Dagblaðið - 25.04.1977, Page 6
t;
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 25. APRÍL 1977
Stígvél
úr mjúku leðri
Litir: Brúnt og svart
Kr. 8590.-
Póstsendum
r
SKOSEL
Laugavegi 60 — Sími 21270
Afgreiðslustarf
Sérverzlun í miðbænum vantar af-
greiðslustúlku allan daginn. Aldur 25-
40 ára.
Tilboð sendist afgreiðslu Dagblaðsins
Þverholti 11 merkt „Framtíð 1234“.
Nýkomið:
Hvrtar og mislitar
skyrtublússur
ELÍZUBÚÐIN,
Skipholti 5
Sumargjöfin handa eiginkonunni
CREDA-tauþurrkarinn
er nauðsynlegt hjálpartæki á
nútima heimili. Löng og farsæl
reynsla sannar gæðin.
Um 4 gerðir er að ræða af TD
275 og TD 400.
Góð ábyrgðar-, viðgerðar- og
varahlutaþjónusta.
Sími sölumanns er 1-87-85
Verð frá kr. 65.727.-
Kjarni, Vestmannaevjum, sími
1300.
Rafha, Oðinstorgi, sími 10332. Kr. Lundberg, Neskaupstað.
Stapafell, Keflavík, sími 1730. sími 7179,
og hjá okkur
Raftækjaverzlun Islands
Ægisgötu 7 — Símar 17975-17976
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund að Hótel Sögu,
Súlnasal, í dag, 25. apríl, kl. 20.30.
Fundarefni: Kjaramálin — Öflun verkfalls-
neimildar.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
0PEC ríkin vilja fá Saudiaraba til fulls samstarfs:
Gæti þýtt enn
hærra olíuverð
— Saudiarabar hækkuðu síðast um 5% en 0PEC um 10%
Carlos Andres Perez, forseti
Venezuela, byrjar í dag
viðræður við opinbera
embættismenn í Riyadh í
Saudi-Arabíu um samræmda
stefnu OPEC ríkjanna og
Saudi-Araba í verðlagningu
olíu á heimsmarkaðnum, en
Saudi-Arabía er mesta olíuút-
flutningsríki í heimi og reynd-
ar í OPEC.
I desember sl. neituðu Saudi-
Arabar og nokkrir minni fram-
leiðendur að fallast á fyrir-
hugaða verðhækkun hinna 11
OPEC ríkjanna, á fundi í
Kadar, og hafa síðan farið sínar
eigin leiðir í þeim málum. Hin
ríkin samþykktu þá 10%
hækkun og skyldi 5% hækkun
fylgja hægt í kjölfarið. Saudi-
Arabar ákváðu hins vegar 5%
hækkun án þess að nefna
frekari hækkanir í bráð.
Þetta hefur valdið samdrætti
í olíusölu nokkurra OPEC-
landanna en hins vegar
söluaukningu hjá Saudi-
Aröbum. Hafa margar tilraunir
verið gerðar til að fá S-Araba til
fulls samstarfs í þessum
málum, en án árangurs hingað
til.
Perez mun m.a. ræða við
krónprinsinn Fahd Ibn
Abdulaziz.
Eþíópía
fellur ífaðm
Rússa
— bandarískum
stofnunum íland-
inu skyndilega
lokað og starfs-
mönnum vísað úr
landi
Enn vinnur stjórnin í Addis
Ababa í Eþíópíu að því að
ryðja úr vegi öllum
hindrunum til að sameinast
austurveldunum enn meir. Nú
um helgina lokaði hún
skyndilega þrem bandarískum
stofnunum fyrirvaralaust og
vísaði starfsmönnum þeirra úr
landi. Þ.á m. var bandarísk
hernaðarnefnd, sem stjórnvöld
hafa litió á sem tákn Banda-
ríkjanna í landinu.
Alls var 300 Bandaríkja-
mönnurn vísað úr landinu með
skömmum fyrirvara, en öryggi
þeirra er tryggt.
Byltingar-
dans í
Portúgal
Fjöldi Portúgala í Lissabon
dansaði og skemmti sér fram á
nótt á götum úti og víðar í gær,
til að minnast þriggja ára bylt-
ingarafmælisins. Fyrir þrem
árum var 50 ára harðstjórn af-
létt í landinu og var herinn í
fylkingarbrjósti við þær að-
gerðir.
Verður hátíðarhöldum fram
haldið í dag og mun forsetinn,
Antonio Ramlho, m.a. verða
viðstaddur þrjú þúsund manna
hersýningu.
Litlar fréttir berast nú af bar-
dögum stjórnarhersins í Zaire í
Afríku við lið innrásarmanna í
Kolwesi héraði. Sem kunnugt er,
lánaði Marokkostjórn Zairestjórn
hóp hermanna til að berjast við
innrásarmennina og Frakklands-
stjórn lagði til flugvélar til að
flytja þá á staðinn. Zairestjórn
ásakar Rússa, Angolamenn og
Kúbumenn um aðild að innrás-
inni, en þeir neita allir. í fyrri
viku taldi Zairestjórn að lokaátök-
in væru á næsta leiti með fulln-
aðarsigri stjórnarhersins.
HLUTABRÉFAEIGN
BRET ADROTTNING AR
ÁFRAM LEYNDARMÁL
Brezk stjórnvöld hafa nú
ákveðið að hlutabréfaeign
brezku konungsfjölskyldunnar
verði áfram hennar leyndarmál
um leið og ákveðið var að aðrar
Elíubat drottning er talin eiga meiri hluta-
bréf í ýmsum fyrirtœkjum en nokkur annar
Breti.
leynilegar hlutabréfaeignir í
landinu skyldu verða opinberar
a.m.k. innan viðkomandi fyrir-
tækja. Elísabet Englands-
drottning er tal'n einhver mesti
hlutafjáreigandi í Bretlandi
með bréfum í fjölda fyrirtækja.
Miklar deilur urðu um þessa
ákvörðun í neðri málstofu
þingsins og benti einn fulltrúi
Verkamannaflokksins á að ef
slík ákvæði væru i gildi t.d í
Bandaríkjunum og Hollandi
hefði ekki verið hægt að koma
upp um mútuhneyksli
Lockheed flugvélaverk-
smiðjanna og Bernharðs prins.
Telur hann þessa ákvörðun
vernda hugsanlegt fjármála-
misferli drottningarinnar.
■*isr
Fulltrúaráðsfundur
Fulltrúaráó sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík efnir
til fundar þriðjudaginn 26. apríl ki. 20.30 að Hótel
Sögu, Súlnasal.
Dagskrá:
1. Val landsfundarfulltrúa.
2. Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, flytur ræðu
um stjórnmálaviðhorfið.
Fulltrúar mætió stundvíslega og sýnið fulltrúaráðs-
skírteini 1977 við innganginn.
Stjórn Fulltrúaráðsins.
ÞRIÐJUDAG 26. APRÍL — KL 20.30 — SULNASAL.