Dagblaðið - 25.04.1977, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. APRÍL 1977.
sterka rvksusan... #
Styrkur og dæmalaus ending hins þýögenga,
stillaniega og sparneytna
mótors, staðsetning
hans. oghámarks
orkunýting, vegna
iágmarks loft-
mótstöðu í
stóru ryksíunni,
stóra, ódýra
pappírspokanum
og nýju kónísku
slöngunni,
afbragðs sog-
stykki og varan-
legt efni, ál og l
stál. Svona er \!
NILFISK:
Vönduð og
tæknilega ósvik-
in. gerð til að
vinna sitt verk
fljótt og vel. ár
eftir ár. með lág-
marks trufiunum
og tilkostnaði
Varanleg: til lengdar
ódýrust.
Nýr hljóð-
deyfir:
Hljóðlótasta
ryksugan.
Afborgunarskilmólar
myiY hátún 6A
ivlllA SÍMI 24420
Raftækjaúrval — Næg bflastæði
tíven julegur eltingaleikur í miðborginni:
Lagður íjám í Al-
þingishússgarðinum
—sprækur lögregluþjónn hljóp uppi óknyttastrák
„Ég get ekki neitað því að ég
er með nokkra strengi, en það
fer nú úr mér eftir svo sem
einn dag,“ sagði Þórir
Þorsteinsson lögregluþjónn í
viðtali við DB í gær.
Þórir sýndi í fyrrinótt að
lengi lifir í gömlum glæðum er
hann hljóp uppi ungan og
frískan strák sem hafði látið
dólgslega þá um nóttina.
Þórir var á árunum 1955—60
einn bezti hlaupari okkar
tslendinga á vegalengdunum
400 og 800 m. Hann var þekktur
fyrir keppnishörku og gafst
aldrei upp. Þessir eiginleikar
nýttust honum vel þegar hann
og félagi hans, Björn Jónsson,
áttu í útistöðum við unglinga á
Laugaveginum aðfaranótt
laugardags.
„Við vorum á leið niður
Laugaveginn á Volvo lögreglu-
bíl, þegar við sáum unglinga-
hóp á móts við verzlun
Magnúsar Baldvinssonar og
voru unglingarnir með ærsl og
læti. Ég sá, að einn piltanna
kastaði gosflösku í húsið svo
hún . brotnaði. Ég renndi
bílnum upp að drengnum og
kippti honum upp í bilinn.
Hópurinn æstist þá nokkuð en
þetta hafa verið svo sem 10
unglingar, og heimtuðu þeir
drenginn lausan. Þeir rifu upp
. afturhurðina þar sem Björn sat
með drenginn, en ég var fyrir
utan. Ég bað ungiingana að
fara burtu og sagði þeim að
þeir fengju drenginn ekki laus-
an að svo stöddu. Þeir sættu sig
ekki við þetta og einn stór og
stæðilegur piltur lamdi af öllu
afli í afturrúðu bílsins og möl-
braut hana.
Pilturinn tók þegar á rás og
hljóp suóur Bergstaðastræti og
síðan niður og vestur Skóla-
vörðustíg og ég fylgdi á eftir.
Þetta var frískur strákur og
hljóp mikinn. Leikurinn barst
síðan nióur Bankastræti og
suður Lækjargötu. Strákurinn
stakk sér síðan inn i portið hjá
BSR. Síðan fór hann Skóla-
brúna og klifraði síðan inn í
Alþingisgarðinn. Ég fór á eftir
en var nokkra stund að finna
hann því garðurinn er óupp-
lýstur. En ég heyrði þrusk
norðarlega í garðinum og þar lá
hann í hnipri I runna. Þótt
nokkuð væri af okkur báðum
dregið, var pilturinn hortugur
svo ég lagði handjárn á hann
þarna í Alþingisgarðinum. Ég
hef nú aldrei járnað mann áður
þarna í garðinum. Ég fór með
hann niður á Miðbæjarstöð og
það gekk ekki sem bezt, en ég
vildi ekki missa herfangið, svo
ég fékk aðstoð vegfaranda, sem
átti leið hjá og með hans hjálp
tókst að koma piltinum á
lögreglustöðina."
Þórir vildi ekki gera mikið
úr þessu og sagði þetta eðli-
legt starf lögreglu. „En ég er
líkamlega vel stæltur, þótt ég sé
orðinn 43 ára. Ég hef aldrei
reykt og það kemur sér vel.
Annars er ekki eðlilegt að
maður hafi við ungum og frísk-
um strákum. En ég vil geta þess
að ég tel þjálfun lögreglu-
manna allt of litla. Almenn
líkamsþjálfun er nánast engin.
Þetta er mikil afturför frá
þeim tíma er ég byrjaði i
lögreglunni, fyrir rúmum
tuttugu árum. Sjálfur æfi ég
lítið, en held mér þó við með
sundi.“
JH
LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER -
Úrvalið aldrei meira en nú!
Ertu að byggja? Þarftu að bæta? Viltu breyta?
Mjög vönduð GÓLFTEPPI Verð frá kr. 1.800 ferm
Verð frá kr.
1.400 ferm
Vinyl gólfdúkur
Kork-gólfflísar
Verð frá kr. 2.780 ferm.
Vinyl veggfóður Nýir,itir
Verð frá kr. 600 rúllan.
Málning og málningarvörur
Frá helztu framleiðendum
VEITUM
MAGNAFSLÁTT
10%
Það munar
um minna
Lítið við í
Litaveri
þvfþað
hefur
ávallt
borgað sig
Vandaður CONTAKT-pappír, litaúrval mikið — Teppi í bfla — RYA- og
ESCERONA — VÖNDUÐ TEPPIÍ SÉRFLOKKI — LEÐURLÍKI — breidd 138 cm,
glœsilegir litir.
iiHiiii y
Hreyfilshiísinu, Grensásvegi 18
Allar
deildir
ásama
stað
- LITAVER - LITAVER - LiTAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER -
LITAVER —LITAVER —LITAVER - LITAVER