Dagblaðið - 19.03.1977, Side 22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
22____________________________________
[ Bíóauglýsingar eru á bls. 20 )
i
Útvarp
Sjónvarp
8
Sjónvarp á morgun kl. 20.45:
Mynd um vinnubrögð í
sveit upp úr aldamótum
— Er aðeins Irtill hluti af stærra verki
„Þetta er ekki nema örlítill
hluti af allri myndinni sem er í
einum fjórtán eða sextán
köflum," sagði Þórarinn
Haraldsson bóndi í Laufási í
Kelduhverfi sem gert hefur
mynd sem er á dagskrá
sjónvarpsins annað kvöld kl.
20.45 og nefnist Ullarþvottur.
„Myndin er tekin á sjálfs mín
vegum og sjónvarpsins og hef
ég nú þegar lokið við að gera
handrit að allri myndinni.'
Ætlunin er að myndin nái yfir
eins árs hring sem sýni
hvernig vinnubrögðin voru í
sveit upp úr aldamótunum.
Myndin er tekin í Keldu-
hverfi og eru það Keldhverfing-
ar sem „leika“ i henni. Hún er
frábrugðin öðrum myndum af
svipuðum toga en þulur er
enginn heldur er myndin
lifandi og allir taka þátt.
Þar segir frá ellefu manna
fjölskyldu og störfum hennar
og aðalkaflarnir sem hér segir:
Jólin og undirbúningur þeirra,
1 skammdeginu, Harðindavor,
Vorverkin, Mjólkurmeðferð
eftir fráfærur, Sláturmeðferðin
og sláturtið á haustin," sagði
Þórarinn Haraldsson.
Þeir sem „leika“ í myndinni
eru: afinn, leikinn af Þórarni
elzta í Vogum, ömmuna leikur
Klara á Undirvegg, Þórarinn
yngri í Vogum og María kona
hans leika pabba og mömmu,
vinnumaðurinn er leikinn af
Gunnari í Sultúm og Guðrún
Jakobsdóttir á Víkingavatni
leikur vinnukonuna. Börnin
fjögur eru leikin af stúlku frá
Víkingavatni og annarri úr
Vogum og dreng frá Austur-
görðum og dreng frá Hóli.
Myndin, sem verður sýnd
annað kvöld sýnir rúningu sem
fer fram við bæinn Sultir, og
ullarþvott sem fer fram í læk
sunnan við bæinn Fjöll.
Sýningartími myndarinnar
er tuttugu mínútur. Upptöku
stjórnandi Þrándur Thorodd-
sen.
-A. Bj.
Útvarpið á sunnudag kl. 13.15: Um mannfræði
Fjölskyldugerðir og ættartengsl
„Það eru fjögur erindi í þess-
um erindaflokki Um mann-
fræði og sér Gísli Pálsson
menntaskólakennari um 2 en
ég um tvö. Fyrst var almenn
mannfræði kynnt, síðan helztu
viðhorf vestrænna manna til
framandi þjóðmenningar og á
sunnudaginn fjalla ég um fjöl-
skyldugerðir og ættartengsl."
Þetta sagði Kristján E. Guð-
mundsson menntaskólakennari
er DB ræddi við hann.
Hann ræðir um hjúskap og
K
Það er Kristján E. Guðmunds-
son menntaskólakennari sem
sér um 3. erindið „Um mann-
fræði“.
makaval hjá hinum ýmsu sam-
félögum og tekur fyrir mikil-
vægi ættartengsla og hversu
mikil áhrif tengslin hafa á hin
ýmsu samfélög og á pólitíska
skipan almennt, bæði er um að
ræða skipan í frumstæðum
samfélögum og eins hvernig
þessu er háttað í dag. Því enn
eimir eftir af fornu gildismati
um ættingja eins og við þekkj-
um öll þar sem pólitísk spilling
ríkir og ættingjar, vinir og
kunningjar eru teknir fram
yfir hæfari umsækjendur í hin
ýmsu störf í þjóðfélaginu.
Fjórða erindið fjallar um
minnihlutahóp vestrænna
iðnaðarsamfélaga eins og Sama
í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð
og Eskimóa í Grænlandi. Það er
Gísli sem sér'um það. 'EVI
Sjónvarp á morgun kl. 16.50:
Endurtekið viðtalið við Einar Bollason
A morgun klukkan 16.50 að
loknum þættinum Húsbændur
og hjú er endurtekið efni á
dagskrá sjónvarpsins. Endur-
tekið verður viðtal sem Björn
Vignir Sigurpálsson átti við
Einar Bollason og konu hans
Sigrúnu Ingólfsdóttur í
þættinum Ur einu í annað 19.
febrúar sl.
Viðtalið vakti mikla athygli
og sýndu þau hjónin ákaflega
prúðmannlega framkomu i við-
talinu og þóttu standa sig með
hinni mestu prýði. Einar segir
frá viðskiptum sinum við yfir-
völdin er hann var handtekinn
og hafður í einangrun í fang-
elsinu í Síðumúla.
Einar segir m.a. frá því að
trúin hafi hjálpað honum til
þess að afbera þær andlegu
þjáningar sem hann varð að
þola í sambandi við
gæzluvarðhaldsvist sína. -A.Bj.
1 mynd sem er á dagskrá
sjónvarpsins annað kvöld
verður sýnt hvernig rúningur
og ullarþvottur fór fram i sveit
upp úr aldamótunum. Þá
notuðu menn orf og Ijá við
sláttinn og enn i dag er þessi
aðferð notuð í skrúðgörðum
höfuðborgarinnar þegar
dregizt hefur úr hömlu að siá
með venjulegri garðsláttuvél.
Myndina tók Þorsteinn Jóseps-
son.
y
Laugardagur
19. marz
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 Og 10.10. Morgunleikfimi kl.
8.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morguntasn kl. 7.50. Morqunstund
bamanna kl. 8.00. Tilkynningarkl. 9.00.
Létt lög milli atriða. Óskalög sjúklinga
kl. 9.15: Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir. Bamatimi kl. 11.10: Inga Birna
Jónsdóttir stjórnar tíma með fyrir-
sögninni: Þetta arum viö aö gera. Rætt
við fermingarbörn hjá sr. Árna Páls-
syni í Kópavogi og kvikmyndagerð í
Álftamýrarskóla.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Á prjónunum. Bessí Jóhannsdóttir
stjórnar þættinum.
15.00 I tónsmiöjunni. Átli Heimir
Sveinsson sér um þáttinn (18).
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. islenzkt mál. Gunn-
laugur Ingólfsson cand. mag. talar.
16.40 Létttónlist.
17.30 Útvarpsleikrit bama og unglinga:
„Hlini kóngsson" eftir Ragnheiöi Jóns-
dóttur. (Fyrst útv. fyrir 18 árum).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Ekki beinlínis. Böðvar Guðmunds-
son ræðir við Gunnar Frímannsson og
Þóri Haraldsson um heima og geima.
— Hljóðritun frá Akureyri.
20.15 Sónata nr. 4 í a-moll eftir Beethoven.
20.35 Fomar minjar og saga Vestri-byggöar
i Grœnlandi. Gísli Kristjánsson flytur
ásamt Eddu Gísladóttur þýðingu sína
og endursögn á bókarköflum eftir
Jens Rosing. — Fyrsti þáttur.
21.00 Hijómskálatónlist frá útvarpinu i
Köln. Kynnir: Guðmundur Gilsson.
21.30 „Morgunkaffi", smásaga eftir
Solveigu von Schoultz. Séra Sigurjón
Guðjónsson þýddi. Guðmundur
Magnússon leikari les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusálma
(36).
22.25 Útvarpsdans undir góulok.
01.00 Dagskrárlok.
Sjdnvarp íkvöld kl. 21.00: Úr einu íannað
Heimsókn á fornan torfbæ
í Eyjafirði og annað efni frá
Norðurlandsheimsókn
Þátturinn Ur einu í annað er
á dagskrá sjónvarpsins i kvöld
kl. 21.00. Umsjónarmenn eru
Berglind Ásgeirsdóttir og
Björn Vignir Sigurpálsson.
Tage Ammendrup stjórnar
upptöku.
„Við höldum áfram að senda
út efni sem við fengum i ferð
okkar norður í land,“ sagði
Berglind í viðtali við DB-
„Meðal annars leikur hinn
kunni hljómlistarmaður Ingi-
mar Eydal ásamt nokkrum
hljómlistarmönnum, sem léku
með honum fyrir löngu síðan.
Ætla þeir að „jazza“ svolítið
fyrir sjónvarpsáhorfendur.
Einnig verður hljómlistar-
flutningur frá Húsavík og
viðtöl við fólk.
Við komum í mjög sérkenni-
legan torfbæ i Eyjafirði. Þar
býr gamall maður og með
honum öldruð kona. Þau lifa
nánast eins og maður getúr
hugsað sér að fólk hafi búið í
kringum 1850. Þau eru bæði
forn i skapi og búa við mjög
forna búskaparhætti. Það er
alveg furðulegt að sjá hvernig
þetta er. Sem dæmi má nefna
að ef þauviljahafa samband við
fólk af öðrum bæjum, breiða
þau hvitt stykki á hlaðið hjá
sér. A þessum bæ eru engin
þægindi í nútimaskilningi,“
sagði Berglind. -A.Bj.
Poppkomslaust bíó
Laugarásbío: „Ladykillers”: Hljóðlát stund
Fyrsta myndin í þessari
síðdegisseríu bíósins er „Lady-
killers", meinfyndin gaman-
mynd frá árinu 1956. í
auglýsingu kvikmyndahússins
segir að myndin sé ein
skemmtilegasta sakamála-
mynd sem tekin hafi verið. Eg
hygg að það sé svei mér ekki
fjarri lagi og sennilega er sama
skoðun uppi á teningnum hjá
meirihluta þeirra er farið hafa
að sjá myndina, eftir þeim
viðtökum að dæma sem hún
hefur fengið.
1 stuttu máli er söguþráður
Ladykillers sá að fjórir harð-
svíraðir glæpamenn ákveða að
fremja hið fullkomna rán. Einn
þeirra fær leigt herb. hjá frú
Wilberforce, ekkju á áttræðis-
aldri. Þar safnast þeir saman á
kvöldin undir því yfirskini að
þeir séu að æfa sig í fiðluleik.
Á meðan handsnúinn
grammófónn bögglast við að
leika menúett undirbúa
bófarnir ránið.
Að lokum rennur stóri
dagurinn upp þegar ránið skal
framið. Allt fer eins og bezt
verður á kosið og frú Wilber-
force verður bófunum til
mikillar hjálpar — þar til hún
uppgötvar skyndilega hvað
leigjendurnir höfðu haft fyrir
stafni.
Ekkert annað kemur nú til
greina en að stytta gömlu
konunni aldur. Þá hefst hinn
spaugilegasti gamanleikur.
Énginn þessara harðsvíruðu,
svipljótu misindismanna getur
fengið af sér að drepa þessa
gömlu góðu konu sem gaf þeim
svo oft kaffi, þegar þeir voru að
„æfa sig“.
Ekki hefur verið talið borga
sig að láta íslenzkan texta inn á
Ladykillers. Textaleysið krefst
þess af áhorfandanum, að hann
fylgist mun betur með öllu tali
Fyrsti glæpamaðurinn fellur. Honum er fylgt á virðulegan hátt til
„grafar“.
en venjulega. Til að það gangi
enn betur fyrir sig er ekki selt
poppkorn í bíóinu og man ég
ekki eftir hljóðlátari stund í
kvikmyndahúsi en er ég sá
myndina. -AT-
LAUGARÁSBfÓ: Ladykinen.
Aöalhlutverk:
Alec Guinnes
Herbort Lom
Peter Sellers
Danny Green
Katie Johnson
Laugarásbíó hefur tekið upp
á þeirri nýbreytni að sýna
gamlar kvikmyndir síðdegis á
laugardögum. Með þessu fer
bíóið að nokkru leyti inn á svið
sjónvarpsins er hefur þann sið
að sýna slíkar myndir á laugar-
dagskvöldum, en við val
myndanna í Laugarásbíói er
haft í huga að þær hafi ekki
verið sýndar í sjónvarpinu
áður.