Dagblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977. I jþróttir Sþróttir róttir Iþróttir Sterkir strákar eru víða á landinu — íslandsmet sett á unglingameistaramóti í lyftingum Bráóefnilegir piltar i lyfting- um komu fram í tvíþrautar- keppni unglingameistaramóts íslands, sem haldið var í Baldurs- haga á laugardag. Haraldur Ólafs- son, 16 ára piltur frá Akureyri, setti nýtt íslandsmet í auka- tilraun í jafnhendingu. L.vfti hann þá 78 kg — hálfu kílói meira en hann náði í sjálfri keppninni. Haraldur keppti í létt- asta flokknum — 52 kg fiokki. Ekki sigraði hann þó samanlagt, heldur Þorkell Þórisson, Armanni. Urslit í einstökum flokkunt á ntótinu urðu þessi: Flokkur 52 kg. 1. Þorkell Þórisson. Armanni, 60+70=130 kg. 2. Haraldur Ólafsson, ÍBÁ 50+77.5 = 127.5 kg. 3. Garðar Gislason, ÍBA. 45+65=110 kg. 4. Gvlfi Gíslason. ÍBA, 40 + 55=95 kg. Fyrri talan er árangur í snörun. þá jafnhöttun og síðan saman- lagður árangur í tvíþrautinni. Bifvélavirki Bifreiðaeftirlit ríkisins í Reykjavík óskar að ráða bifvélavirkja með meiraprófs ökuréttindi. Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu stofnunarinnar að Borgartúni 7. Bifreiðaeftirlit ríkisins. Stöður í Kenýa Danska utanríkisráðuneytið hefur óskað eftir því að auglýstar yrðu á Norðurlöndum öllum eftirfarandi 9 stööur við norræna samvinnuverk- efnið í Kenya: Tvær stöður ráðunauta um stofnun og rekstur kaupfélaga. Tvær stöður ráðunauta um stofnun og rekstur byggingarsamvinnufélaga. Tvær stöður ráðunauta um stofnun og rekstur iðnfyrirtækja með samvinnu- sniði. Ein staða ráðunauts um samvinnu- rekstur á sviði fiskveiða. Tvær stöður ráðunauta um stofnun og rekstur sparisjóða með samvinnu- sniði. Góð enskukunnátta er öllum umsækj- endum nauösynleg. Umsúknarfrestur er til 5. marz nk. Nánari upplýsingar um störfin, launakjör o.fl. verða veittár á skrifstofu Aðstoðar íslands vió þróunarlöndin, Lindargötu 46, (herbergi nr. 8) enhún eropinmánu- daga kl. 3—4 e.h. og miðvikudaga 4—5 e.h. Hvítar skyrtublússur nýkomnar Elizubúðin Skipholti 5 Flokkur 56 kíló. 1. Viðar Ö. Eðvaldsson. ÍBA, 55 + 70=125 kg. 2. Magnús Loftsson, ÍBA. 47.5+65=112.5 kg. Flokkur 60 kg. 1. Guömundur Helgason, Arm. 65+80=145 kg. 65+80=145 kg. 2. Hjörtur Guðmundsson. ÍBA, 50+62.5=112.5 Flokkur 67.5 kg. 1. Þorsteinn Leifsson. KR. 80+100=180 kg. 2. Hermann Haraldsson. ÍBV, 70+90=160 kg. 3. Birgir Borgþórsson, KR, 85+115=200 kg. 4. Gísli Ólafsson, ÍBA. 60+80=140 kg. Flokkur 75 kg. 1. Guðgeir Jónsson, Armanni, 85 + 110=195 kg. 2. Gunnar Steingrimsson, ÍBV, 80+105=185 kg. 3. Sigmar Knútsson. ÍBA, 72.5 + 110=182.5 kg. 4. Viðar Sigurðsson, Ármanni, 65+95=160 kg. 5. Jóhann Gíslason, ÍBV, 65+82.5=147.5 6. Steinþór Ólafsson, ÍBA, 65+75=140 kg. 7. Bragi Helgason, KR. 55+82.5 = 137,5 kg. Fla)(kur 82.5 kg. 1. Hjörtur Gislason. ÍBA 112+145,5 = 257.5 2. Ármann Sigurðsson, ÍBA 70+92.5=162.5 kg. Flokkur 90 kg. 1. Agúst Kárason, Ármanni, 85 + 115=200 kg. Flokkur 100 kg. 1. Jakob Bjarnason, ÍBA, 82.5+100=182,5 kg. Guðmundur Freyr vann Ármannsskjöídinn —sigraði Í65. skjaldarglfmu Ármanns Guðmundur Freyr Halldórsson Ármanni vann 65. skjaldarglímu Ármanns, sem glímd var í íþrótta- húsi Vogaskólans á laugardag. Þetta var í 15. sinn, sem Guð- mundur tók þátt í skjaldarglímu Armanns — og í fyrsta sinn sem Guðmundur bar sigur. Sigur Guðmundar Freys var verðskuldaður — en 65. skjaldar- glíma Ármanns var óvenju dauf — þátttaka litil. Þannig vantaði keppendur af Norðurlandi með þá Ingvasyni í fararbroddi. Kepp- endur voru því aðeins 6 — og hlaut Guðmundur 4.5 vinninga. Keppnin stóð milli Guðmundar Freys og nafna hans Ólafssonar úr Ármanni. Þeir skildu jafnir i fyrstu glímu — og voru jafnir þegar að siðustu glímunni kom. Þá, mjög óvænt, náði Guðmundur Ölafsson ekki að leggja and- stæðing sinn — en Guðmundi Frey varð ekki nein skotaskuld úr að leggja Árna Þór Bjarnason og varð Guðmundur Freyr því sigur- vegari í 65. skjaldarglímu Ármanns. Halldór Konráðsson, Víkverja hafnaði í þriðja sæti — hlaut 2.5 vinninga. Verksmiðjuvinna Hampiðjan óskar eftir starfsfólki til verksmiðjustarfa, ekki undir 18 ára aldri. Unnið er á tví- og þrískiptum vöktum 8 tíma í senn, mötuneyti á staðnum. Vinsamlegast hafið samband við verk- smiðjustjórann Hektor Sigurðsson. Hampiðjan hf. Tjáningarfrelsi er ein meginforsenda þess aó frelsi geti viðhaldist í samfélagi. Torino og Juventus efst á Ítalíu Keppinautarnir miklu á Ítalíu — Torino og Juventus frá bílaborginni miklu — halda striki sínu í 1. deild- inni og ætlar keppnin um meistaratitilinn að verða eingöngu milli þessara stór- liða Torino. Bæði liðin sigr- uðu í leikjum helgarinnar. Juventus lagði Lazio frá Róm i Torino og nágrann- arnir léku við Sampdoria og sigruðu. En úrslit á ítaliu urðu: Bolognia — Verona 0-0 Fiorentina — Cesena 2-1 Inter Milanó — Foggia 1-1 Juventus — Lazio 2-0 Perugia — Milanó 3-1 Rónia — Genúa 1-0 Sampdoria — Torino 2-3 Napoli—Catanzaro 1-0 Á sjötta áratugnum bar mest á Inter Milanó og síðan AC Milanó en þessum frægu liðum vegnar nú ekki sem sfcyldi — nú er tími Torino- iiðanna. Ajax eykur forustuna íHollandi Ájax frá Ámsterdam eykur enn forustu sína í hol- lenzku 1. deildinni. Ájax vann góðan sigur í Rotter- dam á Spörtu — en Fe.venoord varð að gera sér að góðu jafntefli við Roda. Meistarar PSV Eindhoven eru hins vegar heldur en ekki komnir á skrið — sigur um helgina og liðið er nú aðeins þremur stigum á eftir Feyenoord. Ajax hefur hins vegar hlotið þremur stigum meira en Feyenoord — 37 stig. En úrslitin í Hol- landi um helgina urðu: Sparta — Ajax 0-3 FC Haag — Breda 4-0 PSV — Venlo 1-0 Haarlem — Twente 1-2 AZ ’67 — Utrecht 2-1 Graafschap — Telstar 0-0 NEC — Go Ahead 2-1 Roda — Feyenoord 1-1 Amsterdam — Eindhoven 0-0 13. meist- aratitill Anne-Marie Anne-Marie Pröll Moser vann sinn 13. austurríska meistaratitil er hún sigraði í sviginu á austurríska meistaramótinu um helgina. Aður hafði Ánne-Marie sigrað í bruninu — sem raunar er ekki hennar sterk- asta hlið. f sviginu fór hins vegar ekkert á milli málahverer bezt. Anne-Marie var um 1.5 sekúndum á undan Monika Kaserer en í þriðja sæti varð Ingrid Eberle. Blackpool vann Hereford Blackpool heldur enn i von um sæti í 1. deild næsta haust en liðið er nú í fjórða sæti. Blaekpool sigraði i gærkvöld Hereford 2-1. Öll mörkin komu á siðasta stundarf jórðunginum — Mike Walsh skoraði tvívegis fyrir Blackpool en John Galle.v svaraði fyrir Here- ford.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.