Dagblaðið - 25.04.1977, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 25.04.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. APRIL 1977. 9 Sigurvegararnir íf jölteflinu við Hort: SÁ YNGSTIHEFUR TEFLT í TVÖ ÁR Varla er það hollt „Jú, ég er ánægöur með vinninginn gegn Hort,“ sagði Bjarnsteinn Þórsson í viðtali við DB. Hann var yngstur þeirra 10 manna, sem hrósuðu sigri I heimsmetsfjöltefli Horts i gær, 13 ára gamall. „Cg fékk fyrst áhuga á skák á haustmóti Taflfélags Reykja- vikur 1975,'- sagði Bjarnsteinn. „ÞrÖstur, yngri bróðir minn, var þá efstur í sinum flokki,“ Þeir bræður eru báðir í Hvassa- leitissveitinni i skákkeppni gagnfræðaskólanna I Reykja- vfk. A Fyrsta borði í sveitinni er Jóhannes Gísli Jónsson, sem fréttamönnum er i góðu minni fyrir dugnað og skýrleika við að flytja þeim leikina úr einvígis- skákunum. Arnór Björnsson er fjórði maður í Hvassaleitis- sveitinni. „Eg tefldi afbrigði af Benoni- vörn, sem ég kann svolítið 1," sagði Benedikt Jónasson, iðn- nemi, 20 ára, sem var einn hinna sigursælu á móti stór- meistaranum. „Hort kann eflaust þetta afbrigði miklu betur, en ég vann skiptamun eftir 25 leiki,“ sagði Benedikt. „Það tók svo aðra 25 leiki að innbyrða vinninginn. Benedikt er ekkert lamb að leika við í skák. Hann teflir i áskorenda- flokki Taflfélags Reykjavíkur. Anægjan lysti ur svip allra þátttakenda. Þeir sem náðu jafntefli voru hæstánægðir og sumir drjúgmontnir. Sigur- vegararnir voru hógværari en áreiðanlega himinlifandi. Yngsti þátttakendurnir i heimsmetinu voru 6 ára gamlir en sá elsti 78 ára gamall, Þórarinn Arnason frá Stóra- Hrauni. Mjög áberandi var mikill skákáhugi ungu kynslóðarinnar sem setti mjög svip sinn á þennan heimsvið- burð í skáksögunni. Dagblaðinu er kunnugt um, að hingað til lands eru nú komnir erlendir fréttamenn gagngert í þeim tilgangi að fá einhvern botn í það undur, að á íslandi hafa á undanförnum árum gerzt þeir viðburðir í skák, sem vakið hafa heimsat- hygli. Þeir stóðu furðu lostnir í Valhúsaskólanum á Seltjarnar- nesi í gær sannfærðir um skák- áhugann á Islandi. BS. Sigraði á „Benóni": Benedikt Jónsson. SLEGIZT UT AF MER- UM 0G KVENFÓLKI „Það var ýmist að menn slógust út af merum eða kven- fólki," sagði Páll Eiríksson aðalvarðstjóri er DB spurðist fyrir um hegðan borgaranna á laugardagskvöld. Tveir menn hittust í veitinga- húsinu Glæsibæ og voru þeir báðir nokkuð við skál. Annar mannanna átti hryssu sem hann hafði í hagagöngu úti á Snæfellsnesi. „Þú sveltir merina þína, hel- vítið þitt,“ sagði annar mann- anna við merareigandann. Sá var nú ekki aldeilis á því að hann gerði það og út úr þessu urðu hörku slagsmál. Enduðu þau með því að lögreglan kom á staðinn og skakkaði leikinn og annar mannanna gisti fanga- geymslurnar í nótt. Um svipað leyti urðu slags- mál út af kvenmanni fyrir utan Þórskaffi. Tveir herrar urðu ósáttir vegna kvenmanns, sem farin var af vettvangi og vildi þar með hvorugan þýðast. Vildu þeir láta kraftana skera úr um hvor þeirra hreppti stúlkuna, en slagsmálunum lauk með þeim afleiðingum að annar mannanna missti stif- tönn. Ekki varð missættið þó meira en svo að mennirnir sætt- ust er komið var á lögreglu- stöðina. A.Bj. Yngsti sigurvegarinn i fjöiteflinu, Bjarnsteinn Þórsson, 13 ára gamail úr Hvassaleitisskólanum. DB-myndir: Hörður í hrauninu suður af Hafnarfirði eru sorphaugar staðarins og þar skamint frá er álverið, umiukið gulgrárri móðu. Á milli þessara útvarða umhverfisins eru fjölmargar trönur og á þeim útfiutnings- vara okkar íslendinga, skreiðin. Ekki skal undra þó Nígeríubúar hugsi sig um tvisvar og láti Lagarfoss bíða um stund meðan þeir kanna gæði vörunnar. JH Svo einfalt... 1. Þú hringir í Stóltœki símar 42717 — 27510 og pantar bílskúrshurðaropnara. Við komum í heim- sókn. Heim- sókninni lauk með handtöku Tvær dömur voru teknar um borð I dönsku vöru- flutningaskipi um miðnætti á laugardagskvold. DÖmur þessar hafa oft áður farið í gleðiferðir um borð í skip, að sögn lögreglunnar. í þetta sinn vildi önnur þeirra þó hafa eitthvað fyrir snúð sinn, því tölvuúr hvarf úr eigu eins skipverjanna og bárust böndin að annarri stúlkunni. Málið er til með- ferðar hjá lögreglunni. A.Bj. Sýnir í Neshaga Ungur listamaður frá Kaliforníu opnar sýningu á verkum sínum í sýningar- salnum að Neshaga 16 í dag. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 15. maí. Verk Joseph Goldyne’ nálgast grafík. Aðferðin er sú að fyrst eru gerðar plötur sem settur er á litur. Þegar þrykkt hefur verið af plöt- unni þá er settur litur á hana á ný, en ekki á sama hátt og áður. Þannig verður engin mynd eins, þó grunn- mynd sé sú sama. Sýningin er opin frá 13.00 til 19.00 mánudaga til föstu- dags og frá klukkan 14.00 til 18.00 á sunnudögum. KP. 2. Þú þrýstir ú hnappinn inni hlýjum bílnum. 3. Hurðin opnast kveikir Ijós. sjólfkrafa og 4. Þúekur inn úr kuldanum. 5. Hurðin lokast ó eftir þér. 6. Þú labbar inn til j>ín, afslappaður, í rólegheitunum því þú ert hœttur að slóst við hurðir, þú kannt að nota þér ameríska yfirburðatœkni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.