Dagblaðið - 19.03.1977, Qupperneq 24
Haukur Guðmundsson.
Endurrannsókn
fjölda atríða í
handtökumálinu?
Líkur eru á að gerð verði
krafa um endurrannsókn fjölda
atriða í handtökumálinu svo-
kallaða — meintri ólöglegri
handtöku Karls Guðmundsson-
ar, ökumanns Guðbjarts Páls-
sonar, 6. desember sl.
Rannsókn umboðsdómarans,
Steingríms Gauts Kristjánsson-
ar, er nú lokið „nema til komi
athugasemdir" Hauks Guð-
mundssonar rannsóknar-
lögreglumanns eða lögmanns
hans, að sögn Steingríms Gauts.
Og lögmaður Hauks, Jón E.
Ragnarsson hrl., taldi vafalaust
að gerðar yrðu margar athuga-
semdir við rannsóknina. Munu
þær koma fram eftir helgina
þegar Haukur og Jón hafa farið
yfir málskjölin sem þeir fengu
í hendur um miðja vikuna.
-ÖV.
Ný útgáfa spariskírteina
Ríkið slær
600 milljönir
Sala spartskírteina ríkis-
sjóðs, nýrrar útgáfu, hefst á
þriðjudaginn og á að selja fyrir
600 milljónir að þessu sinni.
Skírteinin eru í þremur verð-
gildum, tíu þúsund, fimmtíu
þúsund og hundrað þúsund
krónur. Þau skulu skráð á nafn
með nafnnúmeri eiganda.
Andvirðinu verður varið til
opinberra framkvæmda sam-
kvæmt lánsfjáráætlun ríkis-
stjórnarinnar fyrir þetta ár.
Höfuðstóll og vextir verða
verðtryggðir miðað við breyt-
ingar á byggingarvísitölu. Skír-
teinin verða bundin næstu
fimm árin en frá 25. marz 1982
eru þau innleysanleg hvenær
sem er næstu fimmtán árin.
Skírteinin, svo og vextir og
verðbætur, eru skattfrjáls á
sama hátt og sparifé.
-HH
RAFKAPALLINN TIL
EYJA FULLNÝTTUR
EFTIR2TIL4ÁR
—nýr kapall mundi kosta 300 til
500 milljónir nú
Nýr særafmagnskapall frá
landi til Vestmannaeyja til
þess að tryggja þar næga
orku, þótt eitthvað komi
fyrir annan kapalinn, mundi
kosta 300 til 500 milljónir
króna lauslega áætlað, að
því er Guðjón Guðmundsson
skrifstofustjóri Rafmagns-
veitna rikisins tjáði blaðinu.
I framhaldi af viðtali DB
við bæjarstjórann í Eyjum,
þar sem hann sagði að eitt
aðalhagsmunamál þar væri
að fá annan kapal lagðan á
öðrum stað til öryggis,
spurði DB Guðjón hvort
slíkt væri á döfinni.
Hann sagði að svo væri
ekki i augnablikinu, en hins
vegar yrði núverandi kapall
til Eyja fullnýttur eftir á að
giska tvö til fjögur ár. Væri
því þörf á öðrum kapli áður
ert langt um liði. -G.S.
tæpara standa
—dreng bjargað úr Reykjavíkurhöfn
„Við heyrðum kallað á
svipuðum tíma: Barn í sjóinn!
Ég var á undan upp og sá hvar
barn flaut á grúfu við flotkran-
ann. Ég rauk þangað og stakk
mér umsvifalaust," sagði
Ársæll Björgvinsson háseti á
Árvakri. Hann, ásamt 1. stýri-
manni, Baldri Halldórssyni,
stóðu að giftusamlegri björgun
6 ára drengs, Samúels Björg-
vinssonar, sem datt í höfnina í
Reykjavík í gær.
Baldur tók á móti Samúel
litla og hóf þegar á honum lífg-
unartilraunir með blástursað-
ferðinni. Þá var drengurinn
orðinn meðvitundarlaus,
kaldur og blár. Einnig hófu
þeir að nudda fætur hans,
klæddu hann úr fötum og vöfðu
hann ullarteppum. Fljótt fór að
sjást lífsmark með honum og
eftir örskamma stund var bæði
lögreglu- og sjúkrabíll kominn
á staðinn. Baldur hafði kallað
um leið og hann hljóp að símað
skyldi eftir þeim. Samúel var
fluttur á slysavarðstofuna og er
nú kominn heim.
Þetta gerðist í gærdag um
1.40 eftir hádegi. Arvakur lá
við Ingólfsgarð og flotkraninn
eða pramminn sem betur fer
einnig. „Það var mikill munur
að geta athafnað sig strax, því
að hægt var um vik að koma
Samúel upp á hann,“ sagði
Baldur.
Vel staðið að björgun
— allt of fóir kunna
blóstursaðferðina
Þegar við komum um borö í
Árvakur, rétt eftir atburðinn,
var Ársæll í heitu baði. Ekki
vildi hann viðurkenna að sér
hefði orðið meint af, þótt við
sæjum ekki betur en að hann
skylfi enn. Rétt í því að við ætl-
uðum að fara frá borði bar þar
að annan lögregluþjóninn sem
komið hafði vegna slyssins,
Gísla Þorsteinsson, til að skila
teppunum um borð í Árvakur.
Gísli sagði að á allan hátt hefði
verið staðið að björguninni eins
og bezt væri á kosið. Ef enginn
hefði verið til staðar sem hefði
kunnað blástursaðferðina væri
óvíst hvort Samúel hefði lifað
þetta af. Allt of fáir gerðu sér
grein fyrir hversu mikils virði
það væri að kunna blástursað-
ferðina.
Öll börn œttu að vera
í björgunarvesti
niðri ó höfn
Baldur benti á að þeir for-
eldrar sem leyfðu börnum sín-
um að fara niður á höfn skyldu
kaupa handa þeim björgunar-
belti. Ágætis vesti 1 öllum
stærðum væru til hjá Ellingsen.
Hann sagði að aldrei færu þeir
varðskipsmenn út i gúmbjörg-
unarbát án þess að vera í björg-
unarvestum.
Svo sem kunnugt er sækja
börn alltaf mikið niður á höfn
til þess meðal annars að dorga.
Svo var einnig í gær, en Samúel
var með eldri systur sinni og
fleiri krökkum. Þess vegna
væri vel, eins og Baldur benti á,
að foreldrar væru vel á verði
um hvernig börnin væru út-
búin i slíkar ferðir. EVl
Ekki máttí
Arsæll Bjorgvinsson ha-
seti og Baldur Halidórs-
son 1. stýrimaður stóðu
að giftusamlegri björgun
6 ára drengs í gær.
Baldur heldur á votum
fötum Ársæls.
Utanríkisráðherra
Svíþjöðar:
Kemur íopin-
bera heimsókn
Utanríkisráðherra Svíþjóð-
ar, frú Karin Söder, kemur í
opinbera heimsókn til Islands
21.—22. marz næstkomandi. 1
fylgd með ráðherranum verða
Sverker Aström ráðuneytis-
stjóri sænska utanríkisráðu-
neytisins og fleiri embættis-
menn.
Auk fundar með Einari
Ágústssyni utanríkisráðherra
mun frú Karin Söder eiga við-
ræður við forséta tslands.
frjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977.
Fjögurra
mánaða
bam lézt
i bílveltu
Fjögurra mánaða gamalt
barn lét lffið í umferðarslysi er
varð á Reykjanesbraut um kl.
15.45 í gær. Slysið varð rétt
sunnan við Kúagerði. Þar var
kona úr Reykjavík ein á ferð
ásamt fjögurra mánaða gömlu
barni sínu. Var hún á suður-
leið í Volkswagenbifreið frá
bilaleigu í Hafnarfirði.
Er hún var komin rétt suður
fyrirKúagerði missti hún ein-
hverra hluta vegna stjórn á
bílnum og lenti út af veginum.
Bfllinn valt, sennilega tvær til
þrjár veltur, þó konan geri sér
vart fulla grein fyrir hvað,
skeði.
Barnið var látið er á slysa-
deildina kom. Konan slapp
hins vegar ómeidd frá slysinu.
Bíllinn er talinn ónýtur eftir.
-ASt.
Skýrslu
kraf izt af
varnarliðinu
Ekkert liggur enn fyrir
hvaða efnum frá Keflavíkur-
flugvelli var varpað f sjóinn í
fyrrakvöld eða -nótt. Eins og
Dagblaðið skýrði frá í gær
flutti varnarliðið um 25 tonn
af einhverju óþekktu dóti um
borð í íslenzkan bát semtekinn
hafði verið á leigu.
Fyrir liggur að ekkert leyfi
var fengið til að varpa neinu í
sjóinn hér við land en slfkt
leyfi verður að fá.
Varnarmálanefndin hefur
krafizt skýrslu af varnarliðinu
um þetta mál. Skýrslan lá ekki
fyrir þá er blaðið fór f prentun.
-ASt.
90til94ára vist-
menn á Grund og
Minni-Grund:
Konur
sjöfalt
Það kemur glöggt fram á
yfirliti um aldur vistmanna á
Grund og Minni-Grund fyrir
síðasta ár að meðalaldur fs-
lenzkra kvenna er talsvert
hærri en karla þótt þetta
yfirlit gefi ekki hárnákvæma
mynd.
A aldrinum 65 til 69 ára
voru 14 konur og átta karlar,
karlar rúmur helmingur. Ef
litið er á bilið 70 til 74 ára er
hlutfall karla enn svipað, 16
karlar og 27 konur. Hins vegar
fer hlutfall karla snarlækk-
andi, t.d. á bilinu 80 til 84 ára,
þar sem þeir eru 18 á móti 76
konum. Enn fer hlutfallið
lækkandi á bilinu 90 til 94 ára.
Þar eru þrfr karlmenn og 21
kona. eða sjöfalt fleiri konur.
Yfir 95 ára var enginn vist-
maður. Af vistmönnum voru
konur 265 og karlar 87. -G.S.