Dagblaðið - 02.04.1977, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977.
Gamla fólkið skemmtir sér f Garðinum:
Engin ellimörk að s/á
„Þátttaka aldraða fðlksins er
alveg að sprengja samkomuhúsin
utan af starfseminni,“ sagði Matti
Ó. Ásbjörnsson, formaður
Styrktarfélags aldraðra á Suður-
nesjum, þegar við litum inn á
síðdegissamkomu félagsins í
Garðinum. ,,Hér er húsfyllir eins
og þú sérð.“ Og það var orð að
sönnu. Hvert sæti var skipað og
gamla fólkið drakk kaffi og gæddi
sér á kökum og tertum sem ný-
stofnuð deild í Garðinum, Þörfin,
lagði til en deildin annaðist sam-
komuna að öllu leyti.
Innan tíðar hófust skemmtiat-
riði, söngur, gamanmál og hljóð-
Auglýsing
Að gefnu tilefni vekur sjávarút-
vegsráðuneytið athygli grásleppu-
veiðimanna á ávæðum leyfisbréfa
þeirra um leyfilegan hámarksneta-
f jölda í sjð og merkingu neta.
Ráðuneytið mun nú á rtæstunni láta
fara fram athugun á því, hvort ákvæði
þessi séu brotin, og munu brot varða
tafarlausri leyfissviptingu.
Sjóvarútvegsráðuneytið
31. mars 1977.
Auglýsing
frá Pöst-og símamálastjórninni
Að gefnu tilefni vill Póst- og síma-
málastjórnin vekja athygli á því að
samkvæmt reglugerðarákvæði er
óheimilt að hylja með ógagnsærri
hlifðarkápu upplýsingar, sem prent-
aðar eru á forsíðu- og baksíðukápur
símaskrárinnar.
Póst- og símamólastjórnin.
Tilkynning
Með stofnsetningu heilsugæzlu-
stöðvar í Árbæjarhverfi hefur verið
afmarkað heilsugæzlusvæði innan
Reykjavíkurumdæmis, og skulu íbúar
þessa svæðis í borginni sækja læknis-
þjónustu til stöðvarinnar, þegar hún
er tekin til starfa.
Heilsugæzlusvæðið afmarkast af
þeim hluta Reykjavíkurborgar er
liggur norðan og austan Elliðaár og
Elliðavatns.
Vegna þessarar breytingar skulu
íbúar þessa svæðis, er nú eru skráðir á
lista starfandi heimilislækna í
borginni og ekki óska að sækja læknis-
þjónustu í heilsugæzlustöðina, snúa
sér til Sjúkrasamlags Reykjavíkur
innan mánaðar frá birtingu þessarar
auglýsingar, með skriflegri ósk um að
þeir verði áfram á listum þeirra
heimilislækna, er þeir hafa haft.
Heilsugæzlustöðin mun taka til
starfa þriðjudaginn 12. apríl.
Sími stöðvarinnar, 71500, verður
opinn frá 9-5 daglega, frá mánudegin-
um 4. apríl.
Reykjavík, 31. marz 1977.
Heilbrigðismálaráð
Reykjavíkurbor'gar
Borgarlœknirinn Sjúkrasamlag
í Reykjavík Reykjavíkur
færasláttur og ekki var svo sem
nein ellimörk aö sjá á þeim er
þar tróðu upp. Að lokum var stig-
inn dans af miklu fjöri og pörin
svifu um gölfið létt og leikandi —
sem ung væru. Eins konar ferða-
skrifstofa var starfrækt í sam-
komuhúsinu. Aldraða fólkið gat
látið skrá sig þar í ódýra suður-
landaferð með Sunnu á komandi
sumri og var mikil ösin hjá
„ferðamálaráðinu".
Styrktarfélagið hyggst efna til
vorfagnaðar í Stapa hinn 23. apríl
og bjóða þangað helztu frammá-
mönnum bæjar- og sveitarfélaga á
Suðurnesjum, en alls munu verða
samtals 10 samkomur áður en
starfsárinu lýkur í maí.
Á samkomunni tætti Hinrik í
Merkinesi af sér brandarana og
fór með frumsamdar vísur og við
náðum einni. Hinrik kom í ,,ríkið“
og ætlaði að greiða vöruna með
ávísun — en:
Ekki ganga i áfengið
ávísanableðlar,
en gjaldið sem þið gleypið við
eru gervikrónuseðlar. — emm
Matti Ó. Ásbjörnsson t.h. sést hér kynna næsta skemmtikraft, Hinrik í Merkinesi, sem „sló i gegn“ með
gamanmálum. Ljósm. DB emm.
Barið að dyrum i Kópavogi
Kópavogsbúar eiga von á því
að í dag eða á morgun verði
knúið dyra hjá þeim og þeir
beðnir um aðstoð við Félag ein-
stæðra foreldra með því að
kaupa happdrættismiða. Það
eru félagar í Lionsklúbbnum
Muninn í Kópavogi sem á
dyrnar knýja og með því fram-
taki rétta þeir Félagi einstæðra
foreldra hjálparhönd.
Happdrætti FEF er ætlað að
standa undir breytingu og lag-
færingu á húsi félagsins að
Skeljanesi 6. En jafnframt lag-
færingunni verður húsinu
breytt þannig að gerðar verða
sex litlar íbúðareiningar.
Hugmyndin er að starfrækja
þarna neyðarheimili fyrir
einstæða foreldra með börn þar
sem þau geta dvalið unz úr
rætist fyrir þeim.
Lionsfélagarnir benda á að
margir Kópavogsbúar séu í
FEF og með því að kaupa miða
af Lionsmönnum styðji Kópa-
vogsbúar sína eigin með-
bræður. Meðal vinninga í happ-
drættinu er litasjónvarp.
Dregið verður 6. apríl.
-ASt.
Sýning íNorræna hiísinu
Ekki fólk heldur hlutir
— Gunnlaugur Stefán Gíslason sýnir
Á myndum Gunnlaugs
Stefáns Gíslasonar er ekki fólk
heldur hlutir sem fólk hefur
verið að handfjatla einhvern
tima á ævinni. Til dæmis málar
hann gamlar og ljótar fötur sem
enginn vill eiga lengur. Fyrir-
myndirnar eru eins margar og
myndirnar.
Gunnlaugur Stefán sýnir
verk sín um þessar mundir í
Norræna húsinu. Það eru 38
vatnslitamyndir.
Listamaðurinn hef’úr tekið
þátt í samsýningum í Reykjavík
og Hafnarfirði. Einnig átti
hann myndir á Listahátíð 1970 í
Reykjavík og á farandsýningu
sem fór um Norðurlönd og bar
nafnið Fjórar kynslóðir í ís-
lenzkri myndlist .
Gunnlaugur Stefán stundaði
nám í Myndlista- og handíða-
skólanum i tvö ár.
Sýningin verður opin alla
daga frá klukkan 15—22.
-KP
Fjáröflun vegna hús-
breytinga Félags
einstæðra foreldra
Á sl. ári festi Félag einstæðra
foreldra kaup á húseign í
Skerjafirði. Ætlunin er að þar
verði i framtíðinni svokallað
neyðarhúsnæði félagsins. Mikl-
ar breytingar var nauðsyn-
legt að gera á húsinu og eru
þær kostnaðarsamar. Félagið
hefur því efnt til skyndi-
happdrættis til þess að standa
straum af breytingunum. Meðal
vinninga í happdrættinu eru
litasjónvarp, ruggustóll, viku-
dvöl í Kerlingarfjöllum, páska-
ferð á Snæfellsnes, málverk
eftir Hring Jóhannesson og
listaverk eftir Sólveigu Eggerz
og ýmislegt fleira.
Dregið verður 6. apríl.
Lionsfélagar í klúbbnum
Muninn í Kópavogi ætla að
aðstoða félagsmenn við sölu
miðanna. Aðrir, sem vilja
aðstoða við sölu miðanna, eru
beðnir að hafa samband við
skrifstofu félagsins í Traðar-
kotssundi.
-A.B.j.
Hvernig
baka konur
lögreglu-
manna?
Lögreglukórinn starfar nú
af miklum krafti eins og oft
áður en kórinn hefur áunnið
sér frægð bæði innanlands og
utan.
Konur lögreglumanna sem
kórinn skipa styðja þá og
styrkja í starfi þeirra og sýna
það í verki á morgun. Efna
þær til kökubasars kl. 14 á
morgun, sunnudag, í
Templarahöllinni við Eiríks-
götu. Þá geta menn fengið að
vita hversu góðar kökur eigin-
konur lögreglumanna baka.
-ASt.