beinið hér við land,
og ofan á allt bætist að það
er ekki nema mánuður til
jóla. Eigum við ekki að fá
okkur aftur í bollann, ha?...“
Arni Páll tók þessa mynd
á kaffihúsi í borginni nú
fyrir skömmu.
Féll útbyrðis
af Karlsefni
Er togarinnKarlsefm ar á.
heimleið úr rannsóknar-
leiðangri á vegum
Hafrannsóknastofnunar-
innar í síðustu viku varð það
slys að Guðmundur Elí
Guðmundsson, rúmlega þri-
tugur maður frá Súganda-
firði, féll útb.vrðis og
drukknaði!
Var skipinu snúið við er
Guðmundur kom ekki á vakt
kl. 4 um nóttina og leitað, en
það bar engan árangur.
Guðmundur var ókvænt-
u r. -IIP.
Húsnæði Bifreiðaeftirlitsins að Bflds-
höfða 8 stendur ónotað frá því í fyrra
„Það er verið að vinna í
húsinu núna en ennþá vantar
mikið á að við getum flutt,“
sagði Guðni Karlsson forstöðu-
maður Bifreiðaeftirlits ríkisins
í viðtali við Dagblaðið um hina
nýju aðstöðu eftirlitsins við
Bíldalshöfða 8. „Fjárveiting til
okkar á fjárlögum fyrir þetta ár
var 18-19 milljónir en það
nægir ekki nema fyrir helmingi
af því sem við þurfum að láta
gera þarna.“
Bifreiðaeftirlitið tök
húsnæði þetta á leigu fyrir
rúmu ári og er ætlunin að
þangað verði flutt öll starfsemi
þess, nema skoðunina sjálf.
Hefur húsið þvi staðið þarna í
fullri leigu frá því í f.vrra en
ennþá hefur því ekki verið
komið í nothæft ástand.
„Við erum að vísu ekki búnir
að fá afhent nema skrifstofu-
húsnæði sjálft en fdum af-
ganginn af húsinu fljótlega,"
sagði Guðni ennfremur. „Von-
umst við eðlilega eftir
nægilegri fjárveitingu til fram-
kvæmdanna á næsta ári, svo að
við getum tekið húsið í fulla
notkun."
-HP.
Hve hagstæður er SÍS-samningurinn?
VERDIÐ TIL SOVÉTRÍKJANNA
ÞRIÐJUNGILÆGRA
Verð á fatnaðinum, sem Sam-
bandið selur til Sovétríkjanna,,
samkvæmt síðasta samningi, er
þriðjungi lægra en verð sem fæst
á vestrænum mörkuðum fyrir
fatnað héðan. Sé reiknað í þunga,
fer kílóið til Sovétríkjanna á 4000
krónur, en verðið á vestrænum
mörkuðum er 6000 krónur.
„Þetta er í rauninni allt önnur
vara,“ sagði Andrés Þorvarðar-
son, fulltrúi SlS, sem annast
Austur-Evrópuviðskipti, í viðtali
við blaðið í morgun. „Hærra
verðið á við, þegar selt er í
nokkrum hundruðum stykkja og
mörgum gerðum, lítið magn.
Okkar verð á við sölu á nokkrum
gerðum í tugum þúsunda stykkja.
Þetta eru yfirleitt peysur eða
þannig flíkur. sem við seljum
ófóðraðar. Þetta er allt vélprjónað
og ekki mikil vinna. Verðið er
ekki síðra en við faum á vest-
rænum mörkuðum. miðað við
þetta. Við fáum-enga styrki til
þessa útflutnings."
Andrés sagði að samningarnir
við Sovétmenn væru upp á 1200
milljónir fyrir næsta ár. Þeir
hefðu verið fyrir um 800 milljónir
á þessu ári.
-HH
Talstöðvum stolið úr bflum
í morgun klukkan rúmlega hálf
álta var tilkynm til lögreglunnar
i Arbæ að hrotizi tu-fði verið inn i
tvo sementsflutnineabila þar sem
þeir stóðu við afgreiðslu ! Sem-
entsverksmiðjunnar á Sævar-
höfða. Stolið hal'ði verið tal-
stöðvum úr bílunum.
Eitthvað hefur verið um að tal-
stöðvum hafi verið stolið úr bílum
undanfarið. Eru þessar talstöðvar
dýr tæki sem erfitt getur verið að
ná í, en þær eru allar skráðar hjá
I.andssimanum, þannig að erfitt
frjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 23. NOy. 1976
Ók af slys-
stað fram-
rúðulaus
— skildi fola eftir
helsærðan
eftir árekstur
Ekið var á briggja vetra gamlan
fola á veginum skammt utan við
Búðareyrarkauptún við Reyðar-
fjörð um kl. 2 aðfaranótt
laugardags. Var komið að
hrossinu helsærðu skömmu eftir
þann tíma en sá er á hrossið ók
hvarf af slysstað án þess að láta
vita um slysið.
Ekki var brotthlaup öku-
mannsins af þeim sökum að hann
hefði ekki orðið slyssins var, því á
slysstað var framrúðan brotin og
ýmislegt annað úr bílnum. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu-
manns á Búðareyri þykir ljóst að
hrossið hafi kastazt upp á bílinn
og e.t.v. yfir hann, eða dregizt
með honum um 20 metra leið.
Dýralæknir var kvaddur til frá
Egilsstöðum og taldi hann folann
liryggbrotinn auk fleiri meiðsla
vg var hrossið aflífað.
Leit var síðan hafin að fram-
rúðulausum bíl en hún bar ekki
árangur. Á sunnudagsmorgun gaf
ökumaður sig fram. Kvaðst hann
hafa fengið taugaáfall. Ekki .vildi
hann viðurkenna að um ölvun
hefði verið að ræða við aksturinn,
en blóðsýni var tekið og málið
verður sent Boga Nílssyni sýslu-
manni á Eskifirði. -ASt.
Slysalaus umferð
í fyrsta snjónum
á Akureyri
Þegar Akureyringar vöknuðu í
morgun var þar snjór yfir öllu.
Ekki var þó kalt heldur mjög milt
veður. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar var nokkur hálka á
götunum en umferð hafði þó
gengið slysalaust. Búizt var við að
aftur yrði orðið autt á Akureyri
þegar liði á daginn, því hiti yar
vaxandi. -A.Bj.
Háskóla-
ráðskosn-
ingar á
morgun
Tveir fulltrúar stúdenta
verða kosnir í háskólaráð á
morgun. Nú sitja tveir full-
trúar stúdenta í ráðinu, en
með kosningunum á morgun
verður þeim fjölgað í fjóra.
Þar með öðlast stúdentar lið-
lega fjórðung atkvæða í há-
skólaráði.
I framboði eru tveir
listar og eru þeir bornir
fram í nafni Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta,
og vinstri manna.
Lítill áróður hefur verið
rekinn innan skólans til
þessa en það breytist
væntanlega í dag eða á
morgun.
Kjörfundur verður
haldinn í hátíðasal Háskól-
ans. Kjörfundur er opinn frá
klukkan 9 á miðvikudags-
morgun 24. nóvember til
klukkari 18 um kvöldið.
ætti að vera um vtk að selja
stolnar talstöðvar. Fólk ætti að
vera á verði ef talstöðvar eru
boðnár til kaups á „frjálsum"
markaði. því sennilegt er að um
stolna muni sé að ræða. A.Bj,