Dagblaðið - 25.04.1977, Síða 7
I >.\< iBl.AÐH). MANl'DACl'K 25. A! * K11. 1977
7
Olíulekinn íNorðursjó 3 tonn á mínútu:
Getur orðið
stórfelldasta
olíumengun
tilþessa
— einn neisti gæti sprengt allt íloft upp
— allt eins líklegt að lekinn verði f nokkra mánuði
Mesta olíumengun í Evrópu til
þessa er nú yfirvofandi samfara
geysilegri sprengihættu og er nú
beðið í ofvæni eftir áliti banda-
rískra sérfræðinga um borð í
borpallinum Bravo á Ekofiskolíu-
svæðinu i Norðursjó, 175 mílur
suðvestur af Stavangri, hvort
unnt verður að stöðva lekann á
nokkrum dögum eða hugsanlega
ekki fyrr en eftir nokkra mánuði.
Það var á laugardag að starfs- "
mönnum. mistókst að ganga frá
ventli um borð í pallinum með
þeim afleiðingum að jarðgas og
olía streyma nú óhindrað upp, um
3 tonn af olíu á mínútu eða um 4
þús. tonn á sólarhring. 112
starfsmenn borsins, sem er i eigu
bandaríska fyrirtækisins Phiiips,
yfirgáfu pallinn þá þegar í
skyndingu á björgunarbátum og
var bjargað um borð í birgðaskip.
Geysileg sprengihætta er sam-
fara gaslekanum, en í kjölfar gas-
sprengingar myndi kvikna í
olíunni með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum.
Einn neisti gœti
sprengt allt upp
Bandarísku sérfræðingarnir
sigu niður á pallinn við mjög
erfiðar aðstæður og vinna við
mikla áhættu þar sem ekki þarf
nema einn lítinn neista til að
valda sprengingu.
Eru þeir að kanna möguleika á
að láta krana slaka einhvers
konar tappa niður í leiðsluna. Sé
þess ekki kostur er eina leiðin að
bora þúsundir feta niður með.
leiðslunni og reyna að stífla neðri
enda hennar. Það verk tekur
minnst nokkrar vikur, en jafnvel
nokkra mánuði. Poul N. Adair,
einhver frægasti sérfræðingur
veraldar í að stöðva olíuleka og
kæfa olíubruna úr holum, er um
borð í borpallinum.
Framleiðsla stöðvuð
Öll framleiðsla á þessu svæði
hefur nú verið stöðvuð, en svæðið
er mesta úthafsolíuvinnslusvæði í
Evrópu og framleiðir 350 þúsund
tunnur af olíu á dag.
Olíubrákin þekur nú um 300
ferkílómetra og óttast menn að
hún kunni að skaða verulega fisk-
stofna í Norðursjónum auk þess
að geta valdið gífurlegri mengun
við strendur og valdið miklum
fugladauða. Mesta olíuslys í
Evrópu varð fyrir 10 árum,
þegar olíuskipið Torre Canyon,
skrásett i Líberíu, strandaði við
Bretlandseyjar Með sama leka frá
Bravó, eru aðeins nokkrir dagar í
að olíumagnið þaðan verði orðið
áiíka mikið og úr skipinu.
Miklum búnaði hefur nú verið
safnað saman til að eyða eða safna
olíunni, en hann er þó ekki enn
nándar nærri nægilegur til að
ráða við þetta magn enn, auk þess
sem gott veður er skilyrði þess að
unnt sé að vinna þess háttar verk.
Fiskstofnar
í stórhœttu
Þá er óttazt að ef gripið verði til
þess ráðs að sökkva olíunni geti
það þýtt geysilegt áfall fyrir
makrílstofninn sem einmitt er að
hrygna á þessum slóðum nú, auk
áfalls fyrir aðra fiskistofna og
varanlegar botnskemmdir.
Einnig er áætlað að þetta atvik
kosti norska ríkið um 400
milljónir ísl. króna á dag í formi
vinnslutaps og fleiri atriða í
kjölfarið.
Stjórnmálamennirnir
í hár saman
Norski stjórnmálaheimurinn er
Erlendar
fréttir
Margs konar búnaður hefur
verið fundinn upp til hreins-
unar olíu úr sjó og er búið að
safna þannig búnaði til Norður-
sjávar nú.
Fuglar verða hvað verst úti í
oiíumengun þegar olian berst
upp að ströndunum og drepast
oft í þúsundatali er hún kemst í
fiður þeirra.
Olíuborpallur af sömu gerð og Bravo og á sömu sióðum.
einnig kominn á annan endann.
Andstæðingar þessara fram-
kvæmda, eða öllu heldur til-
högunar þeirra og hraða.hamra
nú á áðurnefndum viðvörunum
sínum en hinir verja sig með
efnah'agslegu gildi þeirra. Talið
er vist að þetta muni hafa veruleg
áhrif á næstu kosningabaráttu.
Nú stendur fyrir dyrum
veruleg olíuleit norður með
ströndum Noregs og er þegar
talið fullvíst að þessi atburður
verði þess valdandi að allar
varúðarreglur verði mun strang-
ari en á Ekofisksvæðinu, og sömu-
leiðis verði strangara eftirlit með
þeim.
Þeim, sem ttyggja bílinn
sinn hjá okkur
feUur ymislegt í skaut.
í ár endurgreiðum við þeim í tekjuafgang: kr. 21,0 milljón
Fyrir tjónlausan akstur í 10 ár fá þeir 1 ár iðgjaldsfrítt. Verðmœti að þessu sinni: kr. 13,1 milljón
Alls fá þeir í ár: kr. 34, 1 milljón
Allt er þetta fyrir utan hinn hefðbundna bónus, sem allir veita.