Dagblaðið - 02.04.1977, Page 14

Dagblaðið - 02.04.1977, Page 14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977. 14 JKG svarar Þráni Sigfússyni: Hann hlýtur að hafa veríð alveg sérstaklega illa fyrírkallaður” Á miðvikudaginn birtist á poppsíðu Dagblaðsins svarbréf Þráins Sigfússonar stud. art. á Eiðum við útlistunum JKG á hljómsveitinni Jörlum. JKG brá hart við og skrifaði á methraða svarbréf við svarbréfinu og fer það hér á eftir: Við lestur bréfsins frá stud. art. á Eiðum, nánar tiltekið Þráni Sigfússyni, sem birtist I Dagblaðinu 30. marz sfðastlið- inn, komst ég ómögulega hjá þvf að mynda mér þá skoðun, að maður nokkur á Austfjörðum (engin nöfn eru nefnd í þvf sambandi) sé annaðhvort stðr- skrýtinn eða með ákaflega lé- legan húmor nema hvort tveggja sé, sem ég tel einna líklegast á þessu stigi málsins. Þráinn gerir smáveður út af „djókgrein" um hljómsveit, sem hét Jarlar og birtist á Poppsíðu Dagblaðsins einhvern tíma fyrir löngu síðan. Ekki ætla ég að fara að deila við Þráin um gæði hljómsveitar, sem er hætt fyrir löngu en aftur á móti langar mig til að biðja hann að fylgjast örlítið betur með því sem er að gerast í kringum hann og fara ekki að halda því fram í blöðum eða öðrum fjölmiðlum — ef hann skyldi rekast á hrósgrein um Hljómsveit Svavars Gests í ein- hverju gömlu og löngu úreltu Morgunblaði — að hljómsveit- irnar Heródes og Öpera séu miklu betri og snjallari en Hljómsveit Svavars Gests. Það er langskemmtilegast að blanda ekki nútíðinni saman við fortíð- ina í þessum málum frekar en öðrum. Þó að ég ætli ekki að deila við Þráin Sigfússon um löngu hættar hljómsveitir þá vil ég leiðrétta hans furðulega bréf á stöku stað því að þar er ákaf- lega mikið af bulli og öðru álíka. Til dæmis skrifar Þráinn eftirfarandi orðrétt: „Ég vil byrja á að leiðrétta þann mis- skilning sem þar kom fram, að Jarlar séu frábærlega góð hljómsveit því að það er alls ekki rétt.“ Ég vil benda á að hvergi í „djókgreininni" minni minnist ég einu orði á að Jarlar séu góð hljómsveit, hvað þá frábærlega góð. Þvert á móti stóð þar ein- mitt að aldrei hafi verið stofn- uð góð hljómsveit á Aust- fjörðum, — að undanskilinni hljómsveitinni Amon Ra frá Neskaupstað. Ég er hræddur um að annaðhvort hafi Þráinn hlaupið yfir línur eða jafnvel blaðsíður við lestur Dag- blaðsins þann dag sem greinin mín birtist eða að hann hafi verið alveg sérstaklega illa fyrirkallaður. Ég votta honum samúð mína hér með. ef svona r J ÁSGEIR m TÓMASSON L- K nokkuð kemur oft 'fyrir hjá honum og óska honum þá í leið- inni skjóts bata. Seinna í bréfi sínu verða Þráni svo á öllu eðlilegri mistök er hann skrifar: „Það er mjög stutt mál að telja upp kosti þeirra (Jarla), því að þeir eru engir." Og hann er ekki fyrr búinn að fullyrða eitt en næsta fullyrðing kemur og skrifar hann þar með þvert ofan í sjálfan sig:,,Eini meðlim- urinn, sem eitthvað getur spilað, er Snorri ÖIversson.“ Alls staðar þar sem ég þekki til er það talinn kostur að geta spilað eitthvað og vona ég að slikt sé einnig á Eiðum. Annars leyfi ég mér að fullyrða að ef Jarlar sáluðu hefðu ekki haft Einsdæmi á Austurlandi „LOÐNUTEMPÓ” Meðan hljómsveitir í hinum róstusama poppheimi Islend- inga koma og fara eða heilsa og kveðja hefur ein austfirzk hljómsveit staðið af sér alla völundarsmið og heródesar- dóma. Það er hljómsveitin Einsdæmi sem í vor hefur starfað nær óslitið í fimm ár. Hljómsveitin hefur haldið sig við Múlaþing hið forna og nær- sveitir. Einsdæmi var stofnuð vorið 1972. Nokkrar mannabreyting- ar hafa átt sér stað á þessum tíma. Meðal annarra störfuðu þeir Halldór Gunnarsson og Ingólfur Steinsson úr Þokka- bót með hljómsveitinni um tíma. Þeir stofnsettu Þokkabót ásamt þeim Gylfa Gunnarssyni og Magnúsi Einarssyni sem eru enn í Einsdæmi. Núver- andi liðsskipan hljómsveitar- innar er annars þessi: Gísli Blöndal leikur á trommur, Ölafur Már Sigurðs- son á bassa, söngvari er Rafn Heiðmundsson og síðast en ekki sizt eru þar Gylfi Gunnarsson og Magnús Einars- son sem leika á gítara og syngja. Allir hafa þessir menn spila- 'mennskuna að aukastarfi. Segja má með sanni að þeir standi allir í fremstu víglínu hins blómlega tónlistarlífs á Seyðisfirði. Gylfi Gunnarsson er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar, stjórnar Horna- flokki Seyðisfjarðar, kórum staðarins og er jafnframt organisti hinnar lútersk- evangelisku kirkju. Magnús Einarsson starfar sem tón- listarkennari og auk hans leika þeir Ólafur Már og Gísli Blöndal í Hornaflokki Seyðis- fjarðar. Söngvarinn, Rafn Heiðmundsson, er að sjálf- sögðu virkur í kórum bæjar- ins. Tónlistin, sem Einsdæmi flytur og hefur flutt á ferli sínum, miðast eingöngu við dansleiki og tilfallandi skemmtanir sem hljómsveitin leikur á. Sjálfir vilja Einsdæm- ingar flokka tónlist sína undir skilgreininguna „popprokk- popp“ með léttu sveiflu- kenndu ívafi, auk rammís- lenzkrar sveitatónlistar. Aðrir sérfræðingar á þessu sviði telja tónlistina bera keim af „soðkjarnarokki“ með föstu loðnutempói. Hljómsveitin Einsdæmi æfir nú á fullum dampi og hyggst koma sterk undan snjónum í vor. fleiri kosti en þann einn að Snorri ölversson gæti spilað eitthvað þá hefðu þeir ekki haft jafnmikið upp úr spila- ævintýri sínu og raun ber vitni. Einn Jarlafélaginn sagði mér einhverju sinni að nettöhagn- aður sinn hefði verið 498 þús- und og sjö hundruð krónur og tvær brauðsneiðar. Margt fleira fjallar Þráinn Sigfússon um í bréfi sínu. Um það vil ég segja að margar hljómsveitir áttu fremur skilið að komast á lista yfir björtustu vonir ársins 1976 en Heródes frá Fáskrúðsfirði. Þá er nokkr- um orðum farið um Óperu frá Þorlákshöfn. Ég tel það vera algjörlega út í hött að lofsama einhverja hljómsveit upp úr öllu eðlilegu valdi fyrir það eitt að hún skuli ekki misþyrma einu einasta lagi. Hingað til hefur það eitt ekki þótt ástæða til að hlaupa út um víðan völl með dásemdarorð á vörum. Með fullri virðingu fyrir Sigurvin Þorkelssyni þá á hann langt i land með að verða einn af tíu beztu trommuleikurum landsins. Áður er ég hræddur um að hann verði að sýna að hann sé betri en til dæmis Sigurður Karlsson, Hrólfur Gunnarsson, Pétur östlund, Jón Gíslason, Ólafur Garðars- son, Sir Viðar Júlí Ingólfsson, Ragnar Sigurjónsson, Erlendur Svavarsson, Ásgeir Óskarsson, Guðmundur Steingrímsson, Ölafur Kolbeins eða Ólafur Helgason, svo að nokkrir séu nefndir. Vonandi á Sigurvin Þorkels- son eftir að sýna það og sanna að hann sé einn af tíu beztu trommurum okkar. Áður er ég hræddur um að hljómsveit hans, Ópera, verði að tileinka sér dálítið flóknari músík en hún leikur núna því að hún er ekki vel til þess failin að sýna hæfni meðlimanna á hljóðfæri sín. Ég óska samt Óperu alls hins bezta í framtíðinni, svo og Þráni Sigfússyni. JKG r Verzlun Verzlun Verzlun j Skrifborðssett ímismunandi litum. Húsgagnaverzlun Reykjavíkur Brautarholti 2 — Símar 11940 -12691 INNRÉTTINGAR. Smíðum eldhúsinnréttingar, fataskápa, innihurðir o. fl. Gerum teikningar og föst tilhoð. Leggjum áherzlu á að gera viðskiptavini okkar ánægða. Hagstæðir greiðsluskil- málar. ÁRFELL II.F. Súðarvogi 28-30, Arni B. Guðjónsson húsgagnasmíðameistari. Simi 84630. Ferguson litsjónvarps- tœkin- Amérískir inlínu myndlampar. Amerískir transistorar og díóður ORRI HJALTASON Hagamel 8, sírai 16139. B0RGARLJ0S — Sími 82660. Grensásvegi 24 I Loftlampar frá kr. 1450.- Vegglampar frá kr. 2650.- Borðlampar ekta marmari frá kr. 15.000,- Baðherbergislampar frá kr. 1380,- IVJJÖG HAGSTÆTT VERÐ. Húsgögn við! allra hœfi Sófasett verð kr. 178.500,- Góöir greiðsluskilmálar eöa stað- greiðsluafsláttur. ^6'>gö0<* SEDRUS Súðarvogi 32 Simar 8-40-47 og 3-05-85 A . ^5GÖ0 Hlaðriím, bæsuð ígrænu, rauðu, briínu og viðarlit Húsgagnaverzlun Reykjavíkur Brautarholti 2 — Símar 11940 -12691 Þetta geturþú sjálfur gert- fyrir lítið... System Plus er raðað saman úr 3 mismunandl staarðar- einlngum og festingum. Bseklingur J|f tyrirllgg|«ndl Jll SKÚUSMIJÍKSSM BlLDSH0FOÍ18 SÍMI30543 FÖNDUR GEYMSLA FORSTOFA VINNUPLASS VleikplAss SVEFNHERBERGI BARNAHERBERGI STOFAJ

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.