Dagblaðið - 15.02.1977, Page 5

Dagblaðið - 15.02.1977, Page 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRtJAR 1977. 5 Kenningar dr. Valgarðs Stefánssonar um Kröfluvarmann: OF HEITUR OG KALDUR! —vatnskerf in eru tvö og mörg I jón á veginum að nýta þau Túlkun dr. Valsarös Stefáns- sonar, jaröeðlisfræðings hjá Orkustofnun, á fyrirliggjandi upplýsingunt um Kröflusvæðið bendir til þess að mjög erfitt verði með öflun nægilegrar gufu til Kröfluvirkjunar. „Vatnskerfin á Kröflusvæð- inu eru tvö," sagði dr. Valgarð- ur i samtali við DB í gær, ,,og athuganir okkar hafa leitt i ljós að ýmis vandkvæði eru við nýt- ingu þeirra beggja. Efra kerfið -er 200-220 gráða heitt sem er of lítið, en það neðra 300-330 gráða .heitt sem er of mikið. Efnasamsetning neðra kerfis- ins er einnig óhagstæð hvað varðar koldíoxíðmagnið, sem þýðir að nýting þess er mun erfiðari en ella.“ Dr. Valgarður taldi ekki von til að efra vatnskerfið hitnaði ,,að minnsta kosti á meðan við lifum“ en ekki væri hægt að segja til um hvort kólnaði í ..neðra“. Kvað hann tímann eiga eftir að leiða í ljós hvort eldsumbrotin á Kröflusvæðinu væru völd að þessu ástandi þar en ýmislegt benti til að svo væri. í efra vatnskerfinu er tiltölu- lega lítil gufa, en þaö er hún sem notuð er til raforkufram- leiðslunnar, og i þvi neðra eru efnasamsetningar slíkar að erf- itt er að nýta gufuna úr því til raforkuframleiðslu. Þær holur, sent tengdar verða inn á stöðina til að byrja með. eru þó að meginhluta úr neðra kerfinu. -ÓV Selfysskir „fótaþjófar á ferð I.eikfélag Selfoss sýnir gamanleikinn Sá sem stelur fæti vcrður heppinn í ástum í félags- heimilinu á Seltjarnarnesi á mánudaginn kemur og í Kópa- vogsbíói kvöldið eftir. Steinunn ■lóhannesdóttir leikstýrir og ráð- gerir félagið einnig að sýna í Ara- tungu. Vík i Mýrdal. á Kirkjubæj- arklaustri og að Hvoli síðar í mán- uðinunt. Verkið er eftir Dario Fo. Mvndin er úr einu atriði leiksins. -G.S. Lögreglan sektaði 50 á tveimur tímum —öllum bflunum var lagt ólöglega en sektin er nú 3000 krónur MORGUNSTUND GEFUR GULL I MUND MED JKG-HVILDARKODDA UTSOLUSTAÐIR ; H JALPARTÆK JBANKINN SKIPHOLTI 21 Fatabúdin, Skólavördustíg Yfirmenn Seltjarnarnesskaupstaðar afhentu rausnariegt framlag til slysavarna- og björgunarstarf- semi á Nesinu í litlu kaffisamsæti. Þar voru mættir talið frá vinstri Gunnar Friðriksson forseti SVFÍ, Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, Guðmundur Jón Helgason form. Aiberts, Magnús Eriendsson forseti bæjarstjórnar, Jónatan Guðjónsson form. svd. Bjarna Páissonar og Hannes Þ. Hafstein framkv. stj. SVFl. Afhentu rúmlega hálfa aðra milljón til slysavarna Slysavarnadeildin'Bjarni Páls- son og björgunarsveitin Albert, sem starfar innan sveitarinnar, fengu kærkomna gjöf í síðustu viku er bæjarstjórn Seltjarnar- ness ákvað á fundi sínum að styrkja sveitirnar með 1.550.000 króna framlagi. Hefur þetta rausnarlega framlag bæjarstjórn- arinnar nú verið afhent deildun- um. Slysavarnadeildin Bjarni Pálsson var stofnuð árið 1968 og skömmu síðar björgunarsveitin Albert innan hennar. Björgunar- sveitin naut frá upphafi góðs stuðnings bæjaryfirvalda því deildin fékk aðstöðu fyrir starf- semina í áhaldahúsi bæjarins. Þar er tækjageymsla og herbergi til fundarhalda og annarrar félags- legrar starfsemi. Nú næstu daga mun björgunar- sveitin Albert taka í notkun mjög fullkontna björgunar- og sjúkra- bifreið. Við fjáröflun til kaupa á henni hafa félagar sveitarinnar notið góðs liðsinnis fjölda stuðn- ingsmanna á Seltjarnarnesi. í fréttatilkynningu frá Slysa- varnafélagi íslands er bæjar-- stjórn Seltjarnarness þakkað höfðinglegt framlag til slysavarna og björgunarstarfs. svo og öllum íbúum bæjarins fyrir góðar mót- tökur þegar félagar úr slysa- varnadeildinni og björgunarsveit- inni hafa leitað liðsinnis þeirra. _______ -ASt. ..Það voru um 50 bíleigendur kærðir á tveimur tímum i gær- kvöldi fyrir að leggja bílum sin- um ólöglega,'1 sagði Sigurður Sig- urgeirsson varðstjóri í umferðar- „Ólympíu- mót” íKópavogi Skákþing Kópavogs, sem hefst í kvöld, verður háð með nokkuð nýstárlegu sniði. Keppendum verður skipt í nokkra riðla sem eiga að vera nokkuð svipaðir að st.vrkleika. Efstu menn riðlanna komast í A-úrslitariðil, næstu menn í B-úrslitariðil o.s.frv. Svip- ar þetta nokkuð til ólympíuskák- mótanna. Mótið fer fram í Hamra- borg 1. teflt veróur á miðviku- dagskvöldum og laugardögum en biðskákir á þriðjudagskvöldum. Á aðalfundi Taflfélags Kópa- vogs nú fyrir skemmstu var stjórn félagsins einróma endurkjörin en í henni sitja Sigurður Kristjáns- son, formaður, Jörundur Þórðar- son, varaform., Sverrir Kristins- son. gjaldkeri, Björn Halldórsson, ritari. og Hjalti Karlsson, með- stjórnandi. Mikil starfsemi hefur farið fram að undanförnu i félag- inu. -JBP- deild lögreglunnar i viðtali við DB. ..Við höfum verið með her- ferð gegn ólöglega lögðum bílum í um það bil fimm mánuði. Og þó ekki hafi verið nema gripið í þessi mál stuttar stundir í einu hafa kærurnar'orðið allt að 50-G0 á dag.“ Sigurður sagði að flestar kær- urnar væru vegna þess að lagti væri við eða of nálægt bann- merkjum. Sumir fengju kærur fyrir að leggja bíl sínum að öllu leyti uppi á gangstétt og einnig sneru bílar öfugt hjá sumum mið- að við akstursstefnu. Sekt fyrir að leggja bíl ólöglega er nú 3000 krónur ef menn greiða innan viku frá þvi að kæran er hengd á bílinn, annars hækkar hún því næst lendir hún hjá full- trúa lögreglustjóra og síðast í Sakadómi. Sigurður sagði að lögreglan sæi árangur af þessari herferð sinni enda munaði flesta orðið um 3000 krónur. Sem dæmi nefndi hann að nú hefði að mestu tekizt að hindra að bílum væri lagt austan til við Skólavörðustíginn. Væri þar nú oft enginn bíll, enda bann- svæði, en áður hefðu þeir staðið þar upp eftir allri götu. Menn bregðast misjafnlega við kærum vegna þessara mála en vissara.er fyrir bíleigendur að huga vel að hvernig þeir skilja við bila sína. ASt/DB-mynd Sveinn Þorm. heimili G0LFTEPPI fyrir —stigahiís—skrifstofur AXMINSTER Grensásvegi 8 — Sími 30676

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.