Dagblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 23
23 Sjónvarp i DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977. 8 Útvarp Sjónvarp kl. 22.00 íkvöld: Stórkostleg mynd um ævi lista- mannsins van Gogh Bíómynd kvöldsins er á dag- skránni kl. 22.00 og er engin önnur en Lífsþorsti, Lust for life. Er þetta bandarísk mynd frá árinu 1956 og f jallar um ævi málarans Vincent van Gogh. Myndin er byggð á samnefndri sögu eftir Irving Stone sem kom út í íslenzkri þýðingu Sigurðar Grímssonar. Leikstjóri er Vincent Minelli. Með aðalhlutverkin fara Kirk Douglas, Anthony Quinn og Pamela Brown. 1 kvikmyndahandbókinni okkar fær þessi mynd allra beztu einkunn sem þar er gefin eða fjórar stjörnur. Þar segir að þetta sé stórkostleg mynd um hina stormasömu ævi list- málarans og fari Kirk Douglas meistaralega vel með hlutverk hans. Anthony Quinn sýnir einnig frábæran leik í hlut- verki nánasta vinar van Gogh, listamannsins Paul Gauguin. Fékk Quinn Öskarsverðlaun fyrir leik sinn í hlutverkinu. í kvikmyndahandbókinni segir ennfremur að þetta sé mynd sem passi einkar vel fyrir þá sem eru svo heppnir að eiga litsjónvarp því litir listaverk- anna njóti sín frábærlega vel. Því miður á þetta ekki við hér á landi, þar sem enn er ekki hægt að senda kvikmyndir út í lit — þannig að við verðum að láta okkur nægja að ímynda okkur alla fögru litina. Myndin hefst um það leyti sem Vincent van Gogh gerist predikari í belgísku kolanámu- héraði. Ofbýður honum eymdin og hverfur hann aftur heim til Hollands. Þar hefst listferill hans. Sýningartími myndarinnar er tvær klukkustundir og þýðandi er Öskar Ingimarsson. -A.Bj. H Kirk Douglas leikur frábærlega vel í hlutverki list- málarans Vincent van Gogh. Talið er að myndin sé einhver bezta mynd, sem leikstjórinn Vincent Minelli (sem kvæntur var Judy Garland og faðir Lizu Minelli) hefur nokkru sinni gert. Það er Gisli Halldórsson, sem leikstýrir Hlina kóngssyni sem fyrst var fluttur í útvarpinu fyrir 18 árum. Útvarpið ídag kl. 17.30: Ævintýraleikrit fyrír börn og unglinga Hlini kóngsson „Þetta er vinsælt efni, mikið ævintýri með öllum þeim skemmtilegheitum eins og bezt getur gerzt,“ sagði Gunnvör Braga dagskrár- fulltrúi fyrir barna- og unglingaefni hjá útvarpinu. Hlini kóngsson var fyrst leikinn í útvarpinu fyrir 18 árum og hefur oft verið endur- fluttur. Þetta er mjög góð upptaka sem margir þekktir leikarar leika í en leikstjóri er Gísli Halldórsson. Leikritið hefur oft verið sýnt á sviði með áhugafólki í hverju hlutverki, meira að segja hefur það verið sýnt þannig í Iðnó. Á þennan hátt hafa skátar spreytt sig á að leika svo og ýmsir úr íþrótta- hreyfingunni. Leikritið er eftir Ragnheiði Jónsdóttur, sem samdi mörg leikrit eftir þjóðsögum. Hún gaf út á slnum tíma Ævintýrá- Ieiki 1 og 2 og notaði þessi leikrit jöfnum höndum við kennslu í skólanum, en hún var kennari að aðalstarfi. Eftir hana liggja ýmsar barna- og unglingabækur, svo sem Dóru- bækurnar, Kötlu-bækurnar, Hörður og Helga og Atli og Una. Ragnheiður fæddist árið 1895 á Stokkseyrien bjó lengst af í Hafnarfirði sem kennari og rithöfundur. Hún lézt árið 1967. -EVI. Útvarp Sunnudagur 20. marz 8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. (Jt- dráttur úr forustugr. dagbl. 8.30 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. Hvar er í timanum? 10.10 Veðurfregnir. Morguntónlaikar. 11.00 Messa I safnaðarheimili Langholts- kirkju. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.15 Um mannfrœði. Kristján E. Guð- mundsson menntaskólakennari flytur þriðja hádegiserindið í erindaflokkn- um: Fjölskyldugerðir og ættartengsl. 14.00 Miðdegistónleikar. 15.00 Úr djúpinu. Sjötti þáttur: Loðnuleit með Bjarna Sæmundssyni. Umsjónar- maður: Páll Heiðar Jónssun. Tækni- maður: Guðlaugur Guðjónsson. 16.00 íslenzk einsöngslög. Erlingur Vigfússon syngur. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Staldrað viö á Snæfellsnesi. Fyrsti þáttur Jónasar Jónassonar frá Grundarfirði. Tónleikar. 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Systumar í Sunnuhlíö" eftir Jóhönnu Guðmunds- dóttur. Ingunn Jensdóttir leikkona les (4). 17.50 Stundarkom meö píanóleikaranum Wilhelm Backhaus. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 „Maöurinn. sem borinn var til konungs". Leikritaflokkur um ævi Jesú Krists eftir Dorothy L. Sayers. Þýðandi: Torfey Steinsdóttir. Leik- stjóri: Benedikt Arnason. Tækni- menn. Friðrik Stefánsson og Hreinn Valdimarsson. Attunda leikrit: Inn- reið konungsins. Helztu leikendur: Þorsteinn Gunnarsson. GIsliHalIdórs- son, Rúrik Haraldsson, Arnar Jóns- son, Helga Bachmann, Gunnar Eyjólfsson, Róbert Arnfinnsson, Bald- vin Halldórsson og Þórhallur Sigurðs- son. 20.15 „Eldur", balletttónlist eftir Jórunni Viöar. 20.25 „I vinarhúsi". Þáttur um Jón úr Vör og skáldskap hans I umsjá Jóhanns Hjálmarssonar, sem ræðir við skáldið. Matthías Johannessen og Jón Óskar tala um Jón úr Vör og Arni Blandon les nokkur ljóð hans. 21.10 Samleikur í útvarpssal. 21.35 Gerð sambandslagasamningsins 1918. Haraldur Jóhannsson hagfræð- ingur flytur erindi. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Sigvaldi Þorgilsson danskennari velur lögin og kynnir. 23.25 Fréttir. Bnvigi Horts og Spasskýs: Jón Þ. Þór rekur 10. skák. Dagskrár- lok um kl. 23.45. ^ Sjónvarp Laugardagur 19. mars 17.00 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.35 Emil í Kattholti. Lokaþáttur. Bylurinn mikli. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Sögumaður Ragn- heiður Steindórsdóttir. 19.00 íþróttir Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Hótel Tindastóll. Breskur gaman- myndaflokkur Þýðandi Stefán Jökuls- son. Litur. .21.00 Úr einu í annað. Umsjónarmenn Berglind Asgeirsdóttir og Björn Vignir Sigurpálsson. Stjórn upptöku Tage Ammendrup 22.00 Lifsþorstií Lustfor Life). Bandarísk bíómynd frá árinu 1956, byggð á sam- nefndri sögu eftir Irving Stone, og hefur hún komið út I íslenskri þýðingu . Þórarins Guðnas. Leik- stjóri Vincente Minelli. Aðalhlutverk Kirk Douglas, Anthony Quinn og Pam- ela Brown. Myndin lýsirævi hollenska listmálarans Vincents van Goghs (1853-1890) og hefst, þegar hann gerist prédikari í belgisku kolanámu- héraði. Honum ofbýður eymdin og hverfur aftur heim til Hollands. Þar byrjar listferill hans. Þýðandi óskar Ingimarsson. 00.00 Dagskráriok. Sunnudagur 20. mars 16.00 Húsbændur og hjú. Breskur mynda- flokkur. Mannamunur. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. •16.50 Endurtekið ofni. Björn Vignir Sigurpálsson ræðir við hjónin Einar Bollason og Sigrúnu Ingólfsdóttur. Aður í þættinum Úr einu í annað 19. febrúar siðastliðinn. 17.10 Arabar í Evrópu. Þýzk fræðslumynd um hlut Araba i evrópskri menningu. Þýðandi Veturliði Guðna'són. Þulur Helgi Helgason. 18.00 Stundin okkar. 19.00 Enska knattspyman. Umsjónar- maður Bjarni Felixson. Hlé. 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Skákeinvígið. 20.45 Ullarþvottur. Þessa mynd gerði Þórarinn Haraldsson, Laufási í Keldu- hverfi, í samvinnu við Sjónvarpið á síðastliðnu sumri, og er henni ætlað að sýna vinnubrögð við rúningu og ullar- þvott á Norðurlandi upp úr síðustu aldamótum. Stjórn upptöku Þrándur Thoroddsen. 21.05 Jennie. Breskur framhaldsmynda- flokkur. Lokaþáttur. Fortíð og framtíð. Efni sjötta þáttar: Jennieog George virðast hamingjusöm í hjónabandinu þrátt fyrir allar hrakspár. Jennie helgar sig nú ritstörfum óg skrifar m.a. endurminningar sínar og leikrít, Lánsfjaðrir, sem nýtur mikilla vinsælda. George kynnist frægri leik- konu, sem er á líku reki og Jennie, og fer fram á skilnað. Winston, sem hefur nú sýnt, að hann er gæddur miklum stjórnmálahæfileikum. gengur að eiga Clementine Hozier, en móðir hennar og Jennie eru góðar vinkonur. Þýðandi Jón O. Edwald. 21.50 Brautryðjandinn. Mynd frá National Film Board of Canada um dr. John Grierson (1892—1972), braut- ryðjanda heimildakvikmynda. Rætt er við kvikmyndagerðarmenn, leikara og samstarfsmenn Griersons og sýndar myndir af honum við störf sin. Einnig eru sýndar gamlar fréttamyndir og kaflar úr kvikmyndum allt frá fyrstu dögum kvikmyndagerðar. Þýðandi og þulur Guðbjartur Gunnarsson. 22.55 Að kvöldi dags. Séra Arngrímur Jónsson flytur hugvekju. 23.05 Dagskráriok. John Grierson var um skeið forstöðumaður National Film Board of Canada sem gert hefur myndina um hann sem er sýnd f sjón- varpinu annað kvöld. Sjönvarp kl. 21.50 annað kvöld: Brautryðjandi kvikmynda gerðarlistarinnar Brautryðjandinn nefnist mynd frá National Film Board of Canada scm er á dagskrá sjónvarpsins annað kvöld kl. 21.50. Myndin er um dr. John Grierson framleiðanda og kvik- myndaleikstjóra. Rætt er við kvikmyndagerðarmenn, leikara og samstarfsmenn Griersons og sýndar myndir þar sem hann er við störf sín. John Grierson var fæddur 1898 í Bath á Englandi. Hann var einn af brautryðjendum kvikmyndagerðar og naut mikils álits í starfsgrein sinni bæði austan hafs og vestan. Hann hélt fyrirlestra við há- skóla bæði í Englandi, Banda- ríkjunum og Kanada. Grierson var forstöðumaður National Film Board of Canada um árabil og unt skeið veitti hann forstöðu fjölmiðlun á veg- um UNESCO í Evrópu. Hann hlaut mörg verðlaun fyrir afrek á sviði kvikmyndanna. I myndinni á ntorgun eru einnig sýndar gamlar frétta- myndir og kaflaí úr kviktnynd- um allt frá fyrstu dögunt kvikmyndagerðar. John Grierson lézt árið 1972. Þýðandi og þulur myndar- innar er Guðbjartur Gunnars- son. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.