Dagblaðið - 19.03.1977, Page 12
1.M
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
/ /
g
Electric Light
Orchestra:
A New Woríd
Record
Hljómsveitina Electric Light
Orchestra ætti að vera óþarft
að kynna fyrir íslendingum en
með örfáum orðum verður þó
saga hennar rakin hér.
Það var árið 1969 að þeir Roy
Wood, Jeff Lynne og Ben-
Bevan stofnuðu Electric Light
Orchestra (ELO). Þeir höfðu
áður unnið saman í annarri
Minnsta sinfóníu-
hljómsveit íheimi
hljómsveit, — Move. Það var
ekki fyrr en tveimur til þremur
árum seinna að þeir tóku að
öðlast einhverjar vinsældir —
eða um það leyti sem fyrsta
platan kom út.
Sú plata nefndist Electric
Light Orchestra eftir hljóm-
sveitinni. Stuttu eftir útkomu
hennar yfirgaf Roy Wood
hljómsveitina ásamt Bill Hunt
og Hugh McDowell. Þeir stofn-
uðu síðan hljómsveit sem hlaut
nafnið Wizzard.
Arið 1973 kom út önnur LP
plata hljómsveitarinnar, ELO
II. Á þeirri plötu var fyrsta
lagið sem sló virkilega i gegn
með hljómsveitinni. Þetta var
lag rokkkóngsins Chuck Berry,
Roll Over Beethoven. Lagið
hlaut geysigóðar viðtökur víða
um heim og fyrir sérstæðan
flutning mundu allir eftir ELO
þegar næsta plata kom.
ELO hefur átt þó nokkur vin-
sæl lög og nægir þar að nefna
Showdown, Eldorado, Evil
Woman, Strange Magic og
siðast en ekki sízt lagið Livin’
Thing, sem er á nýjustu plötu
hljómsveitarinnar, A New
World Record. Það lag nýtur
um þessar mundir mikilla vin-
sælda hér á landi þó að það hafi
nýlega runnið sitt skeið á enda
erlendis.
A New World Record tel ég
vera frábærlega vandaða plötu.
Sérstaklega er hún góð hvað
snertir söng og útsetningar á
strengjahljóðfærum. ELO aðdá-
endur verða ekki sviknir þegar
þeir hlusta á plötuna. Og ef
einhver hikar við að kaupa
hana þá skora ég á hann að gera
það samstundis.
Ef ég man rétt, þá heyrði ég
einhvern tíma að ELO hafi
verið útnefnd af gagnrýnend-
um sem „minnsta sinfóníu-
hljómsveit í heimi“. Undir því
nafni stendur hljómsveitin með
prýði að þessu sinni.
A New World Record er
hljóðrituð í Musicland í
Múnchen og útgefin af Jet
Records. Það er Jeff Lynne sem
á heiðurinn af að hafa samið og
útsett öll lög plötunnar. Hann
stjórnaði jafnframt upptök-
unni.
Beztu lög plötunnar eru:
Livin’ Thing,
So Fine,
Rockaria.
Vilhjálmur Astráðsson.
Monica
Zetterlund
kemur
í vikunni
Sænska jazzsöngkonan
Monica Zetterlund kemur til
landsins í næstu viku ásamt
undirleikurum sinum. Fyrstu
tónleikar þeirra verða á föstu-
dagskvöld í Norræna húsinu
klukkan átta og tíu. Á sunnu-
dagskvöldið skemmta þau í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð, í Sigtúni á mánudag og
loks á Hótel Loftleiðum á
þriðjudagskvöld.
Það er Klúbbur 32 sem
stendur fyrir hingaðkomu
Monicu og félaga hennar.
Klúbburinn sér um alla tónleik-
ana, en Jazzvakning hefur
samstarf um tónleikana í
Sigtúni.
Einn undirleikara Monicu
Zetterlund verður Pétur Öst-
lund. Hann og kona hans hyggj-
ast dvelja hér í um hálfan mán-
uð. Pétur ætlar að kynna sér
upptökuskilyrðin í Hljóðrita og
hyggst jafnvel vinna þar eitt-
hvað. Eiginkona Péturs er
blaðamaður við kvennablaðið
Feminu og hyggst afla sér upp-
lýsinga um islenzka þjóðbún-
inginn.