Dagblaðið - 27.01.1977, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 1977
'5
Ríkisendurskoðun um bókhald ÁTVR:
DAGLEG ENDURSKOÐUN
VEGNA SÉRSTÖÐUNNAR
—óskýrð rýrnun vel viðunandi
Vegna greinar Halldórs
Halldórssonar í blaðinu sl. mánu-
dag undir fyrirsögninni „Ekkert
eftirlit með innflutningi og sölu
tóbaks" hefur embætti Ríkisend-
urskoðunar sent blaðinu eftirfar-
andi bréf:
undum). Um hver mánaðamót
eru birgðir taldar og auk þess fer
talning fram þegar um verðbreyt-
ingar er að ræða. Birgðatalning-
arnar eru síðan bornar saman við
birgðabókhaldið og kemur þá þeg-
ar fram ef um misræmi er að
ræða. Það er þvi algerlega út í
hött, þegar greinarhöfundur segir
að „Þess vegna hefði hverjum
sem væri verið í lófa lagið að
stinga undan þessi ellefu ár
nokkrum tonnum árlega án þess
að nokkur tæki eftir“.
Hjá ÁTVR, eins og hjá öðrum
verslunarfyrirtækjum, á sér stað
vörurýrnun, sem á sér ýmsar
orsakir. Undanfarin ár hefur
óskýrð rýrnun á tóbaksvörum ver-
ið á bilinu frá 0,0037% til
0,0145% miðað við söluverð. —
[Ekkert eftiriit
með innflutningi
og sölu tóbaks
‘"""•rtntaívog sí luskýrslum berekkiv
Að áliti ríkisendurskoðunarinnar
er hér um vel viðunandi ástand að
ræða.
Bréf þetta óskast birt i blaði
yðar.
Ríkisendurskoðun, 26. janúar
1977.
F.h.r.
Halldór V. Sigurðsson
sign.
Guðm. Magnússon
sígn.
I blaði yðar þann 24. janúar sl.
birtist grein eftir Halldór
Halldórsson sem bar yfirskriftina
„Ekkert eftirlit með innflutningi
og sölu tóbaks“.
Eins og yfirskriftin ber með
sér, þá er í greininni fjallað um
innflutning og sölu Afengis- og
tóbaksverslunar ríkisins á tóbaki.
Ríkisendurskoðunin hefur með
hendi endurskoðun hjá ÁTVR,
eins og öðrum ríkisstofnunum.
Þess vegna hlýtur gagnrýni á eft-
irlit eða eftirlitsleysi hjá þessari
ríkisstofnun að beinast að veru-
legu leyti að henni. Nokkrar setn-
ingar í greininni, er fjalla um
bókhald ATVR og eftirlit, gefa
tilefni til að taka fram eftirfar-
andi:
Vegna sérstöðu ÁTVR innan
ríkiskerfisins hefur þar verið lögð
sérstök áhersla á endurskoðunina
og er því um daglega endurskoð-
un að ræða. Endurskoðun hjá
stofnuninni hefur ávallt verið fal-
in mjög hæfum starfsmönnum.
Fjárhagsbókhald ÁTVR er vel
og reglulega fært, þannig að á
hverjum degi eru færðar þær
fjármunahreyfingar, sem fram
fóru næsta vinnudag á undan.
Reikningsskil eru gerð mánaðar-
lega. Venjulega eru þau tilbúin
6-7 dögum eftir hver mánaðamót,
nema um áramót, þá tekur lengri
tíma að ganga frá ársreikningi, en
venjulega er ÁTVR með f.vrstu
ríkisstofnunum að skila ársreikn-
ingi.
Birgðabókhald ÁTVR, en
nefnd grein snertir aðallega
birgðahaldið, er einnig vel og
reglulega fært. Birgðabókhaldið
er tvöfalt, fært bæði i fjárhæðum
og magni (einingafjölda eftir teg-
Nú verður
Alþingis-
húsið vaktað
„Enga samninga um
veiðiheimildir”
Landhelgissamtökin hafa til-
kynnt fjölmiðlum að þau muni
hefja mótmælastöðu við Alþingis-
húsið vegna fyrirhugaðra samn-
inga milli Efnahagsbandalagsins
og íslenzku ríkisstjórnarinnar.
Segja samtökin að félagar úr
samtökunum muni skiptast á um
mótmælastöðuna föstudaginn 28.
janúar frá 1-7 síðdegis og mánu-
daginn 31. janúar frá 3-8 síðdegis.
A sama tíma munu liggja
frammi undirskriftalistar þar
sem andstæðingar samninga við
erlenda aðila um veiðiheimildir
innan 200 mílna lögsögunnar geta
ritað nöfn sín. Undirskriftasöfn-
uninni verður að öllum likindum
haldið áfram i febrú^r.
Yfirskrift listanna er: „Enga
samninga um veiðiheimildir inn-
an fiskveiðilögsögunnar.-Til
baráttu gegn allri ránvrkju."
-ASt.
MWBIAÐ/Ð
er óhóð og frjálst
Hin öra eftirspurn eftir innréttingum
okkar hefur gert okkur kleift að bjóða
nú ódýrustu eldhúsinnréttingarnar á
markaðnum.
í Haga eldhúsum er hver hlutur á
sínum stað í léttu samræmi lita og
forma. Enda um 283 mismunandi
einingar að velja og fjórar gerðir -
fjórar blómalínur, sem bjóða upp á
marga valkosti um verð, efni og sam-
setningu. Þannig er afar auðvelt að
uppfylla óskir kaupandans, hvort sem
hann er að endurnýja gamla innrétt-
ingu eða flytja inn í nýja íbúð.
Spyrjið, hringið eða skrifið og ,
biðjið um litmyndabækling. Við ✓ ^
tökum mál, skipuleggjum og /
teiknum - ykkur að kostn- //' //
aðarlausu og gerum tilboð $
án skuldbindinga af
ykkar hálfu.
HAGIr
Suðurlaridsbraut 6,
Reykjavík.
Sími: (91) 84585.
/iW
///
4V
Verslunin Glerárgötu
Akureyri.
Sími: (96) 21507.
26,