Dagblaðið - 02.04.1977, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 02.04.1977, Blaðsíða 22
22 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977. f Bíóauglýsingar eru á bls. 20 ) (f Útvarp Sjónvarp Útvarp ídag kl. 17.30: Norræn samvinna i gerð bamaleikríta um — Islenzka leikritið eftirOdd Björnsson Gunnvör Braga, sem sér um efni fyrir börn og ungiinga i útvarpinu, er þarna á milii Þórhalis Sigurðssonar, ieikstjórans, og höfundar leikritsins, Odds Björnssonar. DB-mynd Bjarnleifur. í dag verður flutt fyrsta leikritið í fimm leikrita flokki sem norrænir rithöfundar hafa skrifað sérstaklega fyrir við- komandi útvarpsstöðvar og ætl- uð eru fyrir börn og unglinga. Það er íslenzka framlagið í þessari norrænu samvinnu sem flutt er í dag og nefnist það Rauða höliin eftir Odd Björns- son. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Leikritið fjallar um litla telpu sem flýr raunveruleikann inn í sinn eigin draumaheim. Þar finnur hún ýmiss konar einkennilegan gróður og dýr og veröldin öll litríkari og skemmtilegri en hið raunverulega líf. Rauða höllin er draumahöll, fögur á að líta en langfegurst i fjarska. Leiðsögumaður telpunnar um draumaheiminn er drengur á svipuðum aldri. Litla telpan er leikin af Jó- hönnu Kristínu Jónsdóttur og Svanhildur Óskarsdóttir fer með hlutverk leiðsögu- mannsins í draumnum. Margrét Guðmundsdóttir fer með hlut- verk móðurinnar. Ingunn Jens- dóttir, Sigurður Skúlason, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Þórunn Pálsdóttir og Ása Ragn- arsdóttir fara með hlutverk fugla og dýra. Nína Sveins- dóttir leikur fjósakonu, Sigur- laug Jónasdóttir og Hrafn- hildur Guðmundsdóttir leika ó- nafngreindar stelpur og Asdís Þórhallsdóttir leikur Maju. Næstu fjóra laugardaga verða siðan flutt barnaleikrit frá Finnlandi, Danmörku, Sví- þjóð og Noregi. Gerð þessara leikrita var ákveðin á norrænu þingi barna- og unglingadeilda útvarps- stöðvanna og var ákveðið að efnið ætti að vera einn dagur í lífi tíu ára barns. Var valið til meðferðar „einmana barn“ og til nánari afmörkunar á hug- takinu var væntanlegum rit- höfundum bent á fimm efni til úrvinnslu: Fatlað barn, fyrsta ástin, einmana innan hópsins, einmana meðal fullorðinna og vilji eða þrá til eða eftir ein- semd. Að öðru leyti voru höfundum ekki settar skorður. Á þinginu í Finnlandi, sem haldið var fyrir tveimur árum, var rætt um hvort taka ætti til umfjöllunar sérlega viðkvæm eða sár efni í þáttum fyrir börn og unglinga. Þingið taldi að það væri ekki einungis rétt að taka slíkt heldur einnig skylt að taka til meðferðar verk sem sýndu raunveruleikann í lífi barna. Fullorðnu fólki kann oft að virðast sem ýmis atvik í lífi barna séu ekki tilefni mikilla tilfinningasveiflna þótt börn- um virðist sömu atvik stór- fengleg. Talið er að börn séu meira einmana en fullorðnir og eigi óhægara um vik að rjúfa einsemd sína. Segja má að leikrit fyrir börn hafi frá upphafi þróazt eftir nokkurn veginn sömu reglum og sögugerð fyrir þau. Fyrst ævintýrið og síðan skemmtileg og spennandi leikrit. Fyrir nokkrum árum fór að bera á leikritum sem voru af félags- legum toga spunnin, bæði fyrir fullorðna og börn. Þau leikrit hafa þó tekið miklum breyting- um frá upphafi. Flokkur þessara norrænu barnaleikrita, sem flutt verða í útvarpinu næstu vikurnar, má teljast félagsleg eðlis, þar eð þeim er ætlað að sýna myndir úr veruleika barna. Höfundur íslenzka fram- lagsins, er við fáum að heyra í dag, Oddur Björnsson, hefur ekki áður lagt áherzlu á að skrifa fyrir börn en ein barna- bók eftir hann hefur þó komið Sjónvarp íkvöld kl. 20.30: Læknarnir komnir aftur Nú eru vinir okkar læknarnir komnir á skjáinn aftur en sjónvarpið hefur fest kaup á þrettán þáttum með þeim félögum. Fyrsti þátturinn er á dagskránni í kvöld kl. 20.30. Þýðandi er Stefán Jökulsson. Læknaþátturinn er sendur út í lit. -A.Bj. út. Er það í Krukkuborg sem kom út árið 1969. Oddur hefur skrifað leikrit bæði fyrir leiksvið, útvarp og sjónvarp og hlotið mikið lof fyrir. -A.Bj. Höfundurinn Oddur Björnsson er þarna ásamt Svanhildi Óskars- dóttur og Jóhönnu Jónsdóttur sem fara með aðalhlutverkin í leikritinu í dag. DB-mynd Bjarnleifur. Arður til hluthafa Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Verzlunarbanka íslands hf. þann 26. marz sl. verður hluthöfum greiddur 13% arður af hlutafé fyrir árið 1976 frá innborgunardegi að telja. Greiðsla arðsins hefir verið póstlögð í ávísun til hluthafa. Verói misbrestur á móttöku greiðslu eru hluthafar beðnir að hafa samband viö aðalgjaldkera bankans. Reykjavík, 1. apríl 1977 Verzlunarbanki íslands bf. Sjónvarp íkvöld kl. 20.55: Úr einu íannað Farið í heimsókn á Vestfirði —einnig kémur í heimsókn kynvilltur Reykvíkingur Ur einu í annað er á dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl. 20.55. Umsjónarmenn eru Berglind Asgeirsdóttir og Björn Vignir Sigurpálsson. ,,Við fórum í heimsókn vestur á Isafjörð og til Bolung- arvikur," sagði Berglind er við spurðum hana hvaða efni yrði í þættinum. „Meðal annarra kemur prest- urinn í Bolungarvík fram í þættinum, séra Gunnar Björns- son, en hann er aðalmúsíkant- inn á staðnum. Hann er sonur Björns R. Einarssonar, hins kunna hljómlistarmanns. Séra Gunnar leikur á selló. Það verður einnig efni frá Reykjavík i þættinum. Meðal annars verður næsta óvenju- legt viðtal en i heimsókn kemur maður sem er kynvilltur. Hann hefur dvalizt langdvölum er- lendis m.a. í Englandi, og þar vann hann fyrir samtök kyn- villtra um skeið. Hljómsveit þáttarins, Magnús Ingimarsson og félagar hans, leika lög eftir' Gylfa Þ. Gíslason," sagði Berglind. -A.Bj. Berglind Asgeirsdóttir og Björn Vignir Sigurpálsson stjórnendur þáttarins Ureinu í annað. DB-mynd Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.