Dagblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977. þróttir íþróttir íþróttir Iþróttir 3 og Cryuff í bann — Atletico Madrid skauzt íefsta sætidíl.deildá Spáni íslenzka landsliðið i handknatt- leik fékk nokkra uppreisn æru er liðið gerði jafntefli við pólsku meistarana Slask 21-21 — íslenzka liðið var nærri sigri en Pólverjunum tókst að jafna á síðustu mínútu leiksins eftir að Szymczak hafði varið hörkuskot frá Björgvini á línu. Akurnesing- ar fylltu hið nýja íþróttahús — um 800 áhorfendur hvöttu ís- lenzka liðið vel áfram. Já, leikur íslenzka liðsins var allur annar og betri en hefur verið undanfarið. Línuspilið gekk vel upp — hraðaupphlaup nýttust vel og síðast en ekki sízt — mark- varzla Gunnars Einarssonar var mjög góð allan leikinn. Hann varði mark Islands af stakri prýði og frammistaða hans varð öðrum leikmönnum hvatning. Pólverjar skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins í gærkvöld — og virtist þá þegar stefna í enn einn pólskan sigur. En íslenzku leik- mennirnir voru ekki á því að gefa eftir. Var spil liðsins nú allt annað og betra en verið hefur í undanförnum leikjum. Vörnin var þétt — og að baki henni stóð Gunnar Einarsson í mark- inu. Islenzka liðinu tókst að komast yfir á 16. mínútu fyrri hálfleiks,5-4, þegar Björgvin skoraði laglega af línu — en Björgvin átti sérlega góðan leik og var Pólverjunum sífelld ógnun Jafnt var á öllum tölum upp í 10-10 en Viggó Sigurðssyni tókst að skora síðasta mark hálfleiksins — staðan í leikhléi var því 11-10 tslandi í vil. Björgvin skoraði síðan fyrsta mark síðari hálfleiks og jók for- skot ísiands í 2 mörk — en Klempel og Sokotowski svöruðu með tveimur mörkum fyrir Pólverjana. íslenzka liðið hafði þó ávallt undirtökin — og mestur varð munurinn þrjú mörk — er Þorbjörn og Viggó skoruðu góð mörk með stuttu millibili — 19- 16. Loks stefndi í íslenzkan sigur en Pólverjarnir voru ekki á að gefa neitt eftir. Þeir náðu að jafna 20-20 — Geir svaraði fyrir tsland úr víti — og siðan varði hinn snjalli pólski markvörður mjög vel frá Björgvini og Gzykaluk jafnaði fyrir Pólverjana á siðustu mínútu leiksins, 21-21. Með þessum leik er þætti Slask í undirbúningi íslenzka lands- liðsins fyrir B-keppnina lokið. Þrátt fyrir slæm töp er ekki að efa að Slask hefur orðið landsliðs- mönnum okkar stoð — nú þurfa leikmennirnir hvíld í nokkra daga áður en haldið verður í hina hörðu og tvísýnu keppni í Austur- riki. Þar má ekkert út af bera ef heimsmeistarakeppnin í Dan- mörku á að verða veruleiki að ári. Mörk íslenzka liðsins skoruðu Björgvin Björgvinsson og Geir Hallsteinsson, 5 mörk hvor — Geir þrjú víti. Ölafur Einarsson skoraði tvö mörk — bæði úr víta- köstum. Þorbjörn Guðmundsson skoraði 4 mörk — Viggó Sigurðsson 3 og Ágúst Svavarsson og Bjarni Guðmundsson 1 mark hvor. Övenjulítið bar á Klempel — en hann skoraði 4 mörk. Macz- ucski skoraði einnig 4 mörk. Burzysnki og Zak skoruðu þrjú mörk hvor — Falenta, Kacjan og Sokotowskí skoruðu tvö mörk hver. Czykaluk skoraði eitt mark — síðasta mark leiksins. Leikinn dæmdu þeir Hannes Þ. Sigurðsson og Karl Jóhannsson og fórst þeim það vel úr hendi. — BR Hinn mikli og harði metingur sem rikir milli risa spánskrar knattspyrnu — það er risa Madrid á spánsku hásléttunni og síðan risa Barcelona, sem er í Katalóníu, hefur á fleiri en einn hátt sett mark sitt á spánska knattspyrnu í gegnum árin. Barcelona tapaði Þessi metingur nær langt út fyrir knattspyrnuvöllin — félögin eru meir en knattspyrnufélög, þau eru fulltrúar tveggja nokkuð ólíkra menningarsvæða og inn í þetta spinnst að sjálfsögðu póli- tik. Risar Madrid eru að sjálf- sögðu Real Madrid og Atletico Madrid en í Katalóníu er það Barcelona sem kemur fram sem fulltrúi Katalóníu. Þannig er það viðurkennt á Spáni að Barcelona sé ekki einungis knattspyrnulið heldur og fulltrúi Katalóniu, í við- leitni héraðsins við að fá aukna sjálfsstjórn. Nú er meiri hiti í málum en oft áður — og þá vegna brottvísunar knattspyrnusnill- ingsins Johan Cryuff af leikvelli. Geysilegar deilur eru á Spáni vegna brottvísunar Cryuff — en hann hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann vegna brott- rekstursins. Þegar Cryuff var rek- inn þá brutust út miklar óeirðir og 10 manns méiddust. Dómarinn var barinn af lýðnum og Cruyff og Barcelona sögðu að reka hefði átt dómarann af velli. Viggó Sigurðsson hefur verið mjög vaxandi leikmaður með landslið- inu — ógnað vel út í hornið og hefur næmt auga fyrir línu. Hann skoraði 3 mörk í gærkvöld — hér sendir hann knöttinn framhjá hinum fræga pólska markverði. DB-mynd BR. íslandsmeist- arar Víkings tslandsmeistarar Víkings í innanhússknattspyrnu 1977. Neðri röð frá vinsri — Magnús Þorvaldsson, Hannes Lárusson nýliði úr Val, Eiríkur Þorsteinsson, Óskar Tómasson, Viðar Elíasson, nýliði úr tBV. Efri röð frá vinstri — Asgeir Armannsson, stjórnarmaður, Ólafur Lárusson þjálfari, Gunnlaugur Kristfinnsson, Helgi Helgason, Gunnar Örn Kristjánsson aftur með Víking eftir dvöl á Sauðárkróki, Kári Kaaber og Þór Símon Ragnarsson, formaður knattspyrnudeildar Vikings. Ljósmynd RAX. Hvað segir "N Hvað, nú hefui_ \ læknirinn? þú áhyggjur af honum 3 þú. sem þoldir hann J ekki áður.------------------------ ' Hættu þessu. Pepe. V'Rétt, og engirin^ sprÓii \riA ----------. ’ sérðu ekki að við höfum öll áhyggjur frekar en ég...^ 'Eg veit núna að Bommi er frábær leikmaður og Bíður eftir úrskurði;. læknisins.... J —jaf ntefli við Slask á Skipaskaga 21-21 eftir þr jú töp f röð gegn Slask Þetta mál setti sln mörk á spánsku 1. deildina um helgina. Barcelona tapaði óvænt fyrir Sala- manca — og Atletico Madrid náði að skjótast í efsta sætið með sigri gegn Atletico Bilbao — og varð þetta til að auka á sárindi Kata- lóníumanna. En lítum á úrslitin á Spáni um helgina: Espanol — Real Sociedad 1-0 Elche — Celta 1-1 Real Betis — Valencia 0-0 Racing — Burgos 1-0 Real Madrid — Sevilla 0-0 Malaga — Hercules 1-1 Salamanca — Barcelona 2-0 Atletico Madrid — Atletico Bilbao 0-1 Las Palmas — Real Zaragoza 1-4 Eftir 22 leiki hefur Atletico Madrid hlotið 31 stig — Barcelona 30 — Valencia 26 — Espanol 25 og Real Sociedad 25. Meistarar Real Madrid hafa ekki átt vel- gengni að fagna í vetur — bæði vegna þess að leikmenn hafa átt við meiðsli að stríða og eins hins að hinar skæru stjörnur skína ekki eins skært og oft áður. íþróttir ísland hlaut uppreisn æru

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.