Dagblaðið - 25.04.1977, Side 15
1-1
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. APRÍL 197 ,
I
íþrótfir
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþrótti
Valur tók stig
á Skaganum
Síðasti leikurinn i Meistara-
keppni KSÍ fór fram í gær á Akra-
nesi — þá áttust við Skagamenn
og Valur. Jafntefii varð, 1-1. og
íslandsmeistarar Vals hlutu því
sjö stig í keppninni — höfðu áður
sigrað Fram tvívegis og Akranes í
Reykjavík.
Valsmenn náðu forustu í fyrri
hálfleik þegar Atli Eðvaldsson
átti sendingu fram á Guðmund
Þorbjörnsson, sem skoraði. Vals-
menn voru heldur atkvæðameiri í
fyrir hálfleik — áttu skot í stöng.
Leikurinn jafnaðist í síðari
háifieik — og þá tókst Skaga-
mönnum að jafna. Arni Sveinsson
skoraði með góðu skoti sem
Sigurður Dagsson í marki Vais
náði ekki að verja.
Að loknum leiknum voru ís-
iandsmeisturum Vals afhent
verðlaun fyrir sigur í keppninni
— fyrsti bikarinn í ár að Hiíðar-
enda.
ÍBV sigraði
Blikana 4-2
Vestmannaeyingar sigruðu
Kópavogsbúa í bæjarkeppni í
knattspyrnu á iaugardag. — Eyja-
ménn sigruðu 4-2 eftir að
Biikarnir höfðu komizt i 2-0.
Breiðablik fékk sannkallaða
óskabyrjun þegar Þór Hreiðars-
son skoraði þegar á 1. mínútu og
Hinrik Þórhailsson bætti við öðru
marki Eyjamenn náðu að minnka
muninn rétt fyrir leikhlé þegar
Karl Sveinsson skoraði. Þar með
voru Eyjamenn komnir á bragðið
— Sigurlás bætti við öðru marki
fyrir Eyjamenn — Tómas Pálsson
náði síðan forystu fyrir Eyja-
menn og Sigurlás Þorleifsson
gulltryggði sigur Eyjamanna með
fjórða marki iBV.
Páll Pálmason varði mark iBV
í fyrir hálfleik — og í hinum
siðari kom Sigurður Haraldsson,
íslandsmeistarinn í badminton, i
mark ÍBV og kom hann ágætlega
út.
Ajax sigraði
Fejenoord
í Amsterdam
— og hefur nú tryggt
sérsigur íHollandi
Ajax Amsterdam, þrívegis
Evrópumeistari í upphafi þessa
áratugs, svo gott sem tryggði
sigur sinn i holienzku 1. deildinni
um helgina. Þá lék Ajax við
helzta keppinaut sinn i gegn um
árin, Fejenoord frá Rotterdam,
en Fejenoord var einmitt Evrópu-
meistari 1970 — Ajax síðan
1971—’72og 1973.
Þessir risar hollenzku knatt-
spyrnunnar mættust í Amster-
dam og Ajax sigraði 2-1 — og
hefur því nú náð sex stiga for-
ustu. Fejenoord hefur enn mögu-
leika — möguleika, sem miklu
frekar er reikningslegur en raun-
verulegur. Nú eru eftir þrjár um-
ferðir í hollenzku deildinni — og
sigri Fejenoord í þeim og Ajax
taþi öilum sínum þá verður
Fejenoord meistari. Möguleiki,
sem enginn í raun reiknar með.
Hoilenzki landsiiðsmaðurinn
Ruud Geels skoraði bæði mörk
Ajax. Hann hefur nú skorað 34
mörk á þessu kcppnistímabili —
8 meir en næsti maður.
En úrslit í Hollandi urðu:
Twente — Utrecht 8-0
Venlo — Telstar 0-0
MAC Breda — Go Ahcad 1-1
Ajax — Fjenoord 2-1
Sparta — Amsterdam 0-0
FC Haag — Roda 3-0
PSV Eindhoven — NEC 3-0
Haarlem — Graafschap 2-1
AZ ’67 — Eindhoven 3-0
Ajax hefur nú hlotið 49 stig að
lokinni 31 umferð. Fejenoord
hefur hlotið 43 stig — AZ ’67 er
síðan í þriðja sæti með 43 stig —
meistararnir frá i fyrra, PSV
Eindhoven — hafa hlotið 41 stig
og Roda er siðan í fimmta sæti
með 37 stig.
Björgvin Þorsteinsson fór síðustu holuna á þrem höggum, eða tveim
undir pari, en það var til lítils. Hér „einpúttar” Björgvin á 12 braut og
„Eagle” er staðreynd. DB-mynd: Hörður.
Jafntefli Celtic
Knötturinn hafnaði í marki
Celtic í síðustu spyrnu leiksins,
en meðan knötturinn var á leið-
inni hafði dómarinn blásið leiks-
lok, svo markið gilti ekki. Celtic
slapp þvi við tap i ieiknum gegn
Partick í Glasgow á laugardag —
og var reyndar heppið að hljóta
stig. Greinilegt að leikmenn liðs-
ins eru með hugann við úrslita-
leik skozka bikarsins við Rangers
7. maí sagði fréttamaður BBC.
Jafntefli varð 1-1. Roy Aitken
skoraði fyrir Celtic á 12. mín.
Partick jafnaði, þegar langt var
liðið á leikinn — eftir mikil
varnarmistök. Þá bjargaði
McGrain eitt sinn á marklínu
Celtic. Jóhannes Eðvaldsson lék
ekki með Celtic að þessu sinni og
báðir varamenn liðsins, Paul Wil-
son og Tommy Burns komu inn á.
Úrslit í skozku úrvalsdeildinni
urðu þessi.
Ayr — Hearts 1-1
Dundee U. — Rangers 0-1
Hibs — Kilmarnock 0-0
Motherwell — Aberdeen 1-3
Partick — Celtic 1-1
Staðan er nú þannig:
Celtic 34 22 8 4 75-36 52
Rangers 35 18 10 7 60-36 46
Aberdeen 35 15 11 9 54-41 41
Dundee U 34 15 8 11 51-43 38
Hibernian 35 8 18 9 34-34 34
Partick 35 10 13 12 39-44 33
Motherw. 33 10 10 13 52-54 30
Ayr 35 11 8 16 44-66 30
Hearts 35 6 13 16 46-64 25
Kilmarn. 35 4 8 23 31-69 17
KR sigraði
í 2. flokki
KR sigraði i íslandsmóti 2.
flokks karla — en úrslitakeppnin
var háð á Akureyri um helgina.
Armann varð í öðru sæti,
Víkingur þriðja, en KA rak
lestina. Nánar síðar.
Fyrsta golfmót sumarsins var háð á Hvaleyrarvelli
Þar skiptust á
skin og skúrir
—glæsileg spilamennska
íslandsmeistarans var til lítils
Fyrsta golfmót ársins, Uni-
royalkeppnin, fór fram á Hval-
eyrarvelli í gærdag. Segja má
með sanni, að skipzt hafi á skin og
skúrir í keppninni og varð hún all
söguleg. j
Björgvih Þorsteinsson, Islands-
meistarinn frá Akureyri, kom inn
á langbezta skorinu, eða þrem
höggum yfir pari, þrátt fyrir tvö
vítishögg, eitt í hvorum hring. En
„Adam var ekki lengi i Paradís”.
Það kom upp úr kafinu, að vallar-
reglur voru ekki þær sömu og
giltu á sl. ári og var Björgvin (og
reyndar fleiri), dæmdur frá
keppni, þar sem hann hafði mis-
skilið orðalag nýju reglnanna.
Næstir Björgvin komu þeir
Geir Svunsson, GR, og Sigurjón
Gíslason, GK, báðir á 79 höggum.
Þeir háðu bráðabana sem lyktaði
með sigri Geirs, eftir að hann
hafði rekið niður 5 metra pútt og
það á lélegustu flöt vallarins.
Þriðji í keppninni varð Hannés
Eyvindsson, GK, á 82 höggum.
í keppninni með forgjöf sigraði
Eyjólfur Jóhannsson, GK, á 72
höggum nettó. Annar varð Árni
Öskarsson, Golfklúbbi Selfoss á
75 höggum, en jafnir í þriðja sæti
urðu þeir Sveinn Snorrason, GR,
og Sveinn Sigurbergsson, GK, og
verða þeir að leika unTþað sæti. ,
Að vanda gaf Bert Hansson,
umboðsmaður Uniroyal á íslandi,
veglega verðlaunagripi til keppn-
innar, en þetta er í fjórða sinn
sem Uniroyalkeppnin 'er háð á
Hvaleyrarvelli.
Annað árið sem keppnin var
haldin brá svo við, að snjóa fór
um hádegisbil og olli það
keppendum erfiðleikum, eins og
lög gera ráð fyrir. I gær fengu
keppendur að reyna golfleik í svo
til öllum veðrum sem ísland
hefur upp á að bjóða, nema logni,
svo notuð séu orð Jóns Marínós-
sonar, sem sleit mótinu með
stuttri ræðu, eftir að hann hafði
tilkynnt um sigurvegarana.
Eins og fyrr segir fengu sigur-
vegararnir og þeir sem næst þeim
komust veglega verðlaunagripi,
en allir 84 þátttakendurnir í
þessu fyrsta golfmóti sumarsins
fengu golfbolta frá Islenzk-
Ameríska, sem Bert Hansson
veitir forstöðu. rl.
FH-ingar
sigursælir
FH-ingar voru mjög sigursælir
í Drengjahlaupi Ármanns 1 gær. 1
eldri flokknum — drengir 14 til
19 ára — urðu úrslit þessi:
1. Einar Guðmundsson, FH 7:16.5
2. Gunnar Þ'. Sigurðss., FH 7:25.0
9. Oskar Guðmundson, FH. 7:39.3
4. Ingvi Guðmundsson, FH, 7:57.0
Þeir Einar og Öskar eru
bræður. I 3ja og 5 manná sveitum
sigraði FH með 6 og 17 stigum.
UBK hlaut 19 og 38 stig.
I yngri flokknum — drengir'
fæddir 1964 og síðar urðu úrslit
þessi:
iringvar Þórðarson, FH 4:38.7
2. Albert Imsland, Leikni, 4;40.b
3. Guðm. Hertevig, FH. 4:48.3
I 3ja manna sveitakeppni
sigraði FH með 10 stigum, IR
hlaut 15. I 5 manna sveitakeppni
sigraði IR með 29 stigum. FH
hlaut 30. Vegalengain 1 flokknum
var 2.3 km, en 1200 metrar 1 yngri
flokknum.
Bert Hansson lengst til vinstri, ásamt nokkrum verðlaunahöfum. Þeir eru: Geir Svansson, GR, Sigurjón Gísiason, GK, Hannes Eyvindsson,
GK og Sveinn Sigurbergsson, GK, sem reyndar á eftir að heyja „bráðabana” við nafna sinn Snorrason. DB-mynd Hörður.
Standard vann efsta liðið
Standard vann öruggan sigur á
efsta liðinu í 1. deild, FC Brugge,
á leikvelli sinum í Liege i gær-
kvöld. 2-0 og þeir Riedel og Piot
skoruðu mörk Standard. Mark-
vörðurinn úr vítaspyrnu. Þetta
var ekkert sérstakur leikur, sagði
Stefán Halldórsson, þegar blaðið
ræddi við hann í morgun, en hann
horfði á leikinn ásamt Guðgeiri
Leifssyni. Standard var betra
liðið — en lcikmcnn Brugge virk-
uðu þre.vttir.
Þrátt fyrir tapið er Brugge
öruggt um meistaratitilinn. Liðið
hefur 45 stig. Molenbeek og
Anderlecht 40, Standard 38 og
Lokeren 36. Charleroi tapaði á
heimavelli fyrir Lierse. Guðgeir
kom inn sem varamaður.
Okkur hjá Union gekk mjög
vel. Sigruðum Malines á heima-
velli 5-1 í gær, sagði Marteinn
Geirsson. Stanley skoraði fyrsta
mark Union, en Malines jafnaði.
Síðan skoruðu Philip, Andre
Denul, Ordonez og Stanley. Eg lék
allan leikinn, sagði Marteinn, en
Stefán var varamaður. Boom er
nú efst í 2. deild með 36 stig, en
Union og Eisden hafa 34 stig.
Næsta laugardag leikur Union á
útivelli við La Louviere, en Boom
á útivelli við Eisden.
í ágúst er fyrirhugað, að Union
taki þátt í hraðmóti í Svíþjóð. Þar
leika sænsku meistararnir Halm-
stad, Union og Chelsea og
Tottenham frá Englandi, sagði
Marteinn að lokum.
Úrslit í 1. deildinni belgisku
urðu þessi:
Antwerpen — Molenbeek 0-0
Malinois — Ostende 4-1
Courtrai — Waregem 0-2
Charleroi — Lierse 0-2
Anderlecht — Beerschot 1-0
Lokeren — Beringen 7-0
CS Brugge — Beveren 1-1
Winterslag — FC Liege 5-0 •
Standard — FC Brugge 2-0
19
D AGBLADID. MANUDAGUR 25. APRIL 1977.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Verðlaunahafar fagna — Guðmundur Sigurðsson gullhafi Islands er kampakátur ásamt Pekka Niemi frá Finnlandi er hafnaði í öðru sæti
og Jon Marsen frá Noregi er hlaut bronsið. DB-mynd Bjarnleifur.
, Tvö gull til
íslands á NM
— Guðmundur Sigurðsson og Gústaf Agnarsson tryggðu
íslandi gull — Árni Þór Helgason krœkti í silfur
ísland eignaðist tvo Norður-
landameistara um helgina — sína
fyrstu í lyftingum á Norðurlanda-
mótinu sem fram fór í Reykjavík
um helgina. Tvö gull — til þeirra
Guðmundar Sigurðssonar og
Gústafs Agnarssonar. Auk þess
hlaut ísland silfurverðlaun og
bronsverðlaun — sannarlega góð
útkoma og sú bezta hjá íslending-
um á NM til þessa.
tsland missti hins vegar af
þriðja sætinu í stigakeppni þjóð-
anna — hafnaði í fjórða sæti á
eftir Dönum. En það var sannar-
lega að ástæðulausu. Fyrir slæm
mistök mætti Kári Elísson of
seint í nafnakall — nokkuð sem
kom flatt upp á íslendingana og
um leið missti ísland af dýrmæt-
um stigum — stigum, sem þegar
að keppni lokinni hefðu fært Is-
landi þriðja sætið, Finnar hlutu
flest stig þjóðanna á NM — 101,
Svíar 90, Danir 70, Islendingar 66
og Norðmenn 33.
Norðurlandameistaratitlarnir
unnu sannarlega upp vonbrigðin
með þriðja sætið — og gott betur
að sjálfsögðu. Sigrar þeirra félaga
— Guðmundar Sigurðssonar og
Gústafs Agnarssonar voru örugg-
ir. Guðmundur sigraði í 100 kilóa
flokknum — hann lyfti samtals
325 kílóum. Hann var nokkuð frá
sínu bezta — lét öryggið sitja
fyrir. Guðmundur lyfti 140 kíló-
um í snörun — og 185 kílóum í
jafnhöttun — og NM titillinn varð
hans. Sannfærandi sigur, því
þrátt fyrir að Pekka Niemi frá
Finnlandi lyfti 322,5 kg var sigur
Guðmundar öruggur. Hann átti
tilraunir við meiri þyngd — en
tókst ekki.
Gústaf Agnarsson varð einnig
öruggur sigurvegari — lyfti sam-
tals 337,5 kg. í 110 kíló.a flokkn-
um. Gústaf hafði yfirburði — lyfti
152,5 kg í snörun og síðan 185 kg í
jafnhöttun — samtals 337,5.
Gústaf reyndi að bæta þann
árangur — reyndi við 162,5 kg í
snörun og 200 kg í jafnhöttun en
missti. En NM titillinn varð
Gústafs — annar varð Jan-Olaf
Norsjövs frá Svíþjóð — lyfti sam-
tals 327,5 kg.
Sá keppandi sem mest kom á
óvart var vafalítið Arni Þór
Helgason sem bætti árangur sinn
verulega og krækti sér í silfur-
verðlau'n í 90 kg flokknum. Hann
lyfti samtals 300 kg, sem er hans
langbezti árangur. Finninn
Johnny Avelfan sigraði en hann
lyfti samtals 325 kg.
Evrópumeistarinn í kúluvarpi,
Hreinn Halldórsson, hlaut brons á
NM í yfirþyngdarflokki en hann
lyfti samtals 310 kg — 140 og 170.
Þar varð sigurvegari Svíinn Leif
Nielsen en hann lyfti 382,5 kg.
Annar varð Jakko Leppa frá
Finnlandi en hann lyfti 370 og
bronsið hlaut Hreinn.
Haraldur Ólafsson hafnaði í
fjórða sæti í 52 kg flokknum en
hann lyfti 140 kg — sigurvegari
þar varð Svíinn Viko Kontinen en
hann lyfti 197,5 kg. I 56 kg flokkn-
um náði Viðar Eðvarðsson ekki
byrjunarþyngd — en þar varð
sigurvegari Svíinn Perti Torikka
en hann lyfti 215 kg samtals. Kári
Elísson varð síðan af keppninni í
60 kg flokknum vegna slæmra
mistaka. Þar varð sigurvegari
Kahelien frá Finnlandi en hann
lyfti 235 kg.
Enginn þátttakandi var frá
Islandi í 67,5 kg flokknum en
sigurvegari þar varð Salakka frá
Finnlandi — lyfti 255 kg. Már
Vilhjálmsson varð fjórði í 75 kg
flokknum, lyfti 255 kg. Þar varð
sigurvegari Arvo AlaPönlia frá
Finnlandi — lyfti 305 kg. Hjörtur
Gíslason hafnaði í sjöunda sæti í
milliþyngdarflokki — lyfti 277,5
kg samtals — en þar varð sigur-
vegari Stefán Jacobsson frá
Svíþjóð — hann lyfti 315 kg.
Olafur Sigurgeirsson hafnaði í
fjórða sæti i 90 kg flokknum.
Hann var nokkuð frá sínu bezta.
Lyfti samtals 250 kg. Var meiddur
á hendi og blæddi úr, er hann
réyndi með lóðunum.
Síðan kom í fjórum þyngstu
flokkunum — silfur — gull —
gull — brons — sannarlega góður
árangur Islands. h. halls
Gullhafi íslands — Gústaf Agnarsson á verðlaunapalli. DB-mynd
Bjarnleifur.
Steua Evrópu-
meistari
Rúmensku meistararnir Steua
Búkarest tryggðu sér sigur i
Evrópukeppnl meistaraliða í
handknattleik er Rúmenarnir
sigruðu sovézku meistarana
CSKA frá Moskvu 21-20 í úrsiita-
leik sem fram fór í Sindelfingen í
V-Þýzkalandi.
Steua Búkarest hafði undirtök-
in i fyrri hálfeik og hafði yfir í
leikhléi 14-9. Sovétmennirnir
komu tvíefldir til síðari hálfleiks
og söxuðu á forskot Rúmenanna
— en þeir ætluðu sér of mikið.
Steua Búkarest varð því Evrópu-
meistari í handknattleik í ár.
Eintracht
setti met
Eintracht Frankfurt setti nýtt
met i 1. deildinni vestur-þýzku á
laugardag. Lék þá sinn 18. leik án
taps — og sigraði Kaisersiautern
2-1. Borussia Mönchengladbach
átti fyrra metið, 17 leiki án taps.
Úrslit í Þýzkalandi urðu þessi.
Karisruhe — Saarbrucken 3-0
Borussia — Hamborg 0-0
Dortmund — Brunswick 0-0
Bayern — Essen 3-1
Hertha — Köln 2-2
Kaiserslautern — Frankfurt 1-2
Bremen — Dusseidorf 0-2
Bochum — Ten. Berlín 2-1
Sigur Frakka
íGenf!
Frakkar sönnuðu enn á laugar-
dag að þeir eru á góðri leið með
að festa sig i sessi sem ein sterk-
asta knattspyrnuþjóð Evrópu.
Þeir léku á laugardag við Sviss-
lendinga og fór leikurinn fram í
Genf i Sviss — og sigruðu
Frakkar öruggiega 4-0. Þessi
sigur er Frökkum afar kærkomé
inn eftir hið óvænta tap Frakka í
Dublin á dögunum i undankeppnl
HM. Tengiliðurinn Michael
Platini átti stjörnuleik —
nákvæmar sendingar hans komu
Sviss í opna skjöldu. Platini
skoraði eina mark fyrri hálfleiks
beint úr aukaspyrnu. Síðan bættu
þeir Six, Rochetaue og Rouyer við
þremur mörkum i síðari hálfleik
— tvö hin síðustu komu á fjórum
síðustu minútum leiksins.
Víkingur
hélt sætinu
Vikingur hélt sæti sínu í 1.
deild kvenna. Sigraði Grindavik i
báðum leikjunum um sætið í 1.
deild Á laugardag var leikið i
Njarðvíkum og sigraði Víkingur
20-13—en í fyrri leiknum í Laug-
ardalshöll sigraði Vfkingur með
19-9.
HK komst f
2. deild
Handknattleiksfélag Kópavogs
(HK) tryggði sér rétt til að leika i
2. deild næsta keppnistímabil.
Sigraði Dalvfk fyrir norðan 24-21
á laugardag. Leiknir og Dalvfk
munu leika um sæti í 2. deild.
Fyrri leikurinn verður nú á mið-
vikudag kl. 7.45 f Laugardalshöll,
en síðari lelkurinn á Akureyri á
föstudag.
Dregið hefur verið í undanúr-
slit bikarkeppni HSl. A miðviku-
dag kl. 21 leika vaiur — í
Laugardalshöll, en nk. mánudag
Þróttur og sigurvegarinn úr leik
KR — Fram, sem er i Laugardals-
höll í kvöld. I kvöld verður einnig
bikarleikur Armanns — KR i
kvennaflokki kl. átta. A fimmtu-
dag leika KR og Þróttur síðari
leik sinn um réttinn til að leika í
1. deild karla næsta keppnistima-
bil. KR sigraði i fyrri leiknum
15-14. Úrslitaleikurinn i bikar-
keppni HSl verður miðvikudag-
inn 4. maí, en keppnisstaður er
enn ekki ákveðinn.