Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.02.1977, Qupperneq 10

Dagblaðið - 15.02.1977, Qupperneq 10
10 MMBUUUB íijálst, úháð dagblað Utgofandi Dagblaðiö hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjórí: Jónas Krístjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Holgason. Skrífstofustjórí ritstjómar: Johannos Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoöarfróttastjórí: Atli Stoinarsson. Safn: Jón Sævar Baldvinsson. Handrit: Ásgrímur Pálsson. BlaÖamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Ema V. Ingólfsdóttir, Gissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Holgi Pótursson, Jakob Magnússon, Katrín Pálsdóttir, Krístín Lýös- dóttir, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjamleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Sveinn Þormóösson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn ÞoHeifsson. Dreifingarstjórí: Már E.M. Halldórsson. Áskriftargjald 1100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakiö. Ritstjóm Síöumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiösla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaöiö og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda-og plötugerð: Hilmir hf., Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. 3ja króna Kröfluorka Kröfluvirkjun er nú komin svo langt á veg, að með lagi er unnt að grilla í nokkrar staðreyndir, sem ekki sáust áður. Þar á meðal eru ýmsar tölur um kostnað og orku- verð. Fara þær nokkuð bil beggja milli kenninga Kröflusinna og Kröfluand- stæðinga. Orkustofnun reiknar með, að þrjár skástu holurnar, sem boraðar hafa verið, muni gefa samtals um tíu megawött. Hún telur sig enn- fremur geta fundið fimm borholum þessa árs betri staði og náð um tíu til tuttugu megawött- um til viðbótar. Ætti það að vera nóg til að knýja fyrri vélasamstæðu orkuversins fullum krafti. Um áramótin voru komnar 6413 milljónir í Kröflu. Reiknað er með, að í ár fari 1380 milljónir til frekari framkvæmda og 1564 milljónir í fjármagnskostnað. Er þá reiknað með miklum kostnaði í frekari boranir. í lok þessa árs ætti Krafla því að vera komin upp í 9357 milljónir á núverandi verðlagi. Ekki er þar með öll sagan sögð, því að þá er enn eftir að bora fyrir gufu til að knýja síðari vélasamstæðu orkuversins. Er því engan veg- inn fráleitt að telja, að öll muni Krafla kosta tíu milljarða króna á núverandi verðlagi. Auðvitað er þetta miklu hærra verð en menn bjuggust við að borga fyrir Kröflu. Það mun koma fram í orkukostnaði, þótt ekki eigi hann að þurfa að verða eins hár og sumir and- stæðingar Kröfluvirkjunar halda fram. Dæmi Kröflu verður að reikna með svipuðum hætti og önnur slík dæmi hér á landi. Ekki er unnt að heimta, að Krafla nýtist að fullu í upphafi. Ekki er gert ráð fyrir, að Sigalda nýtist nema 20—40% á þessu ári og hinu næsta. Samt á að setja báðar vélasam- stæður Sigöldu upp strax. En árið 1979 líður að því, að Sigalda verði fullnýtt. Þá getur byggða- línan farið að flytja suður orku frá Kröflu, sem gæti þá orðið fullnýtt árið 1981 eða 1982. í áætlunum vatnsorkuvera hefur hingað til verið reiknað með 40 ára afskriftatíma, þegar orkuverðið er metið. Mjög ósanngjarnt virðist að gera ráð fyrir 7 eða 15 ára afskriftatíma Kröflu, svo sem sumir andstæðingar hennar hafa gert. 25 ára afskriftatími virðist hæfilegur í samanburði við vatnsorkuverin, þegar tekið er tillit til meiri úreldingar á ýmsum þáttum gufuvirkjunar. Að þessum forsendum gefnum má búast við, að orkan frá Kröflu muni kosta þrjár krónur kílówattstundin, sem er um það bil 50% dýrara en áður var talið. Þessi orka er um og rúmlega 50% dýrari en orkan frá Soginu og Þjórsá- Tungnaá. Hún er hins vegar ódýrari en orka frá smávirkjunum, svo sem.Mjólká, sem Kostar 3—4 krónur. Og hún er langtum ódýrari en olían, sem hún leysir af hólmi og kostar hvorki meira né minna en 10 krónur kílówattstundin. Allt byggist þetta náttúrlega á því, að Orku- stofnun meti ástandið rétt, þegar hún mælir með því, að áfram verði haldið framkvæmdum, og telur sig geta náð hinni heitu gufu, sem reyndist svo erfið viðureignar á síðasta ári. Ef það mat reynist rétt, ættum við að geta fengið Kröflurafmagn á sómasamlegu verði, þótt ekki verði það eins ódýrt og vonað var í upphafi. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1977. ÁSGEIR TÖMASSON BANG, BANG! ÞÚERT DAUÐUR! H Tetsusaburo Hirai' formaður klúbbs leikfangabyssu- safnara: „Ég efast um að við getum haldið aftur af unglingunum." sex hundruð þúsund nákvæmar eftirlíkingar séu til af hverju cinasta skotvopni, sem hugsazt getur. Japanska lögreglan lítur þessar nákvæmu eftirlíkingar óhýru auga. Þær eru sérlega vel hentugar fyrir bankaræn- ingja, flugræningja og alls konar glæpamenn. Engan mis- mun er að finna á þeim og alvörubyssum — fyrr en að því kemur að hleypa þarf af. Yfir- leitt taka þeir, sem éru fyrir framan byssuhlaupið ekki þá áhættu. Til að fyrirbyggja að glæpa menn geti notað eftirlíkingai við iðju sína verður lagt fram frumvarp í japanska þinginu síðar i þessum mánuði þess efnis, að framleiðendur leik- fangavopna skuli hafa byssur sínar með föstum gikkum og hömrum. Að sjálfsögðu hyggjast leikfangavopnafram- leiðendur og margir viðskipta- vinir þeirra safna liði til að mótmæla. „Ef þetta frumvarp nær fram að ganga, efast ég um að við getum haldið aftur af ungling- unum,“ . segir Tetsusaburo Hirai hljómsveitarstjóri og for- Líkt og á íslandi er bannað að eiga skammbyssur í Japan. Þar eru hins vegar margir vopnasafnarar og talið er að um Auglýsingar úr japönskum blöðum. maður klúbbs leikfangabyssu- safnara. „Við munum öll hvað gerðist í Bandaríkjunum, þegar vínbannið var sett á og ég er sannfærður um, að ástandið hér verður litlu betra.“ Nefnd níu ieikfangabyssu- framleiðenda vinnur nú mark- visst að því að reyna að fá frum- varpið fellt í þinginu. Nokkrir almennir borgarar hafa einnig lýst skoðun sinni opinberlega á þessu gerræði lögreglunnar. „Ef settir verða fastir gikkir á byssurnar," segir einn leik- fangabyssusafnari, „þá held ég að við höfum fengið örugga sönnun þess, að við búum í lög- regluríki af verstu tegund.“ Kjör kvenna I spegli jafnréttisins tekur nútímakonan sig nokkru verr út en karlmaðurinn, jafnvel í þeim löndum, þar sem allt virðist í himnalagi frá lagalegu sjónarmiði. Vandalaust er að setja lög um jöfn réttindi, en érfiðara • reynist að deila skyldunum jafnt milli kynjanna. Bandaríski prófessorinn Holland Roberts, sem nýlega var á ferð í Sovétríkjunum, sagði að konur á Vesturlöndum gætu öfundað sovéskar kyn- systur sinar af þeim réttindum, sem þær nytu í þjóðfélaginu. Þrátt fyrir þessi lofsamlegu ummæli hefur sovétmönnum ekki enn tekist að leysa ýms alvarleg vandamál, varðandi niðurjöfnun skyldustarfa. Skýringin á þessum vanda- málum er í fyrsta lagi sú, að enn hefur ekki -tekist að skipuleggja heimilisstörfin nógu vel, og ennfremur koma til sögunnar gamlar venjur og hefðir sem erfitt hefur reynst að losna við. Áður fyrr var það venjan, hvort sem fjölskyldan var rússnesk, grúsísk, iíkranísk eða af öðru sovésku þjóðerni, að karlmaðurinn var höfuð hennar og fyrirvinna, en heimilisstörfin og barnauppeld- ið komu ávallt i hlut konunnar. A okkar dögum hafa hér orðið miklar breytingar, og skyldu- störfunum er nú tvímælalaust jafnar skipt niður á fjöl- skylduna. Engu að síður er það reyndin í langflestum tilvikum, jafnvel þótt bæði hjónin séu jatnmenntuð og konan sé jafn- vel betur launuð og gegni meira ábyrgðarstarfi í þjóðfélaginu, að ennþá koma heimilisverkin óskipt í hennar hlut, en hann kemur þar hvergi nærri. Jafnrétti kynjanna er staðfest í sovésku stjórnar- . skránni og fyrir því eru í gildi ýmsar lagalegar og efnahags- legar tryggingar. Arangurinn af þessu er sá, að sovéskar konur eru nú betur menntaðar en karlmenn samkvæmt töl fræðilegum upplýsingum, og þær eru 51% þess vinnuafls, sem þjóðarbúið ræður yfir. Að vísu er það ekkert einsdæmi að konum í atvinnulífinu fjölgi verulega. I Frakklandi eru konur nú þegar orðnar meira en helmingur vinnuaflsins og i Bandaríkjunum er þessi tala komin uppfyrir40%. Munurinn er sá að í Sovét- ríkjunum vinna konur fremur störf, sem krefjast menntunar (þær eru t.d. 4/5 hluti starfs- manna heilbrigðiskerfisins, tryggingakerfisins og skóla- kerfisins og tveir þriðju af starfsfólki rafeindaiðnaðar og fjármálastjórnunar) en á Vesturlöndum er vinnuafl kvenna mest nýtt í þjónustu- störf ýmiss konar. Skoðana- kannanir hafa leitt í ljós að meirihluti sovéskra kvenna kýs að vinna utan heimilis, fyrst og fremst af siðferðilegum ástæð- um og vegna áhuga á stárf- inu en fjárhagslegar ástæður eru í öðru sæti. Á Vestur- löndum er þessu öfugt farið, þar eru fjárhagslegar ástæður í fyrsta sæti. En hvað sem um það má segja, er hitt þó víst að vanda-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.