Dagblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 1
3. ARG. — LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977 — 66. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SíMl 8332(2. AUGjLVSINGAR OG AFGTREIÐSLA,. ÞVERIÍOLTI 2, SÍMI 2Ý022. frjálst, oháð dagblað Milljarðaspamaður ef 500 milljóna skipalyfta í Slippfélagið viðgerðir færu fram hér Milljarða mætti spara ef helztu viðgerðir á kaupskipun- um okkar gætu farið fram hér. Rætt hefur verið um að Slipp- félagið í Reykjavík keypti stóra skipalyftu á 5-600 milljónir króna sem gæti tekið upp öll stærstu kaupskipin. Sem dæmi u;n hinn mikla viðgerðarkostn- að erlendis og gjaldeyriseyðsl- una við hann má taka að einn milljarður fór í þessar viðgerð- ir árið 1975. Tæknilegur búnaður er ekki til staðar hér á landi til að gera stórar flokkunarviðgerðir á kaupskipunum. Sennilega þyrfti nokkra tilfærslu og tals- verða skipulagningu ef Slipp- félagið ætti að taka við þessu verkefni en það virðist vera ffamkvæmanlegt sé vilji fyrir hendi. Málið bar á góma í borgar- stjórn í fyrradag. Björgvin Guð- mundsson (A) spurðist fyrir um þetta og Birgir ísleifur Gunnarsson varð fyrir svöruriv Þá mæltist Björgvin til þess að borgin, Slippfélagið og nokkrar járnsmiðjur hefðu samstarf um framkvæmdir og fjármagn að frumkvæði borgar- stjórnar til að hrinda þessu í framkvæmd. -HH „Valur skaltu heita....“ Daníel Guðmundsson skipstjóri gefur nýja toiibátnum nafn. Bak við hann standa Björn Hermannsson toiistjóri og Kristinn Ólafsson tollgæzlustjóri. Dauður hvalur eða flugvélar- flak? Flutningaskipið Hvalvík sigldi á miðvikudaginn kl. 15.36 fram hjá rekaldi á sigl- ingaleið um 60 sjómílur suð- ur af Ingólfshöfða. Töldu skipverjar líklegt að um flugvélarflak væri að ræða. Það liðu hins vegar rúm- lega þrjár klukkustundir — eða til kl. 18.45 — þar til tilkynning um rekaldið barst frá skipinu til slysa- varnafélagsins á Höfn í Hornafirði. Þaðan var haft samband við flugumferðarstjórn í Reykjavík sem ekki hafði heyrt getið um týnda flugvél á öllu norðurhveli jarðar. Bandarísk herflugvél í könnunarflugi svipaðist um 'eftir þessu dularfulla rek- aldi á fimmtudaginn en einskis varð vart. Hallast menn nú helzt að því að þarna hafi dauður hvalur marað í hálfu kafi. -ÖV. Fríðrík gerði jafntefli við Karpov Heimsmefstarínn hefur enn forystu Friðrik og Karpov sömdu um jafntefli í 95. leik eftir tvíframlengda biðskák á þýzka afmælismótinu í Bad Lauterberg. Skákin hófst í fyrradag en úrslit fengust ekki fyrr en í gær. Önnur úrslit á mótinu voru þessi: Miles — Woekenfuss: 1-0. Timman — Hiibner: 1-0. Jafnlefli gerðu Keene og Liberzon, Anderson og Gerusel, Czom og Furman, Gligoric og Sosonko, Herman og Torre og, sem fyrr segir, Friðrik og Karpov. Staða efstu manna er nú þessi: Karpov: 8V4 vinningur. Timman: 7 vinningar. Friðrik, Hiibner og Furman: 6Vz vinmngur. BS Leysir Orn gamla af hólmi Valur skal hann heita, nýi tollbáturinn sem leysir gamla bát Tollgæzlunnar, Örn, af hólmi. Nafn sitt hlaut Valur í gær við stutta athöfn við ver- búðarbryggjuna. Það var skip- stjóri bátsins, Daníel Guð- mundsson, sem gaf honum nafnið. Að því loknu var gestum boðið i siglingu með Val út á sundin. Meðal gesta voru Torfi Hjartarson, Matthías Mathie- sen fjármálaráðherra og fleiri. Það var einmitt Matthías sem veitti fé til bátakaupanna á sínum tíma. Gestum bar öllum saman um að Valur væri gott skip og tímamót yrðu i starf- semi Tollgæzlunnar við að fá hann. — Valur siglir mest á 17—19 hnúta hraða og var gammurinn óspart látinn geysa í kynnisferðinni. Kristinn Ólafsson tollgæzlu- stjóri sagði í samtali við DB að yfirbygging Vals hafði verið teiknuð sérstaklega og smíðuð fyrir Tollgæzluna. Bátsins hefur nú verið getið i nokkrum fagtímaritum og hafa einhverj- ir sýnt áhuga á að fá báta með slíkri yfirbyggingu. Skrokkur- inn er staðlaður. Til gamans má geta þess að þeim orðrómi skaut upp skömmu fyrir skírnarathöfn- ina að báturinn skyldi heita Spíri og fá skrásetningarnúm- erið RE-96. Góður rómur var gerður að því nafni þó að ann- að væri valið. -AT- Ýmis atriði handtöku- málsins rannsökuð áný? Sjá baksíðu Ríkið slær 600 milljdnir Sjá baksíðu Dreng bjargað frá drukknunf Reykjavíkur- höfn á síð- ustu stundu Sjá baksíðu Mikla norræna greiðir 10 milljdnir danskar í jarðstöðinni Sjábls.4 A

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.