Dagblaðið - 02.04.1977, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977.
Þetta glæsilega hús að Hæðarbyggð 28 í Garðabæ hlotnast væntanlega einhverjum heppnum
þátttakanda í Happdrætti DAS að ári. Húsið er a.m.k. 30 milljðn króna virði. (DB-myndir Sv. Þorm.
EINHVER VERÐUR
30 MILUÓNUM
RÍKARI, - AÐ
MINNSTA KOSTI!
Liklega fer að verða hættu-
legt hvað úr hverju að fá
stærsta happdrættisvinninginn
í íslenzku happdrætti en þar er
átt við einbýlishúsið í Happ-
drætti DAS. Það hlýtur að
þurfa sterkt hjarta að taka við
þeim tíðindum að maður sé
orðinn heilu einbýlishúsi rík-
ari. Senn mun DAS draga um
einbýlishúsið að Hraunbergs-
vegi í Setbergslandi við Hafnar-
fjörð og þá verður vonandi
einhver svo lánssamur að
hreppa húsið.
Og á sama ttma hefur DAS
lokið byggingu á glæsilegu ein-
býlishúsi að Hæðarbyggð 28 í
Garðabæ. Varlega má áætla að
slfkt hús kosti um 30 milljónir.
Stórglæsileg villa, tilbúin í hólf
og gólf, bara að kaupa sér hús-
gögn við hæfi og flytja inn. Við
segjum nánar frá þessu nýstár-
lega húsi 1 blaðinu síðar en um
páskana mun það kynnt al-
menningi, eins og venjan er hjá
happdrættinu.
-JBP-
VONZKUVEÐUR
0G ÓFÆRÐ Á
ESKIFIRÐI
Hér á Eskifirði er vonzku-
verður með snjókomu. Fagri-
dalur er ófær, flug féll niður i
gær og óvíst hvort flogið verður
í dag.
A fjórða hundrað tonn af
flski hafa borizt á land i þessari
viku. Loðnubræðslan lauk
störfum í nótt en búin er að
vera stanzlaus bræðsla siðan 23.
janúar.
Síðan um heigi hafa verið
brædd bæði fiskbein og fiskúr-
gangur og lagði bæði sterka og
vonda peningalykt yfir bæinn,
því sumt af hráefninu var frá
því snemma í janúar.
Eskifirði, 1. april,
Regína Th./abj.
Vatnstengd slöngukerf i til eld-
varna víða sett upp
„Það er stöðugt unnið að
auknum og bættum brunavörn-
um í Reykjavík og þeim húsum
fjölgar jafnt og þétt þar sem
öflugum og nýjum slökkvitækj-
um er komið fyrir á hverri
hæð,“ sagði Gunnar Ölason hjá
Eldvarnaeftirliti Reykjavíkur-
borgar í viðtali við DB. Nú ný-
verið var t.d. samþykkt í
borgarráði, eftir kröfu eftirlits-
ins, að setja upp vatnstengt
slöngukerfi á hverri hæð að
Austurbrún 6.
Gunnar sagði að slíkum tækj-
um fjölgaði jafnt og þétt í borg-
inni. Þarna er um að ræða upp-
rúllaðar brunaslöngur I að-
gengilegum kassa. Slöngurnar
eru tengdar vatnskerfi og eru
viðráðanlegar fyrir fbúa
hverrar hæðar til að gripa til
þar til hjálp berst vegna elds-
voða. Slöngurnar eru þannig
staðsettar að þær eiga að ná til
sérhvers staðar á hæðinni.
„Hér er ekki um annað að
ræða en öflugri og handhægari
slökkvitæki en verið hafa í
notkun," sagði Gunnar. „í
öllum nýrri háhýsum eru lagnir
fyrir slík slökkvitæki, auk þess
sem á hverri hæð er krafizt að
fyrir hendi séu sérstakir stútar
fyrir brunaslöngur slökkviliðs
og að þeim stútum liggja
víðari leiðslur."
Gunnar sagði að vatnstengdu
slöngukerfin sem nú ryddu sér
til rúms væru ekki einungis I
háhýsum. Það færi allt eftir
innréttingu húsa og skipulagi
hvar þau kæmu sér vel. Þau
væri t.d. að finna á skrifstofu-
göngum á 2. hæð. Engar fastar
reglur eru til um hvar þau eiga
að vera og er það matsatriði
hverju sinni. Aðalatriðið er að
þeim fjölgar stöðugt og með þvi
batna brunavarnir. -ASt.
— LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER —LITAVER -
Úrvalið aldrei meira ennú!
Ertu að byggja? Þarftu að bæta? Viltu breyta?
Mjðg vðnduð GÓLFTEPPI Verðfrákr. 1.800ferm
Vinyl gólfdúkur K
Verð frá kr.
.400 ferm
Kork-gólfflísar
Verð frá kr. 1.800 ferm.
Vinyl veggfóður Nýiriitir
Verð frá kr. 600 rúllan.
Málning og málningarvörur
Fra nelztu tramleiðendum Staðgreiðsluafsláttur 10%
Frá helztu framleiðendum Þaðmunar ■
hvort sem keypt er mikið eða lítið. um minna
Lítið við í
Litaveri
þvíþað
hefur
ávallt
borgað sig
yiwaiictjn niiie
mm v
Vandaður CONTAKT-pappír, litaúrval mikið — Teppi í bíla — RYA- og
ESCERONA - VÖNDUÐ TEPPIÍ SÉRFLOKKI - LEÐURLÍKI — breidd 138 cm,
— glœsilegir litir.
Allar
deildir
ásama
stað
Hreyfilshúsinu, Grensásvegi 18
- LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER — LITAVER - LITAVER —