Dagblaðið - 27.01.1977, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAC.UR 27. JANUAR 1977
7
RÁHAcíð1
RICHARD VILL HALDA ÁFRAM
VIÐRÆÐUM - MIKLIR LIÐSFLUTN-
INGAR TIL MOSAMBIQUE
Sáttasemjari Breta i deilunni
um Ródesíu, Ivor Richard, mun
ætla að heimsækja ráðamenn í
Botswana og Sambíu í dag til
þess að reyna að finna leiðir til
þess að endurvekja umræður
milli hvítra manna og svartra
um framtíð Ródesíu.
Mun hann ætla aö kynna sér
viðhorf allra fulltrúa svartra
manna eftir að tilraunir hans
til að koma á viðræðum urðu að
engu sl. mánudag.
Á blaðamannafundi, sem
Richard hélt í Jóhannesarborg í
gær, sagði hann að hann væri
ekki úrkula vonar um að ein-
hver árangur kynni að nást á
næstu dögum.
Sagði hann að allt myndi
verða ,,mjög, mjög erfitt" ef
Ian Smith, forsætisráðherra
hvíta minnihlutans í Ródesíu,
héldi fast við þá ákvörðun sína
að semja aðeins eftir hinni svo-
nefndu „Kissinger-áætlun",
enda hefðu fulltrúar svartra
manna algjörlega hafnað
henni.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum, úr röðum frelsis-
baráttusveita svartra manna í
Salisbury, segir að hermenn
og vopn séu nú á leiðinni til
Mosambique frá Sómalíu sem
nýtur hernaðaraðstoðar Sovét-
ríkjanna og að styrjöld gegn
ráðamönnum í Ródesíu sé nú í
nánd.
Heimildarmenn Reuters-
fréttastofunnar, sem fréttir
þessar eru hafðar eftir, vildu
ekki segja hversu mikill mann-
afli.væri þarna á ferðinni en
talað var um að skriðdrekar
myndu halda yfir landamærin
þá og þegar.
Ródesíuráðstefnan á meðan allt lék í lyndi á yfirborðinu, Richards fær sér vatnsglas.
Allt stendur í
járnum í Kairó —
Kommúnistum
kennt um óeirðir
Egypzka ríkisstjórnin hefur
bannað allar mótmælaaðgerðir
og verkföll og hækkað laun
ríkisstarfsmanna unt 10% eftir
óeirðirnar miklu sem urðu
vegna fyrirhugaðra verðhækk-
ana á nauðsynjavörum nú um
síðustu helgi.
Að sögn talsmanna ríkis-
stjórnarinnar munu aðgerðir
þessar þó ekki hafa áhrif á til-
raunir Sadats forseta til þess að
forðast harkalegar aðgerðir
gegn landslýð.
Hefur rikisstjórnin sakað
kommúnista um að hafa staðið
að baki óeirðunum, sem
kostuðu 79 manns lífið. 800
ntanns slösuðust og tjón var
unnið á byggingum og öðrum
mannvirkjum fyrir milljónir
punda.
Að áliti fréttaskýrenda er
þessi kauphækkun, sem kemur
eftir að verðstöðvun hafði verið
fyrirskipuð, talin eiga að
hjálpa meira en níu milljón
verkamönnum landsins til þess
að berjast við verðbólguna.
Bannið við mótmælaað-
gerðum kemur í kjölfar frétta
um fjóra hópa kommúnista sem
komið hafa fram í.dagsljósið í
Kairó og talið er að hafi ætlað
að kollvarpa ríkisstjórninni.
Eldgosið íZaire:
Fangarnir læstir í
klefum sínum þegar
fangelsið fóríkaf
Goma-fangelsið og allir fangar
þess í austurhluta Zaire grófust
undir hraunstraumi úr eidfjall-
inu Nyiragongo, sem nú gýs
kröftuglega suður þar.
Fangavörðunum tókst að
komast undan hraunstraumn-
um og á brott með flugvélunt en
fangarnir voru lokaðir inni í
klefum sínum og gátu enga
björg sér veitt þegar hraunið
vall fram.
Tjön af völdurn eldgossins
hefur orðið mikið í landinu og
hafa margir bæir farið undir
hraun og ösku. Talið er að allt
að tvö þúsund manns hafi týnt
lífinu í hraunstraumi og ösku.
SÆNSKIR FANGAR SAM-
EINAST í LANDSSAMBANDI
Þrjátíu fangar úr fulltrúa-
ráðum fanga í fimmtán fangels-
um í Svíþjóð, stofnuðu í‘ fyrri
viku Sameinaða fangasam-
bandið (FFCO). Stofnfundur-
inn var haldinn í Hall-
fangelsinu skammt utan við
Södertelje og að honum loknum
var haldinn blaðamanna-
fundur. Þar lögðu fangarnir
fram kröfur sínar: ,,Nú verða
fangelsisstjórnirnar að viður-
kenna okkur sent samnings-
aðila. Hættið vinnuþrælkun-
inni í fangelsunum og leyfið
okkur að skipuleggja félög
okkar. Þetta eru helztu kröfur
okkar."
Fundurinn í Hall-fangelsinu
er árangur fangaverkfallsins í
lok fyrra árs sem lauk eftir að
fangelsisstjórnin féllst á að
leyfa föngum að safnast saman
til fundahalda um hagsmuna-
mál sín.
Á dagskrá stofnfundarins
var aðallega að skilgreina og
fastmóta stefnumál Sameinaða
fangasambandsins. Tilgangur
þess er að sameina fanga í
sænskum fangelsum í ópóli-
tískri hreyfingu og áð vernda
og fylgja eftir efnahagslegum,
félagslegum og hugmynda-
fræðilegum hagsmunum fang-
anna, m.a. hvað viðvíkur laun-
um, tryggingum og menntunar-
möguleikum. Auk þess gera
sambandsmenn sér vonir um að
geta haft áhrif á lagasetningar
um refsimál í Svíþjóð.
Einn þeirra sem kjörinn var i
stjórn (varaformaðurinn er
kona) gat ekki setið stofnfund-
inn, enda var hann í algjörri'
einangrun i Hall-fangelsinu
fyrir að eiga hlut að upptökum
fangaverkfallsins í fyrra. Var
það víðtækt og tóku þátt fangar
í flestum stærstu fangelsum í
Svíþjóð.
ítalskir fangar hafa mikið haft sig í frammi að undanförnu og
mótmælt harðlega aðbúnaði í fangelsum: Nú f.vlgja Svíar for-
dæmi þeirra.
TEXAS - skómir
r r
NU NYKOMNIR TILISLANDS
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8
v/Austurvöll
Sími 14181
Allir þykkbólstraðir og
skinnfóðraðir með mjög
slitsterkum sólum.
Litur: Ljósbrúnt leður
Stærðir: 41-46 íhálfum
númerum.
Verðkr. 9.965.-