Dagblaðið - 25.04.1977, Page 13
DAC.BLAÐIÐ. MANUDAGUR 25. APRIL 1977.
13
jþróttir íþróttir íþróttir
Manch. Utd. aftur í
úrslitin á Wembley
—eftir sigur gegn Leeds í bikarkeppninni, en Liverpool-liðin verða að leika
á ný á miðvikudag á Maine Road
Annað árið í röð leikur
IVtanch. Utd. til úrslita í ensku
bikarkeppninni. Sigraði Leeds
örugglega á laugardag í undanúr-
úrslitum á Hillsborough í
Sheffield, en ekki er enn vitað
hvort Liverpool-Iiðanna, Everton
eða Liverpool, verður mótherji
Manch. Utd. á Wembley 21. maí,
því þau gerðu jafntefli á laúgar-
dag á Maine Road í Manchester i
hinum undanúrslitaleiknum.
Jafntefli 2-2 og kapparnir frægu í
Liverpool-liðinu voru heppnir að
sleppa svo vel. Liðín leika á ný á
sama velli á miðvikudag. f 1.
dcild missti Ipswich af öllum
möguleikum til að hljóta enska
meistaratitilinn. Tapaði á heima-
velli fyrir Middlesbro — liði, sem
ekki hafði sigrað í tíu leikjum á
undan ieiknum á laugard. 1 2.
deild þurfa Ulfarnir nú aðeins
tvö stig úr fimm leikjum til að
tryggja ser sæti í 1. deild á ný.
En hverfum þá aftur til Hills-
borough, þar sem Manch. Utd.
tryggði sér úrslitasæti á fyrstu 14
mín. leiksins. Á 8. mín. fékk liðið
hornspyrnu, sem Gordon Hill tók
vel. Knötturinn barst fyrir mark
Leeds og þar ætlaði Frankie Gray
að spyrna frá, en knötturinn fór
beint til Jimmy Greenhoff. Hann
lét slíkt tækifæri ekki frá sér
fara. Skoraði af sex metra færi. Á
14. mín. náði Manchester-liðið
góðu upphlaupi, þar sem
knötturinn gekk milli Houston,
Greenhoff (Jimmy), og til Hill,
sem splundraði vörn Leeds. Gaf
síðan á Steve Coppell sem skoraði
frábært mark. Manch. Utd. hafði
lengstum yfirburði I leiknum og
leikmenn Leeds náðu aldrei sín-
um þekkta leik vegna ákafa
Manchester-leikmannanna. Yfir-
burðir liðsins fólust í snjöllum
framvarðaleik Macari og Mcllroy,
sem skyggðu mjög á Currie og
Cherry, framverði Leeds.
Manch. Utd. fékk tækifæri til
að auka við markatölu sína, en
tókst ekki — og um miðjan stðari
hálfleikinn kom aftur spenna í
leikinn. Jimmy ^Nichols, bak-
vörður, braut þá á Joe Jordon
innan vítateigs. Dæmd var víta-
spyrna á Manch. Utd., sem Alan
Clarke tók. Alex Stepney, mark-
vörður, hafði hönd á knettinum,
en hann rúllaði svo í markið.
Stepney átti að verja slakt skot
Clarke, sagði Brian Butler, frétta-
maður BBC. Lokakaflann sótti
Leeds — en án árangurs og sigur
Manch. Utd. var mjög verð-
skuldaður. í úrslitum bikarins í
fyrravor tapaði Manch. Utd. mjög
óvænt fyrir Southampton.
Á Maine Road náðu leikmenn
Liverpool sér ekki á strik gegn
snjöllum leik Everton, sem gaf
tóninn allan leikinn án þess þó að
nýta það til sigurs. Meira að segja
varð Everton, sem lék án King og
Bob Latchford, tvívegis að vinna
upp marks forskot Liverpool. Á
10. mín. skoraði Terry McDermott
fyrir Liverpool — en síðan náði
Everton yfirhöndinni og sóknar-
bylgjurnar gengu á mark Liver-
pool. Tvívegis varði Ray
Clemence mjög vel, en það hlaut
að koma að því, að Everton
jafnaði. Það var á 35 mín. —
Emlyn Hughes, miðvörður Liver-
pool, féll, þegar hann ætlaði að
reyna að ná knettinum frá
Duncan McKenzie, sem komst í
gegn og skoraði af öryggi. Eftir
markið fékk Everton ágætt
tækifæri til að ná forustu í leikn-
um, en ekki vildi knötturinn í
mark — og á 73. mín. náði Liver-
pool forustu á ný. Það var mjög
gegn gangi leiksins og mark
Jimmy Case óvænt eftir varnar-
mistök. Bryan Hamilton kom í
stað Martin Dobson hjá Everton
sem var farinn að haltra, og
pressa var mikil á vörn Liverpool.
A 80 mín. splundraði McKenzie
vörn Liverpool — gaf á Burce
Rioch, sem jafnaði í 2-2. Mínútu
síðar lá knötturinn aftur í marki
Liverpool. Hamilton skoraði en
mjög á óvænt dæmdi dómarinn
frægi, Clice Thomas, markið af.
Leikmenn Everton mótmæltu
mjög — og framkvæmdastjórinn
Lee var mjög æstur við hliðar-
línuna. En Thomas varð ekki
hreyft — og eftir leikinn sagði
Pathe Feeney, sem hofði á leikinn
í sjónvarpi, að sennilega hefði
Hamilton snert knöttinn með
hendi áður en hann skoraði. En
hvað um það. Jafntefli varð í
viðureign Liverpool-risanna og
þau leika á ný á miðvikudag á
Maine Road.
En við skulum líta á úrslitin á
laugardag.
Bikarkeppnin.
Everton-Liverpool 2-2
Leeds-Manch. Utd. 1-2
1. deild
Arsenal-Coventry 2-0
Aston Villa-Norwich 1-0
Ipswich-Middlesbro 0-1
QPR-Newcastle 1-2
Stoke-Tottenham 0-0
Sunderland-Derby 1-1
Leikjum Bristol City-Liverpool,
Everton-WBA, Leicester-Leeds,
West Ham-Manch. Utd. var
frestað — en Manch. City sigraði
Birmingham sl. þriðjudag 2-1.
2. deild
Burnley-Chelsea 1-0
Carlisle-Plymouth 3-1
Fulham-Blackpool 0-0
Hereford-Blackburn 1-0
Hull-Bristol Rov. 0-1
Luton-Notts Co. 4-2
Nottm. For.-Cardiff 0-1
Southampton-Oldham 4-0
Wolves-Orient 1-0
Leik Sheff. Utd.-Millwall var
frestað, en á föstudag gerðu
Charlton og Bolton jafntefli 1-1.
3. deild
Brighton-Port Vale 1-0
Bury-Portsmouth 1-0
Chester-Chesterfield 1-2
C. Palace-Sheff. Wed. 4-0
Grimsby-Shrewsbury 2-1
Mansfield-Gillingham 2-2
Oxford-Northampton 4-0
Peterbro-Wrexham 0-2
Preston-Reading 3-0
Rotherham-Swindon 1-1
Tranmere-Lincoln 2-2
York-Ealsall 0-0
4. deild
Aldershot-Scunthorpe 1-1
Bradford-Southend 2-0
Brentford-Hartlepool 3-1
Darlington-Crewe 4-0
Doncaster-Watford 1-0
Huddersfield-Exeter 0-1
Newport-Rochdale 3-0
Swansea-Halifax 2-1
Ipswich án Mills, Beattie og
fleiri aðalmanna kvaddi alla
möguleika sína á meistara-
titlinum á Portman Road gegn
Middlesbro. I slökum leik tókst
David Armstrong að skora eina
mark leiksins sjö mín. fyrir leiks-
lok. Þá er líklegt að Tottenham og
Sunderland hafi sungið sitt
síðasta vers I 1. deild um sinn.
Tottenham náði ekki nema jafn-
tefli í Stoke I leik, þar sem vel
kom fram, að liðin tilheyra
kjallara 1. deildar. Tvívegis voru
mörk dæmd af Stoke í síðari hálf-
leik — góð mörk að áliti leik-
manna og áhorfenda Stoke.
Sunderland tókst ekki að vinna
Derby og á nú aðeins einn leik
eftir á Roker Park. Sunderland
hafði alla möguleika að sigra í
leiknum og lengi í s.h. lék Derby
aðeins með 10 mönnum. Newton
meiddist og varamaður hafði áður
komið inn. Powell náði forustu
fyrir Derby í leiknum, en Sunder-
land jafnaði úr vítaspyrnu
Towers. Heimaliðið fór illa með
góð færi — en James og Powell
Duncan McKenzie — frábær gegn
Liverpool.
áttu báðir stangarskot fyrir
Dergy.
Coventry barðist vel á
Highbury gegn Arsenal — og
hinn nítján ára markvörður
liðsins, Sealey, varði snilldarlega
framan af. En á 75. mín. urðu Jim
Holton á hroðaleg mistök og
Frank skoraði fyrir Arsenal. Sjö
mín. síðar gulltryggði Malcolm
MacDonald sigur Lundúnaliðsins
með skallamarki. Don Givens
skoraði á 4. mín. fyrir QPR, en
Newcastle, sem leikið hefur 11
leiki án taps, sigraði. Þó voru leik-
menn Newcastle einum færri í 15.
mín. Alan Gowling meiddist.
Tommy Craig, hreint frábær,
jafnaði fyrir Newcastle á 70. mín.
og níu mín. síðar skoraði Natrass
sigurmarkið. Brian Little skoraði
sigurmark Aston Villa gegn
Norwich, og enn hefur Villa
möguleika á meisarati'tlinum.
Hefur aðeins tapað einu stigi
meira en Liverpool.
í 2. deild eru Úlfarnir svo gott
sem komnir í 1. deild á ný. Þurfa
aðeins tvö stig úr fimm leikjum.
John Richards skoraði markið
gegn Orient. Hins vegar minnk-
urðu möguleikar Nottingham-
liðanna mjög . Forest tapaði mjög
óvænt á heimavelli fyrir Cardiff
— en Notts County lá í Luton.
Chelsea tapaði einnig en það ætti
ekki að koma að sök. Eftir jafn-
tefli við Charlton hefur Bolton nú
góða möguleika á að vinna sér
sæti I 1. deild ásamt Úlfunum og
Chelsea.
í 3. deild er Brighton efst með
57 stig, en Wrexham og Mansfield
hafa 56 stig. Allar líkur benda til
að þau leiki I 2. deild næsta
keppnistlmabil. C. Palace, Rother-
ham og Bury hafa 51 stig. 1 4.
deild er Cambridge efst með 58
stig, Bradford hefur 55 stig,
Colchester 53, Exeter 52,
Barnsley 51 og Swansea 50.
Staðan er nú þannig:
l.deild
Liverpool 36 2J, 8 7 57-29 50
Man. C. 37 19 12 6 52-28 50
Ipswich 38 21 7 10 63-36 49
Newc. 37 17 13 7 61-40 47
A. Villa 33 19 5 9 63-36 43
Man. U. 35 16 9 10 61-48 41
WBA 37 14 12 11 51-47 40
Leicester 37 11 17 9 45-51 39
Arsenal 37 14 9 14 56-55 37
Leeds 35 13 10 12 43-46 36
Middlesb 38 13 10 15 35-43 36
Birm.ham 37 12 9 16 57-55 33
Everton 34 12 9 13 53-58 33
Norwich 39 13 7 19 43-61 33
Stoke 37 10 12 15 22-39 32
QPR 34 11 9 14 41-44 31
Derby 36 7 16 13 42-51 30
Sunderl. 38 9 11 18 40-48 29
Tottenh. 39 10 9 20 43-66 29
Coventry 35 8 12 15 38-51 28
W.Ham 36 9 10 17 36-59 28
Bristol C 35 8 10 17 31-42 26
2. deild
Wolves 37 20 11 6 78-42 51
Chelsea 39 19 12 8 64-52 50
Notts C. 39 18 10 11 61-55 46
Nott.For. 38 18 9 11 70-41 45
Bolton 37 18 9 10 67-48 45
Luton 39 20 5 14 64-45 45
Blackp. 38 14 16 8 54-41 44
Charlton 38 13 15 10 63-55 41
South’ton 36 14 10 12 65-59 38
Millwall 38 13 12 13 52-50 38
Sheff.U. 38 13 11 14 51-55 37
Hull 39 10 16 13 42-44 36
Oldham 38 13 10 15 49-57 36
Blackb. 39 14 8 17 41-53 36
Fulham 39 10 13 16 48-58 33
Burnley 38 9 14 15 40-56 32
Cardiff 37 11 9 17 51-58 31
Orient 36 9 13 14 32-43 31
Plym. 39 8 15 16 45-62 31
Bristol R 38 10 11 17 44-62 31
Carlisle 38 11 9 18 46-71 31
Hereford 37 7 12 18 52-73 26
Beckenbauer
í sviðsljósinu
Helmut Schön, landsliðsþjálf-
ari Vestur-Þýzkalands, neitaði því
ákveðið, að landsliðsferli Franz
Beckenbauer, sem gerist leik-
maður hjá Cosmos i næsta mán-
uði, sé lokið.
— Það er alls ekki rétt, að
Beckenbauer hafi verið kastað úr
landsiiðinu, sagði Schön á blaða-
mannafundi. Hann sagði Becken-
bauer bezta leikmann V-
Þýzkalands — ieikmann, sem
ekki væri hægt að gleyma. Hins
vegar gat Schön þess, að Becken-
bauer yrði þvi aðeins valinn í
HM-landslið V-Þjóðverja ef hann
sýndi viðunandi form. Vona
aðeins að Cosmos leyfi honum að
leika á HM — en þær hliðar
samningsins hafa ekki verið
ræddar enn, sagði Schön að lok-
um.
Þá má geta þess, að félag
Beckenbauer, Bayern Múnchen,
mun fara fram á 2,5 milljónir
marka fyrir leikmanninn — eða
um 200 milljónir íslenzkar.
Cosmos hefur boðið Bayern eina
milljón marka — en talið er, að
þriggja ára samningur Becken-
bauer við Cosmos gefi í allt sjö
milljónir dollara til leikmanns-
ins. Þar af 3 milljónir dollara —
570 milijónir ísl. kr. — við undir-
ritun. Fyrsti leikur Beckenbauer
með Cosmos verður líklega 28.
maí.
Hiísaviðgerðir
símar 85489 og 76224
Gerum vió steyptar þakrennur, önnumst múrviðgerðir,
málum hús úti og inni, tilboð eða tímavinna.
Vandvirkir menn.
Halldór Kristjánsson
Laugarnesvegi 61.
Hefurðu
prófað
Pep fyrir
bensín
Pep fyrir
dieselolíu
Pep fyrir
gasolíu
Pep smyr
um leið
cg það
hreinsar.
Pep eykur kraft og
sparar eldsneyti
Pep fœst hjá BP og Shell
um allt land.
pumn
íþróttatöskur
Ingólfs
Öskarssonar
Hólagarði Breiðholti
Sími 75020
Klapparstíg 44
Sfmi 11783
Sportvöruverzlun
puma
fótboltaskór
Sportvöruverzlun
Ingólfs
Óskarssonar
Hólagarði Breiðholti
Simi 75020
Klapparstíg 44
Sími 11783