Dagblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ^ÞRIÐJUDAGU^^EBRÚAE1977^^^ Kosið íDanmörku ídag: —en Anker Jörgensen vonast eftir a.m.k. Sérfræðingur um málefni Kma: TELUR EKKJU MAÓS EIGA EFTIR AÐ SITJA í FANGELSI ÞAÐ SEM EFTIR ER Danir vonir gera sér litlar um árangurinn Anker Jörgensen, forsætlsráðherra Danmcrkur, á fundi með fréttamönnum fyrir skemmstu. fimm þingsætum til viðbótar Fjórðu þingkosningarnar í Danmörku á fimm árum eru haldnar í dag, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að fór að horfa í samkomulagsátt milli stjórnvalda og verkalýðsfélaga um launastefnuna. Thomas Nielsen, formaður danska verkalýðssambandsins, lagði til i gærkvöld að fallizt yrði á sex prósent launahækk- un í ár eins og stórn Ankers Jörgensen hafði lagt til. Tilkynning Nielsens gæti orðið til þess að jafnaðar- mannaflokkurinn fengi aukið fylgi sem dygði til að Jörgensen gæti myndað meirihlutastjórn á þingi. Hann hefur sagt sjálfur að það væri markmið sitt enda væri augljós vilji kjósenda í þvi efni; þeir væru orðnir þreyttir á skollaleik tíu stjórnmála- flokka á þingi. Þar til Jörgen- sen leysti upp þing fyrir nokkru hafði hann aðeins 54 fulltrúa af 179 á þjóðþinginu. Innanríkismál hafa sett meginsvipinn á kosningabarátt- una, einkum þó atvinnuleysið sem er nú liðlega sex af hundr- aði. Þar á eftir komu ráðstafan- - ir til að draga úr gífurlegum viðskiptahalla Danmerkur við útlönd. Á síðasta ári nam hall- inn 20 milljörðum danskra króna eða um 600 milljörðum ísl. kr. Skoðanakannanir benda þó til að mikill fjöldi landsmanna óttist að kosningarnar fái engu breytt og hafa þeir sýnt kosningabaráttunni lítinn áhuga. Aldrei hafa fleiri kjós- endur verið óákveðnir í afstöðu sinni eða ákveðið að greiða ekki atkvæði í kosningunum Jafnaðarmannaflokkur Jörgensens gerir sér vonir um að vinna að minnsta kosti fimm þingsæti. Þannig geti þeir óhræddir hafið stjórnarmynd- unarviðræður við aðra flokka. Frú Han Suyn, sérfræðingur í málefnum Kína, er nýkomin þaðan til Hong Kong. Hún eyddi tíu vikum í Rauða-Kína og sagði í gærkvöld að hún byggist við því að Chiang Ching, ekkja Maos Tse-tungs, myndi eyða því sem eftir væri ævinnar bak við lás og slá. Han Suyn er frægur rithöf- undur og hefur meðal annars ritað mikið um ævi Maos for- manns. Hún sagði á blaða- mannafundi að ekkja for- mannsins yrði áreiðanlega ekki líflátin vegnatilraunartil valda- ráns. Þá dró hún úr fréttum þess efnis að frúin og hinir þrír í Shanghai-klíkunni svokölluðu yrðu dregnir fyrir opinberan rétt. „Múgurinn myndi troða þau niður í svaðið," sagði Han Suyn. „Þau verða áreiðanlega ekki líf- látin heldur munu þau deyja í fangelsi. Jafnframt spáði Han Suyn því að Teng Hsiao-ping, fyrr- um varaforsætisráðherra Kína, yrði brátt viðurkenndur á nýj- an leik af kínversku ríkisstjórn- inni. Hún lýsti honum sem þrætugjörnum, litlum karli og bætti við: „Ég er sannfærð um að innan skamms eigum við eftir að frétta af Teng i fullu fjöri við stjórnarstörf." Ekkja Maos ásamt Wung Hung-wen, elnum félaga sinna, sem nú er einnig í fangelsi. Kunnur egypzkur sérfræðingur um málefni Kina telur nú næsta öruggt að Shanghai-kiíkan eigi eftir að dvelja alla æfi á bak við lás og slá. Lögreglumennirnir ganga hjálpar- og úrræðalausir með byssumanni sem náð hefur saklausum vegfar- anda i gíslingu. Þessi mynd er að vísu ekki frá Astralíu heldur Indianapolis í Bandarikjunum, en atburðurinn er svipaður. ASTRALSKUR STROKUFANGI RÆNDI15 MANNS —þar afníu skólabörnum. Yfirbugaður eftir langt umsátur og eltingaleik Dæmdur barnaræningi á flótta úr fangelsi rændi kennara og níu skólabörnum, fjórum vörubil-, stjórum og tveimur konum í sumarleyfi áður en hann var handtekinn í Melbourne í Ástralíu snemma í morgun. Það var um ellefuleytið í gær- morgun að staðartíma að fanginn, Edwin John Eastwood, gekk inn í einu skólastofuna í Wooreen- skólanum með 22 kalibera riffil sem hlaupið hafði verið sagað af. Skipaði hann öllum út. Skóla- börnin mu, scui eru á aldrinum sex til ellefu ára, voru hlekkjuð og læst inni í stolnum sendiferða- bíl. Kennari þeirra, Robert David Hunter, var bundinn og keflaður og settur í framsætið. Síðan ók flóttamaðurinn í felur úti í skógi þar skammt frá en rændi sex öðrum á leiðinni. Eftir snarpan eltingaleik tokst lögregluþjónum að skjóta flótta- manninn í fótinn og bjarga gíslunum. i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.