Dagblaðið - 02.04.1977, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 02.04.1977, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977. Frú Leah Rabin forsætisráð- herrafrú Israels átti ólöglegan bankareikning í Bandaríkjun- um. vera búið að loka honum fyrir löngu ef farið hefði verið að lögum. Það var ekki gert og ,,svindlið“ komst upp og stóð þvert yfir forsíður blaðanna í ísrael. Frúin sagðist ekki hafa lokað reikningi sínum vegna þess að hún ætlaði að greiða ýmsa reikninga frá því hún var í Washington með upphæðinni sem á honum var. Þegar upp komst um reikn- inginn ákvað frú Rabin að gefa peningana sem inni á honum voru til styrktar vangefnum börnum. Fimmtíu dollararnir sem blaðamaðurinn lagði inn á reikninginn fóru sömu leið. Þegar frúin afhenti peningana sagði hún að það væri bara mannlegt að gera mistök og hún væri ekki undanskilin. Hlýtur sömu refsingu og allir aðrir Rabin forsætisráðherra sagði, þegar málið komst upp, að konan sín fengi sömu refs- ingu og allir aðrir sem gerðust brotlegir á þennan hátt. Refsingin er sú að hún verður að greiða sekt sem nemur 35 sentum af hverjum dollar sem hún átti á bankareikningi er- lendis. Brot frú Rabin er ekki talið alvarlegt vegna þess að það þykir sjálfsagt að eiga peninga erlendis ef þess er nokkur kostur. Þúsundir Israela eiga peninga á reikningum erlendis. Það er mikil verðbólga og hver reynir að bjarga sér sem bezt hann getur. Gjaldeyrir er takmarkaður til ferðamanna í ísrael eins og hér á landi. Hver ferðamaður fær 450 dollara þegar hann fer úr landi. Það skiptir ekki máli hve láta launastéttirnar bera hinar sameiginlegu félagslegu byrðar að meginhluta. Arðránið sem hér um ræðir felst meðal annars í meira eða minna duldum milliliðagróða og geigvænlegum skattsvikum og skattaívilnunum í skjóli gloppóttra laga sem eru bein- línis samin með það fyrir augum að vernda braskara og gera þeim kleift að smeygja sér undan hinum samfélagslegu skyldum. Látlaus klifun á ágæti frjálsrar samkeppni hefur svo að segja upprætt alla félagslega ábyrgðartilfinningu og gert íslenskt þjóðfélag að dæmi- gerðu arabísku basar-samfélagi þar sem allir leitast við að græða á öllum með hverju því ráði sem tiltækt er, en öll félagsleg samkennd og ábyrgð er ýmist gerð hlægileg eða bannhelg. Spegilmynd þessa þjóðfélags- ástands er að finna í tveimur stærstu stjórnmálaflokkum landsins, sem braskaralýðurinn hefur bókstaflega lagt undir sig og rekur eins og hver önnur braskfyrirtæki. Braskaraklíkan sem ræður Framsóknarflokkn- um í Reykjavík er kannski oft hann fer. Þess vegna eiga margir, sem fara oft erlendis, töluverða upphæð í bönkum víðs vegar í heiminum. Þegar uppvíst varð um bankareikning frú Rabin, var upphæðin á honum sögð vera vasapeningar. Einnig er haft eftir blaðamanni í Tel Aviv að allir sem hann þekki eigi svona reikninga víðs vegar um heim og hann einnig. Því erþettamál ekki talið mikilvægt í augum almennings í Israel. Barótta gegn spillingu í kosningabaráttu sinni lagði Rabin ríka áherzlu á það að koma í veg fyrir spillingu og fjármálabrask. Sérstaklega lagði hann áherzlu á áb gæta þess að koma í veg fyrir þetta hjá opinberum starfsmönnum. Vegna þessarar baráttu sinnar varð málið um bankareikning konu hans miklu alvarlegra en það var í raun og veru. Það gat haft sín áhrif í kosningabarátt- unni og jafnvel komið í veg fyrir að hann yrði endurkjör- inn forsætisráðherra. Ein af sterku hliðum for- sætisráðherrans var hreinskilni hans og heiðarleiki. Hvergi gátu andstæðingar hans grafið upp neitt misjafnt um hann. Þetta var því gott tækifæri til að setja svartan blett á hann. Kosningar í maí Kosningar verða i ísrael í maí nk. Enn sem komið er hefur stjórnarandstaðan ekki notfært sér misferlið í fjár- málum frú Rabin. Forsvars- maður stjórnarandstöðunnar Ehud Olmert hefur skipað rannsókn á málinu. Þá verður athugað hvort saga frúarinnar er sönn. Hvort þessi reikningur hefur verið til síðan þau hjón bjuggu í Washington. Olmert hefur gefið í skyn að ef kæmi í ljós að svo væri ekki væri málið það alvarlegt að ef til vill not- færðit stjórnarandstæðingar sér það í kosningabaráttunni. Ef saga frúarinnar er sönn þá er erfitt að gera eitthvað mikið úr málinu. Almenningur í landinu lítur ekki alvarlega á hliðstæð mál þó svo að fólk opni reikning einungis til þess að bjarga peningum sínum frá verðbólgubálinu sem geisar heima fyrir. Kjallarinn Sigurður A. Magnússon grímulausasta dæmið um þetta allsherjarástand, en árlegar greiðslur viðskiptafurstanna í flokkssjóð Sjálfstæðisflokksins er síst geðslegra dæmi, þó þær fari frani að tjaldabaki. Eitt af auðkennum islensks þjóðfélags er heildsalastéttin Mestmegnis Moll og dálftill dúr! Hefði ég verið beðin með fyrirvara að skrifa þennan pist- il um sjónvarpsdagskrána frá föstudagskvöldi til miðviku- dagskvölds, hefði ég vafalaust tekið verkefnið svo alvarlega, að ég hefði setið við kassann allan tímann með andlitið í spekingslegum stellingum eins og sönnum gagnrýnanda ber að gera. En kannski var eins gott að svo var ekki, því aðeins örfá dagskráratriði þessa daga héldu athygli minni, hitt fór fyrir ofan garð og neðan, þó yfirleitt væri kveikt á tækinu, svona af gömlum vana. En byrjum þá á föstudags- kvöldinu. Þó ég hafi engan sér- stakan áhuga á skák, þá reyni ég að fylgjast með og hef meira að segja haft gaman af að horfa á skákskýringaþættina að loknum fréttum. Skyldi þá ekki forföllnum skákáhugamönnum finnast þeir hápunktur dag- skrárinnar? Kastljósið er ákaf- lega misjafnlega líflegt og það á föstudaginn hlýtur að hafa verið með þeim daufari, því ég man ekki einu sinni um hvað var fjallað. Með allri virðingu fyrir sögunni um Moll F’landers, þá finnst mér höfundur hennar hafa gert betur, þegar hann skrifaði um Róbinson Krúsó. Helmingurinn af Moll hefði nægt, hvað lengd- ina varðar. Eg veit um fólk, sem féll í dúr undir Moll! Ég skil ekki almennilega þá ráðstöfun að klippa sundur íþróttaþáttinn á laugardögum. Getur þessi framhaldsmynd ekki komið á undan? Annars fannst mér þessi Christensens- saga ósköp þung og dapurleg. Hótel Tindastóll á hins vegar líklega ekki að vera það, en þar finnst mér skotið gróflega yfir markið, því vitleysan er svo ýkt, að manni gremst það. Ekki bætir úr, að einhver hópur af fólki hlær og flissar, líklega til að benda áhorfendum vinsam- legast á, að hér eigi þeir að hlæja líka. Sunnudagurinn var allur úr skorðum. fyrst Húsbændurnir og hjúin birtust ekki á sínum rétta tíma, og ekki lagaðist það, þegar óviðráðanlegar orsakir réðu því að þau komu ekki heldur á nýja tímanum. Hvaða orsakir það voru fékk enginn að vita. Eg var búin að hlakka svolít- ið til að sjá heimsókn sjón- varpsmanna til Akureyrar, þar sem mér er málið skylt, en ég varð fyrir vonbrigðum. Þáttur- inn var þurr og gaf alls ekki rétta mynd af Akureyri. Maður skyldi ætla að í þeim bæ lifðu allir lífinu í einhverjum sér- félögum eða klíkum og kæmu aldrei saman nema á skíðum! Skordýraþættinum sleppti ég, vil heldur horfa á stærri og þekkari dýr. Á mánudags- kvöldið kom ég mér í rúmið, frekar en sofna í ruggustólnum út frá óskaplega mæddum dön- um. Reykingaþátturinn á þriðju- dagskvöldið: Er ekki komið nóg af þessu í sjónvarpinu? Of mikill áróður getur sannarlega verkað öfugt. Undanfarið hefur verið fjallað svo um reykingar í Kastljósi, Stundinni okkar, fréttum og framhaldsþáttum, að það er ekki hætta á að maður gleymi pakkanum í bráð. Og von er á meira! Colditz var rétt sæmilega spennandi og myndin um lasergeislann fróðleg. Bangsinn Paddington er sjálfum sér líkur og vonandi hafa börnin gaman af honum, þau fá ekki of mikið af skemmtilegu efni um þessar mundir. Ballettskórnir finnst mér hálfeinkennileg mynd og get ekki ímyndað mér til hverra hún höfðar. 1 nýjustu tækni og visindum er oft margt forvitni- legt að finna en Wimsey lávarður finnst mér einhver óspæjaralegasti spæjari, sem upp hefur verið fundinn. F’rönsku þættirnir um stjórn- málin frá stríðslokum eru hins vegar mjög vandaðir og heill hafsjór af fróðleik. Þá ætti eng- inn aó láta fram hjá sér fara. Niðurstaðan: Hvar er skemmtiefnið? Líklega hef ég bara hitt á svona slæma sjón- varpsdaga: enginn bleikur pardus og prúðu leikararnir Snjölaug Bragadóttir ekki fyrr en í næstu viku. Eg minnist þess ekki að hafa brosað nema pínulítið að Beggu og einstaka skrýtnum karli í myndinni um Moll Flanders. En maður vonar alltaf að þetta verði líflegra í næstu viku og sýnist mér það að minnsta kosti á dagskránni. Þá byrja aftur myndirnar um læknana, vini okkar, og bíómyndirnar virðast vera þess virði að horfa á þær. Enda er ekki nema ein leið til, þegar ekki verður komist neðar: Upp! Úr myndinni um Moll Flanders. sem hér hefur meiri efnahags- leg og pólitísk völd en dæmi eru til nokkurs staðar annars í nágrannalöndum. Breskur sér- fræðingur sem hingað kom til að kynna sér efnahagsmál komst að þeirri niðurstöðu, að umsvif heildsala hérlendis hækkuðu verðlag um 10—15% á innfluttum varningi. Það er þannig engin smáræðisfúlga sem þessi óþarfi milliliður sópar til sín. Breski sér- fræðingurinn kvað heildsala vera löngu úrelt fyrirbæri í Bretlandi og öðrum Evrópu- ríkjum, og sömu sögu er reynd- ar að segja frá Bandaríkjunum. Þegar ég var að þýða hið snjalla ljóð Stefáns Harðar Gríms- sonar, „Dans á sandi“, vestur í Ameríku í vetur og þurfti að snúa línunum „sá ég hvar drott- inn máttugur kom vestan fló- ann riðandi á brokkgengum heildsala og lamdi fótastokk- inn“ þá var hugtakið „heild- sali" (wholesaler) nánast óskiljanlegt bandarískum les- endum þó það væri til í málinu: það hefur hefur enga merk- ingarbæra skírskotun í háborg auðvaldsheimsins! Ég varð því að breyta heildsalanum í fésýslumann (businessman) svo að ljóðlínan yrði bandarísk- um lesendum skiljanleg. Heildsalastéttin er að vísu einungis hluti þess marghöfða viðskiptabákns sem hrifsar til sín bróðurpartinn af þjóðar- tekjum islendinga, meðan þeir sem verðmætin skapa lepja flestir dauðann úr skel, en áhrif hennar og völd eru víðtæk og standa raunverulegu lýð- ræði og tekjujafnrétti í landinu fyrir þrifum. Þegar þess er gætt að stærsta blað lands- manna, Morgunblaðið, er eign og verkfæri nokkurra helstu heildsölufyrirtækja landsins (Garðar Gíslason hf., H. Bene- diktsson hf, J. Þorláksson & Norðmann hf., O. Johnson & Kaaber hf), þarf engan að undra þó Island sé gósenland stéttar sem með öðrum þjóðum er sögulegur forngripur. Þetta skelegga málgagn milli- liðagróða og sérhagsmuna hefur að undanförnu boðað þá kenningu með viðeigandi hót- unum, að verði kjör láglauna- stéttanna bætt til þeirra muna, að þær geti leyft sér brýnustu nauðsynjar, muni verðbólgan mögnuð og allar kjarabætur að engu gerðar með þeim belli- brögðum valdastéttanna sem hér hefur verið beitt linnulaust i hartnær fjóra áratugi. í Bandaríkjunum er kaupmáttur launa slíkur, að iúeðallaun eru tvö- til þrefalt hærri en hér- lendis og verðlag á daglegum nauðþurftum að minnsta kosti þrefalt lægra, að ekki sé minnst á munaðarvarning sem er margfalt ódýrari en hér. Samt er verðbólga þar í • lágmarki miðað við önnur vestræn ríki og atvinnuleysistryggingar það háar, að menn lifa sæmilegu lífi af þeim. Nú er vitaskuld ekki allskostar sanngjarnt að taka mið af auðugasta ríki heims, en mergurinn málsins er sá að þar er aukinn kaupmáttur talinn örva heilbrigt efnahagslíf. Hitt ættu íslenskir kjósendur að hugleiða í fullri alvöru, að sá geigvænlegi lífskjaramunur sem hér hefur verið lögleiddur á sér annarlegar orsakir sem fyrst og fremst ber að leita hjá þeim fjármálaöflum sem ráða Iveimur stærstu stjórnmála- flokkum landsins og málgögn- um þeirra. Sigurður A. Magnússon rithöfundur

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.