Dagblaðið - 15.02.1977, Síða 15

Dagblaðið - 15.02.1977, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977. " ............. Richard Burton og nýr og betri er eins maður — Suzy er alsæl og hefur engar áhyggjur þött hann kalli hana stöku sinnum Elizabetu Richard Burton er oroinn gjörbreyttur maður eftir að hann kvæntist Suzy litlu Hunt. Þótt hún sé ung að árum, ekki nema tuttugu og átta ára, stjórnar hún honum með harðri hendi og lætur ekki á sig fá þótt hann kalli hana stundum Eliza- betu í mesta ógáti auðvitað. Eftir fjögurra mánaða hjóna- band hefur henni tekizt að temja Velska ljónið svo að hann er orðinn hlýðinn og ljúfur og alveg lagt vodkadrykkju á hill- una. „Sú mynd sem Richard hafði skapað sér í hugum almennings er mér algjörlega ókunn. Ég hef aldrei kynnzt þessum drukkna kvennabósa sem fólk heldur að Richard sé,“ sagði Suzy í viðtali við fréttamenn. Þau Richard voru stödd í London þar sem hann á að taka þátt i sjónvarpsmyndaflokki um brezku konungana fyrir BBC. „Rich er blíður, skilnings- ríkur og vitur, þótt það hljómi e.t.v. dálítið bjánalega,“ sagði hún. „Svo er fólk sífellt að tönnlast á að hann hafi verið svo heppinn að „ná í þessa ungu og föngulegu ljósku!" Eg lít svo á að það hafi verið ég sem var sú heppna að ná í hann.“ Burton lagði höndina blíðlega á öxl hinnar ungu konu sinnar og talaði opinskátt um „frelsun sína“. Utlit hans er líka allt annað. Hann er ekki lengur rauður og þrútinn í andliti og hann hefur endurheimt hina hljómmiklu rödd sína, sem er ekki lengur þrungin af vodkadrykkju. „Þetta var alveg hræðilegt líf, svona með Jekyll og Hyde- laginu. Eftir fyrstu fjögur eða fimm glosm var ég vanalega ósköp vingjarnlegur við allt og alla. Eftir næstu fjögur eða fimm glös varð ég mjög málgef- inn. A næsta stigi reikaði ég um og spurði fólk óþægilegra spurninga og lokastigið var svo þegar ég fékk slagsmálabrjál- æði og æpti, komið með Muhammed Ali, mig langar í slag,“ sagði Burton. „Þegar maður vaknaði svo eftir svona kvöld létu timbur- mennirnir og samvizkubitið ekki á sér standa og sjálfsvor- kunnsemin ætlaði að buga mig. Þá gat liðið heill mánuður þangað til ég snerti áfengi á ný.“ Richard var að því spurður hvort hann gæti gert fyrir Suzy það sem honum tókst ekki að gera fyrir fyrirrennara hennar, Elizabetu Taylor og Elizabetu prinsessu frá Júgóslavíu, — að haída sig á mottunni og bragða ekki áfengi. „Nei,“ svaraði hann, „ég er ekki viss um það. En ég ætla svo sannarlega að reyna mitt bezta. Annars var það svo ein- kennilegt að mér var ekkert illa við að vera þekktur að því að vera í drykkjusvalli og deyja brennivínsdauða í spýj- unni úr sjálfum mér. Ég hlýt að hafa verið að fara í gegnum einhvers konar breytingar- skeið, svona líkt og konur gera á miðjum aldri,“ sagði hann. Og svona eins og til þess að undirstrika hið nýja líferni sitt afþakkaði hann kurteislega þegar honum var boðið upp á rauðvínsglas. „Það er ekkert við Rich sem hræðir mig,“ sagði Suzy. „Mér bregður ekki einu sinni þegar hann fær geðvonzkuköst. Eg hlæ bara að honum — og hann Fyrirrennarar Suzy, nöfnumar Bizabet prínuiu ...og Elizabet Taylor. Þótt Suzy sé ekki nema tuttugu og átta ára og lftil og grönn stjórnar hún Rich sfnum með harðri hendi og hefur einstaklega gott lag á honum. svaraði hann. Hann sagðist einnig hafa dáðst að Elizabetu prinsessu vegna þess að hún hefði haft svo mikinn baráttu- vilja. Suzy er algjör andstæða við þær nöfnurnar. Hún skiptir aldrei skapi og hún er aldrei afbrýðisöm. Hún lætur sér meira að segja fátt um finnast þótt Burton kalli hana Eliza- betu, þegar þau sitja saman yfir kaffibolla. „Mér varð einu sinni á að kynna Elizabetu fyrir fullum sal af gestum sem Phyllis og það tók mig marga mánuði að fullvissa hana um að ég þekkti engan kvenmann með þessu nafni,“ sagði Burton. Suzy heldur þvi fram að sam- band hennar og Elizabetar Taylor sé mjög vinsamlegt. „Mér þykir næstum því eins mikið til hennar koma og Rich þykir til James fyrri mannsins míns. Hann kallar hann stund- um tengdason,“ sagði Suzy. „Ég hef ekki nokkrar minnstu áhyggjur af sambandi Eliza- betar og Rich. Ég kveið dálítið fyrir að hitta börnin þeirra. En þau tóku mér vel og þetta er allt í stakasta lagi.“ Þýtt og endursagt A.Bj. hlær líka þegar kastið er gengið yfir,“ sagði hún. Burton var að því spurður hvers vegna hann hefði kvænzt Elizabetu Taylor tvisvar: „Vegna þess að mér er alltaf mjög hlýtt til þeirrar gömlu,“ Rómantíkin allsráðandi hjá Yves St. Laurent Þessi nítjándualdar kjóll var á vorsýningunni hjá Yves St. Laurent núna fyrir síðustu helgi. Þetta er óneitanlega róman- tískur klæðnaður með pífum og rykkingum eins og tíðkaðist í gamla daga. Blússan er rykkt í hálsmálið, tekin saman með silkibandi og síðan er rós stungið í öll herlegheitin. Nýlega voru gefin saraan í Dóm- kirkjunni af séra Þóri Stephen- sen Kristín Erlingsdóttir og Björn Oddsson. Heimili þeirra er að Brávöllum 13, Egilsstöðum. Stúdíó Guðmundar, Einholti 2. Nýlega voru gefin saman í Któpa- vogskirkju af séru Arna Pálssyni Sigríður Ölafsdóttir og Þórir Hjálmarsson. Heimili þeirra er að Engjaseli 69. Stúdíó Guðmundar Einholti 2. Systkinabrúðkaup. Nýlega voru gefin saman í Mosfellskirkju af séra Birgi Asgeirssyni Helga Haraldsd. og Engilhart Svenseh Björnsson, heimili þeirra er að Þórólfsgötu 1 Hafnarfirði, og Sólveig Ástvalds- dóttir og Garðar Haraldsson. Heimili þeirra er að Skerseyrarvegi 6 Hf. — Stúdló Guðmundar, Einholti 2. Nýlega voru gefin saman í Lang- holtskirkju af séra Á rna Pálssyni Kristín Ólafsdóttir og Ragnar Bragason. Heimili þeirra er að Langholtsvegi 80. Stúdfó Guð- mundar, Einholti 2. Nýlega voru gefin saman 1 Dom- kirkjunni af séra Jónasi Gísla- syni Þórdís Klara Ágústsdóttir og Kolbeinn Kolbeinsson. Heimil þeirra er í Bandarfkjunum næstu ár. Stúdíó Guðmundar, Einholti 2.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.