Dagblaðið - 02.04.1977, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977.
Sindbad og
sœfararnir,
Spennandi ævintýrakvikmynd.
Isl. texti.
Sýnd kl. 4.
1
TÓNABÍÓ
Allt, sem þú hefur viljað
vita um kynlífið, en hefur
ekki þorað að spyrja um.
(Everything you always wanted
to know about sex, but were
afraid to ask)
Sprenghlægileg gamanmynd gerð
eftir samnefndri metsölubók Dr.
David Reuben.
Leikstjóri: Woody Allen
Aðalhlutverk: Woody Allen, John
Carradine.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
1
AUSTURBÆJARBÍÓ
8
ÍSLENZKUR TEXTI
í klóm drekans
(Enter the Dragon)
Nú er Siðasta tækifærið að sjá
þessa æsispennandi og langbeztu
karate-mynd sem gerð hefur
verið.
Aðalhlutverk: Karateheims-
meistarinn BRUCE LEE
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
ATH. Myndin verður aðeins sýnd
yfir helgina.
1
GAMIA BIO
8
Rúmstokkurinn
er þarfaþing
Sýnd kl. 7.
Síðasta sinn.
Stóltaugar
Spennandi ný bandarísk mynd
með frægustu bílaofurhugum
Bandaríkjanna.
Sýnd kl. 5 og 9.
BÆJARBÍÓ
8
Sinw 50184
Leiktu M fyrir mig.
Geysispennandi mynd. Aðalhlut-
verk Clint Eastwood.
Islenzkur texti.
Bönnuð börnum.
sýnd kl. 5.
Jónatan máfur.
Ný bandarfsk kvikmynd. Einhver
sérstæðasta kvikmynd seinni ára.
Gerð eftir metsöiubók Richard
Back. Leikstjóri Hall Bariett.
Sýnd kl. 9.
HÁSKÓLABÍÓ
8
Frönsk kvikmyndavika
Laugardagur:
Konan við gluggann sinn
kl. 5.
Ekki rétta ástarsaqan
kl. 7.
Far vel lögga.
kl. 9.
LAUGARÁSBÍO
8
Orrustan um Midway
THE MRSCH COflPCRATCN PflESBdS
A UNIVER3AL PICTURE
TECHNICOLOR® PANAVISION®
Ný bandarísk stórmynd um mestu
sjóorrustu sögunnar, orrustan um
valdajafnvægi á Kyrrahafi í
síðustu heimsstyrjöld. ísl. texti.
Aðalhlutverk: Charlton
Heston,Henry Fonda, James
Coburn, Glenn Ford o.fl.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Laugardagsmyndin
Lady Killers
sýnd kl. 3.
Næst síðasta sinn.
Sími 11 544.
Kapphlaupið um gullið
(Take A Hard Ride)
Ilörkuspennandi og viðburða-
ríkur nýr vestri. Mynd þessi er að
öllu leyti tekin á Kanaríeyjum.
Aðalhlutverk: Jim Brown. Lee
Van Cleef.Jim Kelly og fl.
Bönnuð börnum innan 16 ára.'
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
<t
HAFNARBÍO
Simi 1 6444.
Bensi
Frábær fjölskyldumynd í litum
með Christopher Counellu og
Deborah Walley.
Leikstjóri Joe Camp.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 1, 3, 5, 7, 9ogll.
Illlllllllllllllllllll
SkemmtistaAir borgarínnar eru opnir til kl.
11.30 laugardegskvöld og til kl. 1 a.m. sunnu-
dagskvöld.
Glassibmr: Stormar loika bæði kvöldin.
Hótal Borg: Haukur Morthens leikur bæði
kvöldin.
Hótal Saga: Laugardag: Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar. Sunnudag: Sunnuskemmti-
kvöld með mat. Hljómsveit Ragnars Bjarna-
sonar leikur fyrir dansi.
Ingólfscafé: Gömlu dansarnir.
Klubburínn: Laugardag: Dóminik, Gosar og
diskótek. Sunnudag: Kaktus og diskótek.
Laikhúakjallarínn: Skuggar leika bæði kvöldin.
Undarbœr: Gömlu dansarnir.
Óftal: Diskótek.
Saaar: Diskótek.
Sigtún: Laugardag Pónik, Einar, Ingibjörg
og Ari. Sunnudag: Gömlu og nýju dansarnir.
Pónik, Einar, Ingibjörg og Ari leika fyrir
dansi.
Skiphóll: Laugardag Cabry. Sunnudag:
Hljómsveitin Dóminik leikur fyrir dansi.
Halli og Laddi skemmta.
Tjamarbúð: Sirkus.
Tónabær: Diskótek. Aðgangseyrir 300 kr.
Aldurstakmark ^ædd 1961. MUNIÐ NAFN-
SKlRTEININ.
Þórscafé: Galdrakarlar leika bæði kvöldin.
Samtök astma- og
ofnœmissjúklinga
Skemmtifundþr verður haldinn að Norður-
brún 1 laugardaginn 2. april kl. 3. Kvik-
myndasýning, veitingar, bingó.
Ténleikar
Tónlistaskólinn
heldur tónleika í Háskólablói i dag, laugar-
dag. kl. 2.30 e.h. Stjórnandi er Marteinn
Hunger Friðriksson.
Karlakór Reykjavíkur
heidur hljómleika I lláskólabíói má
hljómle
4. april kl. 19
mánudaginn
Naskirkja: Fermingarmessa kl. 10.30 f.h. og
kl. 2 e.h. Báðir prestarnir. Barnasamkoma kl.
10.30 f.h.
Dómkirkjan: Fermingarmessa kl. 11 f.h. Séra
Þórir Stephensen. Fermingarmessa kl. 2 e.h.
Séra Þórir Stephensen.
Hallgrímskirkja: Pálmasunnudag: Messa kl. 11
f.h. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Messa kl. 2
e.h. Ferming og altarisganga. Sóknarprestar.
Landspítalinn messa kl. 10.30 f.h. Séra Karl
Sigurbjörnsson.
Laugameskirkja: Guðsþjónusta kl. 10.30 f.h.
Ferming og altarisganga. Sóknarprestur.
Fella- og Hólasókn: Barnasamkoma í Fella-
skóla kl. 11 f.h. Guðsþjónusta í skólanum kl. 2
e.h. Séra Hreinrí Hjartarson.
Árbæjarprestak all: Fermingarguðsþjónustur
og altarisganga í Arbæjarkirkju kl. 10.30 f.h.
og kl. 1.30 e.h. Barnasamkoma fellur niður.
Séra Guðmundur Þorsteinsson.
Kérsnesprestakall: Barnasamkoma i Kársnes-
skóla kl. 11 f.h. Guðsþjónusta I Kópavogs-
kirkju kl. 2 e.h. Séra Arni Pálsson
Fíladelfia: Laugardag: Almenn guðsþjónusta
kl. 20.30. Ræðumaður Enok Karlsson. Pálma-
sunnudagur. Almenn guðsþjónusta kl. 20.
Lúðrasveitin leikur. Enok Karlsson talar.
Bænastaðurínn Félkagötu 10: Samkoma ki. 4
e.h. sunnudag.
Hjélpræðisherínn: Laugardag: Kl. 2 e.h.
laugardagaskóli í Hólabrekkuskóla. Sunnu-
dag: Helgunarsamkoma kl. 11 f.h. Sunnu-
dagaskóli kl. 2 e.h. Hátíðarsamkoma kl. 20.30.
Kapteinn Daniel Óskarsson og frú stjóma og
tala.
Ásprestekall: Ferming kl. 2 síðdegis i Laugar-
neskirkju. Sr. Grímur Grímsson.
Stökk á trambolin, ny tegund fimleika,
hefur innreið sina hér. Einn af beztu fim-
leikamönnum Dana, Axel Björn kemur og
kennir hjá Gerplu í Kópavogi í páskafríinu.
Aðaláherzla verður lögð á stökk á trambolin,
einnig verður kennt á lítið trambolin og
stökk á dýnu. Honum til aðstoðar verður
Berglind Pétursdóttir en hún æfði hjá
danska trambolinsambandinu siðastliðið
sumar og tók þá grunnmerkin i þessari
skemmtilegu fimleikagrein. Námskeiðið
verður að hluta til kynningamámskeið og
verður áhugafólki gefinn kostur á, að kynna
sér áhaldið með því að koma í einn eða tvo
tíma.
Sérfh-kkar verða fyrir pilta og stúlkur á
alclrinum 14—20 ára og flokkar 20 ára og
eldri. Upplýsingar í síma 42015 og 41318 og
43782.
Haukar
halda handknattleikskeppni fyrirtækja og
stofnana um póskana. Þátttöku ber að til-
kynna i Haukahúsið, sími 53712, fyrir 3. apríl.
Framáaldsaðalfundur
Málfundarfélagsins Sleipnis Akureyri verður
í Sjálfstæðishúsinu, litla sal, laugard. 2.
apríl kl. 14. Pétur Sigurðsson alþingismaður
ræðir um atvinnu- og launamál.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
heldur aðalfund sinn i Iðnó sunnudaginn 3.
april kl. 2-e.h.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2.
Aðild Dagsbrúnar að Listaskóla alþýðu. 3.
önnur mál.
Félagsmenn fjölmennið og sýnið skirteini við
innganginn.
Bolungarvík.
Sjálfstæðiskvenfélagið Þuríður Sundafyllir
heldur aðalfund .mánudaginn 4. apríl að
Sólbergi. Fundarefni: VerTTuleg aðalfundar-
störf. Kosinn fulltúi á landsfund.
wmm
Torfusamtökin
halda útifund við Bernhöftstorfuna laugar-
daginn 2. apríl kl. 14. Ræðumenn verða m.a.
Ellert B. Schram alþingismaður. Þorbjörn.
Broddason o.fl.
Dansk kvindeklub
mödes tirsdag 4. aprll kl. 14.30 ved Háskóla
lslands hovedindgang hvor vi, efter en kort
modtagelse, vil blive vist rundt.
Kvenfélag Lógafellssóknar
Fundur í kvöld, mánudag, í Brúarlandi k|.
20.30. Sýnd verður gerð óáfengra drykkja.
Fró Nóttúrulœkninga-
félagi Reykjavíkur
Fræðslufundur verður mánudag 4. apríl nk.
kl. 20.30 i matsiofunni við Laugaveg 20B.
Erindi Breytingar á noyzluvenjum lslond-
inga. l)r. .lón (Htar Ragnarsson flvtur.
Útivistarferðir
Laugard. 2/4 kl. 13/ Eldborgir — Leiti, 600 Og
5300 ára gamlar eldstöðvar. Fararstj.
Kristján M. Baldursson. Verð 800 kr.
Sunnud. 3/4.
Kl. 11: Goitafell með Einari Þ. Guðjohnsen
eða Óseyrartangi með Sigurði Þorlákssyni
(gengið frá Hrauni til Þorlákshafnar). Verð
1200 kr.
Kl. 13: Um ölfua, m.a. komið að Grýtu í
Hveragerði og gengið um Flesjar utan Þor-
lákshafnar. Fararstj. Stefán Nikulásson.
Verð 1500 kr., frítt f. börn m. fullorðnum.
Farið frá BSÍ vestanverðu.
Snæfellsnes um páskana, 5 dagar.
Ferðafélag íslands
Laugardagur 2. apríl kl. 13.00: Gönguferð:
Sléttahllð — Búrfellsgjá — Búrfell — Kald-
ársel. Létt og hæg ganga. Fararstjóri. Gestur
Guðfinnsson. Verð kr. 800 er. v/bílinn.
Sunnudagur 3. apríl kl. 10.30: Gengið frá
Hveradölum um Lágaskarð að Raufarhóls-
helli, litið inn I hellinn i lok göngunnar.
Fararstjóri: Sigurður B. Jóhannesson. Veró
kr. 1000 gr. v/bílinn.
Kl. 13.00: Stóra Reykjafell og nágrenni.
Fararstjóri: Hjalti Kristgeirsson. Verð kr.
1000gr. v/bílinn.
Earið frá Umferðarmiðstöðinni að austan-
verðu.
Hvað segja stjörnurnar?
Spéin gildir fyrir ménudaginn 4. apríl.
Vatnsberínn (21. jan.— 19. febr.): Haltu skoðunum þín-
um á hegðun kunningja þíns algjörlega leyndum. Hafðu
framtíðaráform þfn á hreinu áður en þú ræðir þau.
Fiskamir (20. febr.— 20. mar7): Gættu vel að hvað þú
segir við unga manneskju I dag, sérstaklega þó ef þú
ætlar að tala um ástamál hennar. Þú færð óvænt
heimboð, sem þú skalt taka. Eyðslan er mikil.
Hrúturínn (21. mar?— 20. apríl): Allt bendir til að þú farir
I stutt ferðalag og mun það bjóða upp á skemmtilega
tilbreytingu. Reyndu að vera ekki of skjótráð(ur) I
viðskiptum þínum við kunningja þinn.
Nautið (21. apríl — 21. maí): Vertu varkár og reyndu að
komast hjá því að lána einhverjum af gagnstæða kyninu
peninga. Þú munt lesa eitthvað sem mun verða þess1
valdandi að þú sérð eitthvert mál i allt öðru ljósi.
Tvfburamir (22. maí— 21. júní): Einhverjir f þessu merki
verða fyrir miklum vonbrigðum þegar þeim verður
neitað um hjálp sem þeir töldu vísa. Hafðu engar
áhyggjur, þú getur auðveldlega framkvæmt þína hluti
sjálfur.
Krabbinn (22. júní—23. júli): Þú færð gott tækifæri til að
láta ljós þitt skfna og fá einhvern af gagnstæða kyninu
til að taka eftir þér. Þú færð hrós og það mun ylja þér
um hjartaræturnar.
Ljónið (24. júlí—23. égúst): Vinur pinn er að reyna að
flækja þig I einhverri deilu og fá þig til að taka afstöðu.
Forðastu þetta ástand, svo þér verði ekki kennt um allt
sem miður fer.
Meyjan (24. égúst— 23. s«pt.): Þú færð bréf þar sem þér
verður boðið að heimsækja fjarlæga borg. Einhver sem
þú hefur ekki séð lengi kemur f heimsókn. Tilfinningar
þfnar verða blandaðar þegar hann fer.
Vogin (24. sopt.— 23. okt.): Þú færð óvænt peninga sem
þú getur algjörlega eytt í sjálfa(n) þig. Láttu ekki
smáatriði fara i taugamar á þér f dag, né þreytu
eyðileggja frfstundir þínar.
Sporðdrekinn (24. okt.— 22. nóv.): Þú færð næstum
taugaáfall f dag þegar vinur þinn ljóstrar upp leyndar-
máli. Reyndu að komast hjá þvf að segja skoðun þfna á
því, þú ert á hættulegum slóðum þar.
Bogmaðurinn (23. nóv.— 20. dss.): Reyndu samninga-
leiðina áður en þú ferð í hart. Sýndu þér yngri mann-
eskju festu og ákveðni. Einhver spenna er á heimilinu.
Það er vegna stöðu stjarnanna. Þessu ástandi mun létta
fljótt.
Steingeitin (21. d«s.— 20. jan.): Einhver vinátta mun
dafna og veita þér mikla gleði. Þú verður beðin(n) um
að taka þátt í einhverjum mannfagnaði. Þú skalt játa
þessu boði ef þú mögulega sérð þér færi á því.
Afmælisbam degsíns: Þú munt eignast marga skemmti-
lega vini þetta árið. Þú ferð f fjölda smáferðalaga á
árinu, þó sérstaklega fyrri hluta ársins. Ástamálin verða
f góðu gengi þegar lfður á árið. Einhver vandræði verða f
fjármálunum en þú munt leysa úr þvf farsællega.
Bílaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur
efnir til 400 km rallíkeppni laugardaginn 9.
apríl nk. Nánari upplýsingar hjá FlB.
Aðilar sem bafa
til FRÍ
sænsk-fslenzka verzlunarfyrirtækið 25.000,
ónefnt fyrirtæki 25.000, einn „Garpa“ 10.000.
Ymsir hafa látið góð orð falla um að gefa til
FRÍ.
Víkingar — skíðafólk
Innanfélagsmót 1 svigi og stórsvigi I öllum
flokkum verður haldið 2. og 3. aprfl. Upp-
lýsingar í sfma 23269 og 37750.
Framsóknarfélag Akraness
heldur framsóknarvist I féTagsheimili sfnu að
Sunnubraut 21, næstkomandi sunnudag kl.
16.
Íslenzk matvœlakynning
er opin daglega kl. 12—22 i Iðnaðarhúsinu
við Hallveigarstig fram á sunnudagskvöld.
Aðgangur er ókevpis.
Þórður refabani fró Dag-
verðaró opnar mólverka-
sýningu.
pórður Halldórsson. refabani frá Dag-
verðará opnar málverkasýningu í Skátaheim-
ilinu i Hafnarfirði á sunnudaginn. Þórður
sýnir um fjörutfu olíumálverk sem hann
hefur málað á sl. tveimur árum.
Þórður hefur áður sýnt málverk sín bæði
hérlendis og einnig hefur hann haldið einka-
sýningu f London. Eru myndir hans til víða
erlendis, m.a. f safni Kodak-fyrirtækisins f
Bandarfkjunum.
Meðfylgjandi mynd Þórðar er máluð í Ber-
vlkurhrauni þar sem setið var fyrir Birni
Breiðvikingakappa. Eins og vera ber má
þarna sjá bæði huldufólk og álfa i hrauninu.
Samkviemt upplýsingum Þórðar er nóg af
slikum verum á Sna'fellsnesi og hefur hann
oft komi/.t i kynni við þ;er.
Kvenfélag Lögreglukórs
Reykjavíkur
heldur kökubasar í Templarahöllinni sunnu-
daginn 3. aprfl kl. 13.30.
Sjólfstœðiskvenna-
félagið Hvöt
heldur kökubasar f dag, laugardaginn 2.
apríl, kl. 2 í Valhöll, nýja Sjálfstæðishúsinu
að Bolholti 7.
Sjólfstœðisfélagið Vorboði
Hafnarfirði
heldur kökubasar f Sjálfstæðishúsinu f
Hafnarfirði laugardaginn 2. aprfl kl. 3 e.h.
Konur sem vilja gefa kökur eru vinsamlega
beðnar að koma þeim i Sjálfstæðishúsið, milli
kl. 11 og 2 þann sama dag.
Systrafélag Fíladelfíu
heldur kökubasar að Hátúni 2, laugardaginn
2. april kl. 2.30.
Hvöt, félag
sjólfstœðiskvenna,
hefur ákveðið að halda kökubasar 2. april nk.
i Valhöll. Bolholti 7. l elagskonur. er vilja'
gefa kíikur. eru vinsamlegast beðnar um að'
afhemla |»a*r nrílli kl. 10 og 12 2 april nk
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Reykjavík
heldur basar og flóamarkað laugardaginn 2.
april kl. 2 i Alþýðuhúsinu.
Konur sem vilja gefa hluti vinsamlegast hafi
sámband við Halldóru i sfma 16424 kl. 9—5.
Sonju i sima 75625 e. kl. 7 og Guðrúnu i sinui
17614 e. kl. 7.
KR-konur
halda kökubasar í KR-heimilinu við Kapla-
skjólsveg á morgun laugardag 2. apríl kl. 2
e.h. Góðar heimabakaðar kökur til páskanna.
Ljósmœðrafélag Islands
heldur kökubasar á Hallveigarstöðum laugar-
daginn 2. aprfl kl. 3 e.h. Þeir sem ætla að gefa
kökur eru beðnir að koma með þær kl. 10 f.h.
á laugardagsmorgun.
Húnvetningafélagið
heldur kökubasar laugardaginn 2. aprll að
Laufásvegi 25 (gengið inn frá Þingholts-
stræti).