Dagblaðið - 19.03.1977, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
HEFIOPNAÐ
HÁRSKERASTOFU
í STARMÝRI2 - SÍMI35830
ÚLFAR JENSSON
HÁRSKERAMEISTARI
Merkjasöludagur
Styrktarfélags varigefinna
verðurá morgun,
sunnudaginn 20. marz.
Merkin verðaafhentíbarna-
skólunumfrá kl. lOf.h.
Foreldrar, styðjið gott málefni
oghvetjið börn yðar til að
selja merkin.
Styrktarf élag vangef inna
Emn a rækjuveiðum frá Bfldudal
Naumlega bjargað úr
sjonum
„Viö sáum Blíðfara á reki og
fórum því að aðgæta hvað væri
að. Þá var Öskar i sjónum við
hliðina á bátnum og hélt sér i
nótina. Við stukkum þegar yfir
i hans bát og tókst að ná honum
upp. Það hefði varla mátt vera
mikið seinna."
Þetta sagði Sigmundur
Friðriksson skipstjóri á Helga
Magnússyni frá Bíldudal. Hann
var á rækjuveiðum rétt utan
við Bildudal, þegar þetta
gerðist í fyrradag, ásamt íöður
sínum, Friðriki Ölafssyni, en
þeir eiga bátinn í sameiningu.
Óskar Magnússon er einn á
Blíðfara. Þegar var stímt með
Óskar í land. Var honum orðið
mjög kalt en ekki hafði hann
meiðzt. Læknirinn frá Patreks-
firði kom og tók hann með sér
þangað. Leið honum vel eftir
atvikum.
Sigmundur sagði að Óskar
hefði haft leyfi til þess að vera
einn á Blíðfara þar sem
báturinn væri undir 12 tonn-
um. Þar væru dregin mörkin
samkvæmt lögum hvort menn-
irnir væru tveir eða einn. Sig-
mundur sagðist hins vegar
gagnrýna þetta. Sér væri sama
hvort báturinn væri 10 eða 14
tonn. Veiðarfærin væru þau
sömu. Jafnþungt væri að hífa
og ýmislegt gæti komið fyrir.
Þessi regla væri fjarstæðu-
kennd. Henni þyrfti að breyta.
EVI
130 þúsund Noröurlandabúar
e/ga við fötlun að stríða
„Stjórn Bandalags fatlaðra á
Norðurlöndum, sem er málsvari
130 þúsund fatlaðra Norðurlanda-
búa, er uggandi um hag þeirra
vegna ríkjandi efnahagsástands,"
segir í samþykkt er bandalags-
stjórnin gaf út í tilefni af því að á
morgun er alþjóðadagur fatlaðra.
„Hvað varðar ástand á vinnu-
markaði, þá á fatlað fólk í miklum
erfiðleikum við að fá atvinnu við
hæfi. Örorkulífeyrir er ófullnægj-
andi á Norðurlöndum og hækkun
örorkubóta réttlætismál," segir í
samþykktinni.
Þá er rætt um skipulag bygg-
inga og nauðsyn þess að við um-
hverfissköpun sé tekið fullt tillit
til fatlaðra. Aðgengilegt húsnæði
er eitt brýnasta hagsmunamál
fatlaðs fólks.
Ályktunin fjallar og um nauð- Krafa norræna bandalagsins á al-
syn á úrbótum í bifreiðamálum, þjóðadaginn er að fötluðu fólki
aðgengilega almenningsvagna verði tryggt félagslegt öryggi og
fyrir fatlaða, aukna menntunar-_ réttmæt hlutdeild í samfélags-
möguleika og þátt í skólakerfi.’ þróuninni.
Rætt er um skort á hjálpartækj- Útvarpserindi um samskipti
um og sagt að stefna þurfi að fatlaðra og ófatlaðra verður flutt í
norrænni hjálpartækjamiðstöð. tilefni dagsins næsta laugardag.
Þorsteinn Hannesson óperusöngvari
sextugurídag
Fjölbreyttir afmælistón-
leikar íAusturbæjarbioi
STORKOSTLEG VERÐLÆKKUN
á öllum velúrfatnaði.
M.a. sloppar og samfestingar.
Verð áður kr. 15.300.- nú aðeins kr. 10.000.-
Allar rúllukragapeysur á kr. 1.200.-
Verzlunin MADAM Glæsibæ - Sími 83210
CASITA VERÐUR
ÍÁR
Casita hjólhýsið er FELLI-
HÝSI. Það er reist á
aðeins 30 sekúndum.
Þetta er hið glæsi-
legasta hjólhýsi sem
þér getið valið um í
dag. Sem sagt, Casita er
framtíðin, því það
veldur engri mótstöðu í
akstri og bíllinn þinn
dregur það hvar sem er.
Þetta er undravagn, sannkölluð töfrakerra, allt einangrað og loft
bólstrað. Pantið því strax í dag því afgreiðslufrestur er stuttur. Munið að
aftan í franskan bíl passar aðeins franskt fellihýsi og þó auðvitað
Casita.
Casita fer sigurför um allan hinn stóra heim. Casita heillar alla, einnig þig.
Hallbjörn J. Hjartarson hf.
Skagaströnd. Sími 95-4629.
Sextugur er í dag Þorsteinn
Hannesson. Afmælishljóm-
leikar verða haldnir í Austur-
bæjarbíói i dag af því tilefni.
Vinir, samstarfsmenn og að-
dáendur Þorsteins gangast
fyrir þeim.
Fimmtán kunnir einsöngvar-
ar flytja þar fjölbreytta efnis-
skrá, bæði einsöngslög og tvi-
söngslög. Eru þau úr heims-
tónmenntunum og sönglög eftir
íslenzka höfunda.
Að sjálfsögðu annast flestir
kunnustu undirleikarar lands-
ins sín hlutverk í þessum tón-
leikum.
Afmælistónleikarnir hefjast
kl. 14.30 — og eru í
Austurbæjarbíói í dag, sem
fyrr segir.
BS
Afmælisbarnið Þorsteinn
Hannesson óperusöngvari.
NORRÆN KVOLDVAKAIKÓPAVOGI
Á kvöldvöku sem Norræna
félagið í Kópavogi efnir til á
morgun, sunnudag, kl. 20.30 í
Hamraborg 11, skýrir Andrés
Kristjánsson skólafulltrúi frá
úrslitum í ritgerðarsamkeppni
skólabarna. Félagið efndi til
þessarar samkeppni í tengslum
við Norrænu menningarvikuna
í Kópavogi á liðnu hausti.
Ritgerðarefnið var um vinabæi
Kópavogs.
Á kvöldvökunni syngur
Barnakór Kársnesskóla og
Björn Th. Björnsson list-
fræðingur leiðir fundarmenn
um Islendingaslóðir í Kaup-
mannahöfn með myndum og
tali.
BÍLASALAN BÍLVANGUR
Volvo 144 ’74, ’71
Volvo 142 ’73
Volkswagen 1303 ’73
Volkswagen 1302 ’72
Volkswagen 1300 '73
Volkswagen 1200 ’71
VW Variant ’72
Mercury Comet ’73 og
Fiat 127 ’72
Fiat 128 ’74
Tangarhöfða 15. Sími 85810
Til sölu
Oldsmobile Delta 88 ’71 með
öllu
Toyota M2 ’74
Toyota Corolla '74
Datsun 1200 '73
Datsun 200L ’74
Mazda 616 '74
’74 Escort '73, '74 og ’75
Chevrolet Chevelle '72
Jeppar:
Bronco '74 8 cyl.
Willys ’65, fallegur bill.
Bronco ’70 8 cyl.
Hofum kaupendur að:
Mazda 929 ’75
Mazda 616 ’76
Mazda 929 station
Volvo 244 ’76.
Glœsilegur sýningarsalur. Gott útisvœði.
Bílar í salnum auglýstir sérstaklega.
Höfum plóss fyrir góða bíla í sal —
ekkert innigjald.