Dagblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
Nýkmna
—spor í rétta átt til að draga úr
óðaverðbólgunni hér á landi
Ástæða mun vera til að fagna
þingsályktunartillögu Lárusar
Jónssonar um könnun og
endurskoðun á peningaútgáfu
íslendinga. Þetta mál hefur
nokkrum sinnum áður verið
rætt í sölum alþingis en aldrei
náðst samþykki fyrir slíkum
framkvæmdum.
Sé það fyllsta alvara stjórn-
valda í dag að vilja gera allt
sem í þeirra valdi stendur til að
draga úr dýrtíðarflóðinu ættu
þau að ganga hér á undan og
samþykkja þessa tillögu
Lárusar og reyna með því að
skapa hjá fólki meiri virðingu
fyrir íslenzkum gjaldmiðli í
dag.
Ef vil vill gæti það einnig
haft nokkra siðferðislega
þýðingu að hætta alveg við
Raddir
lesenda
Umsjdn: JFM
gamla krónunafnið (sem mun
komið í tíð konungsvaldsins
hér) og taka upp nýja nafngift
á peningum, t.d. ríkisdal eða
ríkismark eða annað slíkt.
Við sem stundum far-
mennsku og viðskipti erlendis
höfum þráfaldlega orðið þess
varir hversu smáum og
aumkunarverðum augum út-
lendingar lita á okkar litlu
krónumynt.
Eins og málum er háttað í
dag virðist því flest mæla með
„Höldum ekki áfram myntsláttu á ljótum og verðlausum vatns-
fleytikrónum," segir bréfritari.
því að við aukum verðgildi
hverrar mynteiningar og reyn-
um þar með að draga úr
peningaþenslunni en höldum
ekki áfram myntsiáttu á ljótum
og verðlausum vatns-
fleytikrónum.
Gamail farmaður.
Fólk vill ekki gallaða vöru
—sænsku eldspýturnar ófáanlegar í litlum stokkum
Eigandi söluturns að Leifsgötu
4 hafði samband við DB:
Ég var að lesa grein í DB
þann 15. marz þar sém verið er
að kvarta undan eldspýtum
þeim sem ÁTVR hefur á
boðstólum. Þar kemur fram í
svári við fyrirspurn að það sé
hægt að fá bæði sænskar eld-
spýtur og svo þessar tékknesku.
Eg hafði samband við ÁTVR og
ætlaði að panta þessar sænsku
en þá voru þær ekki til nema í
stórum heimilispakkningum,
sem kosta 90 krónur í útsölu.
Ég tel það mjög æskilegt að
hægt sé að fá þessa vöru í
litlum stokkum þvi reyndin
hefur verið sú að fólk kaupir
þessar sænsku eldspýtur
frekar. Þær eru miklu betri og
engin hætta stafar af notkun
þeirra. Þegar fólk kynnist góðri
vöru, er það svo að það velur
hana fremur en þá gölluðu.
Enn um Óla blaðasala!
Harðhentur og mistækur
Jón G. Gestsson, 12 ára, vill
koma eftirfarandi áframfæri:
Eg las greinina um Öla
blaðasala í DB í gær og vil í
framhaldi af henni minnast á
nokkur atriði vegna hegðunar
hans. í fyrsta lagi þykist hann
eiga öll fjögur hornin á gatna-
mótum Austurstrætis og Póst-
hússtrætis og hikar ekki við að
lemja jafnvel smábörn, sem
voga sér nærri hans „umráða-
svæði“. Sjálfur hef ég selt blöð
þarna í miðbænum í tæp tvö ár
og hef margoft ■ mátt þola
barsmíðar af Öla og hef fengið
ófáa marbletti af háns völdum.
Þá hefur hann líka lamið mig
og fleiri í misgripum fyrir ein-
hverja aðra sem hafa verið að
hrópa á eftir honum. Nú síðast í
gær var fjöldi krakka í
miðbænum og nokkrir hrópuðu
eitthvað um Öla og hlupu svo
burt en þá lét Öli reiði sína
bitna á yngstu börnunum, sem
alsaklaus voru og stóðu kyrr.
Mig langar til að vita hvort
svona framferði fullorðins
manns sé ekki ólöglegt.
Spurning
ag
Ersumarið
komið?
Skúli Gunnar Bjarnason, póstur:
Já, það virðist mér vera. Það ligg-
ur í loftinu.
Margrét Ingimarsdóttir, hús-
freyja: Nei, ekki enn. Eg býst
fastiega við páskahreti.
Hver ertu, aumi
hugleysingi?
— gagnrýni á Fjölbrautaskólann í Breiðholti
undirfölsku nafni
Þann 10. marz sl. birtist
hér í Dagblaðinu grein um
Fjölbrautaskólann í Breið-
holti sem bar yfirskriftina
„Einræði". Ekki ætla ég að fjöl-
yrða neitt um efni þessarar
greinar, aðrir mega sjá um það.
Hins vegar vakti athygli mína
nafn nokkurt sem ritað var
undir þessa grein, Baldur
Ragnarsson hljóðaði það.
Svosum ekkert merkilegt,
hvorki nafnið né neitt annað,
en það er nú bara það að áður-
nefndur Baldur hefur ails ekki
skrifað þessa grein. Merkilegt
nokk, harðasta gagnrýni á
æðsta embættismann Fjöl-
brautaskólans, sjalfan skóla-
meistarann, skrifuð af ein-
hverjum, eða einhverri í nafni
áðurtalins nemanda. Og svo
hefur þessi fyrrnefndi nemandi
hvergi komið nálægt þessari
grein.
Æ, afsakið mig. Það er víst
bezt að ég komi ykkur, lesendur
góðir, svolítið betur inn í
hlutina. Sjáið þið til, í Fölbraut
er starfrækt skólablað þar sem
nemendur geta komið skoðun-
um sínum á framfæri.
Meðal annarra sem í þetta blað
hafa skrifað er.... Baldur
Ragnarsson. Það mun víst vera
einhver náungi sem hefur
gaman af að gagnrýna, og þá
sérstaklega skólann og rekstur
hans. En nóg um það. Vegna
þess hve þessi nemandi hefur
gaman af þvi að gagnrýna (í
skólablaðinu takið eftir) þá
hefur einhver framtakssamur
nemandi eða nemendur tekið
sér penna í hönd og skrifað í
DB. í nafni gagnrýnandans
fyrrnefnda og árangurinn er á
bls. 2 í 58. tölublaði, 3ja árgangi
af því annars ágæta blaði, Dag-
blaðinu.
Tilgangslaus skammaryrði,
vanhugsun, vanþroski og fljót-
færni. Það er árangurinn. Og
hver fær skömmina? Baldur
Ragnarsson. En hinn raunveru-
legi höfundur greinarinnar
(eða höfundar) sem ég vil
nefna hugleysingja þar sem
hann þorir ekki að nota sitt
eigið nafn eða nöfn, hinn
raunverulegi höfundur nýr
saman höndunum af ánægju
yfir velheppnuðu trixi.
Afglapar finnast enn í dag,
það er fullvíst. Og sá huglausi
afglapi sem skrifað hefur þessa
fyrrtöldu sorpgrein þurfti
endilega að hlaupa með hana í
dagblað, í stað þess að koma
með hana í skólablaðið.
Og ef ég skyldi nokkurn tíma
ná í þennan hugleysingja sem
notar annarra manna nöfn í
sína óþverragrein, þá skal sá
hinn sami hugleysingi og af-
glapi fá að upplifa sín svart-
nættis ragnarök, „helt privat".
Hinn raunverulegi Baldur
Ragnarsson, nemandi í
Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti.
Hjaltabakka 4.
Sími 71908.
28644 FH.IJjll 28645
AFDREP
Fasteignasalan sem er íyöar þjónustu.
Ath. Efþérfeliðokkureinumað
annast sölu á eign yðar, bjóðum
viðyður lækkun á söluþóknun.
Arni Stefánsson, þúsundþjaia-
smiður: Er ekki alltaf sumar?
Hraunbœr
Höfum til sölu eftirtaldar íbúðir:
3ja herb. 90 ferm íbúð á 1. hæð, teppi á gólfum, gott
skáparými, flísaiagt bað, mikil og góð sameign. Verð 8
til 8,5 millj.
4ra herb. 110 ferm íbúð á 1. hæð, 3 svefnherb., stofa,
teppi á gólfum, gott skáparými, mikil og snyrtileg
sameign.
Þorsteinn Magnússon, kennari:
Mér finnst sem það hafi verið
sumar í allan vetur. Það heldur
vonandi áfram og verður kannski
betra en það siðasta.
Eignaskipti
Bragagata 3ja herb. 80 ferm íbúð á annarri hæð,
íbúðin er öll nýstandsett.
Skipti óskast á stærri íbúð, helzt í gamla bænum eða
Hlíðunum. Þó kemur margt annað til greina.
Okkur vantar allar tegundir
fasteignaáskrá.
Björn Leósson, verkamaður: Já,
það leynir sér ekki. Það er ekki
gott að segja hversu lengi þetta
blíðviðri helzt, en maður er þakk-
látur meðan það varir.
Seltiarnarnes
Járnklætt timburhús, einbýli, á 1000 ferm eignárlóð.
Húsið er kjaliari, hæð og ris, mikið endurnýjað. Skipti
á 5 herb. íbúð í Langhoitshverfi eða Heimahverfi.
Opið á laugardag frá kl. 10 til 3,
sunnudag frá kl. 1 til 5.
ðSdfCp fasteignasala
Öldugötu 8
símar: 28644 : 28645
Solumaður
Finnur Karlsson
heimasimi 434 70
Valgardur Sigurdsson logfr
Margrét Sigurðardóttir, vinnur
við fiskvinnslu: Mér finnst
sumarið vera löngu komið. Þa»'i
byrjaði i haust eftir misheppnað
sumar.